Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1989, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1989, Blaðsíða 6
6 FÖSTUDAGUR 2. JÚNÍ 1989. Fréttir Kratar vilja fá Borg- araflokkinn í stjórn Ríkisstjórnin hefur ekki nægan þingmeirihluta en sumir þingmenn Borgaraflokksins hafa jafnan rétt upp hendur þegar hún hefur þurft á að halda. Skiptar skoðanir eru í ríkis- stjómarliðinu um hvort hefja eigi formlegt stjómarsamstarf við þá sem eftir em í Borgaraflokknum. Það mundi renna styrkari stoðum undir stjómina að hafa Borgaraflokkinn innanborðs. í ljós hefur komið að alþýðuílokks- menn em ákafastir í að fá borgara- flokksmenn í ríkisstjóm. Þannig birtist fyrir nokkrum dögum viðtal um þetta við Jón Sigurðsson \ið- skiptaráðherra í blaði hans, Aiþýðu- blaðinu. Jón ræddi um aö uppstokk- un ríkisstjómarinnar kæmi til greina kæmi Borgaraflokkurinn inn. Þetta er í samræmi viö kröfur borg- araflokksmanna. Einn helsti mál- svari Alþýðuflokksins sagði í viðtali við DV í gær aö þetta samstarf yrði að ganga í gegn. Jón Sigurðsson væri að reyna að fá aðra forystumenn stjómarhðsins til aö huga aö þessu. Viðmælandi DV sagði að nauðsyn bæri til að gengið yrði frá því að rík- isstjómin fengi traustan þingmeiri- hluta. Aftur þyrfti hiö fyrsta að ganga til viðræðna við Borgaraflokk- inn eins og gert var upp úr áramót- um. Þá kæmi til greina að láta Borg- araflokkinn fá 1-2 ráðherra og jafn- vel aö stokka upp í ríkisstjómimu. Nú er ekkert launungarmál að af- þýðuflokksmenn viidu gjaman aö stokkað yrði upp í ríkisstjóminni og þeir fengju öflugri ráðherra. Það er þó ekki alveg í samræmi við óskir borgaraflokksmanna. Borgarar hafa lagt áherslu á aö fá félagsmálaráðu- neytið. Það er þó fast í hendi al- þýðuflokksmannsins Jóhönnu Sig- Ríkisstjórnin hefur orðið að treysta mjög á Borgaraflokkinn. urðardóttur. Sumir telja að borgara- flokksmenn gætu fengið ráðuneyti umhverfismála sem stofnað verður. Aðrir segja að borgarar gætu fengið félagsmálaráðuneytið og Jóhanna Sigurðardóttir yrði þá umhverfis- málaráðherra. Þannig hafa alþýöu- flokksmenn velt málinu fyrir sér. Viðmælandi DV sagði að borgara- flokksmenn gerðu í raun aðeins tvær aðalkröfur í tengslum við þátttöku í stjóm, annars vegar aö ný ríkisstjóm yrði mynduð, sem þýddi uppstokkun á hinni gömlu, og hins vegar aö mat- arskattur yrði lækkaður sem yrði gert með þeim hætti að í nýja virðis- aukaskattinum yrðu tvö þrep og matvara á lægra skattþrepinu. Þann- ig virðast alþýðuflokksmenn yfirleitt reiðubúnir til að semja við Borgara- flokkinn og þaö strax í sumarbyrjun. Sjónarhomið Haukur Helgason Andstaða En á móti krötunum standa ýmsir aðrir stjómarhöar sem halda að sér höndum gagnvart Borgaraflokkn- um. Sú skoðun nýtur mikils fylgis meðal framsóknarmanna og alþýðu- bandalagsmanna að það sé ekki þess virði að taka Borgaraflokkinn í ríkis- stjóm. Skoðunin byggist á því að Borgaraflokknum séu allar útgöngu- leiðir lokaðar. Að Albert fómum og flokknum