Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.1989, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.1989, Blaðsíða 21
21 e&ex TauoA i auoAcrjTfíofí FÖSTUDAGUR 4. ÁGÚST 1989. UMFN búið að ráða Mike Clark - Bandaríkjamaðurinn mun einnig þjálfa bikarmeistarana Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum: Bikameistarar Njarðvíkur réðu í gærkvöldi til sín bandarískan körfu- knattleiksmann. Hann heitir Mike Clark og er þrítugur að aldri. Hann mun jafiiframt þjálfa Njarðvíkurlið- ið á komandi keppnistímabili. Clark spilar sem miðvörður. Hann er 2,07 metrar á hæð og hefur leikið sem atvinnumaður í ísrael, á Ítalíu og í Sviss og einnig verið í æfingabúðum með Los Angeles Lakers í tvö ár. Þar áður var hann hjá Chicago Buils. Clark þykir mjög sterkur miðvörður og hefur gtfurlega reynslu að baki. „Það er mjög ánægjulegt að þetta mál er komiö í höfn. Við bindum miklar vonir við Clark og erum bjartsýnir á að hann nái góðum árangri með hðið, jafnt sem þjálfari og leikmaður. Hann kemur til landsins um miðjan ágúst,“ sagði Gunnar Garðar Gunnarsson, for- maður körfuknattleiksráðs Njarð- víkur, í samtali við DV í gærkvöldi. Eins og áður hefur komið fram í DV biðu Njarðvíkingar eftir upp- lýsingum að utan varöandi leik- manninn. Þær reyndust mjög já- kvæðar og er ekki að efa að Clark mun reynast hðinu öflugur í vetur. Það má búast við að bikarmeistar- ar Njarðvíkur mæti sterkir til leiks í úrvalsdeildinni í vetur. Njarövík- ingar hafa án efa hug á að komast aftur í slaginn um íslandsmeistara- titihnn sem þeir hafa ekki náð síð- ustu tvö keppnistímabil. „Getur allt gerst í seinni hlutanum“ - sagöi Úlfar Jónsson • Úlfar Jónsson. • Sigurður Pétursson. Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum: „Þetta var ekki nógu gott hjá mér miðað við fyrsta hringinn. Veður var ágætt í gær og því var slæmt að ná ekki betri árangri þar sem ég náði mér vel á strik í vonda veðrinu í fyrradag. Þetta er ahs ekki búið þar sem ég er aðeins þremur höggum á undan Sigurði Péturssyni en eftir fyrsta daginn var ég með sex högga forystu. Það getur aht gerst í seinni hlutanum,“ sagði Úlfar Jónsson, golfarinn snjalh úr Hafnarfirði, en hann er með forystu í meistaraflokki karla eftir 36 holur. „Úlfar verður að hafa fyrir sigri“ „Þetta var ágætt hjá mér í dag og ég bætti mig verulega. Það getur aht breyst ennþá og það eru aðeins þrjú högg í Úlfar. Hann er undir pressu og verður að hafa fyrir því að sigra,“ sagði Sigurður Pétursson sem er í öðru sæti eftir annan keppnisdag. Hann lék best kylfmganna í gær og fór 2. hringinn á 70 höggum og bætti sig stórlega. Úlfar lék hins veg- ar á 73 höggum í gær og er það sami árangur hjá honum og í fyrradag. • Karen Sævarsdóttir, GS, er enn með forystuna í meistaraflokki kvenna eftir 36 holur. DV-mynd ÆMK Landsmótið 1 golíi á Hólmsvelli við Leiru: Spennan eykst - Sigurður P. dregur á Úlfar 1 toppslagnum í meistaraílokki karla í gær var leikinn annar hringur í meistara- og 1. flokki karla og kvenna. Kylfingarnir voru heppnari með veður í gær en í fyrradag og skor var betra hjá flestum kylfmgum í gærdag. Sigurður minnkaði muninn Sigurður Pétursson kom mjög á óvart í gær og minnkaði muninn á sér og Ulfari Jónssyni sem heldur þó efsta sætinu. Sigurður lék 18 hol- umar á 70 höggum en Úlfar fór á 73 og munurinn í hehd er þá aðeins 3 högg. íslandsmeistarinn, Sigurður Sigurðsson, virðist ekki ætla að ná sér á strik og hefur helst úr lestinni. Hann er í 12. sæti og verður að leika mjög vel á næstu dögum ef hann ætlar að blanda sér í baráttuna um efstu sæti. Karen enn efst í meistaraflokki kvenna heldur Kar- en Sævarsdóttir enn forystunni. Hún hefur farið á 82 höggum báða dagana og er flórum höggum á undan Ás- gerði Sverrisdóttur sem er í öðru sæti. Steinunn Sæmundsdóttir, nú- verandi íslandsmeistari, er í 3. sæti á 169 höggum. Feðgar í efstu sætunum í 1. flokki karla er æsispennandi keppni. Þar eru aðeins 10 högg sem skilja að efsta mann og 34. mann. Þorsteinn Geirharðsson er efstur sem stendur en í öðru sætinu er Jó- hann Kjærbo. Faðir hans, Þorbjörn Kjærbo, öldungameistari íslands, kemur