Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1989, Síða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 08.06.1989, Síða 28
36 FIMMTUDAGUR 8. JÚNÍ 1989. Andlát Guðrún Jensdóttir frá Ámagerði andaðist að morgni 7. júni í Hátúni 10. Eggert Jóhannesson vélstjóri, Skeið- arvogi 87, andaðist 7. júni í Landa- kotsspítala. Jarðarfarir Jóhann Lárus Jóhannesson lést á heimili sínu 31. maí. Útfórin fer fram frá Silfrastaðakirkju laugardaginn 10. júní kl. 14. Helga Þórarinsdóttir frá Bræðra- tungu, Grindavík, verður jarðsungin frá Grindavíkurkirkju laugardaginn A 10. júní kl. 14. Bjarni Halldórsson verður jarðsung- inn frá Hólmavíkurkirkju laugar- daginn 10. júní kl. 14. Ásgerður Jónsdóttir, Dvcúarheimil- inu Dalbæ, Dalvík, sem lést 1. júni sl„ verður jarðsungin frá Dalvíkur- kirkju laugardaginn 10. júní kl. 13.30. Vigdís Guðmundsdóttir, Dvalar- heimilinu Hlíð, Akureyri, verður jarðsungin frá Glerárkirkju fostu- daginn 9. júni kl. 13.30. Útfór Helgu Jónsdóttur, Túngötu 12, Húsavík, verður gerð frá Húsavíkur- kirkju laugardaginn 10. júní kl. 14. Svava Arnórsdóttir, Kleppsvegi 134, verður jarðsungin frá Áskirkju fostudaginn 9. júní kl. 13.30. Jóna Kristjánsdóttir, Ásum, Staf- holtstungum, Mýrasýslu, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju föstu- daginn 9. júní kl. 13.30. Jóhann Björnsson, Herjólfsgötu 28, Hafnarfirði, verður jarðsunginn frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði fóstu- daginn 9. júní kl. 13.30. Tilkyimingar Félag eldri borgara Göngu-Hrólfur hittist að Nóatúni 17 nk. laugardag kl. 10. Opið hús í dag, fimmtu- dag, í Sigtúni 3. Kl. 14 er frjáls spila- mennska, kl. 19.30 félagsvist, kl. 21 verður dansað. Götukort af höfuð- borgarsvæðinu Nýlega leit nýtt götukort af höfuðborgar- svæðinu, „Map of Reykjavík and surro- unding towns", dagsins ljós í sjötta sinn. Kortið er nú glæsilegra en nokkru sinni fyrr og götur Reykjavíkur, Kópavogs, Hafnarfjarðar, Garðabæjar, Mosfells- bæjar og Bessastaðahrepps birtast sérs- taklega í stærri mælikvarða. Kortið er gefið út í 120.000 eintökum og er hugsað handa erlendum ferðamönnum. Fjöl- - mörg fyrirtæki kynna þjónustu sina á kortinu þannig að það nýtist ferðamann- inum bteði til að rata um höfuðborgar- — svæðið og til að leita uppi ákjósanlega þjónustu á svæðinu. Kortið er ókeypis og liggur frammi á helstu viðkomustöð- tun ferðamanna á höfuðborgarsvæðinu. Útgefandi kortsins er útgáfufyrirtækið Ferðaland hf., Síðumúla 15. 13. landsþing St. Georgs- gildanna á íslandi var haldið á Akureyri 30. apríl sl. í um- sjá gildisins á Akureyri. Mörg mál voru á dagskrá þingsins en hæst bar þó um- ræðurnar um Norðurlandaþing sem haldið verður í Reykjavík í júií 1990. Rúmlega 100 manns úr öllum gildum landsins sátu þingið. Jafnframt var hald- in sameiginleg árshátíð gildanna á Hótel KEA þann 29. apríl sl. í umsjá gildisins í Hafnarfirði. Skátar og aðrir velunnarar, sem áhuga hafa á gildisstarfi, geta fengið upplýsingar um það hjá stjómarmeðlim- um. I stjórn voru kosin: Áslaug Friðriks- dóttir, Reykjavík, landsgildismeistari, Hörður Zophaniasson, Hafnarfirði, vara- landsgildismeistari, Garðar Fenger, Reykjavík, Sonja Kristensen, Keílavík, Aðalgeir Pálsson, Akureyri, Jón Bergs- son, Hafnarfirði og Hilmar Bjartmarz, Reykjavik. Fundir Aðalfundur Félags ísl. ferðaskrifstofa Á aðalfundi Félags ísl. ferðaskrifstofa þann 23. maí sl. var kjörin ný stjóm fé- lagsins. Formaður er Karl Sigurhjartar- son, Pólaris hf. Aðrir í stjóm em Gunnar Guðmundsson, Guðmundi Jónassyni hf., og Örn Steinsen, Sögu hf. Varamaður var kjörinn Skúli Gunnar Böðvarsson, Ahs hf. Jafnframt var kjörin sérstök