klofnum eigi Borgara- flokkurinn ekki von um þingsæti. Framsóknarmaður, sem DV ræddi við, sagði sem svo að ríkisstjórnin gæti áfram reitt sig á stuðning borg- araflokksmanna þegar á reyndi. Að- alheiður Bjarnfreðsdóttir og fleiri forystumenn Borgaraflokksins hefðu í vetur mikið rætt um hættuna á þingkosningum vegna þess hversu hart væri í ári í efnahagsmálum. Margt væri til í því að kosningar mundu auka efnahagsvandann vegna þess tíma sem þær tækju og tíma við nýja stjómarmyndun og stjómarkreppu. En fyrir borgara- flokksmönnum vekti ekki síður að komast hjá kosningum af því að þá dyttu þeir út af þingi. Því væri tilefn- islaust af ríkisstjórninni að gefa Borgaraflokknum neitt eftir til þess að fá þann flokk til stjórnarsetu. Skiptar skoðanir borgaraflokksmanna En hvað finnst borgaraflokksmönn- um sjálfum um þetta? Sumum finnst lítið til koma að ganga í þessa ríkis- stjóm. Stjómin er mjög óvinsæl. Þessir menn sjá ekki að Borgara- flokknum stoði neitt að fara í stjórn- ina. Af viðtölum DV við borgara- flokksmenn virðist sú þó skoðun eiga mikið fylgi að enn skuli reynt hvort Borgaraflokkurinn gæti ekki gengið í þessa stjóm. Áhrifamaður í Borgaraflokknum, sem DV ræddi við, sagði að ræða þyrfti við stjómina. Þá gæti Borgara- flokkkurinn gengið í stjómina ef eitt- hvað næðist fram sem flokknum þætti skipta máh. Þar væri einkum átt við lækkun matarskatts og breyt- ingar á vísitölukerfi lána svo að það yrði ekki jafnsjálfvirkt og fyrr. Þegar Borgaraflckkurinn væri kominn í ríkisstjóm mundi hann fá tækifæri til að koma ýmsum öðrum málum fram. Þessi borgaraflokksmaöur sagði að Borgaraflokkurinn gæti Málflutningur í brennivinskaupamálinu: Fjandsamleg aftaka sem stýrt var af kunnáttumanni - sagöi Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttarlögmaður Mál þetta snýst um hvort Magnús Thoroddsen hæstaréttardómari hafi rýrt traust sitt svo þegar hann keypti áfengi á sérverði að hann geti ekki gegnt starfl hæstaréttardómara. Á þessa leið hóf Gunnlaugur Claessen ríkislögmaður málflutning sinn í borgardómi í gær en þar fór fram málflutningur í máli dómsmálaráð- herra gegn Magnúsi Thoroddsen hæstaréttardómara. Ríkislögmaður gerði þær kröfur að Magnús yrði dæmdur til að víkja endanlega úr starfi hæstaréttardómara. Lögmaður Magnúsar er Jón Steinar Gunnlaugs- son hæstaréttarlögmaður. Jón Stein- ar gerði þær dómkröfur að Magnús yrði settur aftur í embætti dómara. í málflutningi sínum sagði Jón Steinar að Magnús hefði ekki brotið gegn neinum reglum þegar hann keypti áfengið. Slíkar reglur væru ekki tfl. Jón Steinar sagði að Magnús hefði aðeins notað hlunnindi sín til fulls. Gunnlaugur upplýsti að Magn- ús hefði aðeins greitt 357.438 krónur fyrir áfengið en útsöluverð þess hefði verið 2.934.780 krónur. Jón Steinar sagði að mörg dæmi væru til um að aörir embættismenn hefðu nýtt sér heimildina til áfengis- kaupa á svipaðan hátt og Magnús gerði. Því mótmælti Gunnlaugur Claessen. Fagmannleg aftaka Jón