Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1989, Side 3
FÖSTUDAGUR 28. APRlL 1989.
3
pv___________________________________Fréttir
Fjársöfnun vegna hjúkrunarheitnilisins Skjóls:
Meirihluti
peninganna til
þess sem sá
um söfnunina
„Viö teljum þetta ganga gegn allri
venju. Sá sem vann að söfnuninni
reiknar sér laun af útsendum gíró-
seðlum en ekki af því sem hefur inn-
heimst. Þar sem ógreiddir gíróseðlar
eru um eins árs gamlir teljum við
að þeir innheimtist illa úr þessu. í
fyrstu vildi sá sem vann þetta fá 50
prósent sölulaun. Okkur þótti það of
hátt og úr varð að hann fengi 43 pró-
sent. Okkur þykir það fullmikið og
sérstaklega þegar hann reiknar sér
laun af útsendum seðlum," sagði
Rúnar Brynjólfsson hjá umönnunar-
og hjúkrunarheimihnu Skjóh.
Það var fyrirtækið Maxis sem ann-
aðist íjársöfnunina fyrir Skjól. Alls
voru sendir út gíróseðlar fyrir
3.079.500 krónur. Þar af innheimtust
um 2.200.000 krónur.
Maxis reiknaði sér rúmlega 1,3
milljónir í þóknun en það er 43 pró-
sent af útsendum seðlum. Skjól fékk
í sinn hlut aðeins 876 þúsund krónur.
Rúnar telur að þar sem Maxis hafi
reiknað þóknunina sem hlutfall af
útsendum seðlum, þ.e. 43 prósent,
eigi fyrirtækið að skila Skjóli 57 pró-
sentum af útsendu gíróseðlunum -
og skuldi því Skjóli um 850 þúsund
krónur.
„Við munum gefa Maxis frest til
aö ganga frá þessu máh. Að öðrum
kosti verður það sent th lögfræð-
ings,“ sagði Rúnar Brynjólfsson.
„Þegar allt kemur til alls mun ég
tapa á þessu verkefni. Ég hef fengið
rúmar 1300 þúsund krónur og af því
hef ég greitt kostnaö vegna söfnunar-
innar og nú standa eftir 7.341 króna.
Einhver kostnaður er ógreiddur og
því er ljóst að ég mun tapa á á þessu
verkefni," sagði Kristján Þorgeirs-
son hjá Maxis.
Kristján sagði að um áramótin hafi
hann afhent Skjóh 1.119.815 en ekki
876.315 eins og haldið hefur verið
fram.
„Starfsemi sem þessi er byggð á
trausti og því þykir mér þetta mjög
leitt. Ég óttast að ekki verði hægt að
innheimta það sem er ógreitt. Þetta
mun því koma Skjóli illa,“ sagði
Kristján.
-sme
Stökkenekki
samdráttur
- segir félagsmálaráðherra
„Þaö varð veruleg aukning á fé-
lagslegum íbúðum á árunum 1987 th
1988 en fjármagniö til þeirra jókst
úr 1100 milljónum í 2300 milljónir.
Ég hygg að það hafi farið í gang á
milli 800 og 900 íbúöir i félagslega
kerfinu á síðasta ári. Þannig að það
varð verulegt stökk í félagslega kerf-
inu á síðastliðnu ári að mínu mati,“
sagði Jóhanna Sigurðardóttir félags-
málaráðherra en fram hefur komiö
mikil gagnrýni frá ýmsum samtök-
um vegna félagslega kerfisins í hús-
næðismálum. Hefur því verið haldið
fram að það hafi setið á hakanum
vegna húsbréfamálsins.
Jóhanna neitaði því að það hefði
orðiö annar samdráttur en sá er fæl-
ist í almennum samdráttaraðgerðum
við fjárlagagerð. Ríkisstjórnin hefði
sett sér að klára þau verkefni sem
ráðist hefði verið í á síðasta ári í fé-
lagslega kerfmu en hefja ekki ný.
„Annars vil ég benda á að félags-
lega kerfið hefur verið í endurskoðun
hjá mér og við viljum skoða gallana
á því vandlega. Það er flókið og býð-
ur upp á marga samræmingar- og
einföldunarkosti."
-SMJ
VÆNLEGUR KOSTUR
Sýningarsalurinn v/Sævarhöfða opinn frá kl. 14-17
laugardag og sunnudag
Ingvar
Helgason hf.
Sævarhöfða 2, sími 67-4000
NISSANVANETTE
Nissan Vanette er vænlegur kostur fyrir sendibílstjóra og
verktaka.
Ef borið er saman verðið á Nissan Vanette og öðrum sambæri-
legum þá hefur Nissan Vanette vinninginn eins og á öðrum
sviðum.
Okkar verð: 840.000.-
Greiðslukjör sniðin að þínum þörfum. Sýningarbíll á staðnum.
3ja ára ábyrgð.