Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1989, Qupperneq 15
FÖSTUDAGUR 28. APRÍL 1989.
15
Að muna eða muna ekki
Það hefur löngum verið sagt að það
sé skrítin tík, pólitík. En það eru
þó eflaust orð að sönnu þegar um
íslenska pólitík er að ræða. Flestir
geta eflaust verið sammála um að
það sé tík sem taki flestum öðrum
tíkum fram hvað skrítilegheit
varðar.
Eitt nýlegasta dæmið um þess
háttar skrítilegheit verður eflaust
að teljast umræðan um komu eitt
þúsund bandarískra hermanna
hingað til lands vegna heræfmga
er áttu að hefjast þann 17. júní
næstkomandi. Atburöur þessi hef-
ur fengið verðskuldaða athygli og
vakið úlfaþyt og skemmtilegar
umræður á Alþingi.
Bara öryggismál!
Eitt af því sem vakið hefur at-
hygli greinarhöfundar er hversu
mannlegur og hreinskilinn virðu-
legur forsætisráðherra vors hjart-
fólgna íslands, Steingrímur Her-
mannsson, er í máli þessu öllu. Það
ætti ekki að þurfa að vera að gera
fárviðri út af því þótt virðulegur
forsætisráðherra muni ekki hvert
einasta smáatriði er inn á borð til
hans kemur. Það eru alveg örugg-
lega ekki ófáir hlutir sem hvíla á
manni í hans embætti og þar af
leiðandi til of mikils mælst að hann
kunni skil á þeim öllum.
Það verður að teljast algerlega að
ófyrirsynju af núverandi utanrík-
isráðherra, Jóni Baldvini Hannib-
alssyni, að vera að ráðast á Stein-
grím fyrir þessar sakir. Þetta eru
nú bara öryggismál þjóðarinnar
sem um ræðir og við getum nú al-
deihs tahst örugg hér norður í hafi
með þetta ágætis varnarlið okkur
til varnar. Það ætti nú bara að
bæta úr skák að fá 1000 hermenn
til viðbótar í varnirnar.
En það verður hins vegar að telj-
ast með eindæmum ófyrileitin
óskammfeilni af hálfu Jóns Bald-
vins að þurfa sífellt og endurtekið
að vera að minna á að virðulegum
forsætisráðherra hafi vel verið
kunnugt um heræfingar þessar.
Það gætir virðingarleysis hjá utan-
ríkisráðherra í garð hins háæru-
verðuga forsætisráðherraembættis
að vera að minna á þaö að núver-
Jón Einar Eyþórsson
verslunarmaður
andi forsætisráðherra hafl vel
þekkt til þessara mála í eigin utan-
ríkisráðherratíð.
Er endilega nauðsynlegt að vera
að rifja það upp að í ágúst 1987
hafi þáverandi utanríkisráðherra,
Steingrími Hermannsyni, verið
boðið í heimsókn til varnarliðsins?
Er nauðsynlegt... ?
Er nauðsyniegt að vera að draga
það fram í dagsljósið að þar hafi
Steingrími verið gerð ítarleg grein
fyrir umfangi og markmiðum æf-
inganna? Hvers vegna þarf að vera
að minnast þess að þar hafl Stein-
grími persónulega verið tjáð að
hingað kæmu 1000 hermenn vegna
æfinganna? Það er eins og það hafl
gleymst í þessari umræðu ahri að
það getur vart talist sök Steingríms
þó Kanarnir hafi verið svo ósmekk-
legir að ákveða að hefja þetta sprikl
sitt á þjóðhátíðardegi íslendinga.
Veit ekki Jón Baldvin Hannibals-
son að Steingrímur Hermannsson
er vinsælasti stjórnmálamaður ís-
lensku þjóðarinnar? Ef Jón Bald-
vin gerir sér það ljóst ætti það líka
að vera honum deginum ljósara að
það er honum ekki Uklegt til vin-
sældaaukningar að vera með ónot
út í Steingrím. Heldur Jón Baldvin
að Steingrímur sé svona vinsæh
að ástæðulausu? Nei, Steingrímur
og varnarmál íslands séu alltof
mikilvæg og viðkvæm mál til þess
að þau séu einhver hornreka tæki-
færissinnaðra stjórnmálamanna.
Þvílík ósvífni, það er engu líkara
en þessir menn áhti að virðulegur
forsætisráðherra, Steingrímur
Hermannsson, sé ófær um að gegna
starfi sínu.
