Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1989, Side 30

Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1989, Side 30
46 Skákogbridge LAUGARDAGUR 18. MARS 1989. DV Frábær frammistaða Margeirs í Lugano - varð efstur ásamt Kortsnoj, hálfum öðrum vinningi fyrir ofan næstu menn Tveimur dögum eftir aö Fjarka- mótinu á Hótel Loftleiöum lauk voru Margeir Pétursson og Karl Þorsteins komnir um borð í flugvél á leið til Lugano í Sviss. Opna mótiö þar dreg- ur jafnan til sín marga skákmeistara og sumir koma ár eftir ár, sem hljóta að teljast meðmæli með mótinu. ís- lendingar munu ekki hafa verið á þátttakendalistanum fyrr enda hefur oftast hist þannig á að alþjóðamót í Reykjavík hefur verið haldið á sama tíma. Um tvö hundruð keppendur tefldu í opnum flokki, þar af 28 stórmeistar- ar sem margir hverjir sjá áreiðanlega eftir því að hafa ekki setið heima. Þannig tapaði Robert Hiibner skák sinni í fyrstu umferð gegn Maus í aðeins 19 leikjum en til að gæta sann- girai ber að taka fram að Hubner tefldi nú í fyrsta sinn á ferlinum í opnu móti. Stórmeistararnir John Nunn, Gyula Sax, Predrag Nikolic og Yasser Seirawan þurftu einnig aö þola mótbyr og sömu sögu er að segja um góðkunningja okkar, Bent Lars- en, sem hafnaði í miðjum hópi. í fyrstu leit út fyrir að sovéski stór- meistarinn Konstantín Lemer ætlaði aö stinga af með sigurinn því að hann vann fimm fyrstu skákir sínar. En í sjöttu umferð mætti hann Viktor Kortsnoj, grimmum á svip, sem hafði hálfum vinningi minna og þurfti ekki að spyija að leikslokum. Þar með var Kortsnoj orðinn efstur ásamt Mar- geiri Péturssyni en þeir tveir reynd- ust bera höfuð og herðar yfir aðra skákmenn á mótinu. Innbyrðisskák þeirra í 5. umferð lauk með jafntefli eftir miklar sviptingar og síðan sigu þeir hægt og bítandi fram úr keppi- nautunum. Niðurstaðan varð sú að Margeir og Kortsnoj urðu efstir með 8 v. af 9 mögulegum sem er sérdeildis frábær árangur - næstu menn höfðu hálfum öðrum vinningi minna. Þessi sigur er enn ein rósin í hnappagat Mar- geirs á stuttum tíma. Frábær árang- ur hans á opna „lestarstöðvarmót- inu“ í Belgrad í lok ársins, 2. sæti á Fjarkamótinu og árangurinn nú í Lugano hafa fleytt honum langt upp eftir Eló-listanum og nú slagar að- stoðarmaðurinn að líkindum hátt í meistara Jóhann sem hefur verið ófarsæll í upphafi árs. Viktor Kortsnoj viröist nú endan- lega hafa tryggt sig í sessi sem óað- skiljanlegur hluti íslenskrar skák- sögu. Eldri skákunnendur muna þaö eins og gerst hafi í gær er Friðrik Ólafsson og Kortsnoj deildu sigrin- um á jólaskákmótinu í Hastings 1955-’56 - sem var fyrsti alvörusigur Friðriks í útlandinu. Síöan kom ein- vigið fræga í Saint John við Jóhann og nú var röðin komin að Margeiri. Kortsnoj mun hafa verið ljúfur sem lamb í Lugano og skoðuöu þeir Mar- geir skák sína lengi að henni lok- inni. Væringarnar í Saint John virð- ast löngu gleymdar, enda hefur „sá gamh“ meymað með árunum. Staða efstu manna í stigaröð varð þessi: l. -2. Viktor Kortsnoj og Margeir Pét- ursson 8 v. 3.