Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1989, Síða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1989, Síða 5
5 rc-n t'í : • 't •'» v'HrSf/ FÖSTUÐAGUR 21. JÚLÍ 1989. dv_____________________________________________________________________________________________Fréttir Ríkisstjómin: Lífeyrissjóðirnir fjármagna hallann Ólafur Ragnar Grímsson fjármála- ráöherra kynnti í gær aðgerðir ríkis- stjómarinnar vegna fyrirséðs 4,2 milljarða halia á ríkissjóði í ár. Eins og DV skýrði frá í gær felast þær í 800 milljón króna niðurskurði á rík- isútgjöldum, 3.000 milljóna innlendri lánsfjármögnun og breytingum á innheimtu bensíngjalds og launa- skatts sem fela í sér að tekjur af þess- um sköttum berast fyrr til ríkissjóðs. Samanlagt munu þessar aðgerðir ná að fjármagna hallann. Ólafur kynnti einnig aö hlutdeild- arskírteini í verðbréfasjóðum, sem samanstanda einvörðungu af ríkis- skuldabréfum og -víxlum, skyldu verða eignarskattsfrjáls í framtíð- inni. Hann sagði það von sína að þetta mætti verða til þess að verð- bréfafyrirtæki stofnuðu slíka sjóði og örvuðu með því sölu á spariskír- teinum. Ólafur vildi ekki upplýsa hvar 800 milljón króna niðurskuröur ríkisút- gjalda kæmi niður. Hann benti þó á að nú væri gert ráð fyrir að mun hærri fjárhæðir kæmu inn í hús- næðiskerfið í gegnum kaupskyldu lífeyrissjóðanna þar sem ráðstöfun- arfé þeirra yrði meira í ár en sam- kvæmt áætlunum fjárlaga. Þetta gæfi möguleika á að minnka framlag ríkissjóðs til húsnæðiskerfisins að sama skapi. Ríkisstjórnin horfir einnig til líf- eyrissjóðanna um kaup á þeim 3.000 milljón króna ríkisskuldabréfum sem ríkissjóður mun bjóða út um- fram áætlun lánsfjárlaga. Ólafur benti á að bankabréf væru nú að mestu horfin af markaðinum og því væri vandséð hvar lífeyrissjóðirnir gætu tryggt sér áhættulausa ávöxtun ráðstöfunarfjár síns annars staðar en hjá ríkinu. Lífeyrissjóðirnir munu því hafa stórt hlutverk í fjármögnun ríkis- sjóðshallans. Þeir munu láta meira fé inn í húsnæðiskerfið og draga með því úr útgjöldum beint úr ríkissjóði og standa síðan að mestu undir kaup- um á um 3 milljörðum af ríkisskulda- bréfum. -gse Aðgerðir rikisstjómarinnar á fyrstu sex mánuðum ársins: Kostuðu ríkissjóð 5 milljarða króna Það sem af er þessu ári hefur ríkis- stjórnin tekið ákvarðanir um aukin útgjöld fyrir um 3,4 milljarða og jafn- framt minnkað tekjur ríkissjóðs um 1,6 milljarða. Hún hefur því gert af- komu ríkissjóðs neikvæðari um 5 milljarða. Þetta kemur fram í greinargerð íjármálaráðuneytisins um endur- skoðaða áætlun um afkomu ríkis- sjóðs á þessu ári. í fjárlögum var gert ráð fyrir að tekjur ríkissjóðs yrðu 77,1 milljarður á þessu ári. Vegna meiri gengis- breytinga, verð- og launahækkana en gert var ráð fyrir í fjárlögum hefðu tekjur ríkissjóðs hins vegar orðið um 79,8 milljarðar að öðru óbreyttu. Það er um 2,7 milljarða hækkun. í tengslum við kjarasamn- inga lækkaði ríkisstjórnin