Það tekur þó út yfir allan þjófa-
bálk þegar háttvirtur alþingismað-
ur, Ragnhildur Helgadóttir, Sjálf-
stæðisflokki, kveður sér hljóðs á
þingi og segir að þetta mál sé farið
að snúast um að muna eða muna
ekki og tala eða tala ekki. Síðan
tekur hún svo djúpt í árinni að
segja að engar tvær yfirlýsingar
forsætisráðherra í fjölmiðlum hafi
verið samhljóða. Þessu næst segir
hún að það skipti miklu máli að
ríkisstjórn íslands sé trúverðug í
öryggismálum.
Hvað meinar Ragnhildur eigin-
lega? Er hún að gefa í skyn að okk-
ar virðulegi forsætisráðherra sé
ekki trúverðugur?
Ragnhildur Helgadóttir ætti sam-
kvæmt þessu að hafa það ráð að
láta vera að tala og taka Steingrím
sér til fyrirmyndar og láta vera að
muna. Jón Einar Eyþórsson
er bara ósköp mannlegur, hann er
bara hann sjálfur.
Þar eð vinsældabyrinn hefur ekki
blásið sérlega kröftuglega í segl
Jóns Baldvins að undanfórnu ætti
Jón Baldvin frekar að taka Stein-
grím sér til fyrirmyndar. Jóni Bald-
vini væri ráðlegt að breyta um takt-
ík í pólitík og reyna að gleyma því
að vera sífellt að leika einhvern
virðingarleysi alþingismanna eigi
sér engin takmörk í máli þessu.
Fjórir þingmenn og kona
Fréttir hafa borist af því að fjórir
þingmenn Sjálfstæðisflokks, þeir
Guðmundur H. Garðarsson, Hall-
dór Blöndal, Birgir ísleifur Gunn-
arsson og Ólafur G. Einarsson,
hyggist flytja tillögu til þingsálykt-
„Er endilega nauðsynlegt að vera að
rifja það upp að í ágúst 1987 hafi þáver-
andiutanríkisráðherra, Steingrími
Hermannssyni, verið boðið í heimsókn
til varnarliðsins?“
„super“-mann og hætta sem allra
fyrst að vera svona fjári minnugur.
Það væri kannski ástæðulaust að
vera fjalla um þetta mál ef ein-
göngu væri um að ræða þetta frum-
hlaup utanríkisráðherra, Jóns
Baldvins Hannibalssonar. En það
er ekki þeirri lukku að fagna því
Dað virðist sem óskammfeilni og
unar, þess efnis að hafmn verði
undirbúningur að stofnun sérstaks
varnar- og öryggismálaráðuneytis,
er lúti sérstökum ráðherra. Þessu
til málsbótar segja þeir að atburðir
síðustu daga á Alþingi íslendinga
hafi sýnt fram á þörfma fyrir þetta
nýja embætti.
Auk þess segja þeir að öryggis-
Núverandi og fyrrverandi utanríkisráðherra samstíga í góðviðrinu. - Núverandi utanríkisráðherra alltof minnug-
ur? Jón Baldvin ætti að taka Steingrím sér til fyrirmyndar.
Póstf lutningar á Vesturlandi
I Dagblaðinu þriðjudaginn 11.4.
sl. var lesendabréf um póstflutn-
inga á Vesturlandi eða nánar tiltek-
ið á póstnúmerasvæði 311 Borgar-
nesi. í lok greinarinnar er skorað
á þá semn láta sig þessi mál ein-
hverju skipta að láta frá sér heyra.
Ég vil taka undir þessa áskorun og
jafnframt fjalla htillega um þetta
lesendabréf, svo og málið í heild.
í lesendabréfmu er vægt til orða
tekið fiallað um málið af mikilli
ónákvæmni og skal hér að því vik-
ið.
Sagt er að póstflutningar hafi
verið aðeins til umræðu hér á Vest-
urlandi upp á síðkastið og þó mun
minna en þurft hefði. Þá er þess
getið að mörgum þyki þjónusta KB
í póstflutningum ekki nægjanlega
góð. Undir lok bréfsins er sagt að
KB þrýsti á um að halda póstdreif-
ingu áfram þrátt fyrir uppsögn og
því síðan slegið fóstu að KB geti
aldrei veitt sambærilega þjónustu
og landpóstar þótt þeir segist ætla
að gera það, eins og bréfritari segir.
Hverjar eru staðreyndirnar?
Póstdreifing á félagssvæði KB,
sem er sama og póstnúmerasvæði
311, hefur verið til umfiöllunar á
fundum í mörgum félagsdeildum
KB síðastliðin ár, svo og á aðal-
fundum KB.
