Dagblaðið Vísir - DV - 14.04.1989, Síða 6
6
FÖSTUDAGUR 14. APRÍL 1989.
Viðskipti
Ólíklegt að Útvegsbankinn
verði seldur næstu mánuðina
- margir makka á bak við tjöldin
Mjög ólíklegt er að Útvegsbankinn
hf. verði seldur á næstu mánuðum.
Svo er komið að fleiri og fleiri hafl-
ast aö því að ríkið muni eiga bankann
áfram næstu árin. Þrátt fyrir það er
mikið makkað núna á bak við tjöld-
in. Menn eru að tala saman í síma
og hittast. Þetta er allt mjög óform-
legt.
Iðnaðarbanki + Verslunar-
banki
Fram kom á aðalfundum Iðnaðar-
banka og Verslunarbanka að áhugi
er meðal hluthafa beggja bankanna
að sameinast. Viðræður eru í far-
vatninu. Hugsanlega munu þessir
tveir bankar sameinaðir síðan kaupa
hlut ríkisins í Útvegsbankanum.
Þetta er talin fremur ótrúleg lausn
þar sem nógu erfitt verði að koma
Iðnaðarbanka og Verslunarbanka
saman í eina sæng.
Verslunarbanki + Alþýðu-
banki + norrænn kratabanki
Þá hefur sést á prenti að Verslunar-
banki og Alþýðubanki sameinist.
Ennfremur að Verslunarbanki, Al-
þýðubanki, norrænn kratabanki og
Útvegsbankinn myndi nýjan stóran
banka. Síðari kosturinn gengur varla
upp vegna þess að fyrir þessu er ekki
fylgi innan Verslunarbankans. Hug-
myndin er enda að ríkið selji þá ekki
sinn hlut að sinni heldur komi inn
sem hluthafi í þessum nýja banka.
Þaö þýddi aftur að kratar réðu öllu
í bankanum og Verslunarbanka-
menn spiluðust út í hom.
Alþýðubankinn krefst jafnrétt-
is
Sameining Verslunarbanka og Al-
þýðubanka er líka sögð erfið. Ástæð-
an er sú að Alþýðubankamenn hafa
lýst því yfir að þeir viji enga samein-
ingu nema á jafnréttisgrundvelli, að
báðir þessir bankar eigi jafnmikið í
nýja bankanum. Það krefst þess aftur
að Alþýðubankinn þyrfti að auka
hlutafé sitt fyrst inn 300 til 350 millj-
ónir. Alþýðubankinn er minnsti
bankinn.
Iðnaðarbanki + Verslunar-
banki + Alþýðubanki
Þá er það sameining Iðnaðarbanka,
Verslunarbanka og Alþýðubanka.
Haldi Alþýðubankamenn sig áfram
við fimmtíu/fimmtíu regluna þurfa
þeir að auka hlutafé sitt um rúmlega
900 milljónir til að eiga helminginn
á móti Iðnaðarbanka og Verslunar-
banka. Þess vegna er þessi hugmynd
enn síðri en sameining Verslunar-
banka og Alþýðubanka.
Alþýðubanki + Samvinnu-
banki
Sameining Alþýðubanka og Sam-
vinnubanka kom til tals á aðalfundi
Samvinnubankans á dögunum.
Þama myndu minnsti bankinn og
þriðji minnsti bankinn sameinast.
Þetta gæti gerst.
Landsbanki + Samvinnu-
banki
Nýlega skaut líka upp kollinum sú
hugmynd að Landsbankinn keypti
hlut Sambandsins í Samviimubank-
anum til að Sambandið gæti nælt sér
í peninga til að grynnka á skuldum
sínum. Þessa leið telja menn ótrú-
lega. Ríkið standi ekki í frekari út-
þenslu á bankasviðinu þar sem
Útvegsbankinn til sölu. Reyndar telja menn útilokað að hann seljist á
næstunni og þvi mun ríkið einfaldlega ætla að eiga hann áfram.
markmiðið sé að það dragi sig meira
út úr því eins og með sölu Útvegs-
bankans. Breytist hins vegar vindar
í pólitíkinni getur sameining Lands-
bankans og Samvinnubankans þess
vegna orðið að veruleika. Það getur
allt gerst á íslandi.
Fréttaljós
Jón G. Hauksson
Vilji forsætisráðherra
Steingrímur Hermannsson forsæt-
isráðherra hefur haldið því fram að
undanfómu að ef Útvegsbankinn
seljist ekki á næstunni sé besta
lausnin að skipta honum upp á milli
Landsbanka og Búnaðarbanka. Vart
gerist þetta nema með rosalegum ill-
indum og hanaslag stjórnmála-
manna áður. Þessi leið felur í sér
aukin umsvif ríkisins í bankakerfinu
í stað þess að minnka þau eins og
hugmyndin er með sölu Útvegs-
bankans.
