Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1989, Page 14
14
FÖSTUDAGUR 28. APRÍL 1989.
W Frjálst.óháÖ dagblaö
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM
Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON
Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÖLFUR P. STEINSSON
Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift,
ÞVERHOLTI 11,105 RVlK, FAX: (1)27079, SlMI (1)27022
Setning, umbrot, mynda- og plötugerð:
PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11
Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 900 kr.
Verð i lausasölu virka daga 85 kr. - Helgarblað 100 kr.
Úr tengslum við slorið
Oft hafa stéttarfélög ýtt úr vör meö meiri kaupkröfur
en háskólafólk hjá ríkinu hefur gert aö þessu sinni. Og
komið hefur fyrir, aö þau hafi náö til hafnar með umtals-
verðan hluta af kröfunum. Því er forvitnilegt aö gera
sér grein fyrir, af hverju siglingin gengur nú illa.
Launahlutföll hópa breytast ekki alltaf í takt. Einstök-
um stéttum hefur stundum tekizt aö rífa sig lausar og
ná meiri árangri en aðrar. Þaö gerðist raunar áöur hjá
háskólamenntuðu fólki, þegar samið var viö ríkiö um
starfsmat, sem tók mikiö tillit til menntunarlengdar.
Nú telja háskólamenntaðir ríkisstarfsmenn, aö aftur
hafi sigiö á ógæfuhliðina, og vilja rétta hlut sinn á nýjan
leik. Sumir hópar þeirra eru í verkfalli, sem staðið hef-
ur í réttar þrjár vikur og gæti staðið í margar vikur í
viðbót. Engin lausn deilunnar er í sjónmáh að sinni.
Þegar vel hefur gengið að setja fram miklar kröfur
og ná miklu fram, hafa aðstæður verið aðrar í þjóð-
félaginu. Venjulega hefur það gerzt í kjölfar aukinnar
velgengni í sjávarútvegi. Við slíkar aðstæður hafa hópar
í landi haft misjafnt lag á að maka krókinn.
Að þessu sinni hafa ekki orðið í sjávarútvegi nein
uppgrip, sem stjómvöld geti dreift yfir þjóðfélagið í
heild. Þvert á móti hafa tvær ríkisstjórnir í röð rekið
fastgengisstefnu, sem hefur keyrt þrælsóhna svo fast
að hálsi sjávarútvegs, að honum hggur við köfnun.
Að þessu sinni er ekki heldur um að ræða, að hlutur
launa í þjóðarkökunni sé að aukast og að einstakir hóp-
ar geti náð stærri sneiðum en aðrir af launahlutnum.
Hann er mun stærri en venja hefur verið á síðustu ára-
tugum og mun ekki aukast neitt til viðbótar.
Háskólamenntaðir ríkisstarfsmenn hafa vahð rangan
tíma til að reyna að bæta hlut sinn umfram aðra. Ríkis-
stjórnin getur ekki leyft sér að semja við þá um aðrar
samningastærðir en samið var um við aðra ríkisstarfs-
menn og samið verður um við starfsfólk atvinnuhfsins.
Ef stjórnvöld semdu við háskólafólk um meira en hjá
öðmm ríkisstarfsmönnum, mundi almenni vinnumark-
aðurinn hækka kröfur sínar. Ennfremur færi aht í gang
aftur hjá bandalagi ríkisstarfsmanna. Stólarnir mundu
hreinlega fljóta undan ráðherrunum í kohsteypunni.
Athyghsvert er, að háskólamenntaðir kennarar em
í hópi verkfahsmanna, þótt þeir hafi reynslu af litlum
árangri í verkfóhum. Það minnir á, að prentarar hafa
á ýmsum tímabhum hneigzt th næstum árvissra verk-
faha, þótt þeir hafi tapað á þeim, en ekki grætt.
Stundum rís róttæk þrætubókarforysta í stéttarfélög-
um. Hún hrífur með sér félagsmenn í eins konar hóp-
efh, sem leiðir th verkfahshneigðar. Það er ekki fyrr en
eftir nokkrar misheppnaðar atrennur, að hópvíman
rennur af fólki og það fær sér raunsærri fomstu.
Þrætubókin hefur fengið hljómgrunn hjá háskóla-
gengnu fólki, af því að það hefur einangrazt í þjóðfélag-
inu og skhur ekki raunveruleikann í kringum sig. Kenn-
arar úti á landi vita meira um atvinnulífið í kringum
sig og vom því tregari th verkfahs en höfuðborgarhðið.
Hjá háskólamenntuðu fóhd, einkum því, sem ekki
stundar kennslu, er afar óáþreifanlegt samhengi milli
launaumslags og árangurs í starfi. Sumir virðast raunar
telja, að þeir eigi rétt á að fá borgað fyrir að vera th.