stjórn til að fara með málefni Farkorta og Far- klúbbs félagsins: Formaður Karl Sigur- hjartarson, Pólaris hf., Helgi Jóhanns- son, Samvinnuferðum-Landsýn hf., og Knútur Óskarsson, Úrvali hf. Varamaður var kjörinn Óli Antonsson, Atlantik hf. Leikrit Logi, Logi eldur mín í dag, fimmtudag, og á morgun, fostudag, verður leikritið Logi, logi eldur min flutt á litla sviði Þjóðleikhússins að Lindar- götu 7. Þetta leikverk er leikgerð eftir „Gomlum götum“ færeysku skáldkon- unnar Jóhonnu Mariu Skylv Hansen í leikstjóm Eyðun Johannesen. Leikari er Laura Joensen. Leikritið var frumsýnt í Þórshöfn á annan i jólum 1988 í tilefni 100 ára afmæhs hins sögulega jólafundar þegar Færeyingar komu saman og strengdu þess heit að hefja færeyska tungu og menningu til vegs og virðingar. Leikritið hefur verið sýnt í allan vetur um ahar Færeyjar og notið mikiha vin- sælda. Það er einlæg, lifandi og faheg lýsing á lífi konu frá vöggu th grafar í htlu og ósnortnu samfélagi sem lifir í sátt við sjálft sig. Tónleikar Tónleikar í Búðardal Gunnar Guðbjömsson tenórsöngvari og Guðbjörg Sigurjónsdóttir píanóleikari munu halda tónleika í Búðardal í kvöld, 8. júní, kl. 20.30. Á tónleikunum verður fjölbreytt efnisskrá, íslensk, skandinav- ísk og ítölsk lög, sem og óperuaríur. Miðasala verður við innganginn. 71. skólaslit Samvinnuskólans Samvinnuskólanum á Bifröst var að venju shtið 1. maí sl. Að þessu sinni út- skrifuðust 29 nemendur með samvinnu- skólapróf sem jafnframt er stúdentspróf. Hæstu einkunn á samvinnuskólaprófi að þessu sinni hlaut Hiidur Sólveig Pétm-s- dóttir, 9,7, og er það hæsta meðaleinkunn sem nokkru sinni hefur náðst við Sam- vinnuskólann frá stofnun hans, 1918. Við skólaslitin vom nokkur ávörp flutt og skólanum bámst kveðjur og gjafir. í loka- ræðu skólastjóra kom fram að hér eftir starfar Samvinnuskólinn einvörðungu sem sérskóli á háskólastigi en nemendum mun nokkuð fjölga á næsta vetri frá því sem var nú í vetur. Framhaldsdeild Sam- vinnuskólans í Reykjavík var shtið 12. maf sl. og var þaö einnig í síðasta skipti sem stúdentar munu útskrifast þaðan. KENNARAR Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar vantar nokkra kennara næsta vetur. Yfirvinna í boði. Þægilegar bekkjar- stærðir. Uppl. gefur skólastjóri í síma 97-51159 eða formaður skólanefndar í síma 97-51240. Fréttir Aðstoðarlandlæknir upplýslr um læknamistök á Borgarspítalanum: Hálsbrotinn sjúklingur talinn ölvaður og fékk ranga meðferð í grein aðstoðarlandlæknis i Læknablaðinu segir frá þvi hvernig sjúklingur á slysadeild Borgarspítalans fær ranga meðferð þannig að hann andast sextán dögum eftir komu þangað. í nýjasta hefti Læknablaðsins, Fréttabréfs lækna, rekur aðstoðar- landlæknir, Guðjón Magnússon, furðulega sjúkrasögu. Hún segir frá því hvernig sjúklingur með hálsbrot var meðhöndlaður á rangan hátt á slysadeild Borgarspítalans sem að lokum leiddi til dauða sjúkhngsins með harmkvælum. Tilfelhð, sem hér um ræðir, er eitt 183 mála sem landlæknisembættinu bárust á árinu 1988. Um að ræða kvartanir vegna heilbrigðisþjónustu hér á landi. Guðjón segist skrifa þessa frásögn til að vekja lækna til umhugsunar og gerir það þó að læknir, sem las frásögnina, hafi talið fáránlegt að birta hana í Læknablaðinu. 