Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1989, Blaðsíða 16
16
FIMMTUDAGUR 8. JÚNÍ 1989.
FIMMTUDAGUR 8. JÚNÍ 1989.
25
Iþróttir
i>v
Iþróttir
„Páfinn hringdi(<
Guöjón
Guðmuncls-
son. liös-
stjóri is-
lcnska
landsliðsins
í hand-
knattleik,
getur verið með gamansömustu
mönnum. Á dögunum var hann
staddur í fjölmennri veislu og var
rætt um heima og geima. Heim-
sókn Jóhannesar Páls páfa stóð
þá sem hæst og Guöjón var
spurður hvort hann hefði séð
páfann. Guðjón svaraðiað bragði:
„Nei, hann hringdi.“
Valur stóð ekki
við samninginn
Þaö hefur
vakið at-
hygli að
heims-
meistara-
mót ungl-
inga í snók-
er fór ekki
fram í íþróttahúsi Vals að Hlíðar-
enda eins og til stóð. Ástæðan er
sú að Valsmenn stóðu ekki viö
skriflegt samkomulag viö Bill-
iardsambandið þegar á hólminn
var komið. Samkvæmt heimild-
um DV átti sambandið aö greiða
Valsmönnum 150 þúsund í húsa-
leigu en Valur átti aö sjá um veit-
ingasöluna. Þegar nokkrir dagar
voru í að heimsmeistaramótið
ætti að hefjast hafði einn af for-
ráðamönnum Vals samband við
Billiardsambandið og sagði sínar
farir ekki sléttar. Nú var upp-
hæðin alltof lág að mati Vals-
manna. í skyndi var haft sam-
band við Guðmund Árna Stefáns-
son, bæjarstjóra í Hafnarfirði,
enda góð ráð oröin rándýr. Hann
bjargaði málunum og „reddaði“
íþróttahúsinu í Hafiiarfirði.
Blikarnir með
Allt Útlit
er fyrir að
Breiðablik
úr Kópavogi
fari rakleið-
is upp í 1.
deildina í
knatt-
spymu. Blikar hafa snjalian
þjálfara, Guðmund Helgason, og
verða ekki á flæðiskeri staddir
þótt stór vandamál skjóti upp
kollinum. í leikskrá Blikanna,
sem dreift er á heimaleikjum liðs-
ins, er skýrt tekið fram að Sigurð-
ur nokkur Þorsteinsson sé
„tæknilegur ráðgjafi“ og er hann
talinn upp í skránni næst á eftir
þjálfaranum.
Landsliðsmennirnir
fastir í Grænlandi
Landsliðs-
menn okkar
í hand-
knattleik
komuht ekki
lil íslands i
fyrrakvold
!! frá Græn-
landi þar sem þeir léku tvo lands-
leiki gegn Dönum. í samtali við
einn þelrra kom glögglega fram
að vistin er víða skemmtilegri en
á eyjunni grænu sem þó er að
mestu hvít Óveður hamlaði ferð
þeirra frá Syðri-Straumsfirði til
Kulusuk en þaðan áttl að fljúga
til íslands. Bogdan hafði ráðgert
fyrstu æfingu fyrir undirbúning
HM í Tékkóslóvakíu hér á landi
í gær en í staðinn lét hann sína
menn hlaupa um Straumfiörðinn
þar sem ekkert íþróttahús er á
staðnum.
TJmsjón: Stefán KristjánsBon
HM unglinga 1 snóker:
Þrír íslendingar
á verðlaunapall
- Atli Már komst ekki í úrslit
Þrír íslendingar komust í verð-
launasæti á heimsmeistaramóti
unglinga í snóker sem stendur yfir í
Hafnarfirði. Mesta athygh vakti
sennilega viðureign Atla Bjamason-
ar og Gary Hill frá Englandi. Ath
sigraði breska heimsmethafann
glæsilega, 4-2, en þrátt fyrir sigurinn
komst hann ekki áfram. Atli komst
• Egyptinn Sohad Aboul Atta er
eini keppandinn frá Afríku.
samt sem áður í verðlaunasæti ásamt
þeim Eðvarð Matthíassyni og Amari
Richardssyni. Þeir félagar töpuðu að
vísu báðir en það kom ekki að sök.