hins vegar tekjur ríkissjóðs um sem nemur 1,6 milljörðum. Samkvæmt áætluninni stefnir því í tekjur upp á um 78,2 milljarða. Útgjöld ríkissjóðs áttu samkvæmt fjárlögum að verða um 76,5 milljarð- ar. Vegna hækkunar á gengi, vöru- verði og launum hefði þessi tala hins vegar hækkað upp í um 79 milljarða. Aðgerðir ríkisstjómarinnar í tengsl- um við kjarasamninga og ýmsan stuðning við atvinnuvegina ásamt auknum útgjöldum til landbúnaðar- mála juku útgjöld ríkissjóðs hins vegar um 3,4 milljarða til viðbótar. Samkvæmt áætluninni er því gert ráð fyrir að útgjöldin verði um 82,4 milljarðar. Samkvæmt fjárlögum átti að verða um 600 milljón króna tekjuafgangur af fjárlögum. Eftir verðlagsbreyting- ar hefði að öðru óbreyttu stefnt í um 800 milljóna afgang. Eftir aðgerðir ríkisstjómarinnar í skattamálum og auknum útgjöldum stefnir hins veg- ar í um 4.200 milljón króna halla. Viðsnúningurinn er um 5.000 millj- ónir. -gse „Safnar ekki auði í Svíþjóð“ - segir íslenskur læknir „Það fer í taugamar á mér að og má ungt fólk í Stokkhólmi t.d. þá ættirðu ekki pening. Þar væri allir séu að flytja til Svíþjóðar. Það bíöa í þrjú ár eftir að fá þak yfir ekki hægt að framfleyta sér á Visa- er regin vitleysa sem kemur fram höfuöiö. Læknirinn sagöi að þaö korti. Einu sinni á ári, í desember, í viðtali við Þórð Sigurösson í gær væri einnig misskilningur sem fengju Svíarnir svo endurgreitt því á bls. 2. Það er ekkert rétt sem kæmi fram í greininni þar sem því ílestir borguðu of mikið í skatta. stendur í þessari grein,“ sagði ís- var haldið fram að matvara væri Þeir peningar færu vanalega til lenskur læknir sem búsettur hefur ódýrari i Svíþjóð en hér á landi. jólagjafakaupa. verið í Svíþjóö í flmm ár þar sem Auðvitað mætti fmna eitt og annaö Atvinna er fyrir hendi i Svíþjóð, hann hefur verið við nám. sem væri ódýrara en munurinn en læknirinn sagði að sú vinna sem - Læknirinn er nú á leiöinni heim væri nánast enginn. hægt væri að fá hefði aldrei talist til íslands raeð konu og tvö böm „Af þeira sem hafa flúiö land er nógu góð fyrir íslendinga. Vinnan því að ef einhvers staðar er erfitt leitandi að þeim sem hafa orðið hefst venjulega um sjöleytið og þar að ná endura saman þá er það í eftir í Svíþjóð. Það eina jákvæöa sem hann starfaði fékk hann Svíþjóð. Læknirinn sagði að tekjur viö landið er að vel er séö fyrir fólki hvorki matar- né kaffitíma borgað- lians í Svíþjóö hefðu verið um sem þarf á tryggingabótum að an. Vinnan hefði veriö níu tíma 180.000 á raánuði, en ráðstöfunar- halda og það er eina fólkið sem törn. Þeir einu sem væra auðugir tekjur hefðu aðeins verið um 81.000 hefur þaö „gott“. Það getur fengiö í Svíþjóð væru annaöhvort meö krónur, þar sem rúmlega 50% færu allt að 54.000 krónum á raánuði," einkafyrirtækieðafæddirinnírík- í skatta. Tæplega hefði verið eftir sagði læknirinn. _ ar fjölskyldur. króna þegar upp var staðið. Hann sagði einnig að hér heima „Þú safnar