Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1989, Page 27
FÖSTUDAGUR 28. APRÍL 1989.
35
Afrnæli
Skúli Halldórsson
Skúli Halldórsson tónskáld, Bakka-
stíg 1, Reykjavík, er sjötíu og fimm
ára í dag. Skúli fæddist á Flateyri
við Önundarfjörð. Hann lauk prófi
frá VÍ1932, prófi í kontrapunkti,
tónsmíðum, og útsetningu frá Tón-
listarskólanum í Reykjavík 1947 og
prófi í píanóleik frá sama skóla 1948.
Skúli vann hjá Tóbakseinkasölu
ríkisins í Reykjavík 1932-1934, var
skrifstofumaður hjá Strætisvögnum
Reykjavíkur 1934-1944 og skrifstofu-
stjóri þar til 17. maí 1985. Hann
ke/mdi píanóleik 1948-1952, var
undirleikari hjá Pétri Jónssyni
óperusöngvara 1943-1947, hjá Sig-
urði Ólafssyni, Guðmundi Guðjóns-
syni, Guðmundi Jónssyniog ýms-
um öðrum óperusöngvurum og leik-
urum 1953-1975. Þá var hann ein-
leikari á héraðsmótum viða um land
mörgsumur.
Skúii var 1 stjóm Tónlistarfélgsins
1949-1988, í stjóm STEF1949-1988
og þar af formaður 1968-1988. Hann
sat í stjóm Bandalags íslenskra
hstamanna 1961-1971.
Skúh hefur samið á annað hundr-
að sönglög, um tuttugu hljómsveit-
arverk og kammerverk og um tíu
píanóverk. Út hafa komið eftir hann
tólf sönglög við ljóð Jóns Thorodds-
en og tíu sönglög við ljóð Theodóru
Thoroddsen. Hann fékk verðlaun
frá Ríkisútvarpinu fyrir lagaflokk
sinn við ástarljóö Jónasar Hah-
grímssonar.
Skúli kvæntist 14. maí 1937 Stein-
unni Guðnýju Magnúsdóttur, f. 14.
ágúst 1917. Foreldrar hennar voru
Magnús Hákonarson, b. á Nýlendu
í Miðneshreppi, og kona hans, Guð-
rún Steingrímsdóttir, b. á Stóra-
Nýjabæ í Krísuvík, Steingrímsson-
ar.
Böm Skúla og Steinunnar eru
Magnús, f. 15. október 1937, arkitekt
í Reykjavík, kvæntur Silvíu Guð-
mundsdóttir sérkennara, og Unnur,
f. 30. júh 1939, fiskifræðingur hjá
Hafrannsóknastofnun, giftKristjáni
Sigurjónssyni lækni.
Foreldrar Skúla vom Hahdór Ge-
org Skúlason, læknir í Rvík, og kona
hans, Unnur Skúladóttir Thorodd-
sen. Halldór var sonur Stefáns, b. í
Litlu-Hhð, síöar vegaverkstjóra á
Akureyri, Jónassonar. Móðir Hall-
dórs var Margrét Ingibjörg Egg-
ertsdóttir, b. á Fossi í Vesturhópi,
bróður Helgu, langömmu Björgvins,
foður Ellerts Schram. Eggert var
sonur Halldórs, prófasts á Melstað,
Ámundasonar, b. og smiðs í Syðra-
Langholti, Jónssonar, fóður Guð-
rúnar, langömmu Jóhanns Hjartar-
sonar stórmeistara. Móðir Margrét-
ar Ingibjargar var Haha Jónsdóttir,
b. og stúdents á Leirá, Árnasonar,
bróður Arndísar, ömmu Bjama
Þorsteinssonar, prests ogtónskálds
á Siglufirði. Móðir Jóns var Hah-
dóra Kolbeinsdóttir, prests og
skálds í Miðdal, Þorsteinsonar,
langafa Péturs Sigurgeirssonar
biskups.
Unnur var dóttir Skúla Thorodd-
sen, alþingismanns á ísafirði, Jóns-
sonar Thoroddsen, sýslumanns og
skálds á Leirá. Móöir Skúla var
Kristín Þorvaldsdóttir Sivertsen,
umboðsmanns og alþingismanns í
Hrappsey, og konu hans, Ragnhild-
ar Skúladóttur, sýslumanns á
Skarði, Magnússonar, sýslumanns
á Skarði, Kethssonar. Móðir Magn-
úsar var Guörún Magnúsdóttir,
systir Skúla fógeta.
