Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1989, Page 31
LAUGARDAGUR 18. MARS 1989.
47
Skákogbridge
Margeir Pétursson og Viktor Kortsnoj deildu sigrinum á opna mótinu
í Lugano með 8 v. af 9 mögulegum.
Áður hefur verið reynt 15. - De7 16.
Dxg6+ Df7 og eftir drottningakaup á
hvítur heldur betra tafl.
16. Dxe6+ Kd8
Nú er 17. Dxc6? slæmt vegna 17. -
Rxc3 og eftir 17. Hcl ætti svartur
ágæt gagnfæri. Knaak finnur stór-
spjalla lausn á vandamálum stöð-
unnar.
17. Bg2! Rxc3 18. Kfl!!
Á kostnað riddara hefur hvítur náð
að koma kóngnum í sæmilegt skjól
og nú nær hann öflugu frumkvæði.
18. - Rd5 19. Dxc6 R5b6 20. Hh8 Db4
21. e6! Hb8 22. exd7 Rxd7 23. a3! De7
Ekki gengur 23. - Dxb2 vegna 24.
Hel! og hótanirnar eru of margar.
24. Dxg6 Hb6 25. Dh5 Hf6 26. Hel Dd6
27. He8+ Kc7 28. Dh4 Rb6 29. De4 Rd7
30. Hh7 b4 31. axb4 Da6 32. De5+ Dd6
33. Bh3!
Og Van der Wiel gafst upp.
-JLÁ
B-riðill
1. Sjóvá/Almennar
2. Júhus Snorrason
3. Jón Steinar Gunnlaugsson
4. Sigurður Vilhjálmsson
5. Ragnar Jónsson
6. Kristján Guðjónsson
7. Jón Ingi Ingvarsson
8. Jörundur Þóröarson
Úrslitin verða spiluð 22.-25. mars á
Hótel Loftleiðum. Tímasetning um-
ferðanna er eftirfarandi: Fyrsta um-
ferð 22. mars kh 13.00. Önnur umferð
22. mars kl. 19.30. Þriðja umferð 23.
mars kl. 13.00. Fjórða umferð 23.
mars kl. 19.30. Fimmta umferð 24.
mars kl. 13.00. Sjötta umferð 24. mars
kl. 19.30. Sjöunda umferð 25. mars
kl. 13.00.
Spilin í A-riðli verða tölvugefm og
röðuð þannig að spiluð verða sömu
spil á öllum borðum. Allur saman-
burður mun því verða skemmtilegri
fyrir áhorfendur enda verður sýn-
ingartafla í gangi fyrir þánn leik sem
mest spennandi þykir hveriu sinni.
Spilarar munu fá útskrift af spilun-
um og skorblöðum öllum eftir hverja
umferð og geta þá pörin borið árang-
ur sinn saman við hinna.
Bridgesamband íslands
Búið er að ganga frá vali á lands-
liði yngri spilara sem spila mun á
NM í Svíþjóð dagana 16. júní til 2.
júh. Þeir spilarar, sem valdir voru
til spilamennsku, eru Matthías Þor-
valdsson, Hrannar Erhngsson,
Sveinn Rúnar Eiríksson, Árni Lofts-
son og Steingrímur Pétursson. Þeir
munu taka til við æfingar undir
stjórn unghngalandshðsþjálfara,
Jóns Baldurssonar, fram á vorið.
í tengslum við Evrópumótið í
sveitakeppni, sem haldið verður í
Turku í Finnlandi, verður haldið
Evrópumót kvenna í tvímenningi.
Samkvæmt upplýsingum frá Evr-
ópubridgesambandinu á ísland rétt á
þremur pörum í þessa keppni. Vegna
bágs ástands í fjármálum BSÍ sér
sambandið sér ekki fært að kosta pör
í þessa keppni en auglýsir hér með
eftir þátttöku ef pör vilja kosta for
þangað sjálf. Tvímenningurinn verð-
ur spilaður dagana 1.-4. júh í sumar.
Umsóknarfrestur í þessa keppni fyr-
ir pör rennur út þann 15. apríl.
Bridgesambandinu hefur borist
bréf frá Evrópubridgesambandinu
þar sem auglýstar eru sumarbúðir
fyrir yngri spilara í Póllandi. Um er
að ræða vikunámskeið fyrir upp-
rennandi spilara í yngri flokki dag-
ana 16.-24. júh í sumar í þorpinu
Mragowo í PóUandi. Sumarbúðir af
þessu tagi hafa notið mikilla vin-
sælda meðal yngri spilara í Evrópu
þar sem spflurum gefst kostur á fyr-
irlestrahaldi sérfræðinga, keppnis-
spilamennsku og aðstöðu tfl ýmiss
konar annarrar íþróttamennsku.
SpUurum, sem fæddir eru eftir 1. jan-
úar 1964 og hafa áhuga á þessu nám-
skeiði, er bent á að hafa samband við
Bridgesambandið sem gefur nánari
upplýsingar um þessar sumarbúðir.
Umsóknir verða að hafa borist fyrir
1. maí.
íþróttapistí]!
Hvenær fæst
niðurstaða í
þjálfaramálunum?
Handknattleiksmenn stóðu í
ströngu í vikunni sem leið og gera
það reyndar einnig um þessa helgi.
Valur og FH léku fyrri leiki sína á
Evrópumótunum í handknattleik.
Valur lék fyrri leik sinn í Evrópu-
keppni meistarahða gegn Magde-
burg frá Austur-Þýskalandi og náði
góðum árangri, þótt hðið hefði get-
að gert enn betur, en fimm vítaköst
fóru í súginn í leiknum. Áhuga-
menn um handknattleik bíða
spenntir eftir síðari leiknum sem
fram fer í dag í Magdeburg.
