Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1989, Blaðsíða 28
36
FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ 1989.
Andlát
Dóróthea Halldórsdóttir, Hringbraut
116, Reykjavík, andaðist 19. júlí.
Jarðarfarir
Guðjón Halldórsson húsgagnasmiður,
Höfðatúni 9, verður jarðsunginn frá Foss-
vogskirkju mánudaginn 24. júlí kl. 15.
Hanna Elsa Jónsdóttir, Meðalholti 4,
vistmaður að Hátúni 12, er lést laugar-
daginn 15. júlí, verður jarðsungin mánu-
daginn 24. júlí kl. 15 í Fossvogskapellu.
Haraldur Ólafsson, Nökkvavogi 62, er
lést þann 17. júlí sL, verður jarðsimginn
frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 25. júlí
kl. 15.
Útför föður okkar, tengdafoður og afa,
Lárusar Lúðvíks Magnússonar vél-
stjóra, Seljavegi 17, Reykjavík, fór fram
,v íkyrrþeyþannl9.júhaðóskhinslátna.
Þórdís Hallgrimsdóttir Ammendrup
lést 12. júlí. Hún fæddist á Akureyri 4.
janúar 1946 og voru foreldrar hennar þau
Hallgrímur Stefánsson og Fríða Sæ-
mundsdóttir. Þórdls lauk námi frá Ljós-
mæðraskóla íslands í september 1971 og
síðan framhaldsnámi frá Hjúknmar-
skóla íslands í september 1974. Eftirlif-
andi eiginmaður hennar er Páll Amm-
endrup. Þau hjónin eignuðust þrjú böm.
Útfór Þórdísar verður gerð frá Arbæjar-
kirkju í dag kl. 15.
Tombóla
Nýlega héldu þessir krakkar tombólu til
styrktar Rauða krossi íslands og söfnuðu
þau 1335 kr. Þau heita Sigurður Garðar
Flosason, Kristín Halldórsdóttir, Linda
Garðarsdóttir, Jófriður Halldórsdóttir,
Helga Björg Garðarsdóttir en á myndina
vantar Birgi Má Jónsson.
Tombóla styrktar Rauða krossi íslands og söfnuðu
Nýlega héldu Lára Rúnarsdóttir og þaer 700 kr.
Bryndis Guðmimdsdóttir tombólu til
Nauðungaruppboð
annað og síðasta
á eftirtöldum eignum
fer fram í skrifstofu
embætösins, Hafnargötu 62,
á neðangreindum tíma
. Fagranes GK-171, þingl. eig. Sigurður
Tr. Þórðarson o.fl., þriðjud. 25. júlí
nk. kl. 13.30. Uppþoðsbeiðendur eru
Ólafiir B. Amason hdl., Trygginga-
stoíhun ríkisins, Búnaðarbanki ís-
lands og Vilhjálmur H. Vilhjálmsson
hrl.
Bæjarfógetinn í Keflavík,
Grindavík og Njarðvík
Sýslumaðurinn í Gullbringusýslu
Nauðungaruppboð
þriðja og síðasta
á eftirtöldum fasteignum
Drangavellir 8, Keflavík, þingl. eig.
■* Hreggviður Hermannsson o.fl., fer
fram á eigninni sjálfii, þriðjud. 25.
júlí nk. kl. 10.15. Uppboðsbeiðendur
eru Guðmundur Knstjánsson hdl.,
Bæjarsjóður Keflavfluir, Trygginga-
stofiiun ríkisins, Vilhjálmur H. Vil-
hjáfmsson hrl., Veðdefld Landsbanka
íslands, Landsbanki íslands og Jón
Þóroddsson hdl.
Fitjabraut 30, Njarðvík, þingl. eig.
Sigurjón hf., fer firam á eignirmi sjálfri,
þriðjud. 25. júlí nk. kl. 11.00. Uppboðs-
beiðendur eru Rúnar Mogensen hdl.,
Vilhjálmur H. Vilhjálmsson hrl.,
Garðar Garðarsson hrl. og Gjald-
heimta Suðumesja.
Garður Grindavík, þingl. eig. Þorleif-
ur Hallgrnnsson, 250453-2059, fer fram
á eigninni sjálfri, þriðjud. 25. júlí nk.
kl. 15.30. Uppboðsbeiðendur eru Inn-
heimtumaður rfldssjóðs, Ásgeir Thor-
oddsen hdL, Tryggingastofiíun rflris-
ins, Jón. G. Briem hdl. og Reynir
Karlsson hdl.