-15. Lautier (Frakklandi), de Firm- ian (Bandaríkjunum), Gheorghiu (Rúmeniu), Miles (Bandaríkjunum), Tsernín (Sovétríkjunum), King (Englandi), Knaak (Austur-Þýska- landi), Douven (Hollandi), Rogers (Ástralíu), Lars B. Hansen (Dan- mörku), Piket (Hollandi), Marinelli (Ítaiíu) og Mascarinas (Filippseyjum) 6,5 v. Með 6 v. voru m.a. Hort (V-Þýska- landi), Lemer (Sovétríkjunum), Bönsch (Austur-Þýskalandi), Wed- berg (Svíþjóð), Browne (Bandaríkj- unum), Wilder (Bandaríkjunum) og Klinger (Austurríki).. Karl Þorsteins byrjaöi vel á mótinu og hafði hlotið 3,5 v. eftir 5 umferðir, m. a. eftir skákir við Seirawan og Lemer. í 6. umferð tapaði hann hins vegar fyrir stærðfræðisnillingnum Nunn og eftir það náöi hann sér ekki aftur á strik. Karl hlaut 4,5 v. af 9 mögulegum gegn sterkum mótherj- um, sem er árangur í samræmi viö stigatölu hans. Jafnteflisboð í 2. leik Sigur á svo fjölmennu móti vinnst ekki nema með talsverðri heppni, því aö engir tveir menn eru í raun að tefla í sama mótinu. Óhætt er að segja að Margeir hafi fengið viðráð- anlega mótherja, miðað við þann stjömufans sem þar tók þátt. Meðal- stig mótheija hans voru 2430, sem telst til áttunda styrkleikaflokks. Þess má geta að meðalstig Fjarka- mótsins vom talsvert hærri en það varð líka miklu sterkara en ætlunin var. Margeir var seinn að komast í gang. 12. umferð tefldi hann við bróð- ur Predrags Nikolic, stórmeistarans kunna, og fljótlega eftir byrjunina tókst honum að tapa tveimur peðum. Taflið var tapað en í tólf síðustu leikj- unum fyrir tímamörkin skilaði Júgó- slavinn peðunum aftur og tveimur til viðbótar! Biðstaðan eftir 40 leiki var gjörunnin hjá Margeiri. Eftir þessa byrjunarörðugleika fór hins vegar allt að ganga upp og Mar- geir tefldi af miklu öryggi. Hann mætti fjórum stórmeisturum, Lemer og Kortsnoj, sem hann gerði jafntefli við, og Barbero og Gheorghiu, sem urðu að játa sig sigraða. Margeir var sérstaklega ánægður með skák sína við Gheorghiu, sem er kunnur í skákheiminum fyrir óíþróttamannslega framkomu. í skákinni kom fyrir kyndugt atvik: Er Margeir hafði leikið sinn 2. leik stóð hann upp frá borðinu og hugðist fá sér kaffi. Gheorghiu gerði sér lítið fyrir og elti hann fram á gang til að bjóða honum jafntefli! Margeir hafn- aði boðinu kurteislega og yfirspilaði síðan rúmenska stórmeistarann. Gheorghiu hefði getað gefist upp er skákin fór í bið en vildi ekki sættast á hið óumflýjanlega. Eftir 47 leiki skrifaði hann loks nafnið sitt undir pappírana og yfirgaf salinn, án þess þó að taka í hönd Margeirs og þakka honum fyrir kennslustundina. Hvítt: Margeir Pétursson Svart: Florin Gheorghiu Kóngsindversk vörn 1. d4 Rf6 2. c4 c5 3. d5 g6 4. Rc3 d6 5. e4 Bg7 6. Rf3 0-0 7. h3 e6 8. Bd3 Ra6 Rúmenski stórmeistarinn lék þennan leik eftir langa umhugsun, eins og hann grunaði Margeir um græsku í aðalafbrigðinu, sem hefst með 8. - exd5 9. exd5 He8+ 10. Be3 o.s.frv. Margeir átti í hasli með að mæta þessu er sveit Taflfélags Reykjavíkur sótti rúmensku meist- arana í Búkarest heim en Gheorghiu vildi ekki komast að því hvort hann hefði lært sína lexíu. 9. 0-0 Rc7 10. a4 e5 Óvenjuleg leikaöferð og varla mjög til eftirbreytni. Svörtu mennirnir eiga í næstu leikjum í erfiðleikum með að hitta á réttu reitina. 11. Bg5 Dd7 12. Rh2 Rh5 13. Df3 Re8 14. Re2 Bf6 15. Bxf6 Rhxf6 16. De3 De7 17. a5 Kg7 Margeir hefur fengið rýmra og þægilegra tafl en Gheorghiu verst vel í framhaldinu. Þó er þessi kóngsleik- ur dálítiö dularfullur. 18. Bc2 Rc7 19. f4 exf4 20. Rxf4 Rd7 21. Rf3 f6 22. Ba4 Re5 23. Rxe5 fxe5 24. Rd3 Hxfl + 25. Hxfl Bd7 26. Bxd7 Dxd7 27. b4 b6 28. Hbl Ra6 29. b5 Rc7 30. Hfl bxa5? Ekki er svartur öfundsverður af stöðu sinni sem verður þrengri og óyndislegri með hveijum leiknum. Hins vegar hefur hann nokkuð náð að treysta vamir sínar og með „Mar- geirslegri varnarseiglu" hefði hann áreiðanlega getað gert hvítum afar erfitt fyrir að bæta stöðu sína frekar. Áður en Gheorghiu lék þennan ör- lagaríka leik átti hann 15 mínútur eftir af umhugsunartímanum en af þeim fóru 7 mínútur á leikinn sem er slæmur. Skák Jón L. Árnason 31. Rxc5! dxc5 32. Dxc5 Fljótt á litið verður ekki komið auga á vöm fyrir svartan. Hvítur hótar 33. d6 og taka síðan á e5 með skák og þar á eftir færi peðaskriðan af stað. Riddari svarts er leiklaus. Ekki verður mælt með 32. - Re8?? vegna 33. DfB mát. 32. - Hd8 33. Dxa7 Rxb5 Ákveöur að gefa manninn strax til baka en niðurstaöan verður tapað hróksendatafl. 