KomastValsmenn
í undanúrslit?
Valsmenn hafa aha möguleika á
að tryggja sér sæti í undanúrshtum
keppninnar. Félagið vann fyrri
leikinn með sex mörkum og má
mikið vera ef sá markamunur næg-
ir ekki liðinu, Þaö eru mörg ár síð-
an að íslendingar hafa átt jafn-
sterkt félagshð í handknattleik og
Valur er um þessar mundir. Áður
en Valur hóf þátttöku sína í þessari
keppni spáðu margir því að hðið
hefði aht til að bera til að ná langt
í keppninni. Það hefur komið á
daginn og nú er bara að vona að
Valur komist vel frá leiknuih í
Austur-Þýskalandi. Það yrði sigur
fyrir íslenskan handknattleik ef
Valur kæmist í undanúrsht.
Handboltinn á
uppleið að nýju
Handknattleikurinn átti erfitt
uppdráttar eftir ólympíuleikana,
en frábær árangur hðsins í B-
keppninni í Frakklandi gerði það
að verkum að landsmenn flykktust
á nýjan leik um íþróttina. Áhorf-
endum fjölgaði á leikina í íslands-
mótinu og hvar sem fólk kom sam-
an var ekki rætt um annað en
handknattleik. Félagshðin hafa
ekki verið eftirbátar landshðsins.
FH er að vísu úr leik, tapaði í tví-
gang fyrir sovéska höinu Kraz-
nodar hér á landi. FH þarf ekkert
að örvænta, hðið er ungt að árum
og á hæglega að geta gert stóra
hluti í framtíðinni. Samt sem áður
voru úrshtin í viðúreignunum við
sovéska liðið súr, en með eðhlegum
leik hefðu FH-ingar átt að geta veitt
sovéska hðinu miklu meiri mót-
spymu. Reynsluleysi þeirra í leikj-
um háði þeim ef til vih.
Hververðurnæsti
landsliðsþjálfari?
Enn hefur ekki verið gengið frá
ráðningu landshðsþjálfara sem sjá
mun um undirbúning liðsins fyrir
A-keppnina í Tékkóslóvakíu í fe-
brúar á næsta ári. Fyrir nokkru
var tahð nær öruggt að Paul Tie-
demann tæki við liðinu. Endanlegt
svar átti að berast forráðamönnum
HSÍ í B-keppninni í Frakklandi.
Ekki bólar á svari og þrjár vikur
eru hðnar frá því að B-keppninni
lauk. Virðist sem einhver snurða
hafa komið á þráðinn varðandi þau
mál, hvað sem veldur. Vitað er að
máhð er fast í austur-þýska kerf-
inu, en það era stjórnvöld þar á bæ
sem taka endanlega ákvörðun í
málinu!
HSÍogValur
keppastum
Tiedemann
Forráðamenn HSÍ standa einnig
í viðræðum við Bogdan Kowalc-
zyck um áframhaldandi þjálfun á
landshðinu á sama tíma og máhn
eru ekki komin.á hreint varðandi
Paul Tiedemann. Þetta kann að
virðast nokkuð skrýtið og enn
verða máhn dularfyllri þegar forr-
áðamenn Vals eru farnir að ræða
við Tiedemann. Já, á meðan ekki
hefur fengist endanlegt svar frá
Tiedemann eða austur-þýskum
stjórnvöldum, hvort Tiedemann
taki íslenska landshðið að sér, eru
Valsmenn komnir í samningavið-
ræður við sama mann. Já, það er
margt skrýtið í henni veröld. Vals-
menn hafa því hug á að skipta um
þjálfara þrátt fyrir frábæran ár-
angur Stanislavs Modrowski sem
nú er við störf hjá félaginu.
VerðurBogdan
áframmeð
landsliðið?
Margir, sem hafa fylgst með þess-
um málum, halda því fram að HSÍ
sé þegar búið aö ná munnlegu sam-
komulagi við Bogdan. Víst er að
HSÍ hefur fuhan hug á að endur-
ráða Bogdan fram yfir A-keppnina
í Tekkóslóvakíu, annars stæðu þeir
ekki í viðræðum við hann. Ég ætla
ekki að gerast dómari í því máh,
hvort ráða eigi Bogdan aftur. Bogd-
an hefur gert góða hluti hér á landi,
flestir eru sammála um það. Að
minnsta kosti sá ÍSÍ ástæðu til að
sæma Bogdan æðstu heiðursorðu
íslenskrar íþróttahreyfingar á dög-
unum.
Aðeinsellefu
mánuðiríHM
íTékkóslóvakíu
Stjórn HSÍ verður hið fyrsta að
ráða þjálfara. Aðeins ehefu mánuð-
ir eru þangað th A-keppnin hefst f
Tékkóslóvakiu. Þetta er stuttur
tími þegar jafnmikið er í húfi og í
keppni sem þessári. Koma þarf
mannskapnum saman sem vann
gullið í Frakklandi, th að fá úr því
skorið hveijir ætla að halda áfram.
Komið hefur þó fram að flestir æth
að halda áfram. Þetta þarf hins
vegar að komast á hreint, því fyrr
því betra.
Jón Kristján Sigurðsson
• Þessi mynd var tekin er Islendingar léku gegn Austur-Þjóðverjum f Dessau á síðasta ári. Geir Sveins-
son, Alfreð Gíslason og Bogdan fylgjast grannt með gangi mála. Nú er spurningin, sem brennur á vörum
margra, hvort Bogdan verði áfram með landsliðið eða ráðinn verði nýr maður f hans stað innan skamms.
DV-mynd Bemd Helbig