Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1989, Side 5

Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1989, Side 5
FÖSTUDAGUR 28. APRÍL 1989. 5 Fréttir Seyðisfjörður: liíu ára dreng- ur brotnaði á iærlegg Níu ára gamall drengur hjólaöi fyrir bíl á Seyðisfirði með þeim aíleiðmgum að hann brotnaði á lærlegg. Drengurinn var fluttur með sjúkraflugi til Reykjavíkur þar sem hann liggur á sjúkrahúsi. -sme Hætt við að selja Skjöld á Sauðárkróki: Staðan á tékkareikn ingnunt réði ferðinni Þórhallur Asmundsson, DV, Sauðárkróki: Á hluthafzjfundi í Hraðfrystihús- inu Skildi nýlega var endanlega fallið frá þvi að selja fyrirtækið Útgerðar- félagi Skagfirðinga. Á fundinum kom einnig fram að 165 þúsunda kr. hagnaður varð á rekstri Skjaldar á síðasta ári. Er Skjöldur því eitt örfárra frystihúsa á landinu sem var réttum megin við núllið á síðasta ári. Ljóst var fyrir fundinn að tveir hluthafar vilja selja hlut sinn í Skildi og að sögn Árna Guðmundssonar framkvæmdastjóra hafa nú fleiri hluthafar bæst í þann hóp. Sex fyrir- tæki tengd Sölumiðstöð Hraðfrysti- húsanna hafa lýst sig tilbúin að kaupa þau hlutabréf sem til sölu verða. Þá barst inn á fundinn áskor- un frá starfsfólki Skjaldar þess efnis að hætt yrði við sölu fyrirtækisins. Jafnframt lýsti starfsfólkið sig reiðu- búið til hlutafjárkaupa og mun hluta- fjársöfnun meðal þess vera hafin. „Skuldastaðan er góð. Það hefur verið gætt ýtrasta sparnaðar og við höfum farið eftir stöðunni á tékka- reikningnum en ekki einhverjum tölvuútreikningum. Þá þekkjum við ekkert sem heitir verðfelling. Matið a afurðum okkar á síðasta ári var 98,9%. Verkstjórar og starfsfólk má því vera hreykið af árangri sínum,“ sagði Árni þegar hann var spurður um hvers vegna rekstur hjá þeim hefði gengið betur en margra ann- arra frystihúsa. Seyðisfiöröur: Tveir teknir á tjaldaveiðum Lögreglan á Seyðisfirði stóð tvo unga menn að því að skjóta tjalda. Mennimir höfðu skotið tvo fugla er lögreglan stöðvaði veiðamar. Tjaldurinn er alfriðaður. Nokkuð hefur borið á því á Seyðisfirði og nágrenni að skot- veiðimenn hafi verið á gæsaveið- um. Lögum samkvæmt er óheim- ilt að skjóta gæsir eftir 15. mars. Lögreglan á Seyðisfirði segist taka mjög hart á þessum brotum og stefnt sé að því aö koma alveg í vegfyrirgæsaveiðamaj:. -sme Seyðisflörður: Brotist inn í kaupfélagið Brotist var inn í Kaupfélag Hér- aðsbúa á Seyöisfirði um síðustu helgi. Þaðan var hljómtækjum stoliö að verðmæti um 60 þúsund krónur. Lögreglan vinnur aö rannsókn málsins sem er óupp- lýst. -sme Kirkjubæjarklaustur: Sumri fagnað á fjölbreyttan hátt Unnið að hreinsun malarvallarins á Siglufirði. DV-myndir Guðmundur Sigluflörður: Moka snjóinn af malarvellinum Guðmundur Davíðsson, DV, Siglufirði: Malarvöllurinn á Siglufirði er not- aður sem snjógeymsla á vetrum, þar sem snjó af nærliggjandi götum er ýtt inn á hann. Nú nýlega gerðu KS-ingar, félagar í Knattspyrnufélagi Siglufjarðar, samkomulag við bæinn um að ann- ast mokstur af svæðinu. Átta bílar af vörubílastöðinni og fimm mokst- urstæki