Þeir em víðar en á Rannsóknastofnun landbúnaðarins.
Verkfahsfólk mun bíða meira tjón af verkfallinu en
sem nemur því, er um verður samið að lokum. Þetta
stafar af, að háskólafólk hefur misst tengslin við slorið.
Jónas Kristjánsson
Séð yfir Panamaskurðinn. - „Fyrirtækið, sem rekur skurðinn, stendur ekki skil á skattgreiðslum starfsmanna
til ríkissjóðs Panama", segir hér m.a.
Hvernig styrkja má
herstjóra í sessi
Fyrir hálfu öðru ári lögðu Banda-
ríkin til atlögu við eitt fyrrverandi
leppríki sitt, það ríki þar sem þau
hafa getaö ráðið öllu sem þau hafa
viljað í 86 ár, og töpuöu. Hrakfarir
Bandaríkjastjórnar fyrir Noriega,
herstjóra í Panama, eru með ólík-
indum því að þau hafa beitt öllum
þeim ráðum sem tiltæk eru til að
knýja hann til undirgefni, aö hem-
aðaríhlutun einni undanskihnni.
Það er ekki nóg með að aðforin
að Noriega hafi mistekist, Banda-
ríkjamönnum hefur meira að segja
tekist að gera þennan fyrrum óvin-
sæla harðstjóra að þjóðhetju í landi
sínu sem Panamabúar eru stoltir
af, fyrir það að hann hefur boðið
Bandaríkjamönnum birginn og
komist upp með það.
Þetta em mikil tíðindi og sýna
enn hversu Bandaríkjamönnum
gengur á seinni áram illa að halda
uppi húsaga í fyrram hjálendum
sínum í Mið-Ameríku.
Eiturlyf og
refsiaðgerðir
Bandarísk yfirvöld ákærðu Nori-
ega haustið 1987 fyrir samstarf við
eiturlyfj aframleiðendur í Kólomb-
íu og stórfellt kókainsmygl til
Bandaríkjanna. í framhaldi af
þessum ákærum krafðist Banda-
ríkjastjóm þess að Noriega yrði
framseldur til Miami til að koma
fyrir rétt.
Þáverandi forseti Pariama, sem
að nafninu til var æðsti maður
landsins, féllst á þessa kröfu og
setti Noriega af sem æðsta mann
hersins. En Noriega sýndi þá hver
réð, setti forsetann af og lét síðan
þingið kjósa nýjan forseta sem ó-
gilti ákvörðun fyrirrennara síns.
Síðan hefur ekki verið um það deilt
hver stjómar Panama þótt að nafn-
inu til sé þar lýöræði.
Bandaríkjamenn töldu sig geta
þvingaö Noriega til hlýðni og gripu
til aðgerða sem hefðu átt að duga.
Allri aðstoð var hætt og sömuleiðis
var innflutningsleyfi á sykri til
Bandaríkjanna afnumið. Banda-
ríkjastjórn hætti að sjá seðlabanka
Panama fyrir dollaraseðlum, sem
eru gjaldmiðill landsins, banda-
rískum bönkum og fyrirtækjum
var bannað að inna af hendi nokkr-
ar greiðslur tii stjómar eða ríkis-
stofnana í Panama. Gjöld af Pan-
amaskurðinum eru greidd inn á
lokaðan reikning og fyrirtækið,
sem rekur skurðinn, stendur ekki
skil á skattagreiðslum starfsmanna
til ríkissjóðs Panama.
En allt kom fyrir ekki. Lands-
framleiðsla hefur að vísu minnkað
um 20 prósent og bankakerfi lands-
ins ætti aö vera lamað, en Panama
er samt ekki komið í þrot. Staöa
Noriegas hefur styrkst og nú er
útséö um að Bandaríkjastjórn komi
honum frá. Þessu hefði enginn trú-
að áður en á reyndi.
Panamaskurðurinn
og bankar
Stjómvöld í Panama hefðu veriö
vamarlaus gagnvart slíkum þrýst-
ingi fyrir nokkram áram, en á síð-
Kjallariim
Gunnar Eyþórsson
fréttamaður
ustu árum hefur orðið mikil breyt-
ing á. Efnahagskerfi landsins var
að heita má algerlega háð Panama-
skurðinum og er það að vísu að
miklu leyti enn en næststærsta
tekjulind landsins er nú banka-
starfsemi. Panama er nokkurs kon-
ar fríhöfn fyrir peninga. Á annað
hundrað alþjóðlegir bankar eiga
útibú í Panama og um þessa banka
fara gífurlegar fjárhæðir. Mjög stór
hluti þessa fjármagns er ýmiss
konar felusjóðir, sem fara um Pan-
ama til að villa yfirvöldum í heima-
landinu sýn, bæði af skattaástæð-
um og sömuleiðis fer stór hluti af
eiturlyfjagróöa glæpasamtaka um
þessa banka þar sem dolluram er
skipt í aðra mynt, gegn gjaldi, sem
meðal annars á að hafa runnið til
Noriega sjálfs og fer þaðan löglega
í aðra banka, í Sviss eða annars
staðar.
