Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1989, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1989, Blaðsíða 9
FIMMTUDAGUR 8. JÚNÍ 1989. 9 DV Hundrað níu fórust sextíu og í f lugslysi Brak farþegaþotunnar sem fórst í Surinam i gær. Simamynd Reuter Hundraö sextíu og níu manns fór- ust er farþegaþota af gerðinni DC-8 brotlentí í svartaþoku í aðflugi að alþjóðaflugvellinum í Surinam í gær. Aðeins ellefu manns komust lífs af úr flugslysinu. Alls voru hundrað og áttatíu manns um borð, þar af tíu manna áhöfn. Þotan skall til jarðar rétt fyrir dög- un, umþrjá kílómetra fyrir norðvest- an Zanderij-flugvöllinn í Param- aribo, höfuðborg landsins. Surinam, sem áður var hollensk nýlenda, er í norðaustanverðri Suður-Ameríku. Þotan var að koma úr áætlunar- flugi frá Amsterdam og um borð í henni voru tveir yfirmenn hersins í Surinam. Þeir fórust báðir. Meðal þeirra sem fórust voru einnig tveir Surinam er í norðaustanverðri Suð- ur-Ameríku. hollenskir knattspymumenn, frá Volendam og Ajax. Þijú böm og tveir frægii- knattspyrnumenn frá Holl- andi vom meðal þeirra sem komust lífs af. Knattspymumennirnir slös- uðust báðir alvarlega. Alls voru sautján hollenskir knattspymu- memi og embættismenn af súr- ínömskum ættum á leið tíl keppni í Surinam. Fimmtán starfsmenn flug- félagsins Surinam Airways fórust í flugslysinu. Höfðu nokkrir þeirra verið í fríi í Hollandi. Ekki er vitað um orsök flugslyss- ins. Reuter Ryzhkov útnefndur til forsætisráðherra Nikolai Ryzhkov, sovéski forsætis- ráðherrann og dyggur stuðnings- maður Gorbatsjovs Sovétforseta, var í gær útnefndur til embættis forsæt- isráðherra á nýjan leik eftir harðar umræður í hinu nýja æðsta ráði. Þá var annar stuðningsmaður Gor- batsjovs, Gennady Kolbi, útnefndur í formannsembætti eftírlitsnefndar- innar. Umræðunni, er fór fram áður en Ryzhkov var endurkjörinn, var sjón- varpað beint og heyrðu þá margir Sovétmenn fulltrúa æðsta ráðsins láta hörð orð falla. „Þú verður aö vera ákveðinn og vinna gagngert að því að koma lagi á efnahagsmálin," sagði einn fulltrúanna. Rsyzhkov var fyrst kjörinn til emb- ættís forsætisráðherra Sovétríkj- anna árið 1985. Þrátt fyrir slæmt efnahagsástand er Ryszhkov vinsæll meðal landa sinna og talinn dyggur stuðningsmaður umbóta. Hann sagði í ræðu í æðsta ráðinu í gær að ríkis- stjórnin myndi leggja áherslu á að bæta úr miklum skortí nauðsynja- vara í landinu og að brýnt væri að ná fram umbótum í landbúnaði. Útnefning beggja mannanna fer nú fyrir hið nýja 2.250 manna fulltrúa- þing. Reuter Nikolai Ryzhkov var í gær útnefndur af fulltrúum æðsta ráðsins i Sovét- ríkjunum til að gegna áfram stöðu forsætisráðherra. Símamynd Reuter Útlönd Marcos undir hnrfinn Fyrrum forseti Filippseyja, Ferdinand Marcos, sem er 71 árs, gekkst imdir skurðaðgerð á þriðjudaginn vegna ígerðar í bris- kirtli. Ástand hans er talið alvar- legt, að því er talsmaður sjúkra- hússins í Honolulu segir. Marcos hefur nú iegið á sjúkra- húsi í rúma fjóra mánuði. Þann 19. maí hrakaði honum talsvert