Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.1989, Page 8
8
ÞRIÐJUDAGUR 1. ÁGÚST 1989.
Utlönd
Bjargad úr sjónum
Bandaríska konan ó teíð á sjúkrahús á Bermúdaeyjum eftir 14 daga voik
í Atlantshali. Símamynd Reuter
Bandarískri konu var bjargað á mánudag eftir fjórtán daga vist í björg-
unarbáti á Atlantshafinu, en þar haíði hún veriö frá því að seglskúta
hennar sökk. Unnusti konunnar stökk í hafiö þegar skútan sökk og er
hann talinn af.
Konunni var bjargað um borð í skemmtiferðaskipiö Royal Viking Star
og var farið meö hana til Bermúdaeyja þar sem hún var lögð inn á sjúkra-
hús. Talið er að hún muni aö fullu ná sér eftir volkiö.
Embættismenn sögðu aö ekki væri ljóst hvernig konan hefði liíað þess-
ar raunir af né væri heldur Jjóst hversu lengi hún hefði verið matar- og
vatnslaus. Ekki er heldur ljóst hvaö kom fyrir skútu konunnar.
Ráðist á Serbíu
Serbía, stærsta lýöveldi Júgóslavíu, varö fyrir endurteknum árásum á
tveggja daga fundi miðstjórnar kommúnistaflokksins fyrir að æsa upp
hatur milli þjóðarbrota landsins og fyrir aö seilast til æ meiri áhrifa inn-
an landsins.
Fulltrúar Serbíu á fundi miöstjórnarinnar vísuöu gagnrýni fuUtrúa
hinna lýðveldanna á bug. Þeir sögöu aö með gagnrýni sinni vildu fulltrú-
ar hinna lýðveldanna steypa leiötogum Serbíu af stóli.
Þjóðernisstefna er alvarlegt vandamál í Júgóslavíu þar sem búa að
minnsta kosti 24 þjóðarbrot Sex trúarbrögð eru iökuö í landinu, fjórar
megintungur eru talaöar og notast er við tvö stafróf, latneskt og kyrillí skt
DollarSnn HríðfeRur
Dollarinn féll enn í verði gagn-
vart japanska jeninu í kauphöllinni
í Tokýo í morgun. Hann hafði áöur
fallið um tvö jen í New York vegna
væntanlegrar lækkunar vaxta í
Bandaríkjunum. Doiiarinn var
kominn í 136,80 jen um miðjan dag
í dag, aö japönskum tíma.
Dollarinn er þó ekki talinn munu
falla meira í verði gagnvart jeninu
nema. jenið styrkist gagnvart evr-
ópsku gjaldmiölunum. Dollarinn hefði fallið enn meira ef gjaldeyriskaup-
endur hefðu ekki selt jen fyrir mörk í Tokýo.
Fjármálaráðherra Japans sagði um fall dollarans að verðgildi jensins
hefði ekki stigið of hratt þar sem það heföi áöur falliö töluvert aö verö-
gildi. í New York upphófst mikil dollarasala eftir að tveir stórir banda-
rískir bankar lækkuðu forvexti sfna úr 11 prósentum í 10,5 prósent
Dollarinn var lágt skrifaður í kaup-
höllinni I Tokýo I morgun.
Símamynd Reuter
Dómarar í verkfalli
Átján þúsund dómarar og embættismenn í kólumbíska dómskeríinu
hafa ákveðið aö leggja niður vinnu í sólarhring til að krefjast betri lög-
regluvemdar, í kjölfar morðs á dómara.
Talsmaðurinn sagði að allir réttarsalir í landinu yrðu lokaáir í dag,
þriðjudag, til að þrýsta á lögregluyfirvöld til að veita dómurum frekari
vemd gegn hefndum flkniefnasala. Dómaramir ákváöu að fara í verkfaU
eftir að Maria Elena Diaz Perez dómari var myrt 1 Medelhn, helsta fikni-
efnastað Kólumbíu, á fóstudag. Tveir lífverðir hennar vora einnig myrt-
ir. Rúmlega fimmtíu dómarar hafa veriö myrtir í Kólumbíu á sfðasta
áratug og þrettán hundruö hafa fengið lffiátshótanir.
