Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1989, Page 37

Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1989, Page 37
LAUGARDAGUR 18. MARS 1989. 53 LífsstOJ Eldri borgarar á þýskunámskeiöi hjá Louisu Þóröardóttur. DV-mynd KAE þaö sér hveiju sinni og hlutföll þess,“ sagði Ingiberg. „Það er oft dálítið snúið að ná rétt- um hlutföllum og hreyfmgu," sagði Siguijón Gunnarsson. „Þetta er annað námskeiðið mitt í módelteikningu en ég er auk þess að læra frístundamálun í Myndiista- og handíðaskólanum. Þaö er ómögulegt að segja hvaö maður græðir á þessu. Maður lærir þó hæfni í teikningu og öðlast vonandi meiri ferskleika þvi hér lærir maður að vinna hratt og með gróft efni,“ sagði Siguijón. Þýskukunnáttan endurnýjuð Félag eldri borgara er með þýsku- námskeið í samvinnu við - Tóm- stundaskólann á þriðjudagsmorgn- um. Kennari á námskeiðinu er Louisa Þórðarson og er þetta þriðja skóla- árið sem hún kennir eldri borgurum þýsku. „Það er ekki hægt að læra jafn- þungt mál og þýsku á nokkrum tím- um. Flestir nemenda minna hafa lært þýsku áður og hafa því ein- hveija undirstöðu. Þeir eru bara að fríska þetta upp,“ segir Louisa. Á þýskunámskeiðinu eru 10 nem- endur, 9 konur og einn karl, en þegar við Utum inn vantaði einn nemand- ann í hópinn. Aðhalda hugsuninni vakandi „Ég er nú ekki ein af þeim sem kunni mikið þegar ég byijaði fyrir þremur árum. í gagnfræðaskóla lærði ég þýsku í einn vetur en það eru mörg ár síðan og ég hélt þeirri kunnáttu ekki við,“ segir Þórunn Einarsdóttir. „Það er gott að læra eitthvað þegar maður er orðinn fullorðinn til að halda hugsuninni vakandi. Þetta er erfitt en gaman að fást við þetta. Það er dáUtið heimanám hjá okkur en það er bara skemmtilegt. Ég hef farið nokkrum sinnum til Þýskalands og mig langar til að verða sjálfbjarga í þýskunni. í dag skil ég orðið dáUtið en það er erfiöara aðV tala. En þegar ég hef farið hef ég yfir- leitt verið með fóUd sem talar þýsku svo þetta hefur aUt bjargast,“ sagði Þórunn. Þar með var Louisa farin að ham- ast við að útskýra þýska orðið Zom sem þýðir reiði og við læddumst út. Á söguslóðum Orkneyingasögu Tómstimdaskólinn býður á vor- misseri upp á tvö námskeið í lestri fomsagna, Laxdælu undir hand- leiðslu Áma Bjömssonar og Orkney- ingasögu irndir leiðsögn JÓns Böð- varssonar. Mikill áhugi er á þessum námskeiðum, á Laxdælunámskeiðið innrituðu sig um 30 manns og á ann an tug nemenda lásu Orkneyinga- sögu. „Þetta er fjórða árið sem ég kenni fomsögur við Tómstundaskólann. Áður hef ég kennt Njálu, Kjalnes- ingasögu, Færeyingasögu og nú vor- um við að ljúka við Orkneyingasögu. Námskeiðinu lýkur með vikuferð til Skotlands og Orkneyja til að skoða og fræðast betur um sögusviö þessar- ar merkilegu sögu. Við förum út núna um helgina og veröum fióra daga í Skotlandi og þijá daga á Orkn- eyjum. Nemendurnir bera sjálfir allan kostnað af ferðinni en hún kostar 42 þúsund krónur, innifalið í því er flug, rútuferðir um Skotland og Orkneyj- ar; gisting og morgunverður. I fyrra fórum við til Færeyja og heppnaðist sú ferð mjög vel. Það er eins og steinamir fari að tala við mann þegar maöur kemur á staði sem eiga sér merkilega sögu,“ sagði Tón. -J.Mar „Ég er ekki ein af þeim sem kunni mikiö i þýskunni," segir Þórunn Einars- dóttir. Jón Böövarsson er á leið til Skotlands og Orkneyja ásamt nemendum sfnum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.