Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1989, Síða 27
LAUGARDAGUR 18. MARS 1989.
Hinhliðin
:: ....
Vernharöur Linnet segir að allt sem komi frá Tuborg-verksmiðjunum sé í uppáhaldi hjá sér.
DV-mynd Brynjar Gauti
Fyndið að horfa á
spumingakeppnina
- segir Vernharður linnet dagskrárgerðarmaður
Vernharður Linnet hefur undan-
farið séö um spumingakeppni
framhaldsskólanna í Sjónvarpinu.
Keppnin hefur vakið mikla athygli
og bæði fengið hrós og skammir.
Vernharður Lkinet lætur það lítt á
sig fá enda starfaði hann sem kenn-
ari í átján ár áður en hann hóf störf
hjá Ríkisútvarpinu. Þar er hann í
fullu starfi og sér um Útvarp unga
fólksins. Nú er keppni framhalds-
skólanna lokið svo varla verður
rifist meira um hana núna en það
er Vemharður sem sýnir á sér hina
hhðina að þessu sinni.
Fullt nafn: Vemharður Linnet.
Fæðingardagur og ár: 31. ágúst
1944.
Maki: Enginn sem stendur. Ég er
fráskihnn.
Börn: Ég á tvo syni, Hinrik og
Stein, sem em 8 og 10 ára gamhr.
Bifreið: Ég ek um á Mazda ’83 sem
konan mín fyrrverandi lánaði mér.
Starf: Dagskrárgerðarmaður.
Laun: Ég er með opinber laun. Það
vita allir hver þau em.
Áhugamál: Djass.
Hvað hefur þú fengið margar tölur
réttar í lottóinu? Ég hef fengið
mest þijár tölur réttar.
Hvað finnst þér skemmtilegast að
gera? Það er margt en ekkert er
skemmtilegra en að hlusta á góðan
djass í góðum vinahópi. Einnig
finnst mér stórkostlegt að vinna
með bömum og unghngum enda
var ég kennari í Þorlákshöfn í tólf
ár og í Breiðholti í tvö ár. Böm og
unghngar gefa mér mjög mikið.
Hvað finnst þér leiðinlegast að
gera? Að vinna að einhverju sem
ekki þarf að hugsa yfir og hanga í
aðgerðarleysi. Ég þarf ahtaf að vera
á fullu.
Uppáhaldsmatur: Ég held ég segi
að það sé bara fullkomlega vel
hangið lambalæri, sem er vel ma-
treitt, þannig að það sé meyrt og
rósrautt.
Uppáhaldsdrykkur: Allt sem kem-
ur frá Tuborg-verksmiðjunum,
sem er mín verksmiðja, eða eins
og Storm P. sagði: „Hvenær bragð-
ast Tuborg best - alltaf.” Ég bjó
lengi í Danmörku og þá kynntist
ég Tuborg.
Hvaða íþróttamaður stendur
fremstur í dag? Nautabaninn Ninja
De La Capa frá Spáni.
Uppáhaldstímarit: Það er djass-
tímaritið Down Beat.
Fallegasta kona sem þú hefur séð?
Brigitte Bardot - ég er orðinn svo
gamall.
Hlynntur eða andvígur ríkisstjórn-
inni: Andvígur.
Hvaða persónu langar þig mest að
hitta? Mhes Davis.
Uppáhaldsleikari: Lárus heitinn
Pálsson.
Uppáhaldsleikkona: Kristbjörg
Kjeld.
Uppáhaldssöngvari: Louis Arm-
strong.
Uppáhaldsstjórnmálamaður: Len-
ín.
Hlynntur eða andvigur hvalveiðum
íslendinga: Hlynntur.
Uppáhaldssjónvarpsefni: Góð leik-
rit eru í uppáhaldi hjá mér. Nei,
spurningakeppnin er ekki í uppá-
haldi en mér finnst stundum fyndið
að horfa á keppnina.
Hlynntur eða andvígur veru vam-
arliðsins hér á landi: Andvígur.
Hver útvarpsrásanna finnst þér
best? Ég hlusta sjaldan á útvarp en
þá á rás eitt.
Uppáhaldsútvarpsmaður: Jón Múh
Ámason.
Hvort horfir þú meira á Stöð 2 eða
Sjónvarpið? Sjónvarpið.
Uppáhaldssjónvarpsmaður: Það er
Randver Þorláksson leikari. Mér
þykir hann mjög skemmtilegur
þegar hann hermir eftir mér í Stöð
89.
Uppáhaldsskemmtistaður: Duus
hús.
Uppáhaldsfélag í íþróttum: Leiknir
í Breiðholti að sjálfsögðu. Sonur
minn leikur með því hði.
Stefnir þú að einhverju sérstöku í
framtiðinni? Að lifa í sátt við sjálf-
an mig.
Hvað gerðir þú í sumarfríinu? Ég
fór með fjölskylduna tíl Costa del
Sol í hálfan mánuð. Við erum mjög
góðir vinir, ég og fyrrverandi eigin-
kona mín, og við fórum saman með
synina í sumarleyfi. Næsta sumar
ætla ég aö fara á Norðursjávar-
djassfestivahð í Haag, sem verður
í júh.
-ELA
ÍBR KRR
REYKJAVÍKURMÓT
MEISTARAFLOKKUR KARLA
sunnudag 19. mars
kl. 20.30
VALUR - ÍR
Á GERVIGRASINU í LAUGARDAL
Hreinlætis-
tækjahreinsun
Hreinsa kísil og önnur óhreinindi af hreinlætis-
tækjum og blöndunartækjum. Sértilboð á
stykkjafjölda. Fljót og góð þjónusta.
Verkpantanir daglega milli kl. 11 og 19 í síma
72186.
Hreinsir hf.
VBStUSUIR
OC VHTIKGM
Viö höfum vistlega og þægilega
veislusali fyrir 10-120 manns.
Salirnir henta vel fyrir rádstefnur
og hvers konar samkvæmi, t.d.
árshátídir, brúdkaupsveislur o.fl.
Allar veitingar.
Vettinoahú/ið
GAft-mn
* V/REYKJANESBRA UT, HAFNARFIRÐI
SÍMAR 54477, 54424