Þessi bankastarfsemi, og að sjálf-
sögðu ýmis alþjóðleg lánastarf-
semi, er nú næstmesta tekjuhnd
Panama. Án þessa bankakerfis
hefðu refsiaðgerðir Bandaríkja-
stjórnar strax komið Noriega á
kné. En úr þessu kerfi fær hann fé
til að borga hernum og það er allt
sem þarf. En fleira kemur til. Það
er ekki Noriega einn sem hefur
hagnast á þvi að hreinsa eiturlyfja-
dollara í Panama, sterkur grunur
leikur á að gróðinn af eiturlyfja-
smygh hafi hka verið notaður með
vitund Bandaríkjamanna til að
fjármagna contraskæruliðana í
Nicaragua.
Noriega gæti sagt meira en
Bandaríkjastjórn kærir sig um að
gera opinbert ef hann kæmi fyrir
rétt. Bandaríska utanríkisráðu-
neytið var hka mjög á móti því á
sínum tíma að dómsmálaráðuneyt-
ið væri að ákæra Noriega og eftir
á séð hefðu Bandaríkjamenn betur
látið það ógert.
Afhending
Panamaskurðarins
Það er ljóst að Noriega hefur stað-
ið af sér þessa aðfór og það era
Bandaríkjamenn sem verða að
draga í land. í næsta mánuði fá
þeir tækifæri til þess þegar nýr for-
seti verður kosinn í lýðræðislegri
kosningu enda þótt Noriega verði
eftir sem áður herstjóri. Við þann
forseta verða Bandaríkjamenn að
eiga því að um næstu áramót verða
þeir að afhenda stjórn Panama for-
sæti í nefnd þeirri sem á að skila
Panamskurðinum til Panamabúa
að öhu leyti árið 2000.
Bandaríkjamenn undir forsæti
Jimmy Carters afsöluðu sér eilífð-
arrétti th skuröarins árið 1978 og
síðan hefur stjóm Panama verið
að fá meiri ítök í skurðinum og
skurðsvæðinu smám saman, þar th
afhendingu verður lokið á gamlárs-
dag 1999. Þessi fyrirhugaða af-
hending skurðarins hefur breytt
samskiptum rikjanna.
Panamaríki sjálft var stofnað út
úr Kólombíu 1903 beinlínis th þess
að vera umgerð um skurðinn sem
Bandaríkjamenn ætluðu að eiga til
eilífðarnóns. Þeir hafa hingað til
tahð sig eiga Panama hka, við sí-
minnkandi hrifningu íbúanna, þar
th nú að Noriega hefur endanlega
boðið bandarískri yfirdrottnun
birginn.
Bush, núverandi Bandaríkjafor-
seti, dróst inn í þessi mál í fyrra
þegar hann var bendlaður við til-
lögu um að múta Noriega til að fara
frá meö því að bjóða honum sakar-
uppgjöf og að hann færi úr landi
með eins mikið fé og hann vildi,
gegn því að Bandaríkjamenn hættu
refsiaðgerðum sínum. Bush hefur
engan sóma haft af þeirri tihögu
sem átti á sínum tíma að fara leynt.
En samkvæmt fréttum frá Banda-
ríkjunum stendur nú til að end-
urnýja þessa thlögu, að minnsta
kosti þann hluta hennar aö fella
niður ákærur og falla frá refsiaö-
gerðum.
Einhverja málamyndatilslökun
munu Bandaríkjamenn vilja fá á
móti en hvernig sem því lýkur er
þegar ljóst að þeir verða að horfast
í augu við þá staðreynd að þeir
geta ekki lengur ráðið því sem þeir
vilja í Panama. Þeir verða því að
láta undan síga th þess að geta
gætt þeirra gífurlegu hagsmuna
sem þeir eiga að gæta í Panama-
skurðinum og hernaðarsvæðinu
sem honum fylgir. Þeir hafa ekkert
haft nema skömmina af átökunum
við Noriega.
Gunnar Eyþórsson
„Panama er nokkurs konar fríhöfn fyr-
ir peninga. A annað hundrað alþjóðleg-
ir bankar eiga útibú í Panama og um
þessa banka fara gífurlegar fjárhæðir.“