Steinar lét að því liggja að upp- lýsingar um áfengiskaup Magnúsar hefðu verið látnar leka í fjölmiðla til að koma höggi á Magnús Thoroddsen og jafnvel Hæstarétt allan. Hann nefndi til fimm embættismenn og taldi allt að því víst að einn þeirra hefði lekið fréttinni. Embættismenn- irnir eru Halldór V. Sigurðsson ríkis- endurskoðandi, Höskuldur Jónsson, forstjóri Áfengisverslunarinnar, Steingrímur Hermannsson forsætis- ráðherra, Guðrún Helgadóttir, for- seti sameinaðs þings, og Ólafur Ragnar Grímsson. Lögmaðurinn vakti athygli réttar- ins á að allt benti til að einn fimm- menninganna hefði sagt ósatt fyrir rétti og spurði hvort það væri ekki ástæða til að láta ríkissaksóknara athuga það mál. Þung viðurlög eru við því að bera rangan vitnisburö fyrir dómi. í máli Jóns Steinars kom fram að hann taldi allt benda til að Ólafur Ragnar hefði lekið fréttinni. Lögmað- urinn sagði þetta hafa verið fag- mannlega aftöku - stýrða af manni sem hefði mikla kunnáttu í með- höndlun fjölmiðla. Síðan rakti hann fjölmörg ummæli Ólafs Ragnars eftir að málið komst í hámæli. Eins sagði lögmaðurinn að Ólafur Ragnar hefði fáum mánuðum áður skrifað í Morg- unblaðið greinar flandsamlegar Hæstarétti. Jón Steinar sagði að sönnunar- byrðin væri öll hjá stefnanda, það er dómsmálaráðherra, þar sem umbeö- in gögn hefðu ekki fengist. Hann sagði að járntjaldi hefði verið slegið um upplýsingarnar og greinilega hefði átt að gæta þess að halda þeim leyndum. Ríkislögmaður sagði þetta ekki rétt og sagði dómsmálaráðherr^ hafa gert allt til að veita umbeðnar upplýsingar. Jón Steinar sagöi að í flestum þeim bréfum sem honum hefðu borist hefði verið farið með rangindi. Ólögleg dómsgögn Jón Steinar lagði fram sem dóms- gögn upplýsingar um áfengiskaup Jóns Baldvins Hannibalssonar og Steingríms Hermannssonar. Gunn- laugur Claessen sagði að þessi gögn væru fengin með ólöglegum hætti og vildi, án þess að krefiast þess, að lítið yrði gert úr þeim þess vegna. Hann sagði þó að gögnin stæðu fyrir því sem í þeim fælist. Innihaldið taldi hann hins vegar aö skipti engu máh fyrir máhð sjálft. Jón Steinar sagðist hafa fengið gögnin frá aðila sem of- byði offorsiö sem væri í máhnu af hálfu dómsmálaráðherra. Gunnlaugur Claessen gerði mikið úr áliti almennings á vínkaupum Magnúsar. Máli sínu til stuðnings vitnaði hann til umflöhunar flöl- miðla. Hann las bæöi fréttaskrif og ummæli fólks sem hringt hafði í við- ræðuþætti útvarpsstöðvanna. Jón Steinar taldi nokkuð víst að almenn- ingsálitið hefði snúist mikið frá því að máhð kom fyrst í flölmiðlum. Hann sagði aö gera þyrfti skoðana- könnun meðal almennings um hver afstaða fólks væri í dag. Jón Steinar spurði hvaða dómstig almenningsdómstólhnn væri, eins hvaða gagnasöfnun hefði fariö fram fyrir þaö dómstig og eftir hvaða rétt- arfarsreglum væri farið í þeim dómi. Jón Steinar sagði að almenningsálit- ið væri bæði hverfult og dómhart. -sme ekki stöðugt leikið hækjuleik gagn- vart þessari stjórn. Það