Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1989, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1989, Blaðsíða 7
FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ 1989. 7 Fréttir Greinargerð Félags íslenskra loðdýraræktenda: Skinnið minna virði en fóðrið sem refurinn étur - bændur vilja eftir sem áður viðtækan stuðning úr opinberum sjóðum Samkvæmt útreikningum Félags íslenskra loödýraræktenda étur refahvolpur fóöur fyrir 1.750 krónur á þeim tíma sem hann er aö vaxa í sláturstærð. Fyrir skinnið af sama hvolpi fást hins vegar ekki nema 1.510 krónur á mörkuðum erlendis. Meö öðrum orðum þá er skinnið af refnum minna virði en fóðrið sem hann étur. Þetta kemur meðal annars fram í skýrslu loðdýrabænda um vanda greinarinnar. Þegar litið er á tekjur og gjöld refabænda kemur skýrt fram hversu lítill rekstrargrundvöll- ur er undir greininni. Skinnið stendur ekki undir fóðurkostnaði Eins og áður sagði étur refahvolpur fóður fyrir um 1.750 krónur. Verkun á skinninu og sölukostnaður er síðan um 590 krónur á skinn. Ýmis kostn- aður annar að flárhæð 179 krónur bætist síðan við. Heildarkostnaöur- inn er þá orðinn 2.519 krónur. Hér hefur ekki verið reiknaö með launum eða fjármagnskostnaði. Laun bóndans eru um 600 krónur á hvert skinn samkvæmt verðlags- grundvelli búvara, en þau laun eru ákaflega lág. Með íaunakostnaði ber því hvert skinn kostnað upp á 3.119 krónur. Það er helmingi hærri upp- hæð en fæst fyrir skinnið erlendis. Ef reiknað er með að refabændur eigi jafnstóran hluta af heildarskuld- um loðdýraræktarinnar og sem nem- ur hlutfalli refabænda af tekjum hennar þarf hvert refaskinn að standa undir 1.125 krónum í fjár- magnskostnað ef miðað er við 7,5 prósent vexti. Heildarkostnaður við hvert skinn er því um 4.244 krónur. 2.556 tapast á hverjum refahvolpi Eins og áður sagði fást um 1.510 krónur fyrir skinnið á mörkuðum erlendis. Loðdýrabændur reikna með að þeir eigi rétt á um 178 krónum á hvert skinn vegna endurgreiðslu á söluskatti sem útflutningsgreinar njóta. Skilaverð af einu skinni upp í kostnað er því 1.688 krónur. Mismunurinn á tekjum og útgjöld- um vegna þessa eina refaskinns er því um 2.556 krónur. Þeir 40.000 refahvolpar sem nú eru í ræktun munu gefa um 68 milljónir í tekjur. Kostnaðurinn við að fram- leiða skinnin er hins vegar um 170 milljónir. Mismunurinn er 102 millj- ónir. Fréttaljós Gunnar Smári Egilsson Vantar 95 prósent ofan á allar tekjur Dæmið lítur eilitið betur út í minkaræktinni. Þar fást um 970 krónur fyrir hvert skinn. En þar sem ódýrara er að ala upp mink en ref dugir það fyrir fóðrinu sem hann étur, verkun á skinninu og sölu- kostnaðinum. Það vantar hins vegar um 862 krónur til þess að sala á skinni standi undir öllum útgjöldum að launum og íjármagnskostnaði meðtöldum. Þá hefur verið tekið til- ht tii endurgreiðslu á söluskatti. Það eru um 300 þúsund minka- hvolpar í eldi í dag. Fyrir skinnin af þessum hvolpum munu bændur fá um 322 milljónir. Kostnaðurinn við að framieiða þessi skinn er hins veg- ar um 581 milljón. Mismunurinn er 259 milljónir. Samkvæmt þessum útreikningum vantar loðdýraræktina um 361 millj- ón til þess að reksturinn standi und- ir sér. Það eru um 95 prósent af heild- artekjum greinarinnar. Loðdýrabændur vilja víðtæka aðstoð Þrátt fyrir þessa stöðu leggur Félag Samkvæmt útreikningum loðdýrabænda kostar um 1.750 að fóðra ref í slát- urstærð en hins vegar fást ekki nema 1.510 krónur fyrir skinnið. íslenskra loðdýraræktenda til víð- tækar aðgeröir til hjálpar greininni. Lagt er til að niðurgreiðslur á fóðri verði hækkaðar úr 55 milljónum í 111 milljónir. Hluta af skuldum bænda og fóðurstöðva verði breytt í vikjandi lán eða með öðrum orðum að ekki þurfi að greiða þessi lán fyrr en bændur og fóðurstöðvar skili hagn- aði. Atvinnutryggingasjóður og Stofnlánadeild landbúnaðarins breyti um 300 milljónum af lausa- skuldum greinarinnar í langtímalán sem ríkissjóður taki ábyrgð á. Jarða- kaupasjóður