Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1989, Síða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 21.07.1989, Síða 25
FÖSTUDAGUR 21. JÚLÍ ;989. 33 Sviðsljós Rainier prins af Mónakó: „Éggetekki gifst aftur" Á mánudaginn var haft eftir Raini- er fursta af Mónakó að hann væri svo gagntekinn af minningum um Grace prinsessu að hann gæti ekki gifst aftur. Furstinn, sem er 66 ára gamall, segir í nýrri hók: „Ég á yndis- lega fjölskyldu og var í góðu hjóna- bandi. Hvert sem ég fer fylgja mér minningar um Grace.“ Rainier var niöurbrotinn maður þegar hann missti eiginkonu sína í bílslysi árið 1982. Þau giftust árið 1956 þegar hún var stjarna í Holly- wood. Þegar Jeffrey Rohinson, sem er höfundur bókarinnar Rainier og Grace, spurði Rainier um möguleika á því að hann giftist aftur, sagði hann: „Ég sé Grace hvar sem ég fer. Hins vegar gæti ég ekki gifst aftur því það yrði erfitt fyrir bömin mín. Ég ætla því ekki að gera það. Rainier minntist einnig á sögu- sagnir um ástarsamband hans við prinsessuna þýskættuðu, Iru von Furstenberg. „Við höfum þekkst lengi og höfum góðan félagsskap hvort af öðru. Hún er skemmtileg - en það er allt og sumt. Það hefur aldr- ei verið spurning hjá okkur um hjónaband," sagði hann. Prinsinn segir að sig langi til að setjast í helgan stein og fela ábyrgð- ina 31 árs gömlum ólofuðum syni sínum, Albert prins. „Það gerist þó ekki fyrr en Albert er orðinn viss um að hann treysti sér til að taka við af mér. Einnig mun hjónaband hafa þar áhrif á,“ segir Rainier. í bókinni er einnig ýmislegt haft eftir Albert prins. „Embættið er nokkuð sem ég hef alltaf verið dálítið smeykurvið .... þetta er svo mik- il ábyrgð og mörg ólík vandamál að takast á við,“ Sagði Albert. „Ég hef þurft að horfast í augu við mörg þeirra og reynt að hjálpa fóður mín- um við sín störf. En það er ekki auð- velt og ég er ekki viss um að ég sé reiðubúinn til að taka við núna,“ segir Albert í bókinni. Reuter Rainier prins segir í bókinni Rainier og Grace að hann hafi átt gott hjóna- band og að minningin um konu sína lifi stöðugt - hann getur því ekki hugs- að sér að gifta sig aftur. Auk þess telur hann að það yrði börnunum þung- ur baggi. Myndin er tekin sex árum áður en Grace dó í bílslysi. Töluverður hópur fólks safnaðist saman á ísafjarðarflugvelli til að fylgjast með flugmódelasmiðum fljúga vélum sinum. DV-mynd BB, ísafirði. Þjónusta DV-mynd Geir Gröfuþjónusta. Til leigu JCB traktors- grafa í öll verk. Uppl. í síma 44153. Líkamsrækt Flugdagur og sýning Siguijón J. Sigurösson, DV, ísafirði: Flugáhugamenn á ísafirði og Pat- reksfirði tóku sig til fyrir skömmu og héldu sameiginlegan flugdag. Veð- m- var hið sæmilegasta á báðum stöð- um en þó ekki flugfært að sunnan þannig að vélamar, sem áttu að koma þaðan, komust ekki í tæka tíð. Flugkapparnir vestfirsku létu það þó ekki á sig fá og notuðu bara sínar eigin vélar til hstflugs og útsýnis- flugs. Þó verður að viðurkenna að skemmtilegra hefði verið að hafa fleiri vélar til sýnis. Þá fór fram sýning á flugmódelum en smíði og flug shkra véla er nokkuð vinsælt tómstundagaman. Tilboð: GYM-4 sett. Öflugur pressu- bekkur með fótatæki, lyftingasett, 70 kg, krómstangir og mittisbekkur,, verð stgr. 41.605, afl). 43.920. Vaxtarræktin, frískandi verslun, Skeifunni 19, 108 Rvík, s. 681717. Sendum í póstkröfu. Margir hafa verslað á útimarkaðnum á Dalvík. Við smiðum stigana, einnig furuúti- handriðin. Stigamaðurinn, Sandgerði, s. 92-37631/37779. lÖLVUNARjAKSTUR L_----_ ~~ vn ER Dalvík: Iifandi lax á útimarkaði Geir A. Guðsteinsson, DV, Dalvík: Undanferna laugardaga hefur útimarkaður verið haldinn á planinu fyrir framan félagsheimihð Víkur- röst þar sem ýmsir aðilar hafa boðið varning sinn. Mikil og vaxandi aö- sókn hefur verið á markaðinn, hæði af heimamönnum og aðkomufólki, t.d. frá Akureyri og einnig hafa ferða- menn kunnað vel aö mefe þessa ný- breytni. Vamingur sem þarna er á boðstól- um er fjölbreyttur, fatnaður, bækur, brauð og kökur, niðursuðuvarning- m- alls konar, lifandi lax, glysvarn- ingur af ýmsu tagi og þannig mætti lengi telja. Einnig er boðið upp á kaffi og vöfllur og grihsteiktar pyls- ur. Þá hljóma þýðir tónar í eyru markaðsgesta frá rafmagnsorgeh sem Dagmann Ingvason leikur á. Upphafsmaður að þessari nýbreytni er Ólafur Árnason, rekstrarstjóri Víkurrastar. Hluti flugmódela sem var til sýnis.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.