þar einu höggi á eftir og ætlar ekki að gefa syninum neitt eftir í toppbaráttunni. I kvennaflokknum er nokkuð ör- uggt að Anna Sigurbergsdóttir fer með sigur af hólmi en hún er 13 högg- um á undan Andreu Ásgrímsdóttur. Annel og Helga sigruðu í 2. flokki Annel Þorkelsson, GS, og Helga Sig- valdadóttir, GR, urðu flokkameistar- ar í 2. flokki en keppni þar lauk í gær. Annel sýndi mikla baráttu og kom sannarlega á óvart þegar hann tryggði sér sigur á lokaholunni í gær. Þar sigraði hann Kjartan Páls- son, NK, á æsispennandi lokakafla. Úrshtin réðust þar með á síðustu holunni þegar Annel fór síðustu brautina á pari en Kjartani brást bogalistin og endaði brautina á þremur yflr pari. í heildina lék Ann- el á 337 höggum en Kjartan á 338. í þriðja sæti varð Jóhann Kristinsson, GR, á 339 höggum. Keppendur voru annars mjög jafnir í karlaflokknum. Helga Sigvaldadóttir, GR, sigraði með nokkrum yfirburðum í kvenna- flokki. Hún kom á 386 höggum í mark og varð 12 höggum á undan stöflu sinni, Gerðu Halldórsdóttur, GS. Gerða tryggði sér 2. sætið eftir harða baráttu við Sigrúnu Sigurðar- dóttur, GG. í 3. flokki karla sigraði Ómar Jó- hannsson, GS. Hann sýndi mikil til- þrtf á heimavelli sínum í Leirunni og varð einu höggi á undan næsta manni. Ómar var á 355 höggum og næstur kom Valdimar Þorkelsson, GR, á 356. í þriðja sæti varð Haraldur Júlíusson, GA, á 359 höggum. íþróttir Landsmótiö í golfi: 36 holur Meistaraflokkur karla: Útfar Jónsson, GK.........146 Sigurður Pétursson, GR....149 Guðmundur Sveinbjörnsson, GK Siguijón Arnarson, GR.......153 Gunnar Sigurösson, GR.......153 Ragnar Ólafsson, GR.........154 Bjöm Knútsson, GK..........155 Svehm Sigurbergsson, GK...155 Magnús Birgisson, GK......156 Björn Axelsson, GA........157 SigurðurSigurðsson, GS....158 Hilmar Björgvinsson, GS...161 Sigurður Albertsson, GS...161 PeterSalmon.GR............161 Þorsteinn Hallgrímsson, GR ...162 Hannes Eyvindsson, GR.....162 Höröur Amarson, GK..........162 JónKarlssón.GR............163 Guðmundur Arason.GR.......163 Eiríkur Guðmundsson, GR....164 Amar Már Ólafsson, GK •»«*»***t 164 ViggóViggóson.GR..........165 KristjánGylfason, GA.........165 Meistaraflokkur kvenna Karen Sævarsdóttir, GS.......164 Ásgerður Sverrisdóttir, GR...168 Steinunn Særaundsdóttir, GR .169 Ragnhildur Sigurðar- dóttir, GR...................172 Þórdís Geirsdóttir, GK.......181 Alda Siguröardóttir, GK......183 Áraý Áraadóttir, GA..........198 Kristín Pálsdóttir, GK.......203 1. flokkur karla ÞorsteinnGeirharðsson, GS....154 JóhaxmKjærbo, GN...........155 ÞorbjömKjærbo, GS..........156 Ögmundur Ögmundsson, GS ..159 Sigurður Aðalsteinsson, GK....159 Gunnar Haildórsson, GK.....159 Magnús Karlsson, GA........159 Rúnar Gíslason, GR.........159 Ástráður Sigurðsson, GR.......159 EirikurHaraldsson, GÁ......159 Hjalti Atlason, GR.........160 Helgi Ólafsson, GR.........160 Sigurgeir Guðjónsson, GG....160 Amar Ðaldursson, GÍ........161 Óskar Ingason, GR..........161 Marteinn Guðnason, GS......161 KristjánHansson, GK........161 Friðþjófur Helgason, NK....161 Þröstur Ástþórsson, GS.....162 Davíð Steingrímsson, GR....162 Ragnar Guðmannsson, GR.....162 Siguijón Gíslason, GK.....162 Júlíus Jónsson;GS.........163 Ögmundur Jónsson, GG......163 Ólafur Gylfason, GA.......163 Sigurþór Sævarsson, GS....163 Finnur Sveinsson, GR.......163 Karl Karlsson, GR.........164 Ólafur Skúlason, GR.......164 Húnbogi Jóhannsson, GG....164 Þórhallur Pálsson, GA.....164 Heimir Þorsteinsson, GR...164 -KarlHólm.GK...............164 Gunnlaugur Sævarsson, GG ...164 l.flokkurkvenna Anna Sigurbergsdóttir, GK...170 Andrea Ásgrímsdóttir, GA....183 GuöbjörgSigurðardóttir, GK ..185 Svala Óskarsdóttir, GR......187 Rakel Þorsteinsdóttir, GS...192 Herborg Amarsdóttir, GR.....194 Jóhanna Waagflörð, GR.......195 Guörún Eiríksdóttir, GR.....200 Lóa Sigurbjömsdóttir, GK....200 Hildur Þorsteinsdóttir, GK..204 Ágústa Guðmundsdóttir, GR...217 • Allir þessir kytfingar komast áfram eftir að hafa leikið 36 holur og halda áfram að spiia fram á laugardag en þá lýkur landsmót- inu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.