Arnar tapaði, 2-4, fyrir Jason Ellul
og Eðvarö mátti sætta sig viö ósigur
gegn John Read.
Riðlakeppninni lauk í gærkvöldi
og komust tveir spilarar upp úr
hverjum riðh. Peter Ebdon og Sean
Lynskey komust áfram úr A-riðli.
Peter Lines sigraði í B-riðlinum og
kemst áfram í úrshtin ásamt Lee
Grant sem vann Jóhannes B. Jó-
hannsson í gær. í C-riðh tryggöu Oli-
ver King og Ken Doherty sér sæti í
úrslitunum og í D-riðlinum komust
þeir Jason Ferguson og Troy Shaw
áfram. Þess má geta að allir eru þess-
ir spilarar Englendingar nema Do-
herty sem er írskur. 8 liða úrslitin
verða leikin í dag og undanúrslitin á
morgun. Á laugardag verður síðan
sjálfur úrslitaleikurinn. -RR
• Atli-Már lék vel í gærkvöldi og sigraði heimsmethafann Gary Hill. Þrátt fyrir sigurinn komst Atli ekki í úrslitakeppnina.
íslendingarnir stóðu sig í heildina með mikilli prýði og náðu þrír að komast á verðlaunapall. DV-mynd Brynjar Gauti
Krankl vill
fækka út-
lendingum
- framtíð Guðmundar hjá Rapid óráðin
Snorri Valsson, DV, Vínarborg:
Deildarkeppninni hér í Austur-
ríki fer nú senn að ljúka. Síðasta
umferðin verður leikin á föstu-
daginn kemur. FC Tirol, undir
stjóm Ernst Happel, eru þegar
orðnir meistarar og hafa átta
stiga forskot í 1. deild en þeir
urðu einnig bikarmeistarar þar í
landi fyrir skömmu.
Rapid Vín, lið Guömundar
Torfasonar, er í fjórða sæti sem
stendur og hefur tryggt sér þátt-
töku í UEFA-keppninni á hausti
komanda.
Nú um helgina var Hans
Krankl, fyrrum leimaður Rapid
og Barcelona og markakóngur
Evrópu 1978, ráöinn þjálfari
Rapid Vín til eins árs og emifrem-
ur var kosin ný stjórn félagsins.
Stefnan fyrir næsta keppnistíma-
bil er því ekki komin á hreint en
Krankl hefur sagt að útlending-
um verði fækkað til muna fyrir
næsta tímabil.
Hvort Guðmundur verður lát-
inn fara er ekki vitað en málin
skýrast væntanlega á næstu vik-
um. Guðmundur hefur lítið feng-
ið að leika en skoraði í þeim
tveimur leikjum sem hann tók
þátt í að loknu vetrarfríi í apríl-
mánuði.
Slysin urðu ekki
af mínum völdum
- segir Siglfirðingurinn Mark Duffield
„Það er mikill misskilningur,
sem fram hefur komið í DV og
var síðan hermt eftir í Tíman-
um, aö tveir leikmenn, úr Hvöt
og Tindastóli, séu beinbrotnir
af mínum völdum. í báöum til-
fellum var ég svo óheppinn aö
vera á staðnum þar sem slysin
uröu en í hvorugt skiptið var
sökin mín,“ sagöi Mark Duffi-
eld, leikmaður og þjálfari hjá
knattspyrnuliði KS á Siglufirði,
í samtali við DV.
„Gegn Tindastóli gerðist það
aö leikmaðurinn hreinlega datt
á mig. Ég reyndi að afstýra því
en tókst það ekki og hann lenti
illa og viðbeinsbrotnaði. I leikn-
um við Hvöt var enn fjær því
aö ég gæti að því gert, sá sem
þar fótbrotnaði sparkaði í mig
en ekki ég í hann.
