Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1989, Blaðsíða 11
FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ 1989.
11
Utlönd
Vopnahlé
í hættu
Fulltrúar Arababandalagsins
reyna nú aö halda til streitu vopna-
hléi því sem samið var um í Líbanon
fyrir níu vikum. Miklir bardagar
brutust út í Beirút, höfuðborg Líban-
ons, á,miðvikudag. í gær rigndi svo
sprengjum yfir borgina í einhverjum
verstu bardögum síðan í maímánuði.
Vitað er um níu sem hafa látist síð-
ustu tvo sólarhringa og sextíu hafa
særst.
Bardagarnir í gær eyðilögðu
hundruð bifreiða á götum Beirút og
eldur kviknaði í fjölda íbúarhúsa. í
báðum hlutum borgarinnar mátti sjá
ummerki bardaganna í gær, glerbrot
og rusl á víð og dreif. íbúar borgar-
innar eyða nú nóttunum í loftvam-
abyrgjum.
Einn fulltrúi Arababandalagsins
sagði í gær að friðarnefnd bandalags-
ins ynni að þvi að ná samkomulagi
milli hinna stríðandi fylkinga í Lí-
banon. Hann kvaðst þó óttast frekari
blóðsúthelhngar. í landinu hefur nú
geisað borgarastyijöld í fjórtán ár.
Arababandalagið hefur hert mjög
tilraunir sínar til að styrkja vopna-
hléð sem náðist þann 11. maí síðast-
hðinn og fá stríðsaðila, kristna og
múhameðstrúarmenn, til að setjast
aðsamningaborðinu. Reuter
Sjúkraliðar Rauða krossins hjálpa einu fórnarlamba bardaganna í Líbanon.
Símamynd Reuter
Palmemálið:
AIK bendir til
sakfellingar
AUt bendir nú til að meintur morð- inn dómur kveðinn upp þó að ekki
ingi Olofs Palme hafi verið fundinn væri óraunhæft að draga þá ályktun
sekur. Dómstóll í Stokkhólmi ákvað að ákærði hefði verið fundinn sekur.
eftir fund í gær að ákærði yrði áfram Verjandi þess manns sem eitt sinn
í gæsluvarðhaldi en ekki sleppt. var grunaður um morðið segist vera
Fundurinn í gær var sá fjórði og þeirrar skoðunar að ákærði verði
síðasti fyrir 27.júlí þegar tilkynna á dæmdur sekur en ekki látinn sæta
niðurstöður réttarins. Þar sem geðrannsókn. Samkvæmt venju
ákærði var ekki látinn laus í gær eru hefði átt að tilkynna um geðrann-
margir lögfræðingar þeirrar skoðun- sóknina fyrirfram og þá í gær. Hins
ar að hann hafi verið fundinn sekur. . vegar þætti honum einkennilegt ef
Dómararnir vildu ekki í gær segja ákærði yrði ekki látinn sæta geð-
hvort kveðinn verði upp dómur 27. rannsókn vegna fortíðar hans. Hann
júlí eða hvort tilkynnt verði að hefur fimm sinnum gengist undir
ákærði eigi að gangast undir geð- geðrannsókn og tvisvar verið dæmd-
rannsókn. ur til vistar á geðdeild.
Verjandi ákærða viðurkenndi í Ef ákærði verður dæmdur til slíkr-
gær að margt benti til að hann verði ar rannsóknar nú þarf að rétta á ný
dæmdur sekur en vildi samt ekki og þá geta komið fram ný vitni og
segja neitt ákveðið. Saksóknari var nýjar upplýsingar.
einnig gætinn í ummælum sínum. TT
Sagði hann að enn væri reyndar eng-
NY OLKRA
í Skipholti 37- sími 685670
Verið velkomin.
~ Olbannn ~
Opið frá kl. 18.00.
VERIÐ VELKOMIN
GLÆNÝR
LAX
besnt ár ánní, aðesns
485
kr. kg.
Opíð tíl kl. 20 í kvöld.
Laugardag kl. 9-18.
Sunnudag kl. 11-18.
Ath! Opíð í Laugalæk til kl. 16 á laugardag, lokað sunnudag.
KJOTMIÐSTOÐIN
Garðabæ, sími 65 * 64 * 00
Laugalæk, sírai 68 ‘ 65 * 11
GOTT VÖRUÚRVAL: - GOTT VERÐ
- GÓÐ BÍLASTÆÐI
Pizza dagsíns - hrásalat
og lasagne
VERIÐ VELKOMIN
Sími 685670
Opíð alla daga frá kl. 18.00-23.30.