Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.1989, Blaðsíða 3
ÞRIÐJUDAGUR 1. ÁGÚST 1989.
3
Fréttir
■'
i
Flestir hlusta á rás 1
Samkvæmt skoðanakönnun SKÁ-
ÍS hlusta flestir á rás 1 en útvarps-
stöðin Eff Emm er vinsælust meðal
þeirra sem eru 14 til 29 ára. Könnun-
in var gerð fyrir Eff Emm fóstudag-
inn 21. júlí milli kl. 17 og 22. Var
úrtakið 550 manns á aldrinum 14 til
49 ára og af þeim svöruðu 476. Tæp-
lega 27% spurðra höfðu ekki hlustað
á útvarp þennan dag.
Ríkisútvarpið hefur fremur afger-
andi forystu þegar litið er á þá sem
hlustuðu á útvarp. Á rás 1 hlustuðu
154, en 127 á rás 2. Bylgjan hafði 103
hlustendur, Eff Emm hafði 97 og á
Stjömuna hafði 61 hlustað. Rót og
Alfa höfðu hvor um sig einn hlust-
anda úr hópi þeirra sem spurðir
voru.
Þegar litið er á aldurshópinn 14 til
29 ára er Eff Emm samtals með 75
hlustendur, Bylgjan með 45, Stjarnan
með 34, rás 2 með 29 og rás 1 með
18. Meðal þeirra sem em á aldrinum
30 til 49 ára hlustuðu flestir á Bylgj-
una og rás 1, eða 43 á hvora, 42 höfðu
hlustað á rás 2, 22 á Stjörnuna og 17
áEffEmm. -GHK
J{SPARISJÓÐIRNIR
—jyrir þig og þína
Sóðaskapur
hafður til sýnis
Garðurinn við Skólavörðustíg 45,
Hábæjarhúsið, hefur vakið talsverða
athygli erlendra ferðamanna vegna
sóðaskapar. Hafa þeir oft tekið
myndir af garðinum eftir að hafa
myndað stolt borgarinnar, Hall-
grímskirkju, og Leifsstyttu.
Að sögn Péturs Hannessonar hjá
fegrimarnefnd Reykjavíkurborgar
hefur margoft verið gerð athuga-
semd við lóðina. Sagði Pétur að í
garðinum væm leifar af byggingu
sem hefði verið garðskáli á sínum
tíma en er nú að grotna niður og að
mestu leyti horfmn. Einnig væri ansi
mikið drasl í garðinum sem bæri að
fjarlægja.
„Við höfum sent eigendunum bréf
og það var alltaf góðu svarað. Þeir
sóttu um leyfi til að byggja og það
hefur verið bið á að það fengist. Ég
vona að það sé þess vegna sem þetta
hefur dregist svona. Annars er þetta
búið að vera svona í nokkur ár, allt-
af að grotna niður,“ sagði Pétur.
Hjá borgarfógeta fengust þær upp-
lýsingar að þinglýstur eigandi væri
Einar Valur Ingimundarson. Einar
sagði þó að eignin væri seld og væri
búið aö byggja á lóðinni fyrir tveimur
árum ef borgin hefði ekki staðið í
vegi fyrir því.
Að sögn Gunnars Sigurðssonar
byggingarfulltrúa var sarhþykkt í
apríl að leyfa byggingu á lóðinni en
ekki hefur enn verið byriað á fram-
kvæmdum. Til stendur að reisa við-
byggingu í garðinum sem er svipuð
á hæð og gamla húsið og verða þar
tvær íbúðir. Gunnar sagði að það
tæki alltaf dálítið lengri tíma að af-
greiða leyfi þegar um gamla bæinn
væri að ræða, það hefði líka tafið
fyrir að ekki var fallist á fyrstu tillög-
ur. -GHK
Eins og sjá má blasir ekki fögur sjón við ferðamönnum sem leið eiga um
Skólavörðuholtið. DV-mynd JAK
perðalagj^f
THIS NOTr
° 17lKpr7°
Gunnþór með iitla fuglsungann sem hann hefur tekið svo miklu ástfóstri við.
DV-mynd KAE
Með fuglsunga
í f óstri
Gutti úr Mosfellsbæ, Gunnþór
Guðjónsson, tók eftir pínulitlum
fuglsunga þegar hann átti leið fram
hjá dælustöðinni sem er rétt hjá
heimili hans í Lindarbyggð. Unginn
var óttalega væskilslegur og leit út
fyrir að vera munaðarlaus svo Gunn-
þór tók hann upp á arma sína og fór
með hann heim.
Gunnþór er mikill fuglavinur og á
sjálfur nokkra páfagauka. Hefur
unginn notið góðs af því þar sem
hann er hefur verið fóðraður á páfa-
gaukafóðri þótt einnig hafi verið
reynt að gefa honum orma. Fuglinn
er nú orðinn vel fleygur en ekki er
vitað hvort hann spjarar sig upp á
eigin spýtur þar sem hann önnur
löppin er bækluð. Helst af öllu vildi
Gunnþór halda honum.
-GHK
því þar
færðu
seðla og
ferðatékka
í öllum helstu
gjaldmiðlum
heims.