Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1989, Qupperneq 16

Dagblaðið Vísir - DV - 02.06.1989, Qupperneq 16
16 FÖSTUDAGUR 2. JÚNÍ 1989. FÖSTUDAGUR 2. JÚNÍ 1989. 25 Iþróttir Geldinganes t'iösvlk Aburöarverksmiöjan Gufunesi i''Borgarholtshverfi III \ £fr-: Korpúlfsstaðirk J JMá Borgarholtshverfi II Núverandi I öskuhaugar. Borgarholtshverfi KirkjugarðurB **■ \ VII SnðKaíí Rannsóknarstof nanir Keldnahoiti Miklar líkur á að Fram flyUI f Grafarvoglnn son, viU byggja golfvöll. „Horfum ti l. Fram. Málið hjá skipulagsneftid it Knattspyrnufélagiö Fram í Reykjavík hefur fariö fraxn á það við borgarráð að fá vilyrði fyrir nýju athafhasvæði á fyrirhuguðu íþróttasvæði sem tengjast mun Borgarholts- hverfum í Grafarvogi. Norðan til á Grafarvogssvæðinu er áætlað að reisa 12.500 manna byggð á næstu árum og verða Borgarholtshverfín þijú talsins. Athafnasvæði það sem Framarar sækjast eftir er á milli Borgarholtshverfis tvö og þrjú, skammt frá Korpúlfsstöðum (sjá kort). Þar ætla Framarar meðal annars að byggja golfvöll. Mikill áhugi er á golfíþróttinni og hefur sá áhugi farið sívaxandi á síðustu árum. Er nú svo komið að golödúbbamir á höfuðborgar- svæðinu eru flestir hættir að taka við nýjum félögum. Á íþróttasíöum DV hefur áöur veriö skýrt frá fyrirhuguðum hug- myndum Fram varðandi Qutning í Grafarvog og vakti hugmynd Framara mikla athygli á sínum tíma. Ný aöalsfjóm tók við stjóm- artaumunum hjá Fram á dögunum og var Alfreð Þorsteinsson kosinn formaður félagsins. Er það í annað sinn sem hann gegnir þvi embætti. „Það er mikill hugur í okkur og við höfrnn lagt á þaö mikla áherslu að horfa til framtíöarinnar. Ég og Ragnar Steinarsson, varaformaður félagsins, áttum viðræður viö Dav- íö Oddsson borgarstjóra um hugs- anlega byggjngu á stóm íþrótta- húsi í Safamýrinni. Borgarstjóri tók dræmt í þessa hugmynd okkar sökum þess aö íþróttahús væri þeg- ar til staöar í hverfinu við Álfta- mýrarskóla og því ætö frekar að leggja áherslu á byggingu íþrótta- húsa í nýjum hverfúm. 1 framhaldi af þvi ræddum viö þá hugmynd við borgarsljóra að Fram fengi úthlut- að stóra svæði á Grafarvogssvæð- inu og tekið yröi tiliit til vera Fram í hver&nu þegar farið yrði að byggja íþróttahús í nýju hverfun- um. Ef fallist veröur á þetta þá telj- um við flutninginn í Grafarvog góðan kost. Ég vil hins vegar taka þaö fram að engar ákvarðanir verða teknar um þessi mál fyrr en þau liggia fyrir, enda þarf ákvörð- un aöalfundar Fram til þess,“ sagði Alfreð. Hagkvæmt fyrir borgina og líka fyrir Fram - En er þetta hagkvæmt mál fyrir Fram, aö þínu matí? „Ég tel aö þaö sé bæði hagkvæmt fyrir Reykjavíkurborg og Fram ef okkur verður úthlutaö þessu svæði. Þaö er tvímælalaust ávinn- ingur í því fyrir borgina ef rótgróiö og stórt félag Qyst á þetta svæðl Tilvonandi íbúar í Borgarholts- svæðunum, noröanmegin í Grafar- voginum, eiga rétt á þvi að íþrótta- félag veiti þá þjónustu sem þekking þess og reynsia leyfir sarakvæmt skipulaginu. Það er ekki nóg að skipuleggja íþróttasvæöi í nýjum hverfúm ef engin trygging er fyrir því aö þar verði öflugt íþróttastarf. Þess vegna era það augljósir hags- munir beggja aðila, Reykjavíkur- borgar og Fram, aö þarna takist góð samvinna“ „Það eru marg kylfingar i Fram“ Er eitthvað sérstakt sem hvetur Fram til aö byggja golfvöll? „Það eru mjög margir góðir kylf- ingar í Fram og míög margir hafa lýst yfir áhuga á byggingu þessa golfvallar og hvatt mig mjög til að fýlgja þessari hugmynd eför. Fram hefúr veriö þekkt fyrir öfiugt ungl- ingastarf og það hefur kannski ver- iö minna gert fyrir eldri félaga. Þar að auki má benda á að golfklúbbar í Reykjavík era aö lokast og það er mikil þörf á fleiri golfvöllum. Ég tel þaö einnig mjög til bóta að fieiri en einn golfklúbbur veröi í Reykjavík og við Framarar stefn- um að þvi aö stofna nýjan golfklúbb innan félagsins.