Dagblaðið Vísir - DV - 18.03.1989, Page 53
LAUGARDAGUR 18. MARS 1989.
Sviðsljós
<
i
Alls taka níu lög þátt i söngvakeppni norska sjónvarpsins i ár. Þar á meðal
er lag þeirra Tor Endresen og Iselin Alme.
Norska sjónvarpið:
Söngva-
keppnin byijuð
Norska sjónvarpið er nokkuð á
undan því íslenska með að kynna
þau lög sem keppa um að taka þátt
í Eurovison. Það var um síöustu helgi
sem fyrstu lögin voru kynnt. Alls
keppa níu lög til úrslita í norska sjón-
varpinu. Eitt þeirra verður síðan
valiö til að taka þátt í Eurovision sem
fram fer í Sviss þann 6. maí nk.
Meðal þeirra sem syngja lögin í
norska sjónvarpinu eru þremenn-
ingarnir Ingeborg Hungnes, Stig Ni-
esson og Svein Gundersen með lagið
Et lite lys, Rune Rudberg með Vinger
over Europa, Kari Gjærum með
Barneöyne og Tor Endresen og Iselin
Alme með Til det gryr av dag.
i
i
<
i
Barbie orðin þrítug
irbiedúkkan hefur haldið velli í þrjátíu ár meðan önnur leikföng koma
fara.
Þótt ótrúlegt megi virðast þá á
Barbiedúkkan þijátíu ára afmæli á
þessu ári og nýtur engu minni vin-
sælda nú en þegar hún kom fyrst á
markaðinn, Til marks um það má
nefna að Mattel fyrirtækið, sem
framleiðir Barbiedúkkuna, seldi
milljónir eintaka á síðasta ári.
Fyrst þegar Barbie kom á markað-
inn var hún einhleyp, ung og falleg
stúlka. Brátt var það ekki nógu gott
að hún væri ein og varð þá dúkkan
Ken til. Hins vegar var það aldrei
látið í ljós að þau Barbie og Ken
væru hjón. Nokkru seinna bættust
fleiri dúkkur í hópinn, yngri Barbie-
dúkkur og böm.
Lengi vel var útlit Barbiedúkk-
unnar látið halda sér óbreytt eða
þangað til fyrir örfáum árum að
Barbiedúkkur Mtu dagsins ljós
klæddar í pönk-búninga. Síðan hafa
þær fylgt hverri tískulínunni á fætur
annarri og ekki minnka vinsældim-
ar.
Vegna þess hversu vinsældir
Barbie voru miklar í byijun komu
önnur fyrirtæki brátt með svipaðar
dúkkur. Hver man ekki eftir Tressy
sem hafði hár sem mátti stytta og
síkka eftir þörfum? Nú sést Tressy
ekki lengur en Barbie mun sjálfsagt
verða háöldruð ef að líkum lætur.
Jane Fonda skilin
Þau ætla að gifta sig nú í mars en brúðkaupsdagurinn átti að vera 26. iebrú
ar.
Ein hamingjusömustu
i hjónin í Hollywood eru nú
skilin og kom það sannar-
lega öllum á óvart. Það eru
Jane Fonda og Tom Hayden
sem ávallt hafa þótt fyrir-
myndarhjónin í Hollywood.
jane Fonda er orðin 51 árs
en Tom er 49 ára. Þau hafa
verið gift í fnnmtán ár og
eiga einn son, Troy, fimmt-
án ára. Á meðan Jane hefur
unnið hvern leiksigurinn af
öðrum hefur Tom Hayden
helgað sig stjórnmálum í
Kaliforníu.
Vinir þeirra töldu hjona-
bandið vera jafngott nú og
fyrir fimmtán árum og kom
því fréttin um skilnað þeirra
eins og þruma úr heiðskíru
lofti. ,, .
í jane Fonda hefur latið sig
friðarmál miklu skipta og
verið mjög atorkusöm á
i þeim vettvangi. Þá hefur
hún leikið í flölda mynda og
fengið lof fyrir. En það er
víst ekki nóg til að halda
hjónabandi í Hollywood
gangandi eins og nú er kom-
ið í ljós.
Jane Fonda og Tom Hayden voru álitin hamingjusamasta parið í Hollywood - nú
er það búið.
Bjöm Borg og Loredana:
Það veröur
brúðkaup
Enn berast fréttir af tenniskappan-
um Birni Borg og fyrirhuguðu brúð-
kaupi með ítölsku söngkonunni Lo-
redana. Parið ætlaði að halda mikið
brúðkaup þann 26. febrúar sl. en þá
komu skilaboð frá kaþólsku kirkj-
unni að ekkert gæti orðið úr því.
Þetta varð að sjálfsögðu mikið áfall
og ölí áform þar með úr sögunni þann
daginn. Fréttir af sjálfsmorðshug-
leiðingum kappans hafa ekki bætt
úr skák. Kunnugir segja að Björn
Borg hafi verið í síðasta mánuði ólík-
ur sjálfum sér og mjög langt niðri.
Þó er enn verið að bera til baka frétt-
ir um að hann hafi ætlað að fremja
sjálfsmorð.
Nú með hækkandi sól virðist þó
brúnin léttast á kappanum og hefur
nú verið ákveðið að brúðkaup þeirra
Björns og Loredönu fari fram í þess-
um mánuði. í viðtali nýlega sagði
Bjöm Borg að lífið blasi við sér. „Ég
á yndislegan son, yndislega vinkonu
og yndislega foreldra.“
Björn stendur fast á því að brúð-
kaup þeirra Loredönu verði haldið í
lok mars í Stokkhólmi. Dagurinn er
ekki ákveðinn, enda veltur allt á því
að Loredana fái skilnað frá fyrri
manni sínum samþykktan. „Ef mað-
ur hefur nógu mikið af peningum þá
gengur allt vel fyrir sig á ítalíu."
Björn Borg á líka við vandamál að
stríða. Hann vill halda forræði yfir
syni sínum og Jannike Björling.
Uppákoman í síöasta mánuði, er
Björn var lagður inn á sjúkrahús,
gerði illt verra fyrir hann. Jannike
hefur sagt að þar sem hann geti ekki
hugsað um sjálfan sig geti hann varla
hugsað um barn. Undanfarið hafa
þau Jannike og Björn skipst á að
hafa drenginn, fjórtán daga hvort.
Bjöm er sagður góður faðir og
strákurinn er hændur að honum. Á
daginn er Robin litli á leikskóla á
meðan Björn er í vinnunni. Loredana
er aö vinna að hljómplötu sem tekin
verður upp í Svíþjóð. Bjöm er hins
vegar með stórt fyrirtæki þar sem
hann selur fót undir eigin nafni.