Iðndalur 10, Vogum, þingl. eig. Fisk-
torg hf., fer fram á eigninni sjálfri,
þriðjud. 25. júh' nk. kl. 15.00. Uppboðs-
beiðendur eru Iðnlánasjóður, Bruna-
bótafélag íslands, Vflhjálmur H. Vil-
hjálmsson hrl., Skúh J. Pálmason hrl.,
Guðmundur Kristjánsson hdl., Othar
Öm Petersen hrl., Ásgeir Thoroddsen
hdl., Garðar Briem hdl., Eggert B.
Ólafsson hdl., Vatnsleysustrandar-
hreppur, Byggðastofiiun, Andri Áma-
son hdl., Ingi H. Sigurðsson hdl.,
Kristinn Hallgrímsson hdl., Magnús
Norðdahl hdl. og Ásbjöm Jónsson hdl.
Smáratún 35, neðri hæð, Kéflavík,
þingl. eig. Marteinn Jónsson, fer fram
á eigninni sjálfri, þriðjud. 25. júlí nk.
kl. 10.30. Uppboðsbeiðendur em Vil-
hjálmur H. VilhjálmsSon hrl., Jón G.
Briem hdl., Garðar Garðarsson hrl.
og Ásbjöm Jónsson hdl.
Tjamargata 31A, Keflavík, þingl. eig.
Ánton Narvaes, fer fram á eigninni
sjálfri, þriðjud. 25. júlí nk. kl. 16.15.
Uppboðsbeiðendur em Bæjarsjóður
Keflavíkur, Valgarður Sigurðsson
hdl., Ólafur Gústafsson hrl., Bruna-
bótafélag íslands og Landsþanki ís-
lands.
Vesturbraut 9, efri hæð, Keflavík,
þingl. eig. Bjami Skúlason o.fl., fer
fram á eigninni sjálfii, þriðjud. 25.
júlí nk. kl. 11.50. Uppþoðsbeiðendur
em Vilhjálmur H. Viíhjálmsson hrl.,
Tryggingastofiiun rflrisins, Ásbjöm
Jónsson hdl. og Veðdeild Landsbanka
íslands.
Víkurbraut 23, Keflavík, þingl. eig.
Víkurbraut sf., fer fram á eigninni
sjálfri, þriðjud. 25. júh' nk. kl. 11.30.
Uppboðsbeiðendur em Bæjarsjóður
Keflavíkur, Brunabótafélag íslands,
Iðnaðarbanki íslands hf. og Ævar
Guðmundsson hdl.
Bæjarfógetim í Keflavík,
Grindavík og Njarðvík
Sýslumaðurinn í Gullbringusýslu
Menning
Viðtal við Bemard Huin safnstjóra:
Nútímalist eftir
eigin höfði
Bernard Huin innan í verki eftir Gilberto Zorio
DV-mynd Brynjar Gauti
Listasafnið í Epinal í Frakklandi,
sem lánað hefur verk til sýningar
þeirrar sem opnuð verður um helg-
ina að Kjarvalsstöðum, er sérstakt
um margt, ekki síst fyrir það að á
undanförnum sjö árum hefur safn-
stjórinn, Bemard Huin, fengið að
kaupa nútímalist algjörlega eftir
eigin höföi.
Það er einmitt sú list sem við
fáum að sjá að Kjarvalsstöðum,
verk eftir Warhol, Frank Stella,
Donald Judd, Richard Long, Gil-
bert og George, Tony Cragg og
marga fleiri.
Við gripum Huin þar sem hann
var að stilla af mynd eftir Sigmar
Polke og báðum hann segja frá
safni sínu og þeirri list sem þar er
að flnna.
„Eins og þú kannski veist er
Epinal safnið nokkuð gamalt. Það
var stofnað árið 1822 og á talsvert
af málverkum og vatnslitamynd-
um eftir gamla meistara,
Rembrandt, de la Tour, Brueghel,
Boucher, Watteau og fleiri.
Safnið átti hins vegar enga nútí-
malist þegar ég hóf þar störf fyrir
fjórtán árum - og raunar nær enga
peninga til kaupa á slíkri list.
Þegar Jack Lang varð menning-
armálaráðherra hóf franska ríkið
að veila stóra styrki til listasafna
úti á landsbyggðinni og nutum við
góðs af þeim.