vildu borg- araflokksmenn ekki. Það yrði þá að hafa það þótt kosningar yrðu fljót- lega og jafnvel að Borgaraflokkurinn dytti út af þingi. Borgaraflokksmenn mættu ekki fóma hugsjónamálum sínum af ótta við shkt. Þessi borgara- flokksmaður viðurkenndi þó að Að- alheiður Bjamfreðsdóttir og Óh Þ. Guöbjartsson hefðu ekki einungis hleypt sköttum ríkisstjómarinnar í gegn vegna þess að kosningar væru slæmar fyrir efnahaginn heldur einnig af ótta um framtíð flokksins. Haukur Helgason Peningamarkaður INIMLÁNSVEXTIR (%) hæst Innlán óverðtryggð Sparisjóðsbækurób. 14-16 Vb,Sp Sparireikningar 3jamán. uppsögn 14-18 Vb 6 mán. uppsögn 15-20 V b 12mán. uppsögn 16-16,5 Ab 18mán. uppsögn 32 Ib Tékkareikningar, alm. 3-9 Sp Sértékkareikningar 4-16 Vb,Ab,- Sp Innlán verðtryggð Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 1-2 Vb 6mán. uppsögn 2-3 Allir nema Úb Innlán með sérkjörum 27-35 Ab Innlán gengistryggð Bandarikjadalir 8,25-9 Ab Sterlingspund 11,5-12 Sb.Ab Vestur-þýsk mörk 5,25-6 Sb Danskar krónur 7,5-8 Ib.Bb,- Sp ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst Útlán óverðtryggð Almennirvíxlar(forv.) 28-30,5 Lb.Úb Viðskiptavíxlar(forv.)(1) kaupgengi Almenn skuldabréf 27,5-33 Lb Viðskiptaskuldabréf (1) kaupgengi Allir . Hlaupareikningar(yfirdr ) 31,5-35 Lb Utlan verðtryggð . Skuldabréf 7,25-9,25 Lb.Bb Útlán til framleiðslu Isl. krónur 27,5-33 Lb.Úb SDR 10-10,25 Allir nema Úb Bandaríkjadalir 11,25-11,5 Allir nema Úb Sterlingspund 14,5 Allir Vestur-þýsk mörk 8,25-8,5 Úb Húsnæðislán 3,5 Lífeyrissjóðslán 5-9 Dráttarvextir 38,4 MEÐALVEXTIR óverðtr. maí89 27,6 Verðtr. maí 89 7,9 VÍSITÖLUR Lánskjaravisitalajúní 2475 stig Byggingavísitala júní 453 stig Ðyggingavísitala júni 141.6 stig Húsaleiguvísitala 1,25% hækkun 1. april VERÐBRÉFASJÓÐIR Gengi bréfa veröbréfasjóöa Einingabréf 1 3,858 Einingabréf 2 2,145 Einingabréf 3 2,537 Skammtímabréf 1,330 Lífeyrisbréf 1,940 Gengisbréf 1,730 Kjarabréf 3,847 Markbréf 2.045 Tekjubréf 1,705 Skyndibréf 1,171 Fjölþjóðabréf 1,268 Sjóðsbréf 1 1.857 Sjóðsbréf 2 1,528 Sjóðsbréf 3 1,314 Sjóðsbréf 4 1,095 Vaxtasjóðsbréf 1,3122 HLUTABRÉF Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.: Sjóvá-Almennar hf. 278 kr. Eimskip 348 kr. Flugleiðir 171 kr. Hampiðjan 154 kr. Hlutabréfasjóður 127 kr. Iðnaðarbankinn 156 kr. Skagstrendingur hf. 200 kr. Útvegsbankinn hf. 135 kr. Verslunarbankinn 143 kr. Tollvörugeymslan hf. 106 kr. (1) Viö kaup á viðskiptavíxlum og við-skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaup- gengi, kge. Búnaðarbanki og Samvinnu- banki kaupa viðskiptavíxla gegn 31% ársvöxtum og nokkrir sparisj. 30,5%. Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn, Bb= Búnaðarbankinn, lb = lðnaðar- bankinn, Lb= Landsbankinn, Sb = Samvinnubankinn, Úb = Útvegsbankinn, Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóð- irnir. Nánari upplýsingar um peningamarkað- inn birtast i DV á fimmtudögum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.