Sparisjóðirnir + Útvegs-
bankinn
Lengi vel var vilji Jóns Sigurðsson-
ar viðskiptaráðherra, sem fer með
bankamálin, aö sparisjóðimir sam-
einuðust og keyptu hlut ríkisins í
Útvegsbankanum. Sparisjóöimir
neituðu að sameinast vegna þess að
þar em margir smákóngar sem
misstu þá starf sitt. Auk þess hggur
ekki alveg hreint fyrir hverjir eiga
sparisjóðina. Það er svona svipað
mál og með sameiningu Bmnabóta-
félags íslands og Samvinnutrygg-
inga. Menn svara því ekki einfald-
lega hverjir eigi Samvinnutrygging-
ar og ekki heldur Bmnabótafélagið.
Þegar eignarmáhn hggja ekki á
hreinu er erfitt að sameinast hlutafé-
lagi í eitt nýtt hlutafélag. Tahð er
útilokað að sparisjóðimir sameinist
og kaupi síðan Útvegsbankann.
KR-ingar og Sambandið
En hvað með gömlu KR-ingana og
Sambandið sem kepptust um að
kaupa bankann fyrir um tveimur
árum? KR-ingarnir voru þeir kahað-
ir 33 aðhamir í sjávarútvegi undir
forystu Kristjáns Ragnarssonar sem
vhdu kaupa bankann þegar Sam-
bandið hafði gert kauptilboð. Slæm
staða fyrirtækja í sjávarútvegi og
Sambandsins núna úthokar þann
möguleika að KR-ingamir og Sam-
bandið komi aftur við sögu um kaup-
in á Útvegsbankanum.
Útlendur stórbanki kaupi
25 prósent í Útvegsbankanum
í sérstökum lögum um Útvegs-
bankann segir að erlendum aðhum
sé heimilt að eiga allt að 25 prósent
í bankanum. Kemur stór erlendur
banki th sögunnar á næstunni? Ekki
em menn á því. Ahir útlendir bank-
ar, sem em reknir á viðskiptalegum
grundvelh, hafa htinn áhuga á að
kaupa hlut í íslenskum banka.
Þegar DV ræddi við bankastjóra
Scandinavian bank í London síöast-
hðið haust sagði hann að það sem
helst stæði því fyrir þrifum að er-
lendir bankar kæmu hingað væri sú
staðreynd að íslensk stjómvöld
skipti sér of mikið af vöxtum og þar
með tekjum bankanna. Algjörlega
frjálsir vextir yrðu að vera skhyrði.
Eins væri það ekki fýshegt fyrir er-
lendan banka að eiga minnihluta í
íslenskum baka nema bankinn
treysti fullkomlega þeim sem ættu
meirihlutann. Ef haha færi undan
fæti hjá bankanum hérlendis neydd-
ist nefnhega útlendi bankinn með sín
Baldvin frá
Gytfi Kristjánæcm, DV, Akureyit
Baldvin Valdimarsson, fram-
kvæmdastjóri öl- og gosdrykkja-
verksmiðjunnar Sanitas á Akur-
eyri, raun láta af því starfi og taka
viö nýju hjá Níðursuöuverksraiöju
K,.Jónssonar og Co þann 1. júni.
Óhætt er aö segja aö þetta hafi
komið nokkuö á óvart, Baldvin
hefur tekið þátt í að byggja upp
öfluga starfsemi hjá Sanitas á Ak-
ureyri, og nú, þegar reksturinn
gengur rajög vel eftir að bjórinn
kom th sögunnar, yfirgefur hann
Akureyri:
Sana til K.
fyrirtækið th að takast á við verk-
efih á öðmm vettvangL
„Það vita allir hvað er að gerast
í raálefnum niðursuöufyrirtækja
hér á Iandi,“ sagöi Baldvin I sara-
tali við DV. „Þessi grein þarf meiri
og minni endurskoöun og það sem
á aö fara að gerast hjá K. Jónssyni
er aö hópur manna ætlar að setjast
niður og leggja saman reynslu sína
í þeim tilgangi að reyna að vinna
hlutina upp á nýtt.
Verksmiðja K. Jónssonar er rajög
myndarleg og góð og gefur mikla
og margvislega möguleika en
Jónssonar
vandaraáhö í þessum rekstri í dag
er markaösmálin og þau þarf aö
endurskipuleggja. Hvaö keraur svo
út úr þeirri vinnu verður hins veg-
ar aö koraa í Ijós en við ætlum okk-
ur nokkrá mánuöi í þetta verk-
efih."
Baldvin mun sera fyrr sagði hefja
störf hjá K. Jónssyni og Co 1. júní.
Fyrstu mánuöina mun hann ein-
beita sér aö markaðsmálunum en
um næstu áramót mun hann taka
viö framkvæmdastjóm fyrirtækis-
ins.