Á aðalfundi KB í maí 1988 var
samþykkt að segja upp gildandi
samningi um póstflutninga og jafn-
Kjallariim
Halldór Brynjúlfsson
framt óskað eftir viðræðum um
nýtt fyrirkomulag. Stór hópur hef-
ur því komið að umfiöllun um þetta
mál á vettvangi KB, sjálfsagt ekki
færri en um 200 manns. Þá hafa
sveitarstjórnir á svæðinu í 17 sveit-
arfélögum fiallað um máhö og er
þar um að ræða sennilega um 85
sveitarstjórnarmenn. Þessu til við-
bótar hefur í vetur verið mjög mik-
il umfiöllun um þessa flutninga þar
sem tveir eða fleiri af svæðinu hafa
tekið tal saman.
Það er því fráleitt að halda því
fram að lítið hafi verið um málið
fiallað. Sá sem því heldur fram
hefur tæpast verið hér á svæðinu
í vetur.
Þjónusta ekki nægjanleg
Það skal tekið undir með bréfrit-
ara að þjónusta KB síðustu ár hefur
ekki verið nægjanlega góð, um það
og hugsanlegar endurbætur hefur
umræðan snúist.
Mjólk var framleidd til sölu á
flestum bæjum hér um slóðir og
þótti það því mikil framfór á sínum
tíma þegar farið var að dreifa pósti
með mjólkurbílunum. Jafnframt
hefur sú dreifing verið fiárhagslega
hagkvæm fyrir alla aðila. Nú hefur
mjólkurframleiðendum fækkað
mjög og þess vegna var gamla fyrir-
komulagið farið að valda óánægju
og þarfnaðist endurbóta.
Aðalfundur KB, en hann sitja um
70-80 manns, fól stjórn að leita eft-
ir nýjum samningi og það er hlut-
verk okkar starfsmanna að vinna
að þeim samþykktum sem aðal-
fundur og stjórn fela okkur og ber
okkur að beita þrýstingi ef svo ber
undir. Það vill líka svo til að megin-
hluti fulltrúa á aðalfundi KB eru
jafnframt þeir sem búa við um-
rædda póstþjónustu. Af hálfu KB
hefur því verið unnið að þessu
máli eins og þeir sem þjónustunnar
eiga að njóta hafa óskað.
Áfram með KB
Af hálfu KB er stefnt að því, ef
við okkur verður samið, að bæta
þjónustuna verulega frá því sem
verið hefur en slíkt er ekki hægt
án aukins tilkostnaðar. Hvort hún
verður sambærileg þjónustu land-
pósta eða ekki má að sjálfsögðu um
deila. Ég tel að í marga staði megi
halda því fram ef ekki er litið ein-
angrað á póstþjónustuna eina þá
verði íbúum þessa svæðis tryggð
betri almenn þjónusta. Það er nú
svo að þó góð póstþjónusta sé mik-
ilvæg þá lifa menn ekki á póstinum
einum saman. íbúar þessa svæðis
þurfa einnig mjólk, brauð o.fl. o.fl.
til þess að hægt sé að tala um að
þeir búi við góða þjónustu al-
mennt. KB mun, ef við það verður
samiö, tengja saman flutning á
pósti og almennun neysluvarningi.
Hugmynd okkar um þessa þjón-
ustu er í stórum dráttum þannig
að póstur verði fluttur til allra
heimila á svæðinu þrisvar í viku
og breytingar verði gerðar á flutn-
ingi á póstkröfum, hraðbréfum og
' ábyrgðarbréfum frá því sem verið
hefur. Þá hefur einnig verið rætt
um vissar breytingar hjá Pósti og
síma sem tryggði betri þjónustu.
Að sjálfsögðu eiga íbúar þessa
svæðis rétt á sambærilegri þjón-
ustu og tíðkast annars staðar. Það
er og mat þeirra sem um hafa fiall-
að hér heima í héraði að sú þjón-
usta verði best tryggð með því að
samið verði áfram um póstflutn-
ingana við KB
Allar sveitarstjórnir á svæðinu,
17 talsins, munu vera búnar að
fialla um með hvaða hætti best sé
að haga póstdreifingu á svæðinu.
Að minnsta kosti 13 þessara sveit-
arstjóma hafa mælt eindregið með
því að samið verði við KB um þessa
flutninga og sent Pósti og síma
samþykktir þar um.
Vestlendingar, sem málið varðar,
hafa því svo sannarlega látið í sér
heyra og vonandi verður á þá
hlustað.
Halldór Brynjúlfsson
deildarstjóri
Bifreiðastöðvar KB
„Hugmynd okkar um þessa þjónustu
er 1 stórum dráttum þannig að póstur
verði fluttur til allra heimíla á svæðinu
þrisvar 1 viku.“