Móðir Unnar var Theodóra Thor-
oddsen skáldkona Guðmundsdóttir,
prófasts og alþingismanns á Breiða-
bólstað á Skógaströnd, Einarssonar,
bróður Þóru, móður Matthíasar
Jochumssonar. Önnur systir Guð-
mundar var Guðrún, amma Herdís-
ar og Óhnu Andrésdætra. Móðir
Theódóra var Katrín Ólafsdóttir Sí-
vertsen, prófasts í Flatey, bróður
Þorvaldar í Hrappsey. Móðir Katr-
ínar var Jóhanna Eyjólfsdóttir,
prests á Eyri í Skutulsfirði, Kol-
beinssonar, bróður Halldóru, móð-
ur Jóns Árnasonar á Leirá. Meðal
bræðra Skúla Thoroddsen vom Þor-
valdur náttúrufræðingur, Þórður,
læknir og alþingismaður, faðir Em-
ils tónskálds og afi Þorvaldar Stein-
grímssonar fiðluleikara, og Sigurð-
ur landsverkfræðingur, faðir Gunn-
ars forsætisráðherra og afi Jóns
Thoroddsen borgarlögmanns. The-
ódóra Thoroddsen var móðursystir
ffRHlll
Skúli Halldórsson
Muggs, Péturs Thorsteinssonar
sendiherra og ömmusystir Arnar
Johnsen, forstjóra Flugleiða, föður
Arnar, forstjóra Skorra, Ehsabetar,
móður Ólafs B. Thors, forstjóra
Sjóvá-Almennra, og amma Hhmars
Oddssonar kvikmyndagerðar-
manns og Gyðu, móður Jóns Thors,
skrifstofustjóra í dómsmálaráðu-
neytinu. Theódóra Thoroddsen er
einnig langömmusystir Ólafs Mixa
læknis og Jóns Hermannssonar
kvikmyndagerðarmanns.
Skúli verður að heiman á afmælis-
daginn.
Anna Sveinsdóttir
Anna Sveinsdóttir, fyrrv. prestsfrú,
Austurbrún 4, Reykjavík, er níutíu
ogfimmáraídag.
Anna fæddist að Skatastöðum í
Austurdal í Skagafirði en ólst upp
frá fjögurra ára aldri að Bústöðum
í sömu sveit hjá Önnu Jónsdóttur
og syni hennar, Tómasi Pálssyni.
Anna giftist 6.12.1918, sr. Sigur-
jóni Jónssyni, þá presti á Baröi í
Fljótum, síðar lengst af á Kirkjubæ
í Hróarstungu í Norður-Múlasýslu.
Sigurjón var sonur Jóns Benjamins-
sonar, b. á Háreksstöðum í Jökul-
dalsheiði, Þorgrímssonar í Skógar-
gerði á Tjörnesi, Þórðarsonar. Móð-
ir Þorgríms var Guðrún Þorgríms-
dóttir, bróðir Ihuga, afa Hólmfríðar,
ömmu skáldanna Guðmundar og
Sigurjóns Friðjónssona og
langömmu Indriða Indriðasonar rit-
höfundar.
Móðir Siguijóns var Anna Jóns-
dóttir, b. á Hvoh í Borgarfirði eystra
Stefánssonar, og konu hans, Stein-
unnar Eyjólfsdóttur.
Böm Önnu og Sigurjóns em: Fjal-
arr, f. 20.9.1919, en hann lést á öðru
ári; Sindri, f. 20.12.1920, d. 23.1.1989,
skrifstofustjóri í Reykjavík, en
ekkja hans er Sigríður Helgadóttur;
Fjalarr, f. 20.7.1923, prófastur á
Kálfafehsstað, kvæntur Betu Ein-
arsdóttur; Frosti, f. 18.3.1926, læknir
í Kópavogi, kvæntur Guðrúnu Val-
garðsdóttur; Máni, f. 28:4.1932, org-
enleikari og tónhstarkennari í
Kópavogi, kvæntur Kristínu I. Tóm-
asdóttur; Vaka, f. 25.6.1933, hjúkr-
unarkona í Reykjavík, gift Bergþóri
Sigurðssyni.
Alsystkini Önnu voru Erlingur, f.
21.12.1887, b. á Víðivöllum ytri í
Fljótsdal, kvæntur Margréti Þor-
steinsdóttur frá Aðalbóli á Jökuldal;
Þormóður, f. 22.9.1889, fræðimaður
og lengi bókari hjá KEA á Akur-
eyri, var kvæntur Björgu Stefáns-
dóttur frá Þórðarstöðum í Fnjóska-
dal; Aldís, f. 13.10.1890, lengibónda-
kona víða í Skagafirði, var gift
Kristni Jóhannssyni frá Miðsitju í
Skagafirði; Árni, f. 30.10.1892, lengst
af b. á Kálfsstöðum í Hjaltadal, var
kvæntur Sigurveigu Friðriksdóttur
frá Reykjum í Hjaltadal; Guðrún, f.