kaupi jarðir þeirra bænda sem vilja hætta búskap. End- urgreiðsla allra langtímalána verði breytileg og taki miö af afurðaverði; þaö er að ef markaðsverð stendur ekki undir framleiðslukostnaði þuríi greinin ekki að standa skil á afborg- unum. Söluskattur fyrir árin 1988 og 1989 verði greiddur úr ríkissjóði á þessu ári. Þá er lagt til þess að stofn- aður verði „fastgengissjóður“ sem greiði bændum þann mismun sem verður á hækkun lánskjaravísi- tölunnar og gengi danskrar krónu. Tífalt gengi loðdýrakrónunnar Um þessa síðasttöldu hugmynd hefur áður verið fjallaö í DV. Eins og þá kom fram hækkar gengi er- lendra gjaldmiðla um þann mismun sem er á verðbólgu hér innanlands og eriendis. Þaö er óþekkt í hagsög- unni að gengi miðist einvörðungu viö verðbólgu innanlands. Ef aðferð loð- dýrabænda hefði verið notuð undan- farin 50 ár væru þeir nú að fá afurða- verð á skinnum bætt um 74,10 krón- ur. Það er sá mismunur sem hefur orðið á innlendri verðbólgu og geng- isskráningu dönsku krónimar síðan 1939. Loðdýrakrónan í dag væri því 81,95 krónur á meðan venjulegt gengi væri 7,85 krónur. „Hér eru meira að segja snagar“ - lögregla og fógeti á Siglufirði komast brátt í nýtt húsnæði Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri; Lögreglan á Siglufirði hefur mátt búa við það lengi að vera í húsnæði sem bæöi er allt of lítið, stórskemmt og ekki mönnum bjóðandi að starfa þar. En nú eru betri tímar framundan. Bygging nýs húss, sem hýsa á bæði lögreglu og embætti bæjarfógeta, er á lokastigi og þangað verður flutt áður en langt um líður. DV skoðaði nýja húsið með Gunn- ari Guðmundssyni yfirlögregluþjóni á dögunum. Geysileg viöbrigði verða fyrir lögregluna að komast þangað inn. Gunnar sýndi blaðamanni DV m.a. fangaklefana ög á sama gangi er einnig aðstaða fyrir lögreglu- mennina, fataskápar og fleira. „Hér eru meira að segja snagar," sagði Gunnar og má því ætla að slíkur „lúxus“ sé ekki í gömlu lögreglustöð- inni. Erlingur Óskarsson bæjarfógeti sagði að ekki væri mjög þröngt á fógetaskrifstofunum. Hins vegar myndi sjúkrasamlagið bætast viö á Gunnar Guðmundsson yfirlögregluþjónn og Erlingur Óskarsson bæjarfóg- eti fyrir framan nýja húsið sem mun hýsa lögreglu og skrifstofur bæjarfógeta. DV-mynd gk skrifstofum hans um næstu áramót og þá veitti ekkert af því húsrými þegar ríkið tekur yfir þann rekstur sem verður í nýja húsinu. TiUögur nefiidar um fj ölmiðlafræðslu: Ars fjölmiðlanám í Háskólanum Nefnd, sem skipuð var 11. janúar sl. til að flalla um fjölmiðlakennslu á öllum skólastigum, hefur skilað tillögum sínum til menntamálaráð- herra. Varðandi fjölmiðlanám á há- skólastigi leggur nefhdin til aö námi í hagnýtri fjöimiðlun við fé- lagsvísindadeild Háskóla íslands veröi komið á laggirnar í haust. Gert er ráö fyrir að um eins árs nám verði að ræða og skulu um- sækjendur þegar haía iokiö BA eða BS prófi eða eiga að baki fimm ára starf við fjölmiðla og hafa náð 26 ára aldri. Lagt er til að námið teljist 45 ein- ingar, 33 einingar verði teknir á námskeiöum á haust- og vormiss- eri en 12 einingar felist í verklegri þjálfun á vinnustaö yfir sumar- mánuðina Telur nefndin að með þvi að bjóða upp á fjölmiðlanám á framhalds- stigi háskólanáms fremur en á grunnstigi muni kennslan veröa tiltölulega ódýr og fram náist tölu- verð íjölbreúni í nemendahópn- um. Ætlar nefndin aö þeir sem velja námsbrautina að loknu há- skólaprófi geri það að vel yfirve- guðu ráði og muni reynast mark- vissari í náminu en yngri nemend- ur. -GHK Utanborðs- mótor stolið Utanborðsmótor að verömæti um 300 þúsund krónur var stohð úr Lenu, 18 feta Flugfiski, þar sem hún lá við bryggju neðan við Kaffivagn- inn í Reykjavíkurhöfn aðfararnótt miðvikudags. Mótorinn er 85 hest- afla, af gerðinni Chrysler. Hann veg- ur um 170 kíló þannig að tahð er að þjófamir hafi verið á báti eða burð- ast með mótorinn fimm eða sex sam- an upp á land. -hlh

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.