Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1989, Qupperneq 38
54
LAUGARDAGUR 18. MARS 1989.
LífsstQl
Páskar:
A skíðum skemmti
egmer
Skíðaaöstaðan i Bláfjöllum verður opin um bænadagana og páskana.
Páskar eru sá árstími sem skíða-
menn flykkjast til flalla til að fara á
skíði. Hér á landi er orðið allmikið
af góðum skíðastöðum, því ættu
landsmenn ekki að vera í vandræð-
um með að sinna þessu holla áhuga-
máli.
Mikill snjór er á öllum skíðasvæð-
unum og aðstaða til skíðaiðkunar er
með því besta sem gerist hér á landi.
Bláfjöll
Skíðasvæðið í Bláfjöllum er opið
alla virka daga frá kl. 10-18 og á
þriðjudögum, miövikudögum og
fimmtudögum er opið til kl. 22.
í fjöllunum hefur ekki verið jafn-
mikill snjór síðastliðin tíu ár. Að-
staða til skíðaiðkana er því eins og
best veröur á kosið.
í Bláíjöllum eru 12 lyftur og geta
þær flutt 9000 manns á klukkustund,
auk bamalyftu og getur hún flutt 600
böm á klukkustund.
Hægt er að kaupa dagskort í lyft-
umar og kostar slíkt kort 550 krónur
fyrir fullorðna og 250 fyrir böm.
Kort með átta miðum kostar 250
krónur fyrir fullorðna og 150 fyrir
böm. Sérstök kvöldkort, sem gilda
frá kl. 17-22 kosta 450 krónur fyrir
fullorðna og 200 krónur fyrir böm.
Stöðugar rútuferöir em í Bláfjöll,
Guðmundur Jónasson flytur fólk úr
Reykjavík og af Seltjamamesi. Lagt
er af stað úr Reykjavík kl. 10 og 13.30
og frá Bláfjöllum em ferðir í bæinn
kl. 16 og kl. 18.
Teitur Jónasson er með sérleyfi
fyrir Kópavog og Garðabæ í Bláfjöll.
Ferðir úr Garðabæ em kl. 9.50 og
12.50 og úr Kópavogi kl. 10 og 13. Úr
Bláfjöllum er haldið kl. 18. Þá daga,
sem opið er á kvöldin, em aukaferð-
ir, úr Garðabæ kl. 16.50 og 17 úr
Kópavogi og til baka kl. 22 úr Bláfjöll-
um.
Trausti Þorleifsson er með rútu-
ferðir úr Hafnarfirði í Bláfjöll dag-
lega kl. 10 og 13 og til baka kl. 16 og
18. Þegar opið er á kvöldin í fjöllun-
um er aukaferð kl. 17 og tfi baka kl.
19 og 22.
Fargjaldið hjá öllum sérleyfishöf-
^íbium er 380 krónur fyrir fullorðna
og 280 krónur fyrir böm.
Skálafell
Skíðaaðstaðan í Skálafelb verður
opin um bændadagana og páskana
frá klukkan 10-18 aila dagana auk
þess sem reynt verður að hafa opið
mánudag, þriðjudag og miðvikudag.
Skíðafærið í Skálafelli mun vera
með eindæmum gott um þessar
mundir, mikill snjór eða eins og
skálavörður orðaði það: „Ef eitthvað
er er alltof mikill snjór.“
Tvær 600 metra toglyftur era í fell-
inu og geta þær flutt um 1200 manns
á klukkustund, auk stólalyftu sem
flytur skíðafólk upp í um 1200 metra
hæð og getur hún flutt 1200 manns á
klukkustund.
Dagskort í skíðalyftumar kostar
600 kr. fyrir fulloröna og 300 krónur
fyrir böm.
Teitur Jónasson er með daglegar
ferðir í Skálafell, kl. 10 frá Reykjavík
og 10.45 úr Mosfellsbæ og til baka
kl. 18. Fariö kostar 380 kr. fyrir full-
orðna og 280 krónur fyrir böm.
Hveradalir
~ í Hveradölum em nýlagðar
göngubrautir og mikfll spjór. Skíða-
svæðið verður opið alla helgidagana
frá kl. 10-23. Þar er ein lyfta sem
getur flutt um 300 manns á klukku-
stund.
Heilsdagskort í lyftuna kostar 400
krónur fyrir fullorðna og 200 krónur
fyrir böm. Hægt er að kaupa sérstök
kvöldkort og kosta þau 200 krónur
fyrir fullorðna og helmingi minna
fyrir böm.
Það er nægur snjór í Hlíðarfjalli og
væntaniega munu margir leggja leið
sína þangað um páskana.
ísafjörður
„Skíðafæri á Seljalandsdal er al-
veg frábært, mikill og góður snjór,“
sagði Halldór Sveinbjömsson á
ísafirði í samtali við DV.
í dag, laugardag, verðiu- tekin í
notkun ný lyfta á skíðasvæði ísfirð-
inga við Seljalandsdal. Nýja lyftan,
sem er af fullkomnustu gerð, skilar
skíðamönnum upp í 700 metra hæð
og getur hún borið allt að 700 manns
á klukkustund. Nýja lyftan bætist við
þær lyftur sem fyrir em í dalnum
en samtals geta þær flutt um 2000
Ferðir
manns á klukkustund.