29.7.1895, lengst af húsmóðir í Ey-
hildarholti í Hegranesi, var gift
Gísla Magnússyni b. þar.
Hálfsystkini Önnu samfeðra vom
Sveinfríður, f. 30.6.1880, en móðir
hennar var Magrét Pétursdóttir frá
Þangskála, og Hannes Sveinbergur,
f. 28.12.1905, en móðir hans var
Hansína Hannesdóttir frá Hryggj-
um.
Foreldrar Önnu voru Sveinn Ei-
ríksson, b. á Skatastööum í Aust-
urdal í Skagafirði, og kona hans,
Þorbjörg Bjamadóttir. Sveinn var
sonur Eiríks, b. á Skatastöðum, Ei-
ríkssonar. Móðir Sveins var Hólm-
fríður Guðmundsdóttir, b. og hrepp-
stjóra í Bjarnarstaðahlíð Jónssonar,
og fyrstu konu hans, Guðríðar Jóns-
dóttur. Þorbjörg var systir Þóreyjar,
móður Ehnborgar Lárusdóttur rit-
höfundar. Þorbjörg var dóttir
Bjama, b. á Hofi í Vesturdal, bróður
Sigríðar, langömmu Sigríðar, móð-
ur Sigurgeirs Sigurðssonar, bæjar-
stjóra á Seltjamarnesi. Bjami var
sonur Hannear, prests og skálds á
Ríp, Bjarnasonar. Móðir Þorbjargar
Anna Sveinsdóttir
var Margrét, systir Sæmundar,
langafa Gríms M. Helgasonar, for-
stöðumanns handritadehdar Lands-
bókasafnsins, föður Vigdísar rithöf-
undar. Margrét var dóttir Árna, b.
í Stokkhólma Sigurössonar, út-
vegsb. í Keflavík, Árnasonar, fóður
Magnúsar, langafa Guðrúnar, móð-
ur Bjarna Benediktssonar forsætis-
ráðherra. Móðir Árna var Solveig
Snorradóttir, b. í Narfakoti, Giss-
urarsonar og konu hans, Margrétar
Jónsdóttur, b. í Engey, Erlendsson-
ar, b. í Engey, Þórðarsonar, ætt-
fóður Engeyjarættarinnar. Móðir
Margrétar var Þorbjörg Eiríksdótt-
ir, prests á Staðarbakka, Bjarnason-
ar, bróður Hannesar, prests á Ríp,
langafa Jóns Þorlákssonar forsætis-
ráðherra og Bjargar, móður Sigurð-
ar Nordals. Anna tekur á móti gest-
um í Efstasundi 18 eftir kl. 15.
Til hammgju mcð dagmn
85ára
70 ára
Ragnheiður Jónasdóttir,
Hrannargötu 1, ísafirði.
Eirílcur Einarsson,
Skjólbraut 2, Kópavogi.
75 ára
60 ára
Túngötu 8, Miðneshreppi.
Ríkey Rikarðsdóttir,
Safamýri 59, Reykjavík.
Sigríður Lúthersdóttir,
Hvassaleiti 8, Reykjavík.
Bogi Helgason,
Birkigrund 35, Kópavogi.
Eiríkur Hallsson,
Steinkirkju, Hálshreppi.
Sigríður Engilbertsdóttir,
Móabarði 2, Hafnarfirði.
Bergþóra Þorgeirsdóttir,
Ámatúni 1, Stykkishólmi.
Hún tekur á móti gestura á heimih
sínu á morgun.
Brynhhdur Jónsdóttir,
Réttarholti 4, Selfossi..
Katla Ólafsdóttir,
Safamýri 39, Reykjavík.
Ásbjörg ÞorkeJsdóttir,
Sauðhaga 2, Vallahreppi.
Guðmundur Magnússon,
Sogavegi 105, Reykjavík.
40 ára
50 ára
Sigurður Randversson,
TorfUfehi, Saurbæjarhreppi.
Guðmunda Guðmundsdóttir,
Hörður Ingvarsson,
Heiöarvegi 11, Vestmannaeyjum.
Una Árnadóttir,
Spóahólum 16, Reykjavik.
Guðbjörg Ingólfsdóttir,
Faxastig 27, Vestmannaeyjum.
Hálfdán Bjarnason,
Flúðaseli 69, Reykjavík.
KristjánHaíliðason
Kristján Hafhðason, fyrrv. póst-
rekstrarstjóri, Æsufelh 2, Reykja-
vík, veröur sjötugur á morgun.