ekki auöi í Svíþjóð, í Svíþjóð á vart neinn eigið hús- væri alltaf hægt að bjarga sér fyrir svo raikið er víst,“ sagði læknirinn nasði, heldur leigja um 86% sænsku hom með skuldir en í Svíþjóð gilti aölokum. þjóðarinnar. Skortur er á húsnæði sú regla að ef þú ættir ekki pening -GHK Ólafur Ragnar Grímsson fjármálaráðherra kynnti niðurskurð ríkisútgjalda, innlenda lánsfjármögnun en engar skattahækkanir sem aðgerðir rikisstjórn- arinnar vegna halla á ríkissjóði i gær. Með honum á myndinni eru Bolli Þór Bollason, skrifstofustjóri hagdeiidar fjármálaráðuneytisins, og Svanfrið- ur Jónasdóttir, aðstoðarmaður Ólafs. DV-mynd HS Ámeshreppur: Unnið við nýju kirkjuna Regína Thorarensen, DV, Gjögri: Ég kom við í kirkjubyggingunni nýju í Árneshreppi en þar var unnið af kappi á sunnudaginn, 16. júlí. Þó stoppað á meðan á messu stóð. Ég talaði við tvo unga námsmenn sem þar voru að vinna. Ég spurði þá hvað þeir hefðu mikið kaup svona á sunnudegi og þeir svöruðu því til að þeir fengju ekkert kaup. Þetta væri sjálíboðavinna, undirbúningur fyrir verk mánudagsins. Framvegis ætl- uðu þeir þó að taka kaup ef þeir yrðu beðnir að vinna við kirkjuna. Guð- laugur Maríasson, Felh, annar skóla- piltanna, sagði að þeir yrðu að fá kaup fyrir sína vinnu því þeir væru í skóla á veturna. Yfirsmiður við kirkjubygginguna er Arinbjörn Bernharðsson og hon- um til aðstoðar er Óskar Torfason, báðir lærðir húsasmiðir. Fæddir og uppaldir í Ámeshreppi en burtfluttír vegna þess að þar er ekki atvinna allt árið. Héraðsnefnd ísafjarðarsýslu hélt sinn fyrsta fund fyrir skömmu og sam- þykkti þá harðorða ályktun um byggða- og atvinnumál á Vestfjörðum. DV-mynd BB, ísafirði. Strákarnir í knattspyrnuskóla Leifturs á Olafsfirði höfðu ekkert á móti þvi að stilla sér upp fyrir myndatöku og fannst það tilvalið að raða sér i glugga stýrishúss af skipi sem er staðsett við malarvöllinn á Ólafsfirði. DV-mynd gk Vestfiröir: Hætta á byggðaröskun Siguijón J. Siguiðsson, DV, Isafirði: Héraðsnefnd ísafjarðarsýslu hélt sinn fyrsta fund fyrir skömmu. Af- greidd var fjárhagsáætlun sýslu- vegasjóðs og samþykkt fjögurra ára áætlun um framkvæmdir á sýsluveg- um. Þá var gengið frá fjárhagsáætlun héraðssjóðs fyrir þetta ár og ákveðið að styrkja sérstaklega Ferðamála- samtök Vestfjarða og Héraðsskjala- safnið. Þá var samþykkt harðorð ályktun um atvinnu- og byggðamál á Vest- fjörðum. Þar segir m.a. að afleiðingar rangrar gengiskráningar síðustu missera hafi verið þær að flestar út- flutningsgreinar á Vestfjörðum hafi safnað skuldum sem séu nánast að sliga starfsemi þeirra. Orðrétt segir m.a.: „Því fé, sem gert var upptækt á tímum fastgengis, verður að skila aftur til útflutningsfyrh-tækjanna. Það er staðreynd að sú eyðslustefna, sem ríkt hefur og ríkir enn á kostnað útflutningsatvinnuveganna, sem afla þjóðinni gjaldeyris, er að ganga af fyrirtækjunum dauðum".

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.