Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1989, Side 23

Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.1989, Side 23
23 LAUGARDAGUR 29. APRÍL 1989. Sérstæð sakamál Anthea Watson. Vitnin þrjú: Denton, Lambrecht og frú Roche. Það leit út fyrir að vera slys þegar Tina Hallett, nítján ára, féll fyrir lest á aðaljárnbrautarstöðinni í Montreal í Kanada og beið bana. Tvö vitni lýstu því hins vegar yíir strax eftir atvikið að henni hefði verið hrint fyrir lest- ina er hún ók fram með brautarpail- inum. Hræðilegt óp heyrðist rétt í þann mund er lestin var að renna að brautarpallinum og fólkið sem beið eftir lestinni sá að ung stúlka féll þvert á teinana. Óp hennar var ekki þagnað er ægilegt ískur heyrðist í hjólum lestarinnar og viðstöddum fannst það aldrei ætla að hætta. í raun voru þessar örfáu sekúndur eins og heil eilífð. Alhr gerðu sér hka ljóst að tilraun lestar- stjórans til að afstýra slysi yrði ekki til neins. Lestin myndi ekki stað- næmast í tæka tíð. Er stúlkan var látin litu þeir sem stóðu fremst á brautarpallinum hver á annan. Stúlkan hafði dottið beint fyrir lestina... eða var það ekki? Gat verið að henni hefði verið hrint? Ótrúlegten satt? Þótt fæstir viðstaddra gætu fengið sig til að trúa því að einhver hefði viljað ungu stúlkunni svo illt að hrinda henni fram af brautarpallin- um og beint fyrir lestina var þó einn meðal viðstaddra sem þóttist svo viss um að ungu stúlkunni hefði verið hrint að hann lét strax í ljós þá skoð- un sína. Það var Kenton Lambrecht, fimmtíu og sex ára. Og hann lét sér ekki nægja að fullyrða að morð hefði verið framið heldur benti hann á konuna sem hann sagði að hefði Sagði ósatt Anthea Watson var nú beðin um að sýna kjóhnn sem hún hafði sagst ætla að skipta. Hún gerði það og var hann tekinn og farið með hann í þá verslun sem hún sagðist hafa keypt Ellis Watson. hann í. Er starfsfólk verslunarinar hafði skoðað kjóhnn staðhæfði það að fullyrðing um að hann hefði verið keyptur þar í júh 1988 gæti ekki ver- ið rétt. Þessi kjól væri hluti tísku- varnings sem seldur hefði verið þar árið áður. Þótti lögreglunni nú ljóst að fullyrðing Antheu Watson um er- indi sitt í miöborg Montreal daginn sem Tina Hallet lést fengi ekki stað- ist. EllisWatson fékk nú heimsókn frá lögreglunni Tina Hallett. Brautarpallur dauðans framið það. „Hún gerði það,“ sagði hann við lögregluna þegar hún kom á vettvang. Og rétt á eftir gaf sig fram annað vitni, Gilroy Denton, sem fuh- yrti það sama. AntheaWatson hét konan sem vitnin héldu fram að hefði hrint stúlkunni fyrir lestina. Hún var fertug húsmóðir í Montreal og hafði verið gift í sextán ár. Maður hennar var Ellis Watson. Atvikið á járnbrautarstöðinni gerðist 8. júlí í fyrra. Þriðja vitnið gaf sig svo fram skömmu eftir að hin tvö höfðu sett fram fullyrðingu sína. Þaö var Con- stance Roche, sextíu og eins árs, og hún sagöi að ungu stúlkunni hefði ekki verið hrint. Hún hefði hrasað. Á því léki enginn vafi. Constance full- yrti jafnframt að hún hefði staðið við hlið stúlkunnar er hún hefði dottið og hefði því séð það sem gerðist. Tvö vitni eru venjulega talin marktækari en eitt. Því var frú Watson handtekin og færð til yfirheyrslu. Á meðan var kannað hver unga stúlkan hefði ver- ið. Og brátt kom í ljós að hún hafði heitið Tina Hallett. Hún hafði verið ógift og búið hjá foreldrum sínum í suðurhluta Montreal. Heimili Ant- heu og Ellis Watsons var i um kíló- metra fjarlægð frá heimili Halletts- hjónanna. Þó varð ekki séð að neitt samband væri á milli fjölskyldnanna tveggja. Næstu tvo mánuði vann lögreglan að rannsókn málsins en án árang- urs. Ekki var hægt að sýna fram á að Anthea Watson hefði haft nokkra ástæðu til þess að hrinda Tinu Hall- ett fram af brautarpallinum. Því yrði ekki lengra gengið en aö ákæra hana fyrir manndráp á grundvelli fram- burðar Kentons Lambrechts og Gilroys Dentons. Málið var tekiö fyrir í rétti 13. september og stóöu réttarhöldin í tvo daga. í lokin kom kviðdómurinn saman og er hann hafði setið á rökstólum í rúmar tvær stundir komst hann að þeirri niðurstööu að frú Watson yrði ekki dæmd fyrir