Epinal safnið var allt í einu í
stakk búið til aö kaupa nútímalist
en þó ekki í miklum mæli. Við gát-
um augljóslega ekki náð í skottið á
listasögunni. Því urðum við að gera
upp við okkur hvemig kaupunum
skyldi hagað.
Póetísk innkaupastefna
Niðurstaðan varð sú að mér var
falið að kaupa inn verk eftir eigin
smekk, rétt eins og ég væri að koma
mér upp einkasafni.
Þegar ég er spurður um inn-
kaupastefnu mína segi ég stundum
að hún sé póetísk, þar eö hún
grundvallast fyrst og fremst á
minni eigin upplifun, því tilfinn-
ingasambandi sem myndast milli
mín og ákveðinna verka.“
Við spurðum Huin hvers konar
nútímalist höföaði helst til hans.
„Eins og þú sérð af sýningunni
skiptist hún aðallega í þrennt. í
fyrsta lagi reyni ég að safna „Arte
Povera“, verkum þeirra Mario
Merz, Giovanni Anselmo og fleiri.
i öðru lagi sækist ég eftir alls
kyns „minimal“ list, naumhyggju,
það er, verkum eftir Carl Ándré,
Donald Judd, Dan Flavin, Richard
Long og Frank Stella.
Loks er ég líka veikur fyrir list
sem erfítt er að flokka en hefur þó
ákveðinn hugmyndalegan slag-
kraft, til dæmis verk Richards
Artschwagers, Tony Cragg, Gil-
berts og George og Richards
Tuttle."
Það vekur athygb að Huin virðist
ekki hafa smekk fyrir nýja expres-
sjónismanum svokallaða því ekk-
ert verk af því tagi er í safni hans.
Klifað á gömlum kllsjum
„Það er rétt. Ég er ekki par hrif-
irm af þessum germanska expres-
sjónisma, Kiefer, Basehtz & Co.
Myndlist
Aðalsteinn Ingólfsson
Mér finnst þeir vera að klifa á
gömlum klisjum. Ég er í sjálfu sér
ekki á móti expressjónisma, mér
hugnast til dæmis gamh expres-
sjónismi þeirra Kirchners og
fleiri."
Við spjöhum um verðlag á nútí-
malist sem gerir Utlum söfnum eins
og Epinal safninu erfitt fyrir.
„Þaö gefur augaleið að við getum
ekki keypt mörg verk eftir Steha á
hverju ári. Satt að segja eyddi ég
helftinni af innkaupafé okkar fyrir
árið 1986 þegar ég keypti málverkið
eftir Stella sem er hér á sýning-
unni.
Glaður mundi ég vilja kaupa
fleiri verk ungra listamanna en ég
geri en eins og stendur reyni ég að
treysta undirbyggingu safnsins
með lykilverkum eftir þá Usta-
menn samtímans sem mest hafa
lagt af mörkum til nútímalistar -
að mér flnnst.
Til þessa hef ég keypt um 150
verk til safnsins á því tímabih sem
ég hef verið þar við stjómvölinn."
Tahð berst að einstökum verkum
í safninu, til dæmis mynd Warhols
með súpudósunum. Hvað réð því
að hún var keypt?
„Ég hef takmarkaðan áhuga á
sjálfri poppfílósófíunni. Ég keypti
það verk fyrst og fremst vegna þess
að í því er gengið út frá ýmsum
forsendum naumhyggjunnar,
minimahsmans, til dæmis endur-
tekningu staðlaðra forma.“
íslendingar á óskalistanum
Önnur mynd, ljósmynd Helmuts
Newton af nakinni og fjallmyndar-
legri konu í fullri lengd, sem ís-
lenskir fjölmiðlar hafa verið mjög
áfram um að birta, er einnig til
umræðu.
„Ég lít eiginlega ekki á hana sem
ljósmynd heldur sem skúlptúr.
Newton er þarna aö nota kvenlíka-
mann til tjáningar á líkamlegum
og sálfræðhegum sannindum."
Það kemur í ljós að Huin þekkir
vel til íslenskrar nútímahstar og
segist hann undrandi á því hve
margir af bestu listamönnum
Norðurlanda séu íslenskir. Loks
upplýsir hann að meðal þeirra sem
séu hátt á óskalista hans fyrir
Epinal safnið séu þeir Guðmunds-
synir, Sigurður og Kristján.
-ai.
SMÁAUGLÝSINGAR
mam
Mánudaga - föstudaga,
9.00 - 22.00
Laugardaga, 9.00 - 14.00
Sunnudaga. 18.00 - 22.00