voru í sjálfboðavinnu allan laugardaginn 22. apríl en þrátt fyrir akkorðskeyrslu náðist ekki að klára verkið. Það var svo gert á kvöldin nú í vikunni. Á meðan á þessu stóð var meistara- flokkur KS á keppnisferðalagi á Ak- ureyri og lék við Þór og TBA. Þór sigraði KS, 4-3, en KS vann TBA, 8-0. Valgeir Ingi Ólafæon, DV, Klaustri: Hátíðahöld sumardagsins fyrsta á Kirkjubæjarklaustri hó- fust með skrúðgöngu frá Skaftár- skála að menningarkapellu séra Jóns Steingrímssonar þar sem sóknarpresturinn séra Sighvatur Emilsson söng messu. Að því loknu hófst firmakeppni hestamannafélagsins Kóps við félagsheimilið en á meöan sáu kvenfélögin um skemmtun inn- andyra, kaffxveitingar og bíósýn- ingar fyrir yngstu börnin. Þá var bingó, bamakórinn söng, trúður kom í heimsókn og skemmtun- inni lauk með dansleik fyrir yngstu kynslóðina. Um kvöldið var diskótek fyrir unglinga. Selfoss: Eiginn inn- flutningur lækkar verð Kegína Thorarensen, DV, Selfossi: Ég átti nýlega tal við Þórodd Kristjánsson, einn af eigendum verslunarinnar Sportbæjar hér á Selfossi og verslunarstjóra, og spurði hann hvers vegna allar íþróttavðrur verslunarinnar hefðu lcekkaö. Hann svaraöi því fljótt og vel. „Við erum farin aö flytja inn sjálf og losnum því viö milliliði. Þess vegna hefur verð lækkað allt aö 30-40% og salan aukist vemlega. Við leggjum áherslu á að hafa stór númer f skótaui, allt upp í 47 og 48 því unglingar em fótstór- ir nú til dags.“ Þá gat Þorvaldur þess að lokum að þaö hefði kotnið þeim á óvart hve álagning heildsala og SÍS væri mikil. Það hefði komiö í Ijós með eigin innflutningi og eigend- ur ekki gert sér grein fyrir því áður þau fáu misseri sem versl- unin hefur starfað. Hlíðaröall: Milljónatap á rekstri skíðasvæðisins í vetur Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyit „Það er alveg ljóst að við verðum einhverjum milljónum króna und- ir tekjuáætlun og það þýðir um leið að úkoman hér í fjallinu í vetur þýðir tap upp á einhverjar milljón- ir. Það mun hins vegar ekki liggja nákvæmlega fyrir fyrr en í lok maí hver endanleg útkoma verður," segir ívar Sigmundsson, forstöðu- maður skíðasvæðisins í Hlíðarfjalli við Akureyri. „Þessi vetur er búinn að vera með eindæmum erfiöur," sagði ívar. Ástandið í Hlíðarfjalli var þannig að það var ekki fyrr en langt var liðið á janúar að nægur snjór var kominn í fjalliö. Segja má að síðan snjórinn loksins kom hafi veður meira og minna hamlað eðlilegri skíðaiðkun í Hlíðarfjalli og hefur ekki verið hægt aö hafa opið í fiall- inu heila helgi nema þrisvar sinn- um. Páskarnir, sem yfirleitt hafa verið sá tími sem flestir hafa komið í fiallið, brugðust nær alveg núna vegna veðurs og samgönguerfið- leika, þannig að allt hefur lagst á eitt. ívar sagði að um næstu helgi yrði opið og sennilega yrði það síðasta helgin að þessu sinni. „Við höfum reynt að hafa hér opið í mai, reynd- um það t.d. í fyrra en það þýðir ekki neitt, fólk kemur bara ekki á skíði þegar þessi tími er kominn," sagði ívar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.