“ Samþykkt samhl jóða Var aðalstjóm Fram einhuga um að skrifa borgarráði urarætt bréf • Þetta kort er af Grafarvogssvæðinu og sýnir vel þann stað þar sem Framarar hafa sótt um nýtt athafnasvæði. og faiast eftir athafnasvæöi í Graf- arvogi? ,A.ðalstjóm Fram samþykkti samhljóða að sækja um þetta land. Menn gerðu sér grein fyrir þvi að aðstaöa Fram í Safamýri er full- nægjandi i dagen alls ekkitil lengri tima litið. Vonandi getur Reykja- víkurborg boöið Fram nægilega stórt land og samvinna tekist um byggingu íþróttahúsa í hinu nýja hverfi í tengslum við skólana sem þar raunu rísa.“ „Húsnæðisvandinn er aðalvandamálið“ Ef Fram flytur í Grafarvoginn, • AHreð Þorsteinsson, nýkjörinn formaður Fram. í baksýn er svæðið sem Fram hefur sótt um. Þar hyggjast Framarar byggja golfvöll. Ysl, svo Ul fyrír miðrf mynd, sóst grilla í Korpúlfsstaöi. DV-mynd $ hvaö verður þá um svæöi Fram í Safamýrinni? „Framarar þurfa ekkert að óttast því að ekki stendur til að flytja starfssemi félagsins á morgun. Þaö inun taka nokkur ár að byggja upp aðstööuna á Grafarvogssvæðinu. Raunar er ekki hægt að segja til um það á þessari stundu hvernig aöstaðan í Safamýrinni nýtist í ffamtíðinni. Núverandi stjórn Fram leggur hins vegar á það áherslu að Ijúka framkvæmdum í Safamýri. Aðalvandamál Fram í dag er að félagtö hefúr ekki nægi- lega góðan aðgang að stóru íþrótta- húsi. Þaö háir til dæmis hand- knattleiksdeild okkar illilega og aðalstjómin er að kanna útgöngu- leiðir í þessu máli.“ „Ég sé ekki fyrir mér árekstra vió Fjölni“ Þegar hugmynd Framara um flutn- ing í Grafarvog kom fram í DV á sínum tíma létu forráðamenn Ung- mennafélagsins Bjölnis í Grafar- vogi í sér heyra og vora ekki allir jafnsáttir við hugmyndina. Telur Alfreð að til árekstra komi við Fjölni flytji Fram í Grafarvog- inn? „Ég sé ekki fyrir mér árekstra vegna þessa máls. Þegar Grafar- vogssvæöiö verður fullbyggt munu búa þar um 20 þúsund manns. Það er því augijóst að lítið nýstofhað ungmennafélag mun ekki geta sinnt þeirri þörf sem þama er og veröur fyrir hendi. Og ég get sagt frá því að eftir að þetta mál kom fram í DV á sínum tíma hafa marg- ir haft samband við mig og verið rpjög hlynntír flutningi Fram í Grafarvoginn. Ef okkur veröur út- hlutað svæðinu í Grafarvogi von- umst viö eftir góðri samvinnu við Fjölnismenn," sagði Alfreð Þor- steinsson. -SK Úrslitakeppnin í bandaríska körfuboltanum: Detroit hef ur tekið forystuna - Detroit sigraði Chicago, 94-85, í fimmta leiknum Birgir Þórisson, DV, New York: Chicago á nú á brattann að sækja eftir tap gegn Detroit Pistons, 94-85, í fimmta leik Uðanna í undanúrslitum NBA-deild- Belgar unnu Marc Van der Linden, sem And- erlecht hefur nýlega keypt frá Ant- werpen, skoraði fjögur mörk í gær- kvöldi þegar Belgía sigraði Lúxem- borg, 5-0, í undankeppni HM í knattspymu. Þetta var heimaleik- ur Lúxemborgara en fór fram í Lille í Frakklandi vegna viðgerða á aðalleikvangi þeirra. Patrick Vervoort, leikmaður Anderlecht, skoraði fimmta markið. -VS arinnar í körfuknattleik aöfaranótt fimmtudags, en þeir geta engum kennt um nema sjálfum sér hvernig fór. Hálfur þriðji tugur sókna þeirra endaði með því að þeir töpuðu knettinum úr höndum sér. Viö þetta bættist að Michael Jordan skoraði aðeins 18 stig í leiknum og má