Kristján fæddist í Herghsey á
Breiðafirði og lauk gagnfræðaprófi
frá Gagnfræðaskólanum í Reykja-
vik. Hann var lögregluþjónn í
Reykjavík 1939-1945 og vann hjá
Pósti og síma 1945-1988. Kristján var
yfirdeildarstjóri Bréfadeildar í nær
tuttugu ár og rekstrarstjóri hjá
Póststofunni í Reykjavík 1987-1988.
Kristján kvæntist Gyðu Gunnars-
dóttur kaupmanni. Þau skildu. For-
eldrar Gyðu eru Gunnar Sigurðs-
son, kaupmaður og b. á Gunnars-
hólma, ogkona hans, Margrét
Gunnarsdóttir. BörnKristjáns.og
Gyðu eru Snæbjörn, rafmagnsverk-
fræðingur hjá Iðntæknistofnun ís-
lands, Matthildur, hjúkrunarfræð-
ingur og meinatæknir hjá Landspít-
ala íslands, og Gunnar, slökkvihðs-
maður á Reykjavíkurflugvehi.
Systkini Kristjáns eru Snæbjöm,
lést ungur, og Guðrún, gift Arngrími
Jónssyni, presti í Háteigssókn.
Foreldrar Kristjáns eru Hafliði
Snæbjörnsson, b. í Hergilsey, og
kona hans, Matthildur Jónsdóttir.
Föðurbróðir Kristjáns er Jónas, fað-
ir Snæbjarnar vegamálastjóra. Föð-
ursystir Kristjáns var Ólína, amma
Jóns Gauta Kristjánssonar, fyrrv.
forstjóra Ohs og Siggeirs Ólafsson-
ar, smásagnahöfundar í Hveragerði.
Hafhði var sonur Snæbjarnar, b. og
hreppstjóra í Hergilsey, Kristjáns-
sonar, b. í Hergilsey, Jónssonar, b.
og hreppstjóra á Kleifum, Ormsson-
ar, b. í Fagradal, Sigurðssonar, ætt-
fóður Ormsættarinnar. Móðir Jóns
var Kristín Eggertsdóttir, b. í Herg-
ilsey, Ólafssonar. Móðir Hafliða var
Guðrún Hafliðadóttir, dbrm. í
Svefneyjum, Eyjólfssonar, „Eyja-
jarls“, alþingismanns í Svefneyjum,
Einarssonar. Móðir Guðrúnar var
Óhna Friðriksdóttir, b. í Arnardal,
bróður Jóhönnu, ömmu Muggs og
Theódóru Thoroddsen skálds. Frið-
rik var sonur Eyjólfs, prests á Eyri,
Kolbeinssonar, prests og skálds í
Kristján Hafliðason
Miðdal, Þorsteinssonar. Móðir Ól-
ínu var Sigríður Ólafsdóttir, b. í
Stakkanesi í Skutulsfirði, bróður
Hjalta, afa Bergs Thorbergs lands-
höfðingja. Systir Ólafs var Guðrún
Hölter, móðir Margrethe Knudsen,
ættmóður Knudsenættarinnar. Ól-
afur var sonur Þorbergs, prests á
Eyri Einarssonar, ættfóður Thor-
bergsættarinnar. Móðir Þorbergs
var Guðrún Hjaltadóttir prófasts og
málara í Vatnsfiröi, Þorsteinssonar.
Matthhdur er dóttir Jóns í Skelja-
vík í Steingrímsfirði Einarssonar,
b. í Hhö í Kollafiröi, Magnússonar.
Móðir Matthildar var Sigríður
Benediktsdóttir, b. í Gestsstaðaseh,
Magnússonar, b. í Arnkötludal,
Jónssonar. Móðir Magnúsar var
Guðbjörg Brynjólfsdóttir, b. á Þið-
riksvöllum, Magnússonar, og konu
hans, Guöríðar Guðmundsdóttur,
b. í Galtardalstungu, Bjamasonar.
Móðir Guöríðar var Steinunn Bene-
diktsdóttir, b. í Hrappsey, Jónsson-
ar, b. í Brokey, Péturssonar, afa
Galdra-Lofts. Móðir Benedikts var
Sigríður Bjömsdóttir, prests í
Tröhatungu, Hjálmarssonar, prests
í Tröhatungu, Þorsteinssonar. Móð-
ir Sigríðar var Valgerður Bjöms-
dóttir, systir Finnboga, langafa
Finnboga, fóður Vigdísar forseta.
Tilmæli til afmælisbama
Blaðiö hvetur afinælis böm og aðstand-
endur þeirra til að senda því myndir
og upplýsingar um frændgarð og starfs-
söguþeirra.
Þessar upplýsingar þurfa að berast 1
síðasta lagi þremur dögum fýrir af-
mæbð.
Munið að senda okkur myndir
i
í