manndráp. Var það rökstutt á eftirfarandi hátt: 1. Annað vitnanna, Kenton Lambrecht, hafði reynst svo nær- sýnn að hann átti eifitt með að sjá vel lengra frá sér en nokkra metra og þar sem Anthea Watson og Tina Hallett höfðu staðið fimm eða sex metra frá honum var ekki talið rétt að taka mark á vitnisburði hans. Þá reyndist hitt vitnið, Gilrey Den- ton, hafa verið andlega veill alla sína ævi. Haföi hann mörgum sinnum orðið að dveljast á sjúkrahúsum vegna þessa veikleika. Denton stóð að vísu á því fastar en fótunum aö Anthea Watson heföi hrint Tinu Hallett fram af brautarpallinum en af ofangreindum ástæðum var ekki tekið mark á framburði hans. Þriðjavitnið frú Constance Roche, var því talin það marktækasta og hún hélt því fram að Tina Hallett hefði hrasað og þannig týnt lífinu. Anthea Watson var því sýknuð og gat haldið heim til sín. Það leið hins vegar ekki langur tími þar til óvænt- ur atburður gerðist sem átti eftir að hafa afdrifarík áhrif. Mánudaginn eftir að réttarhöldun- um lauk fékk lögreglan í Montreal nafnlaust bréf. í því var því haldið fram að Anthea Watson væri sek, ekki þó um manndráp heldur morð að yfirlögðu ráði. í bréfinu var svo sett fram skýring á því hvers vegna Anthea Watson hefði viljað Tinu Hallett feiga. Leynilegt sam- band Tinu Hallett og Ellis Watsons, eig- inmanns Antheu, var sögð ástæðan. Var því haldið fram af bréfritara að samband þeirra hefði staðið um tima fyrir dauða Tinu og heíði Antheu verið um það kunnugt. Hún hefði fyllst afbrýðisemi og ákveðið að ráða Tinu af dögum. Ný rannsókn leiddi nú í ljós að Ellis og Tina höfðu kynnst á vett- vangi starfa sinna. Hann starfaði hjá fyrirtæki sem sá ýmsum sölustöðum fyrir gosdrykkjasjálfsölum en hún hafði unnið á lögfræðiskrifstofu bg var hluti áf starfi hennar fólginn í því að tilkynna fyrirtæki hans þegar sjálfsalarnir biluðu eða í þá vantaði varning. Staðfesting í bréfinu var því einnig haldið fram að Tina og Ellis hefðu átt fundi í Wayfarersmótelinu. Er lögreglan ræddi við starfsfólk í mótelinu kom fram að það mundi vel eftir því að hafa séð Tinu og Ellis þar saman. Að fengnum þessum upplýsingum var ákveðið að taka mál Antheu Watson til rannsóknar á nýjan leik og að þessu sinni á mjög gagngeran hátt. Þegar hún hafði verið yfirheyrð eftir atvikið á járnbrautarstöðinni þann 8. júlí hafði hún meðal annars verið beðin um að gefa á því skýringu hvað hún hefði veriö að gera þar. Þá hafði hún svarað því til að hún hefði verið í miðborginni af því hún hefði ætlað að skipta kjól sem hún hefði keypt en ekki verið ánægð með. og ræddi hún við hann á vinnustað. Hann reyndi ekki að neita því að hann hefði staðið í ástarsambandi við Tinu Hallett. Er lögreglan lýsti yfir því við Ellis að hún teldi verulegar líkur á því að kona hans ætti ekki að ganga frjáls kvaðst hann ekki undrandi á þeirri yfirlýsingu því sjálfur hefði hann frá upphafi málsins tahð miklar líkur til þess að kona hans hefði myrt Tinu. Kvaðst hann hafa komist að því nokkru fyrir dauða Tinu að kona hans vissi um samband þeirra. Og dag einn hefði maður, sem hefði ekki sagt til nafns, hringt til sín og sagt að kona hans „vissi allt“. Sagðist maðurinn sjálfur hafa fært henni fréttirnar um samband þeirra Ellis og Tinu. AntheaWatson hafði verið sýknuð af ákærunni um manndráp. Hún yröi því ekki ákærð fyrir þann glæp aftur en það væri hins vegar í fullu samræmi við lögin að ákæra hana fyrir morð að yfir- lögðu ráði. Því bjó lögreglan sig und- ir að fara heim til hennar og hand- taka hana. Er lögreglubíllinn kom að húsinu sem Watsonshjónin bjuggu í reyndist Antheaekki vera heima. Hennar var leitað víða um borgina þennan dag, sem var 22. september, en allt kom fyrir ekki. Varð því ekki af handtöku hennar þann dag og reyndar ekki síðar heldur. Ýmsir hafa haldið þvi fram að ör- lögin hafi tekið í táumana því er leið að kvöldi barst lögreglunni tilkynn- ing um slys á aðaljárnbrautarstöð- inni í Montreal. Kona hafði fallið fyr- ir lest sem var að koma að brautar- palli og hafði látist samstundis. Hún reyndist hafa verið Anthea Watson.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.