telja undrum sæta að Chicago hafi átt möguleika í leiknum. En Chicago lék frábæra vörn og Detro- it átti í erfileikum í sókninni fram í síð- asta fjórðung þegar Vinnie Johnson tók leikinn í sínar hendur. Hann skoraði 16 stig af 22 stigum sínum í síðasta fjórð- ungi. Chicago hafði reyndar forystuna allan fyrri hálfleik, aðallega vegna frammistöðu Bill Cartwright, sem skor- aði tíu stig og hirti tíu fráköst, en Detro- it jafnaði metin og tók forystuna í byrjun síðari hálfleiks þegar Mark Aguirre gerð- ist um stund óviðráðaniegur. Chicago náði að vinna muninn upp undir lok þriðja leikhluta þegar Michael Jordan sýndi loks lífsmark en engum leikmanna Chicago, ekki einu sinni Jord- an, tókst að hemja Vinnie Johnson undir lokin. Craig Hogginson skoraði mest leik- manna Chicago 19 stig, þar af fimmtán með þriggja stiga skotum. Jordan 18 og Cartwrigt með 16 komu næstir. Vinnie Johnson Mark Agurrie, Isaih Thomas 17 og tólf stoðsendingar og James Edwards 12 stig flest undir lokin. Chicago verður að vinna sjötta leikinn ef hðiö á aö halda velli en ef Detroit vinnur leikur liðiö við Los Angeles Lakers til úrslita um sigur- inn í NBA-deildinni eftir helgina. Af öörum tíðindum frá NBA leitar New York að nýjum þjálfara þar sem Rick Pitino réði sig í vikunni til Kentucky háskóla. Pitino hafði gert góða hluti með New York liðið en háskólaboltinn er hægari og betur borgaður en atvinnu- mennskan. Heimsmeistarakeppnln í badminton: Þórdís og Broddi lágu fyrir Kínverjunum - höftiuðu í 17-32 sæti af 123 liðum 1 tvenndarleik Broddi Kristjánsson og Þórdís Edwald töpuðu í tvenndarleik í 3. umferð gegn kínversku liði á heimsmeistaramótinu í badminton í Indónesíu. Kínverska parið Chi Bing og Yang Fang sigruðu, 15-5 og 15-4. „Leikurinn var jafnari en tölurnar gefa til kynna, sem sést best á því aö leikurinn stóö yfir í þrjá stundarfjórðunga. Við höfnuðum því 17-32 sætí 123 liðum,“ sögðu Þórdís og Broddi, í samtali við DV í gærkvöldi. í dag era nokkrir stórleikir á dagskrá í 16 liða úrshtum. Morten Frost mun mæta hinum unga og efnilega Ardy Wir- anda frá Indónesíu, sem var heimsmeist- ari unglinga 1987. Þessi viðureign er nokkurs konar prófsteinn á það hvort Frost sé líklegur til stórra afreka á þessu móti. Heimsmeistarinn Yang Yang frá Kína mun mæta Budi Kusuma frá Indó- nesíu og ætti að komast auðveldlega frá þeirri viðureign. Af öðrum Evrópubúum í einliðaleik karla er það helst að Paul Erik Höver, Danmörku, mætír Lius Pongoh frá Indó- nesíu, Steve Baddeley, Englandi, mætir Kínveijanum Zhad Jian Hua og Evrópu- meistarinn, Darren Hall frá Englandi, mun mæta Edoy Kumiawan frá Indónes- íu. Á laugardag fara svo fram 8 liða úrsht. -JKS Dómarinn hvarf á braut - í leik KR og Vals í 1. deild kvenna Hve lengi á kvenfólkið að þurfa að þola að dómari og línuverðir mæti ekki á leiki? Dómaramál hjá kvenfólkinu ár eftir ár era hreinlega óþolandi og niðurdrepandi. Nú í upphafi íslandsmótsins í fyrstu leikjunum byijar þetta ekki vel. í leik KR og Vals mætti dómarinn sem var settur á leikinn en vinnubrögð hans vora ekki til fyrir- myndar. Klukkan 13.25 segir hann að leikurinn byiji cftir fimm mínútur en leikurinn átti að heíjast kl. 14.00 samkvæmt mótaskrá. Að sjálfsögðu neituðu bæði félögin og þá sagði þessi ákveðni dómari: „Þið takið sénsinn hvort einhver dómari kemur. Ég verð farinn. Klukkan 14.15 hófst leikurinn og var það annar línuvarðanna, sem tók að sér að dæma leikinn og öðrum línuverði var reddaö á staðnum eins og svo oft áður. í flestum tilvikum er þetta fólk sem ekki er meö dómararéttindi. Á