Dagblaðið Vísir - DV - 01.08.1989, Side 25
ÞRIÐJUDAGUR 1. ÁGÚST 1989.
25
Sviðsljós
Alfred Jolson, biskup katólskra á íslandi, setur listahátíðina. Fremst á myndinni eru hjónin Inga Bjarnason og
Leifur Þórarinsson, en þau voru meðal upphafsmanna hátíðarinnar, og Svavar Gestsson menntamálaráðherra
og eiginkona hans, Jónína Guðnadóttir.
Birgitta Spúr, forstöðumaður Lista-
safns Sigurjóns Ólafssonar og ekkja
listamannsins, fræðir Alfred Jolson
biskup um safnið.
listahátíð
á hundadögum
Menningar- og listahátíð, sem
kennd er við hundadaga, var sett
formlega í Listasafni Sigurjóns Ól-
afssonar og sýning á verkum Kristj-
áns Davíðssonar opnuð. Auk hsta-
safnsins standa að hátíöinni Tónhst-
arfélag Kristskirkju og Alþýðuieik-
húsið. Opnunarhátíðin var sett við
messu í Kristskirkju á sunnudags-
morgni, síðan sett formlega í Lista-
safni Siguijóns Ólafssonar og um
kvöldið var frumsýning á Macbeth í
Islensku óperunni sem Alþýðuleik-
húsið sýnir.
Efnisskrá Hundadaga er mjög fjöl-
breytt. Fyrir utan það sem áður er
upptahð má nefna frumflutning á
óperu eftir Karóhnu Eiríksdóttur,
nokkra hljómleika og danska leik-
sýningu. Ljóðaunnendur fá ýmislegt
að heyra og djassunnendur einnig.
Verndari Hundadaga er dr. Alfred
Jolson, biskup katólskra á íslandi.
Svavar Gestsson menntamálaráðherra, Jónína Guðnadóttir og Thor Vil-
hjálmsson rithöfundur á spjalli. DV-myndir JAK
Karl Green heitir ungur maður á Bretlandi, áfjáður i að umheimurinn meti
hann eftir hans „innri manni“ en ekki útlitinu einu saman. Þess vegna tók
hann sig til og lét húðflúrsmeistara gera á sig bláa grímu meö hinu margsl-
ungnasta munstri.
Það tók eitt ár að Ijúka við gerð grímunnar. Eins og sjá má á meðfylgj-
andi mynd eru aðeins varirnar og augun laus við bláa litinn. En Karl Green
er ekki bara með húðflúrið á andlitinu heldur munu vera litlar myndir hér
og hvar á líkama hans.
Ekki fylgir sögunni hvort meðbræður Karls kunna við hans innri mann. Við
verðum bara að vona það úr því hann hefur haft svo mikið fyrir því að
draga hann fram i dagsljósið.
Á sama tíma og Mike „gullin-
tönn'* Tyson, konungur hnefaleik-
anna, lifir eins og kóngur í lúxus-
húsi sínu skammt frá New York
hirist faöir hans, öryrki á eftir-
launura, í miklu pestarbæli í
Brooklynhverfi. Gluggamir eru
brotnir, gangar fullir af rusli, krot
á öllum veggjum og málningin að
flagna af.
Mike vann sér inn 45 milljónir
dollara á síðasta ári og hefur
greinilega ekki látið neitt af hendi
rakna tfi föður síns.
Gamla manninn langar til að
hitta son sinn sem hann hefur ekki
séö í heil sjö ár, ekki frá þvf móðir
stráksa var jarðsett, þá var Mike
15 ára gamall. Þeir skiptust á
nokkrum orðum og síðan ekki sög-
una meir. Foreldrar Mikes skildu
þegar hann var tveggja ára.
En það er ekki vegna peninganna
sem pabbinn viU hitta son sinn.
Honum nægir að eiga svona frægan
son. En kannski kærir Mike sig
ekkert um að eiga svona foður.
Pabbi Mikes Tyson lifir I sárustu fátækt á meðan sonurinn veltir sér upp
úr gullinu.
Ólyginn
sagði...
Tatum O'Neal
á í mesta brasi með móður sína,
leikkonuna Joanna Moore. Tat-
um varð nýlega fyrir því að skart-
gripum og peningum að andvirði
um sex milljónir króna var stolið
frá henni og hún sagði lögregl-
unni frá því að hún grunaði móð-
ur sína um verknaðinn. Viö vini
sína hefur hún sagt að hún vilji
láta lögsækja gömlu konuna ef
það megi verða til þess að hún
leiti aðstoðar vegna áfengis- og
lyfjaneyslu sinnar. Skartgripim-
ir voru flestir í ferðatösku sem
Tatum hafði með sér þegar hún
kom til Los Angeles. Hún lét tösk-
una í skott bíls mömmu sinnar
og gleymdi henni þar. Þegar hún
mundi loks eftir töskunni, var
búiö að stela bílnum með öllu sem
í honum var. Tatum grunar hins
vegar móöur sína um græsku og
kærði hana því til lögreglunnar.
Dana Plato
er ung leikkona sem lék í vinsæl-
um sjónvarpsþætti vestra. Fyrir
skömmu sat hún fyrir á Evu-
klæðunum einum saman hjá ljós-
myndurum Playboy. Blessuð
stúlkan lýsti því yfir í heyranda
hljóði að hún væri ekki lengur
lítíl, sæt og saklaus, heldur al-
vöra kona, og kynþokkafull í
þokkabót. Ekki gerði stúlkan
þetta þó í leyfisleysi, heldur ráð-
færði sig við látna móður sína og
fékk samþykki hennar. Fyrirset-
an var að sögn erfið, enda þurfti
Dana aö fetta sig og bretta á alla
kanta til að líta vel út. Hún von-
ast til að myndaröðin geri hana
að vmsælh kyndís á hvíta tjald-
inu.
RobertWagner
sér rautt í hvert einasta skipti
sem hann heyrir minnst á elsk-
huga dóttur sinnar, fríðleiks-
stúlkunnar Katie. Elskhuginn
sem fer svona fyrir brjóstiö á
honum heitir Steve Jones, fyrr-
um pönkrokkari úr Kynbyssun-
um. Stúlkan sér ekki sólina fyrir
gæjanum og þiggur með ánægju
hvern þann kossmola sem af
munni hans hrýtur. Steve er aft-
ur á móti alveg sama um Katie,
segir hana bara vera eins og hvert
annað leikfang, sem og aörar
konur. Þá lætur hann sig það litlu
varða þótt pabbi stúlkxmnar sé
frægur leikari. Þannig tal gerir
Wagner æfan af bræði. En stúlk-
an lætur sér ekki segjast og þar
við situr.