16 daga píslarganga Síðasta sunnudaginn fyrir jól var komið með aldraðan sjúkling á slysa- deild Borgarspítalans. Þetta var' 18. desember en sextán dögum síðar, eða 2. janúar, andast sjúklingurinn. Dán- arorsök samkvæmt krufningu var brot á efstu hálsliðum með misgengi, sem þrýsti á efsta hluta og neðsta hluta mænukólfs. Mun þrýstingur á mænukólf hafa valdið dauða sjúkl- ingsins. Tildrög slyssins, sem dró sjúkling- inn til dauða, voru þau að hann datt á rör í fatahengi þegar hann hugðist tygja sig heim á leið eftir vinnu. í vinnunni hafði verið boöið upp á sérrí og mun sjúklingurinn hafa drukkið tvö glös. Talið að um ölvunartilfelli væri að ræða í komuspjaldi sjúklings er tekið fram að hann sé ölvaður, með stórt mar og bólgu á enni. Er tekið fram að hann svari skýrt og taugaviðbrögð séu eðlileg. Þegar á spítalann kom þurfti sjúklingurinn að bregða sér á salemi og fór hann þangað í fylgd aðstoðarlæknis. Hann brá sér þá frá en sjúklingurinn datt á salerninu og lá á gólfinu þegar komiö var þar að. Olli það fall því að marið á enninu stækkaði enn. Kom þá annar aðstoðarlæknir að og eftir að stungið haíði verið á mar- inu til að hleypa út blóði og létta á þrýstingi var úrskurðað að sjúkling- ur gæti fariö heim. Ættingjar sjúkl- ingsins, sem fylgt höfðu honum á spítalann, töldu hins vegar rétt að hann yröi þar áfram enda byggi hann einn. Þar telur aðstoðarlæknirinn sig hafa fengið upplýsingar frá ættingj- um um að sjúklingurinn skvetti drjúgt í sig annað slagið. Því hefur ættinginn neitað. Áfengisstimpill var hins vegar kominn og var skráð í sjúkraskýrslu að sjúklingurinn hefði dottið vegna drykkju. Fyrsta röntgenmyndataka af hálsi 10 dögum eftir komu Næstu daga virðist sjúkhngnum hraka stöðugt og eru ýmsir sérfræð- ingar kallaöir til en enginn virðist rata á réttu sjúkdómsgreininguna. Eru honum meira að segja gefin lyf vegna eftirkasta áfengisdrykkju. Þrem dögum eftir að sjúklingur er lagður inn er hann orðin þvoglu- mæltur og sofnar um leið og hætt er að hrista hann. Bæði bæklunarsér- fræðingur og taugaskurðlæknir skoðuðu hann þennan dag. Var þá gerð sneiömyndataka af höfði en ekkert athugavert sást. Því miður hugkvæmdist engum að mynda að- eins neðar. Fimm dögum eftir að sjúklingurinn er lagður inn á hann oröið erfitt um andardrátt. Sérfræðingur ráðleggur þá að hreyfa sjúklinginn eins og unnt er. Skömmu síðar kemur lungna- læknir og gerir sína rannsókn. Á aðfangadag, sem er sex dögum eftir innlögn, stoppar öndun og hjarta. Það tekst þó að endurlífga sjúklinginn. Það er hins vegar ekki fyrr en 28. desember, eða 10 dögum eftir að sjúklingurinn er lagður inn, sem hálsinn er myndaður í fyrsta skipti. Verður þá engu bjargað. Að kvöldi 2. janúar andast síðan sjúklingurinn án þess að hafa komist til meðvitundar. -SMJ Jóhannes Pálmason, framkvæmdastjóri Borgarspítalans: Ræði ekki þetta mál - landlæknisembættið hefur brugðist trúnaði „Ég vísa þessum ásökunum alfarið á höfund greinarinnar og lýsi yfir undrun minni á þessum skrifum hans,“ sagði Jóhannes Pálmason, framkvæmdastjóri Borgarspítalans, þegar hann var spurður um þær ásakanir sem Guðjón Magnússon aðstoðarlandlæknir birtir í nýjasta Læknablaði. Jóhannes sagði að um einstök tilvik gæti enginn læknir rætt um við almenning og því teldi hann að landlæknisembættið heíði brugðist trúnaði í þessu tilviki. „Eg vil taka þaö skýrt fram að ég tel mér það ekki heimilt að tala um einstaka sjúklinga sem koma hér í meðferð.“ - En leggur Guðjón réttan skilning í máhð? „Ég vil ekki fara að svara fyrir hönd greinarhöfundar, hann verður að svara því sjálfur. Hann hlýtur að vinna eftir ákveönum reglum en hann má heldur ekki bregðast trausti sem honum er sýnt í embætti." - Þér er kunnugt um þetta tilfelh sem hér um ræðir? „Ég vil ekki tjá mig um þetta ein- staka atvik á einn eða neinn hátt opinberlega.“ - Hafið þið skoðað þetta mál áður? „Ég vil ekki svara því.“ Að sögn Jóhannesar er ætlunin að ræða þetta mál meö yfirlækni spítal- ans í dag. -SMJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.