Vilja ný heimkynni
Flóttamenn frá lýöveldinu Usbekistan fóru fram á það við sovéska þing-
ið I gœr að það fengi að flytjast til nýrra heimkynna. Flóttamennirnir
voru fiuttir á brott frá Úsbekistan í kjölfar þjóóernisrósta sem brutust út
á milli Úsbeka og meskheta t júní. Símamynd Reuter
Elskendumir teknir
Tveir unghngar, spánskur drengur og finnsk vinkona hans, voru hand-
teknir á sunnudag í kirkju í Barcelona. Lögregla sagði aö þau hefðu ver-
ið nakin í keleríi á altarinu.
Dómari íhugar nú hvort leggja eigi fram ákæra á hendur unglingunum.
Reuter
Hóta að myrða
annan gísl
Utanríkisráðherra ísraels, Yitzhak
Shamir, sagði í morgun aö yfirvöld
þar í landi hefðu sett sig í samband
við ýmsa hópa í því skyni að freista
þess að fá gísla í haldi mannræningja
í Líbanon lausa. Yfirlýsing Shamirs
kom nokkrum klukkustundum áður
en mannræningjar sögðust mundu
taka af lífi Joseph Cicippio, banda-
rískan gísl.
Bush Bandaríkjaforseti hvatti í
gærkvöldi til þess aö allir gíslar í
h'aldi mannræningja í Miðaustur-
löndum yrði sleppt úr haldi til aö
endi yrði bundinn á þessa öldu of-
beldis. í varfærnislega orðaðri yfir-
lýsingu forsetans, sem kom í kjölfar
morðsins á WiUiam Higgins í gær-
dag, mátti skilja gagnrýni á yfirvöld
í ísrael fyrir ránið á Abdel Karim
Obeid, einum leiðtoga Hizbollah-
samtakanna. ísraelskar sérsveitir
rændu Obeid á fostudag.
Mannræningjar Higgins sendu frá
sér yfirlýsingu og myndbandsspólu í
gær, um tveimur tímum eftir að
frestur ísraelsstjórnar til að láta
Obeid lausan rann út, þar sem sagt
var og sýnt að Higgins hefði verið
hengdur. Higgins, 44 ára gamall, var
yfirmaður hóps friðargæslumanna í
Suður-Líbanon. Honum var rænt í
febrúar á síðasta ári.
ísraelsk yfirvöld hvöttu aftur á
móti til þess að vestrænir banda-
menn þess stæðu þeim við hlið í bar-
áttunni gegn „hryðjuverkum“.
Önnur samtök, byltingarsamtök
réttlætis, hafa hótað aö taka af lífi
annan bandarískan gísl í dag, Joseph
Cicippio, verði ekki gengið að kröfum
þeirra. Cicippio, fyrrum kennari viö
bandaríska háskólann í Beirút, var
rænt í september árið 1986.
ísraelsk yfirvöld höfnuðu í gær
úrslitakostum sem mannræningjar í
Líbanon höfðu sett til að þyrma lífi
Cicippo. Aðstoðarutanríkisráðherra
ísraels, Benjamin Netanyahu, sagði
í samtali við BBC að Obeid yrði ekki
sleppt. „Ef við látum undan væru
mun fleiri gíslar, fleiri líflátshótanir
og fleiri harmleikir," sagði Netany-
hu.
ísraelski herinn hefur skýrt frá því
að Obeid hafi átt aðild að ráninu á
Higgins. Margir ísraelskir embætt-
ismenn segja að ólíklegt sé að Higg-
ins hafi verið tekinn af lífi í gær held-
ur fyrir nokkru síðan.
