Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.1989, Blaðsíða 3
FÖSTUDAGUR 4. ÁGÚST 1989.
3
DV
Umferðin um verslunarmannahelgina:
Fréttir
Eftirlit á hálendinu
minna en undanfarin ár
„Þaö er ljóst að eftirlit okkar með
hálendinu verður minna þessa versl-
unarmannahelgi en undanfarin ár,“
sagði Sævar Gunnarsson, varðstjóri
hjá vegcdögreglunni. Að sögn Sævars
hefur vegalögreglan misst sérstakan
jeppa sem hún hefur haft tii afnota
til eftirhts á hálendinu sem gerir það
að verkum að aht eftirht þar verður
minna.
Þá horfir frekar illa með afnot af
þyrlu Landhelgisgæslunnar en stóra
þyrlan er enn í viðgerð þannig að sú
minni er mjög upptekin. Sagði Sævar
að enn væri ekki ljóst hvort vegalög-
reglan fengi hana eitthvaö til afnota.
„Það hefur orðiö samdráttur hjá
okkur eins og á öðrum sviðum. Auð-
vitað væri æskilegt að geta haft íleiri
bíla til taks á vegum úti núna en við
munum þó reyna að hafa eins marga
bíla þar tiltæka og hægt er.“ Sævar
Skrautlegir leikarar á Merkurtúni.
DV-mynd Garðar
Margmenni á leik-
sýningu á Merkurtúni
Garðar Guðjónsson, DV, Akranesi:
„Mamma, drept’ann grýluna?"
spurði htil stúlka sem ásamt fjöl-
mörgum öðrum fylgdist af mikihi
inniifun með leiksýningu á Merkur-
túni á laugardaginn.
Já, prinsinn drap „grýluna" og
margt fleira skrautlegt gerðist á sýn-
ingu hóps sem verið hefur á nám-
skeiðinu Ævintýrið á götunni að
undanfórnu.
Farþegar með Akraborg fengu sér-
stæðar móttökur eftir hádegið á laug-
ardaginn. Þeir hittu þar fyrir leik-
hópinn sem hóf uppákomu sína meö
kynningu niðri við bryggju. Þaðan
var gengið fylktu hði upp á Merkur-
tún þar sem talsverður hópur fólks
safnaðist saman til þess að fylgjast
með leik, söng og dansi hinna nor-
rænu gesta.
Evrópukeppni skákfélaga:
TR með sína sterkustu sveit
Sveit Taflfélags Reykjavíkur mæt-
ir skákmönnum frá því fræga félagi
Bayern Munchen í 2. umferð Evr-
ópukeppni skákfélaga. TR-sveitin er
sterk og th alls vis en í 1. umferð sló
hún út annað sterkt knattspyrnulið,
Anderlecht.
Nú mun Jóhann Hjartarson tefla á
1. borði hjá TR. Margeir Pétursson
er á 2. borði, Jón L. á 3. borði, Helgi
Ólafsson á 4. borði, Hannes Hlífar á
5. borði og Karl Þorsteins á 6. borði.
Þröstur Þórhahsson er varamaður. í
v-þýsku sveitinni eru Ungverjinn
Zoltan Ribli á 1. borði en aðrir í sveit-
inni eru Kindermann, Bischoff,
Hickl, Hecht og Hertnich.
Tefldar verða tvær umferðir á Hót-
el Loftleiðum á laugardag og sunnu-
dag og hefjast báðar kl. 14. -SMJ
20 miltjónir í refafóður
Á næstu þremur mánuöum ætlar
Byggðastofnun að leggja fyrirtækj-
um, sem framleiða loðdýrafóður, til
20 mhljónir króna. Þessir peningar
eiga að fara í niðurgreiðslur á fóðr-
inu þar til slátrun lýkur í haust.
Jafnframt ætlar Byggðastofnun að
fylgjast sérstaklega með rekstri
þeirra fóðurstöðva sem verst eru
settar. Verði einhver þeirra gjald-
þrota getur stofnunin lánað nýjum
rekstraraðilum 5 mhljónir króna í
skammtímalán til að afgreiðsla á
fóðristöövistekki. -GK
Krossá:
Útlendingar í erfiðleikum
Hópur útlendinga lenti í vandræð-
um í Krossá í Þórsmörk í fyrradag
þegar vatn komst inn í vél Land Ro-
ver jeppa'þeirra. Bíhinn stöðvaðist
úti í miöri á og þurfti aö koma þeim
til hjálpar og bjarga þeim í land. Síð-
ar var bíllinn dreginn úr ánni. Út-
lendingarnir, sem voru á bhaleigu-
bh, fóru á röngum stað út í ána.
-SMJ
sagði að eftirht yrði með öhum aöal- bílum sem umferðardeild Reykjavík- verður í Þórsmörk en þar veröur lög-
leiðum og fjórir bhar vegalögregl- urlögreglunnar gæti séð af. reglan á Hvolsvelh með eftirht.
unnar yrðu á ferðinni ásamt þeim Fyrirsjáanlegt er að mikil umferð -SMJ
JJSPARISIÓÐIRNIR
-fyrirpig og þína
perðalag/(j
%
1 ' þar
iærðu
seðla og
ferðatékka
í öllum helstu
gjaldmiðlum
heims.