Umfjöllunin í kjölfar þessa
hefur þýtt það að dómarar eru
með mig undir smásjánni og
áhorfendur hrópa aö mér
ókvæðisorðum í leikjum. Það
er ekkert grín að vera kallaður
„beinbrjótur" og íleira í þeim
dúr, allra síst þegar maður hef-
ur ekkert til saka unnið,“ sagði
Mark Duffield.
-VS
m
I
í 1 deild karla
þrír leiMr þar og Qöldi 1 neðri deildum
Þrír leikir eru í fyrstu deild
karla í knattspyrnu í kvöld.
Hefjast þeir allir klukkan 20.
Fyrstan skal telja slag Reykja-
víkurfélaganna Vals og Vikings
en hann fer fram á Hlíðarenda.
Bæði þessi lið unnu á útivelli
í síðustu umferð. Valsmenn,
sem hafa nú forystu í deildinni,
lögðu FH-inga í Hafnarfirði en
Víkingar sóttu þrjú stig upp á
Skaga.
Keflvíkingar fá Þórsara í
heimsókn á Suðumesin. Bæði
þessi lið, sem margir hafa spáð
erfiöri baráttu í sumar, gerðu
jafntefli í síðustu umferö. Kefl-
víkingar unnu þá stig af ís-
landsmeisturam Fram en Þór
tók stig af erkiflandanura, KA.
íslandsmeistarar Fram fara x
Fjörðinn og glíma við FH-inga.
Eins og fram kom hér á undan
beið FH ósigur í síðustu rnnferð
en Fram tapaði tveimur stigum
í Laugardainum í baráttu við
Keflavík.
Eins og ráða má af síðustu
leikjum er deildin jafnari en oft
áður og því næsta ljóst aö þessi
leikir verða allir tvísýnir.
í kvöld er einnig mikiö um að
vera í 2., 3. og 4. deild, samtals
17 leikir. -JÖG
Aðkomuliðin tvö
jöfn á Ólafsfirði
- Sigurpáll skorar enn í 4. deildinni
Reynir frá Arskógsströnd og
KS frá Siglufiröi gerðu marka-
laust jafntefli 1 norðausturriðli
3. deildarinnar í knattspyrnu í
gærkvöldi. Leikur liöanna fór
fram á malarvellinum á Ólafs-
firði þar sem grasvöllur Ár-
skógsstrendinga er ekki tilbú-
inn til notkunar.
• Nýja Akureyrarliðið í 4.
deild, TBA, tapaði sínum fyrstu
stigum í D-riöli er það gerði
jafntefli við Æskuna, 2-2, á
Akureyri. Sigurpáll Aðalsteins-
son gerði bæði mörk TBA og
hefur nú skorað 7 mörk í fyrstu
þremur leikjunum. Fyrir Æsk-
una skoruðu Asgrímur Reisen-
hus og Arnar Kristinsson.
• í Austflarðariöli 4. deildar
vann Leiknir sigur á Sindra frá
Hornafirði, 2-1, á Fáskrúðsfirði.
Elvar Grétarsson skoraði fyrir
Sindra í fyrri hálfleik en Helgi
Ingason og Ágúst Sigurðsson
fyrir Leikni í þeim síðari.
• ÁEgilsstöðumvannHöttur
2-1 sigur á gestum sínum, KSH.
Jóhann Sigurðsson skoraði
bæði mörk heimamanna en Vil-
hjálmur Jónasson svaraöi fyrir
KSH.
-KH/MJ/VS
■ W
lék sinn 109. landsleik í gærkvöldi
Peter Shilton, markvörður
Derby County, setti enskt
landsleikjamet í gærkvöldi þeg-
ar Danir og Englendingar gerðu
jafntefli í vináttulandsleik i
knattspymu, 1-1, á Idrætspar-
ken í Kaupmaruiahöfn. Shilton,
sem verður fertugur í haust, lék
sinn 109. landsleik og bætti þar
með metið sem Bobby Moore
hafði haldið vel á annan áratug.