Kaupfélag Skagfiröinga:
Stórtap
annað árið
í röð
ÞórhaHur Asmundsson, DV, Sauöárkróki
Verulegt tap varð á á rekstri Kaup-
félags Skagfirðinga á síðasta ári og
nam það 36 mhljónum króna. Árið
1987 tapaði kaupfélagið 33 mhljónum.
Þá varð algjör kúvending í rekstri
Fiskiðjunnar, dótturfyrirtækis fé-
lagsins, á síðasta ári er það tapaði
36 milljónum en hafði grætt 3 mhlj-
ónir árið 1987.
25 prósent th að hlaupa undir bagga
og bjarga bankanum eins og hann
ætti hann að fuhu þar sem ímynd
útlenda bankans gæti skaðast ef ís-
lenski bankinn færi á hausinn.
Menn telja því úthokað aö stór út-
lendur banki, sem hafi fyrst og
fremst viðskiptalega hagsmuni í
huga, komi th landsins og kaupi
hluta í Útvegsbankanum.
Hvenær fellur tjaldið?
Þetta er leiksviðið í sölu Útvegs-
bankans hf. Uppi eru raddir sem
segja að seljist hann ekki innan
skamms eigi ríkið að hætta við söl-
una og eiga hann áfram næstu árin
á meðan það tapi engu á því.
Það verður líklegast ofan á.
-JGH
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóðsbækurób. 13-15 Vb.Ab,- Lb
Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 11-17 Vb
6mán.uppsögn 11-19 Vb
12mán. uppsögn 11-14,5 Ab
18mán. uppsögn 26 Ib
Tékkareikningar.alm. 2-8 Vb
Sértékkareikningar 3-17 Vb
Innlán verðtryggð Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 1-2 Vb
6mán. uppsögn 2-3,5 Sp,Ab,- Vb.Bb
Innlán meósérkjörum 24 Bb.Vb,- Ab
Innlángengistryggð
Bandaríkjadalir 8,5-9 Ib.Vb
Sterlingspund 11,5-12 Sb.Ab
Vestur-þýsk mörk 4,75-5,5 Sb.Ab
Danskar krónur 6,75-7,25 Bb.Sp,- Ib lægst
ÚTLÁNSVEXTIR (%)
Útlán óverðtryggð
Almennirvíxlar(forv.) 24,5-27 Úb
Viðskiptavixlar(forv.)(1) kaupgengi
Almennskuldabréf 24-29,5 Lb
Viðskiptaskuldabréf(l) kaupgengi Allir
Hlaupareikningar(yfirdr.) 27-31 Úb
Utlán verðtryggð
. Skuldabréf 7,25-8.5 Bb
Útlán til framleiðslu
Isl. krónur 20-29,5 Úb
SDR 10 Allir
Bandaríkjadalir 11.75 Allir
Sterlingspund 14,5 Allir
Vestur-þýsk mörk 7,75-8 Úb
Húsnæðislán 3.5
Lífeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 33,6
MEÐALVEXTIR
óverðtr. apríl 89 20,9
Verötr. apríl 89 8,1
VÍSITÖLUR
Lánskjaravísitala apríl 2394 stig
Byggingavísitala mars 435 stig
Byggingavísitala mars 136,1 stig
Húsaleiguvisitala 1,25% hækkun 1. april
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa veröbréfasjóða
Einingabréf 1 3,656
Einingabréf 2 2,046
Einingabréf 3 2,389
Skammtímabréf 1,264
Lífeyrisbréf 1,838
Gengisbréf 1.667
Kjarabréf 3,684
Markbréf 1,955
Tekjubréf 1,627
Skyndibréf 1,123
Fjölþjóðabróf 1.268
Sjóðsbréf 1 1,779
Sjóðsbréf 2 1,458
Sjóðsbréf 3 1,259
Sjóösbréf 4 1,044
Vaxtasjóðsbréf 1,2484
HLUTABRÉF
Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.:
Sjóvá-Almennar hf. 138 kr.
Eimskip 400 kr.
Flugleiöir 292 kr.
Hampiðjan 157 kr.
Hlutabréfasjóður 153 kr.
Iðnaöarbankinn 179 kr.
Skagstrendingur hf. 226 kr.
Útvegsbankinn hf. 137 kr.
Verslunarbankinn 152 kr.
Tollvörugeymslan hf. 132 kr.
(1) Við kaup á viðskiptavlxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aöila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge. Búnaðarbanki og Samvinnubanki
kaupa viðskiptavlxla gegn 31% ársvöxt-
um og nokkrir sparisj. 30,5%.
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb= Búnaðarbankinn, lb = lönaðar-
bankinn, Lb= Landsbankinn, Sb =
Samvinnubankinn, Úb= Útvegsbankinn,
Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóð-
irnir.
Nánarl upplýslngar um peningamarkað-
inn blrtast i DV á fimmtudögum.