34. Dxd7+ Hxd7 35. cxb5 Hb7 36. Hbl a4 37. Kf2 a3 38. Hal Hxb5 39. Hxa3 Kf6 40. h4 Hb6 41. g4 Hér fór skákin 1 bið og svartur lék biðleik. Gheorghiu hefði getað gefið taflið með góðri samvisku en hann vildi ekki sætta sig við ósigurinn. Þvi tefldi hann lengi áfram en Margeir átti ekki í vandræðum með að inn- byrða vinninginn. 41. - h5 42. g5+ Ke7 43. Ke3 Kd6 44. Kd3 Hbl 45. Ha6+ Kc5 46. Hc6+ Kb5 47. He6 Hb3+ 48. Kc2 Hh3 49. Hxe5 Hxh4 50. Kd3 Hg4 51. Kd4 h4 52. He8 Hxg5 53. Hb8+ Ka6 54. Hh8 Hh5 55. Hxh5 gxh5 56. Ke3 h3 57. Kf2 Og nú loks, er Gheorghiu hafði full- vissað sig um það að kóngur hvíts nær að hlaupa frelsingjann uppi gafst hann upp. Lítum að lokum á skemmtilega skák milh tveggja sókndjarfra stór- meistara. Það er austur-þýski stór- meistarinn Rainer Knaak sem fer á kostum: Hvítt: Rainer Knaak Svart: John Van der Wiel Slavnesk vörn, Botvinnik afbrigðið. 1. d4 d5 2. c4 c6 3. Rf3 Rf6 4. Rc3 ef 5. Bg5 dxc4 6. e4 b5 7. e5 h6 8. Bh4 g5 9. Rxg5 hxg5 10. Bxg5 Rbd7 11. g3 Hgf 12. h4 Hxg5 13. hxg5 Rd5 14. g6! fxgf 15. Dg4 Da5 Þetta hasarfengna afbrigði má all! finna í bókunum en síðasti leikui Hollendingsins er nýr af nálinni Vinningur á tvo vegu Sum spil bjóða upp á ótrúlega skemmtilega möguleika og er þetta spil dæmi um það. Eftir mikla sagn- baráttu endar suður í sex hjörtum. Vestur, sem studdi tígul austurs, spilar út tígultvisti, suður lét tíuna, austur gosann og sagnhafi trompar heima. Nú spilar sagnhafi trompi á tíuna og austur sýnir eyðu. * D43 V KG10 ♦ D1093 + Á76 ♦ 5 V 6432 ♦ K62 + D10954 ♦ ÁK82 V ÁD9875 ♦ - _ + KG2 Noröur Austur Suður Vestur 1+ 14 2» Pass 3» 34 Dobl 44 Dobl Pass 4* Pass 5* Pass 6* P/h Sagnir sýna að vegna þess hve trompin liggja illa er spaðatapslagur í spilinu. Austur á líklega 6-5 í tigli og spaða og í fljótu bragði virðist sem best sé að leggja möguleikana á lauf- drottningu hjá austri. En þar sem Bridge ísak Sigurðsson vestur spilaði út tígultvisti er næsta víst að hann á háspil í tígli. Ef hann á það er hægt aö þvinga austur. Suð- ur ætti aö spila sig inn í blindan á tromp og spila tíguldrottningu og henda laufi ef austur leggur ekki á. Vestur inni á kóng, gerir best í að spila tígh til baka og litill tígull úr blindum. Sagnhafi trompar, spilar restinni af trompunum og tekur á kóng og ás í laufi. Austur stenst ekki þrýstinginn þegar laufásinn er tek- inn, getur ekki passað tígulásinn og fjóra spaða. Það skemmtilega við spilið er að hægt er aö vinna það einnig með öfugum blindum og endaspilun á vestur. Sagnhafi trompar alla tígla norðurs og þann síðasta hátt, hendir spaða í síðasta tromp bhnds og sphar spöðunum þar til vestur trompar. Vestur verður síðan að spila laufi upp í svíningu. Bridgesamband íslands Búið er að draga um töfluröð sveita í úrshtum íslandsmótsins í sveita- keppni og töfluröðin er eftirfarandi: A-riðill 1. Bragi Hauksson 2. Flugleiðir 3. Samvinnuferðir/Landsýn 4. Stefán Pálsson 5. Delta 6. Modem Iceland 7. Pólaris 8. Sigfús Örn Ámason » liiua/b V -- ♦ ÁG8754 -1. oo

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.