England komst yfir meö
marki frá Gary Iineker á 26.
mlnútu en Lars Elstrup jafnaði
fyrir Dani á 56. mínútu.
Vonir Svisslendinga um aö
komast í úrslitakeppni HM
hurfu endanlega í gærkvöldi
þegar þeir töpuðu, 0-1, fyrir
Tékkum í Bern. Tomas Skuh-
ravy skoraði sigurmark Tékka
á 22. mínútu. Belgar, Tékkar og
Portúgalir heyja nú harða bar-
áttu í 7. riðli um tvö sæti í úrsli-
takeppninni
Napoii vann
Napoli sigraði Sampdoria, 1-0,
í fyrri úrslitaleik liðanna í ít-
ölsku bikarkeppninni sem fram
fór í Napoli í gærkvöldi. Diego
Maradona lagöi upp sigur-
markiö fyrir vamarmanninn
Alessandro Renica.
-VS
Úrslitakeppni bandarísku NBA-deildarinnar:
Pat Riley gafst upp
- öruggur sigur Detroit á Lakers í fyrsta úrslitaleiknum
Birgir Þórissan, DV, New York:
Detroit batt enda á 11 leikja sigur-
göngu Los Angeles Lakers meö
109-97 sigri í fyrsta leik liðanna um
NBA-meistaratitilinn í körfuknatt-
leik í Detroit aöfaranótt miðviku-
dags. Lakers náði sér reyndar aldrei
á strik eftir stóráfall sem liðið varð
fyrir á æfingu fyrir leikinn.
Bakvörðurinn Byron Scott, einn
buröarásanna í liðinu, meiddist á
fæti og missir a.m.k. af tveimur
fyrstu leikjunum. Við það riðlaðist
sóknarleikur Lakers, sem fram að
því hafði gengiö eins og vel smurð
vél. Hinum megin á vellinum löbb-
uðu bakveröir Detroit að vild í gegn-
um vörn Lakers.
Isiah Thomas lék aðeins fyrstu þrjá
flóröungana með Detroit en var samt
stigahæstur í leiknum með 24 stig.
Joe Dumars kom næstur með 22 og
lék mjög góða vörn gegn Magic John-
son. Vinny Johnson skoraði 19 stig,
þar af 14 á síðasta flórðungi. Vörnin
var þétt að vanda hjá Detroit og hef-
ur haldið andstæðingum sínum inn-
an viö 100 stig í öllum leikjunum í
úrslitakeppninni til þessa. Edwards
skoraði 15 stig og Aguirre 12 en allt
liöið skilaði sínu.
Leikurinn var í jámum framan af.
Detroitmenn höfðu 6-10 stiga forskot
lengst af fyrri hálíleiks, þar sem þeir
voru grimmari í fráköstunum, og 7
stiga forskot, 55-48, í hálfleik.
Detroit jók muninn hægt og sígandi
í 20 stig á þriðja flórðungnum þar
sem Thomas og Dumars skoruðu að
vild. Sóknarleikur Lakers var á með-
an allur úr lagi genginn. Fjarvera
Scotts og villuvandræði Coopers
neyddu Lakers til að nota aðra leik-
aöferð en þeir voru vanir. Allt gekk
upp í sókninni hjá Detroit og sá Pat
Riley, þjálfari Lakers, sér þann kost
vænstan, þegar tvær mínútur voru
eftir, að gefast upp og sendi inn á
vara-varaskeifurnar!
Fyrir Lakers skoruðu Magic og
Worthy sín 17 stigin hvor en sóknar-
leikur þeirra var langt frá því að
vera eins hárbeittur og menn eiga
að venjast. Ekki bætti úr skák að lið-
ið misnotaði 11 vítaskot í leiknum.
Tvö golfmót í Grafarholti
Tvö golfmót fara fram í Grafar-
holti um næstu helgi. Á laugardag
er Nissan-mótið á dagskrá en þaö er
árlegur viðburður. Bakhjarl er Ing-
var Helgason. Leiknar verða 18 holur
með forgjöf og ræst verður út frá kl.