og er hann nú tengdur við öndun- arvél. Bandariskur saksóknari hefur sagt Marcos vera of veikan til þess aö koma fyrir rétt vegna ákæranna á hendur honum. Marcos er sakaður um að hafa stolið 109 milljónum dollara úr rfkiskassanum á Filippseyjum og fengið bankalán upp á 165 millj- ónir dollara á folskum forsendum frá bönkum í New York til þess aðkaupafasteignir. Reuter Leiguflug Útsýnisflug Flugskóli Viðskiptafólk athugið að oft er hagkvæmara að leigja vél í ferðina - innanlands eða til útlanda. 4-10 sæta vélar til reiðu. • FLUGTAK fi Gamla Flugturninum ' Reykja víkurflug velli 101 Reykjavik Simi 28122 Telex ir ice is 2337 Fax 91-688663 Möldursf. Framfarir í leit- inni að bóluefni gegn eyðni Vísindamenn segja að einhveijar framfarir hafi átt sér stað í leitinni að bóluefni gegn sjúkdómnum eyðni en taka þó fram að líklega séu mörg ár í að það komist á markað. Þetta kom fram á fimmtu árlegu ráðstefn- unni um eyðni en hún fer nú fram í Montreal í Kanada. Samuel Broder, framkvæmdastjóri Krabbameinsstofnunar Bandaríkj- anna, skýrði frá tilraunum vísinda- manna til að finna lækningu gegn eyðni og nefndi þar sérstaklega efna- sambandið dideoxyinosine, DDI. í Bandaríkjunum fara nú fram rann- sóknir á þessu efni og tilraunanotk- un á fáum sýktum einstaklingum. Að sögn Broders tóku sjúklingarn- ir vel við þessu efnasambandi og virðist það lofa góðu í baráttunni við eyðni. Á ráðstefnunni voru einnig kynnt- ar niðurstöður lengstu rannsókna á eyðni sem farið hafa fram. Þær virð- ast styrkja þá kenningu margra vís- indamanna og starfsfólks heilbrigð- isstétta að fái einstaklingur eyðni- veiruna á annað borð fái hann fyrr eða síðar sjúkdóminn. Talsmenn samtaka samkyn- hneigðra sögðu á fundi með blaða- mönnum í gær að bandarískir toll- verðir hefðu hindrað ferð tveggja erlendra ferðamanna vegna gruns um að þeir væru með eyðni. Danskur félagsfræðingur, Knud Josephsen, sagðist hafa tafist á flugvelhnum í Boston á fóstudag eftír að tollyfirvöld hefðu komist að því að hann væri með eyðni. Josephsen var á leið á ráðstefnuna í Kanada. Dósapressa! Pressið allt að 0,51 gosdósir/bjórdósir með einu. handtaki! Hlægilega auðvelt.... Dósinni er einfaldlega tyllt í pressuna og handfanginu þrýst niður. KYNNINGARVERÐ kr. 2.875.- • Þannig pressaðar dósir taka 5-6 sinnum minna pláss. • Dósimar renna sjálfkrafa ofaní ílát eftir að þær eru pressaðar. • Fækkar ferðum með dósir og sparar um Ieið tíma og fyrirhöfn. • Vemdið umhverfið og sparið samtímis peninga, hver dós kostar 5 kr. • Tilvalið í eldhúsið, geymsluna/þvottahúsið, bílskúrinn, sölutuma, sumaibústaðinn, eða bátinn. GRBP Umboðs- og heildverslun Pósth. 609 - 121 Reykjavík Dagi:8.6.*89 sími: 91-13365 Sendið _stk. dósapressu(r) í: □ póstkröfu, eða setið á: □ VISA □ EUROCARD reikn.nr._______________ Nafn Gata _ Staður P.nr. || Póstsendumá “I, Stór-Reykjavík- ■ ursvæðinuog . |' um land allt. Fyll- J iðútogsendið I. inn pöntunarseð- ‘I ilinn, eða pantið I ísima 91 -13365. Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.