Viðbrögð við morðinu á Higgins
voru harkaleg. Bresk blöð gagn-
rýndu ísraelsstjórn harölega fyrir
ránið á Obeid. Bandaríski öldungar-
deildarþingmaðurinn Robert Dole
var harðorður í garö ísraelsmanna.
Hann gaf í skyn aö ísraelsmenn
hefðu lagt líf bandarísku gíslanna í
hættu. Skömmu eftir áð frestur ísra-
elsmanna, til aö láta Obeid lausan í
gær, rann út buðust þeir til aö skipta
á Obeid og þremur ísraelskum her-
mönnum sem tahð er aö séu í haldi
mannræningja í Líbanon sem og
vestræum gíslum. Því var ekki svar-
að. Skömmu síðar kom tilkynningin
um aftöku Higgins. ísraelsmenn
segja að þeir séu enn tilbúnir til að
skipta á Obeid og gíslunum í Líban-
on.
Tahð er að atburðir síðasta sólar-
hrings geti haft mikil áhrif á sam-
skipti Bandaríkjanna og ísraels.
Reuter
Mannræningjar William Higgins sendu myndbandsspólu frá hengingu hans.
Sumir telja að ekki sé fullvíst að hann hafi verið myrtur í gær eins og
mannræningjarnir halda fram heldur hafi hann látist fyrir nokkru.
Simamynd Reuter
lífi í
dag verði Obeid ekki látinn laus um þrjúleytið í dag. Símamynd Reuter
Áttunda aftakan
William Higgins ofursti var átt-
undi útlendingurinn sem mannræn-
ingjar hafa líflátið. Samtök hinna
kúguðu sögðu á mánudag að þau
hefðu tekið Higgins af lífi til að refsa
Bandaríkjunum og bandamanni
þeirra, ísrael, fyrir að láta ekki
lausan shítaklerkinn Abdel Karim
Obeid sjeik sem ísraelskar hersveitir
rændu á föstudag.
Samtökin sendu frá sér mynd-
bandsspólu sem sýndi Higgins hang-
andi í reipi.
Mannræningjasveitir í Líbanon
hafa starfað undir ýmsum nöfnum
en þær eru allar taldar starfa undir
vemdarvæng Hizbollahflokksms
sem fylgir stjóm írans aö málum.
Stefna flokksins er aö losna við alla
vestræna menn úr Líbanon. Hiz-
bollahmenn neita hins vegar allri
aöild að mannránunum.
Hinir sjö, sem hafa verið líflátnir,
eru Frakkinn Michel Seurat, Sovét-
maðurinn Arkady Katkov, Banda-
ríkjamennirnir William Buckley og
Peter Kilbum, Bretarnir Philip Pad-
field, John Leigh Douglas og Aiec
Collett.
Mannræningjar í Líbanon hafa enn
21 útlending í haldi að því aö talið
er. Bandaríkjamenn eru fjölmenn-
asti hópurinn, eða níu, breskir gíslar
eru fjórir, þar af einn sem einnig
hefur írskt ríkisfang, íranskir þrír,
tveir vestur-þýskir, einn egypskur
og sömuleiðis einn ítalskur og einn
fransk-líbanskur.
íranirnir þrír voru handteknir 1982
af kristnum sveitum í Líbanon.
Bandaríski balaöamaðurinn Terry
Anderson var handtekinn 1985. Sama
ár voru ein frönsk kona, tveir Banda-
ríkjamenn og einn ítali handtekin.
1986 náðu mannræningjarnir á
vald sitt tveimur Bretum og þremur
Bandaríkjamönnum. Breskur sendi-
fulltrúi erkibiskupsins í Kantara-
borg, Terry Waite, var handtekinn
1987 svo og þrír Bandaríkjamenn. í
fyrra náðu mannræningjar á sitt
vald Egypta og á þessu ári hafa þrír
útlendingar horfiö, Breti og tveir
V estur-Þj óðveij ar.
Reuter