Skíðasvæðið verður opið alla dag-
ana frá klukkan 10-18 og til kl. 21 á
þriðjudagskvöld.
Dagskort í lyftumar kostar 550 kr.
fyrir fulloröna og 250 krónur fyrir
böm. Hálfsdagskort kostar 300 krón-
Áð í brekkunni og litið á útsýnið.
ur fyrir fullorðna og 150 krónur fyrir
böm. Kvöldkort kostar 300 krónur
og helmingi minna fyrir böm.
Stöðugar rútuferðir verða frá
ísafirði og upp í dal um bænadagana
og páskana.
Góðar göngubrautir era í dalnum.
Þar er og skíöaskálinn Skíðheimar
þar sem hægt er aö kaupa veitingar
og fá leigð göngu- og svigskíði. Einn-
ig er boðið upp á svefnpokapláss í
skálanum og kostar það 300 krónur
nóttin.
Á Hótel ísafirði era 32 herbergi og
kostar nóttin 4.095 krónur í eins
manns herbergi og tveggja manna
herbergi með baði kostar 5.915 krón-
ur.
Flugleiðir fljúga vestur á skírdag
og á laugardag ög til baka á annan í
páskum. Flugfar báðar leiðir kostar
7.332.
Boðið er upp á helgarpakka til ísa-
fjarðar og kostar hann 9.269 krónur,
innifalið er flug, gisting í tvær nætur
og lyftugjald. Aukanótt kostar 2000
krónur.
Oddsskarð
og Fjarðarheiði
Öll skíðaaðstaða á Austurlandi
hefur batnað að miklum mun á und-
anfómum misseram. í Oddsskarði
er góð aðstaða og þar er skíðaskáli
með veitingasölu og þar er sömuleið-
is hægt að fá gistingu í svefnpoka-
plássi og kostar nóttin 500 krónur.
„Þetta er glimrandi gott svæði rétt
fyrir sunnan göngin í gegnum fjall-
ið,“ sagði Magnús Stefánsson á Egils-
stöðum.
Skíðafæri er gott í skarðinu og um
helgina verður haldið þar punktamót
á skíðum. Tvær lyftur era í Odds-
skarði, diskalyfta og toglyfta, og geta
þær samtals flutt 1100 manns á
klukkustund.
Opið verður í skarðinu alla virka
daga frá kl. 9-18 en um helgidagana
frá kl. 10-18. Lyftukort kostar 400
fyrir fuflorðna og 200 krónur fyrir
böm.
Á Seyðisfirði era tvær togbrautir,
önnur út í bæ og er hún opin virka
daga frá kl. 15-19 og lengur um helg-
ar.
Önnur stærri togbraut er í Efra-
Skarði í Fjarðarheiði og þar verður
haldið Austurlandsmótið á skíðum
nú um páskana. Togbrautin er opin
virka daga frá kl. 13-16 og lengur um
helgar. Lyftukort kostar á báða stað-
ina 200 krónur.
Daglegar rútuferðir era í Odds-
skarð frá Neskaupstað kl. 9.30 og 13.
Frá Reyðarfirði og Eskifirði eru
rútuferðir kl. 11 og 11.15.
Flugleiðir fljúga til Egilsstaða á
skírdag og laugardaginn fyrir páska
og til baka á annan í páskum. Farið
fram og til baka kostar 10.384 krónur.
Á Hótel Valaskjálf kostar nóttin í
tveggja manna herbergi með baði
3.800 en á Gistihúsinu á Egilsstöðum
kostar sams konar gisting 2.800 krón-
ur.
Helgarpakki til Egilsstaöa kostar
9.019 krónur, innifalið er flug og gist-
ing í tveggja manna herbergi. Auka-
nótt kostar 1.380 krónur.
Auk þess er hægt að fá gistingu á
bóndabæjum í nágrenni Egilsstaða
og hótel era á Seyðisfirði, Norðfirði
og Eskifirði.
Ólafsfjörður
Það er allt á kafi í snjó á Ólafs-
firði. Beint fyrir ofan bæinn er skiða-
lyfta og nær hún upp í 750 metra hæð
og getur flutt um 350 manns á
klukkustund.
Dagskort í lyftuna kostar 350 krón-
ur fyrir fullorðna og 100 krónur fyrir
börn.
Ólafsfjörður er paradís göngu-
skíðamanna og er boöið upp á mjög
góða aðstöðu fyrir þá. Á hveijum
degi era plægðar allt að 15 kílómetra
nýjar göngubrautir.
Flugfélag Norðurlands flýgm- beint
til Ólafsfjarðar frá Reykjavík og kost-
ar farið 9.120 báðar leiðir. Eitt hótel
er á staðnum, Hótel Ólafsfjörður, og
kostar nóttin í tveggja manna her-
bergi með baði 3.950 kr.
Hlíðarfjall
við Akureyri
„Hér er allt til reiðu til að taka
við miklum fjölda skíðafólks um