Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.1989, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.1989, Page 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 1. ÁGÚST 1989. Fréttir „Maður veit ekki af níutíu strákum hér“ Tveir roggnir á hjólabát. - sagöi Aöalsteinn Pétursson, starfsmaður á Drengjaheimilinu Ástjöm í Kelduhverfi Gylfi Kxistjánsson, DV, Akureyri: Við tjömina var allt iðandi af lífi. Strákamir vom þar á hjólabátum, litlum árabátum og seglbátum, allir kiæddir björgunarvestum að sjálf- sögöu, og á bryggjunum stunduðu sumir homsílaveiðar af kappi. Það var greinilega gaman að vera áhyggjulaus strákur á Drengjaheim- ilinu Ástjöm í Kelduhverfi morgun einn á dögunum er DV kom þar við. Þar var gríöarleg veðurblíða, jafnvel á norðlenskan mælikvarða, blanka- logn, sól og hiti um 20 stig og strák- amir vora úti um allt á fleygiferð eins og maurar. „Það er enginn vandi að vera með 90 stráka hérna þegar veðrið er svona, maður veit ekki af þeim,“ sagði Aðalsteinn Pétursson, starfs- maður að Ástjöm, sem fylgdist með strákunum við tjörnina. „Eins og þú sérð iðar hér allt af lífi og fjöri. Þeir era á bátunum, sem er vinsælast, og Hin svokallaða Flugieiðaþolreið fór fram á laugardaginn i ágætu veðri. Sextán hestar tóku þátt í þolreiðinni sem var farin frá hestaleigunni í Lax- nesi til Þingvalla, um 30 km leið. Mun tilgangur þolreiðarinnar vera að stuðla að fjölbreytni í notkun islenska hestsins. DV-mynd JAK Þessir voru á hornsílaveiðum við bryggjuna. DV-mynd, gk. svo veiða þeir sílin og eru orðnir ansi slyngir í því margir hveijir." Strákamir að Ástjöm era á aldrin- um 6-12 ára og koma víðs vegar af landinu. í þeirri veðurbliðu, sem ver- ið hefur á Norðurlandi að undan- fómu, hlýtur dvöl þar að vera sem að dvelja í paradís og þótt veður sé ekki gott hafa þeir nóg viö að vera, bæði innanhúss og utan. Það er því ekki að furða þótt margir þeirra komi þangað sumar eftir sumar. Ferðir til útlanda á fyrsta ársfjórðungi: íslendingar eyddu meira í ár en í fyrra Landsmenn eyddu hærri upp- hæð í ferðalög til útlanda á fyrsta ársfjórðungi þessa árs en á sama tíma í fyrra. Eyðslan nam rúmlega 1,9 milljörðum króna í ár en 1,1 milljarði í fyrra - er það nokkur hækkun umfram verðlagshækkan- ir. Þessar upplýsingar koma fram í Fjármálum, riti Fjárfestingafé- lagsins. Islendingar eyddu tæpum tíu milljörðum króna í ferðalög til út- landa á síðasta ári. Hins vegar eyddu erlendir ferðamenn um 4,7 milljörðum króna hér á landi í fyrra - auk þess fengu flugfélögin tæpa 2,7 milljarða króna í tekjur vegna fargjalda. Heildarupphæðin frá erlendum ferðamönnum nam því 7,4 milljörðum króna. Á fyrsta ársfjóröungi ársins 1988 nam eyðsla íslendinga í ferðalög til útlanda um 1,1 milljarði, á öðram 2.3 milljörðum, á þriðja 3,8 mill- jörðum, og á íjórða ársfjórðungi 2,7 milljörðum. Árið 1987 eyddu landsmenn um 8.3 milljörðum króna í ferðalög í sama tilgangi en 9,9 milljörðum árið 1988. Miðað við raunvirði var þar um samdrátt að ræða. -ÓTT Þrír ölvaðir á sunnudagskeyrslu DV-mynd, gk. Aöalsteinn bregður á leik viö einn pollann að Ástjörn. DV-mynd, gk. Lögreglan á Akureyri þurfti að hafa afskipti af þrem ökumönnum sem reyndust vera ölvaðir í fyrradag. Vora þeir á sunnudagskeyrslu í bæn- um og virtust hafa staupað sig eitt- hvað áður en þeir lögðu af stað. -SMJ I dag mælir Dagfari íslendingar við Adríahaf Júlímánuður var sólarminnsti júlí- mánuður allt frá því fyrir þrjátíu og íjóram áram þegar Veðurstofan mældi rigningu upp á hvem dag. Þetta á við um Reykjavík og ná- grenni en eins og allir vita fer veð- rið á íslandi eftir því hvernig veð- rið er í Reykjavík. Sóhn hefur bros- að blítt, bæði