Akureyri í leik KA og Stjörnunnar var fyrri hálfleikur spilaður í 45 mínútur en síðari hálfleikur í 35 mínútur. Vita dómarar að leikirnir í meistaraflokki kvenna eru 2x40 mínútur? Vonandi er að þessi atvik endurtaki sig ekki í kvennaknattspyrnunni og Knatt- spyrnudómarasamband íslands taki þessi mál upp og komi þeim á hreint. -MHM Stórsigur KR-stúlkna - og Víkverji vann Ármann í sögulegum bikarleik KR vann auðveldan sigur á Breiðabliki, 0-4, í 1. deild kvenna á Kópavogsvellinum í gærkvöldi. Guðrún Jóna Kristjánsdóttir, Helena Ólafsdóttir og Arna Steinsen skor- uðu í fyrri hálfleiknum og Hrafnhildur Hreinsdóttir í þeim síðari. • Víkverji sigraði Ármann, 7-4, í sögu- legum leik í 1. umferð bikarkeppni KSÍ á gervigrasinu í gærkvöldi. Ármann var 1-4 yfir í hálfleik en Víkveiji jafnaði, 4-4, á síðustu sekúndu og skoraði síðan þrisvar í framlengingu. Fyrir Víkveija skoruðu Níels Guðmundsson 2, Sigurður Bjömsson, Bergþór Magnússon, Svavar Hilmarsson, Magnús Magnússon og Albert Jónsson en fyrir Ármann gerði Gústaf Alfreðsson 3 mörk og Smári Jósafatsson eitt. • í Neskaupstað vann Þróttur Austra, 2- 0, með mörkum Guðbjarts Magnasonar og Þorláks Árnasonar. • Þriöji bikarleikurinn var í Grindavík. Þar unnu heimamenn sigur á Hveragerði, 3- 0. Páll Bjömsson, Aðalsteinn Ingólfsson og Guölaugur Jónsson skoruðu mörkin. -MHM/MJ/ÆMK/VS Leikur Akureyrarliöanna Þórs og KA í 1. deildinni í knattspymu verður háður á malarvelli Þórs- ara á morgun kl. 14. Til stóð að fresta leiknum til 21. júní þannig að hann gæti farið fram á grasi, en mótanefnd KSÍ hafnaði þeirri beiðni, en flutti hann síðan af fóstudagskvöldi yfir á laugardag. Þetta verður væntanlega síðasti malarleikurinn á Akureyri því miklar líkur eru á að leikur KA og KR í 4. mnferðinni fóstudaginn 9. júni fari fram á grasvelli KA- manna. -GK/VS Golfmót á Selfossi Opna Seifossmótiö i golfi fer fram á laugardaginn og verður byijað að ræsa út keppendur klukkan átta um morguninn. Um er að ræða punktakeppni, 7/8 Stableford. Glæsileg verðlaun verða veitt iýrir 10 fýrstu sæti auk aukaverð- launa á stuttum brautum vallar- ins á Selfossi. Rástimar veröa gefnir í sima 98-22417 eftir klúkk- anþrjúáföstudag. -SK Iþróttir ATHYGLI FÉLAGSMANNA VERZLUNARMANNAFÉLAGS REYKJAVÍKUR ER VAKIN Á GILDANDI ÁKVÆÐI KJARASAMNINGS UM AFGREIÐSLUTÍMA VERSLANA Afgreiðslutími Heimilt er að afgreiðslutími smásöluverslana og annarra sölustaða sé sem hér segir: Virka daga skal heimilt að hafa verslanir opnar á mánudögum til fimmtudaga til kl. 18.30, á föstudögum til kl. 21.00 og á laugardög- um til kl. 16.00 Þó skulu verslanir vera lokaðar á laugardögum mánuðina júní, júlí og ágúst en á sama tímabili er heimilt að hafa opið til kl. 20.00 á fimmtudögum. Óski verslun að hafa opið umfram dagvinnutíma skal haft fullt sam- ráð um vinnutímann við trúnaðarmann V.R. og starfsfólk í viðkom- andi verslun. Hver starfsmaður hefur rétt á að hafna yfirvinnu og óski starfsmað- ur ekki eftir að vinna yfirvinnu skal hann ekki látinn gjalda þess á neinn hátt. Óski starfsmaður að fá yfirvinnu, sem hann vinnur, greidda með fríum skal svo gert í samráði við vinnuveitanda. Við útreikning á gildi yfir- vinnutíma skal fara eftir ákvæðum í gildandi kjarasamningi V.R. við vinuveitendur sbr. grein 2.1.4. Þessi ákvæði um lokunartíma gilda á félagssvæði V.R. Ákvæði þessi um lokunartíma breyta ekki eldri reglum um annan lokunartíma sérverslana, svo sem minjagripaverslana, söluturna og blómaverslana. VERSLUNARMANNAFÉLAG REYKJAVÍKUR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.