8 um morguninn. Þeir sem hafa
hæsta forgjöf hefla leik. Skráningu
lýkur kl. 18 á morgun, föstudag.
Á sunnudag fer fram stórmót í
Grafarholti hjá kvenfólkinu, svokaU-
að opna Gucci-mótið. Stíll og NIKO
hf. eru bakhjarlar. Leiknar verða 18
holur í opnum flokki, með og án for-
gjafar. Verðlaun verða sérlega glæsi-
leg en heildarverðmæti þeirra er um
150 þúsund krónur. Sérstök auka-
verölaun veröa fyrir aö vera næstur
holu á 2., 6., 11. og 17. braut. Einnig
verða veitt verðlaun fyrir lengsta
teighöggiö á 18. braut. Ræst veröur
út frá kl. 11 á sunnudag en keppend-
ur geta skráð sig í síma 82815.
-SK
Stúfar úr
1a deild
_______ 100, jalntefliÍBK
' ] Keflvíkingar gerðu sitt 100.
I ív I frá upphafi í deilda-
I /y • | keppninni þegar þeir mættu
Fram í 3. umferðinni sl.
sunnudagskvöld. Af þessum eitt hundr-
að jafnteflum, hafa 96 litiö dagsins ljós
í 1. deildar keppninni en flórum sinnum
hefur ÍBK skipt hlut í 2. deild.
50. leikur Kristjáns
Kristján Gíslason, FH, lék sinn 50. leik í
l. deiidinni fyrir Hafnarflaröarfélagið þeg-
arþað mætti Valsmönnum í Kaplakrikan-
um á sunnudagskvöldið.
Fyrsta mark þriggja
Þrír leikmenn skoruðu sín fyrstu l. deild-
ar mörk í 3. umferðinni. Jóhann Júlíusson
fyrir Keílvíkinga gegn Fram, Goran Micic
fyrir Víking gegn ÍA og Baldur Bjarnason
fyrir Fylki gegn KR.
Þrír nýliðar
Þrír piltar stigu sín fyrstu skref í l. deild-
inni í 3. uraferö, allir í viöureign Frara og
ÍBK á Laugardalsvellinum. Það voru
Framaramir Anton Björn Markússon og
Ríkharöur Daðason og Keflvíkingurinn
Kristján Geirsson. -VS
Erfiðleikar hjá Brann
- liðið nærri botni eftir 6 leiki í norsku 1. deildinni
Það gengur miður vel hjá Brann
þessa dagana í norsku fyrstu deild-
inni í knattspyrnu. Ljóst er að þeir
Skagabræöur, Teitur Þórðarson,
þjálfari liðsins, og Ólafur, eiga erfitt
starf fyrir höndum.
Lið þeirra er nú í flóröa sæti næst
botni og tapaði um síðustu helgi fyr-
ir Molde á útivelli, 2-1. Norska Dag-
blaöið sagði í umsögn um leikinn að
Björgvinjarliðið heföi leikið vel fram
að hléi en ekki nýtt þau færi sem
buðust. Staðan var jöfn í leikhléi, 1-1.
„Fyrri hálfleikurinn var sá besti
hjá okkur til þessa en við getum eng-
um um kennt nema okkur sjálfum
aö stig skyldi ekki vinnast. Viö áttum
aö taka þau öll,“ er haft eftir Teiti í
einu norsku blaðanna í kjölfar leiks-
ins.
Ólafur Þórðarson fékk þokkalega
einkunn í norska Dagblaðinu fyrir
STJÖRNUVÖLLUR - 2. DEILD KARLA
í KVÖLD KL. 20.00
STJARNAN - SELF0SS
Garðbæingar og aðrir stuðningsmenn Stjörnunnar!