fyrir norðan og aust- an, en Reykvíkingar taka ekki mark á veðri úti á landi, enda fá þeir ekki notið þess. í höfuðborg- inni ganga íbúamir kvartandi og kveinandi og bölva veðri og regni eins og þeir eigi lífið að leysa. Þetta veðurlag hefur orðið til þess að feröir aukast til sólarlanda. Sagt er að ekki sé hægt að þverfóta fyrir Reykvíkingum á Mallorca og Costa del Sol og þó einkum á ítölsku ströndinni viö Adríahaf. Við Adría- haf skín sólin upp á hvem dag og íslendingamir spóka sig þar með bros á vör og kunna sér ekki læti. Ef eitthvað fer í skapið á þeim þurfa þeir ekki annað en að hringja heim og frétta af rigningarsuddanum á heimaslóðum og þá kemst allt í himnalag. Nú háttar hins vegar svo til við Adríahaf að þegar hvessir berast þörungar að landi með öldunum og sjórinn verður upplitaður af brúnni slikju þöranganna og varla er nokkrum manni hættandi í sjó- inn vegna smithættu og sýkingar. Auk þöranga berast áburðar- og fosfatefni frá iðnaðarhverfunum í sjóinn og hafa hvetjandi áhrif á þörangalífið og af þessu öllu mynd- ast froða sem gerir sjóinn lítt fýsi- legan til baða. Þetta þörungafár er svo alvarlegt að ferða- og sólarstaðir við Adría- haf hafa næstum því tæmst af venjulegu ferðafólki. En íslending- ar era ekki venjulegt ferðafólk. Eftir því sem DV hermir nú í vik- unni hafa íslenskir farþegar ekkert kvartað til ferðaskrifstofanna. Þetta er haft eftir einum fararstjór- anum þar syðra, sem segir að ís- lendingar sækist hvort sem er ekki eftir því að baöa sig í sjónum. Þeir sem á annaö borð fara í sjóinn hafa heldur ekki kvartað og hver farm- urinn á fætur öðram er fluttur frá Keflavík til Adríahafs og til baka aftur án þess að þörangamir breyti neinu um venjur þeirra eða sólar- dýrkun. íslendingar era ekki hræddir við þöranga. Þeir hafa ekki áhyggjur af því þótt sjórinn verði brúnn af mengun. íslendingar era komnir til sólarstranda til að veröa brúnir og hvaða máli skiptir þá hvort þeir verði brúnir af sól eða brúnir af þörangum? Fólk sem kemur innan úr rigningunni og hefur upplifað sólarminnsta júlímánuð sem sögur fara af í þijátíu og fjögur ár lætur það ekki á sig fá þótt pínulítil meng- un komi í veg fyrir sólböðin í sjón- um. Þama er líka hægt að fara á barinn og bjórinn myndar mótefni gegn sýkingunni og það kvartar sem sagt ekki nokkur maður und- an þessum skít. Það getur vel verið að fólk vakni upp á morgnana í henni Reykjavík og bölvi veðrinu. Það getur vel ver- ið að hér tapi sundstaðir og sport- búðir og gistiheimili og aðrir þeir sem ella gætu grætt á sumarblíðu og sólsprangandi fólki. En suður á ítalíu sækja Islendingar brúnkuna sína í þörangana á ströndinni og una glaðir við sitt. Ferðaskrifstof- umar fyllast af fólki sem kaupir sér farmiða í þörungapláguna við Adr- íahafið samkvæmt þeirri kenningu að allt sé betra en rigningin. Það syndir um í þörungunum og brúnkar sig í mengúninni. Sem sannar að það er ekki sama hvaðan fólk kemur. Meðan aðrar þjóðir forðast Adríahafið og hafa ekki lyst á þörungum og iðnaðarmengun og sjófroðu hópast þangað íslendingar sem baða sig með góðri lyst og hafa Adríahafið út af fyrir sig. ítalimir sjálfir hafa af því ein- hverjar áhyggjur að ferðamanna- iðnaðurinn leggist í rúst ef þöran- garnir setjast að á baðströndunum. En meðan hann rignir í Reykjavík og meðan íslendingar sækjast eftir brúnkunni af menguninni þurfa ítalir ekki að óttast um ferða- mannaiðnaðinn. í rauninni ætti ít- alska sijómin að bjóða íslensku þjóðinni til Adríahafsins á hveiju sumri til að sanna fyrir umheimin- um að engum verður meint af þör- ungum og fólk verði jafnbrúnt af þeim og sólinni. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.