Fjölmennið og styðjið við bakið á ykkar mönnum
VMNRM0TI
'WUaxmafja't.&tMiHeOutAa&ýui
SJOVA-ALMENNAR Eli! |CIfolW
Nýit félag met) sterkar rætur I I >1
Islcnsku
pottarnir og
pönnurnar
frá Alpan hf.
Eldhús og bað rýmir lagerinn
Vegna flutninga á lager seljum viö
hreinlætistæki á stórlækkuöu veröi.
Eldhús og baö, Faxafeni 5 (Skeifunni)
A
AÐALFUNDUR
Aðalfundur handknattleiksdeildar Fylkis verður hald-
inn 14. júní kl. 19.30 í Fylkishúsinu við Fylkisvöll.
Stjómin.
NORRÆNA ELDFJALLASTÖÐIN
óskar eftir að taka á leigu tveggja herbergja íbúð í
eitt ár fyrir norskan jarðfræðing. Þyrfti helst að vera
með húsgögnum.
Upplýsingar gefur Sigríður í síma 694490
á skrifstofutíma.
leikinn gegn Molde en skriffinnum
þess þótti framganga hans í meöal-
lagi. Brann á næst leik heima á
sunnudag og mætir þá Mjölner sem
er í fallsæti.
Efsta liðiö í norsku fyrstu deildinni
er Lilleström, sem hefur 13 stig, en
norður-norska liðið Tromsö IL kem-
ur á hæla árdrengja og hefur 12 stig.
-JÖG
Akureyrarbær - ráðgjafadeild
Félagsráðgjafi óskast til starfa við ráðgjafadeild nú
þegar eða eftir samkomulagi.
Uppl. um starfið veitir starfsmannastjóri í síma
96-21000, sem einnig hefur umsóknareyðublöð, og
deildarstjóri ráðgjafadeildar í síma 96-25880.
Umsóknarfrestur er til 16. júní nk.
Deildarstjóri ráðgjafadeildar
SVÆÐISSTJORN MÁLEFNA
FATLAÐRA, AUSTURLANDI
FORSTÖÐUMAÐUR
ÓSKAST
Svæðisstjórn málefna fatlaðra, Austuriandi, auglýsir
lausa til umsóknar stöðu forstöðumanns við þjón-
ustumiðstöðina Vonarland, Egilsstöðum. Vel launað
og áhugavert starf gefur góða og víðtæka reynsiu í
stjórnun og mannlegum samskiptum, samhliða þátt-
töku í uppbyggingu málefna fatlaðra, Austurlandi.
Umsóknarfrestur er til 25. júní nk. Umsóknir óskast
sendar til Svæðisstjórnar Austurlands, pósthólf 124,
700 Egilsstaðir.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu svæðis-
stjórnar í síma 97-11833 eða 97-11443. ■
L
LANDSVIRKJUN
Útboð
Landsvirkjun óskar hér með eftir tilboðum í frágang
lóðar umhverfis stjórnstöð fyrirtækisins, Bústaðavegi
7 í Reykjavík, í samræmi við útboðsgögn nr. 0212.
Útboðsgögn verða afhent frá og með fimmtudegin-
um 8. júní 1989 á skrifstofu Landsvirkjunar, Háaleit-
isbraut 68, 103 Reykjavík, gegn óafturkræfu gjaldi
að upphæð kr. 1000.
Lóðin er samtals um 4900 m2 og felst verkið m.a. í
frágangi á jarðvegsyfirborði, gróðursetningu trjáa og
runna, lagningu gangstíga, lagningu snjóbræðslu-
kerfis, malbikun bílastæða, að setja upp lýsingu og
annast um viðhald lóðar fram til haustsins 1992.
Miðað er við að verkið geti hafist 26. júní nk. og að
1. verkáfanga verði lokið fyrir 15. september nk.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Landsvirkjunar, Háa-
leitisbraut 68, 103 Reykjavík, föstudaginn 16. júní
1989 fyrir kl. 10.30 en tilboðin verða opnuð þar
sama dag kl. 11.00 að viðstöddum bjóðendum.
Reykjavík 6. júní 1989.