Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.1989, Qupperneq 13

Dagblaðið Vísir - DV - 04.08.1989, Qupperneq 13
FÖSTUDAGUR 4. ÁGÚST 1989. 13 Valdhroki og misbeiting valds ' Valdhroki og hugmyndaþurrð voru einkunnir sem ríkisstjómin fékk m.a. á fimdi á Hótel Borg í síðasta mánuði. Fundurinn var haldinn á vegum Birtingar, klofn- ingsfélags formannsarms Alþýðu- bandalagsins. Á fundinum, þar sem vinstri menn áttu að ræða, hvað ríkisstjómin ætlaði að gera, þegar hún yrði stór, kom fram hörð gagn- rýni á stjómina og vonbrigði með störf hennar. Æ oftar nefna menn valdhroka, sem einkenni á núverandi ríkis- stjóm og þó einkum, þegar rætt er um fjármálaráðherrann, sem virð- ist ráða ferðinni í ílestum málum. En hvað eiga menn við, þegar slík- ar einkunnir eru gefnar? Oftast nefna menn til sögunnar hugarfarið, þegar valdinu er beitt og lítilsvirðandi viðhorf ráðherr- ans gagnvart fólki, fyrirtækjuih og jafnvel öðrum þjóðum. Á fundinum í Birtingu var tekið dæmi af drambi í garð háskólamenntaðra ríkis- starfsmanna í síðustu kjarasamn- ingum. En önnur dæmi koma upp í hugann: Lítilsvirðing við nágranna Ráðherra heldur blaðamanna-. fund. í stað þess að viðurkenna %ústök áln við áætlun ríkisútgjalda Og gera°grein fyrir ákvörðunum ríkisstjórnarinnar um ríkisútgjöld umfram lagaheimildir, hótar ráð- herrann nýjum sköttum ella fari fyrir þjóðinni eins og Grænlend- ingum og Færeyingum, sem eigi á Kjallajinn Friðrik Sophusson varaformaður Sjálfstæðisflokksins og 1. þingmaður Reykvíkinga * * o hættu að missa efnahagslegt sjálf- stæði sitt. Slíkar hótanir eru ekkert ný- næmi fyrir íslensku þjóðina, en forystumenn nágrannaþjóðanna rísa upp og lýsa undrun sinni á lit- ilsvirðingu þeirri, sem kemur fram hjá fjármálaráðherranum. Þeir virðast ekki eiga slíkum hroka að venjast. Einokun og öl Nýlega ákvað fjármálaráðuneyt- ið að hætta allri bjórsölu í Fríhöfn- inni í flugstöð Leifs Eiríkssonar, þótt bjór fáist í fríhöfnum annarra flugvalla. Ákvörðuríin hefði verið skiljanleg, ef fjármálaráðherrann hygðist draga úr drykkjuskap. En það var öðru nær. í fréttum var þess getið, að ferða- menn sem koma til landsins, muni áreiðanlega ekki flytja með sér bjór til landsins og kaupi þess vegna léttvín í stað öls í fríhöfninni. Bjór- sala í útsölustöðum ÁTVR vaxi að sama skapi og ríkissjóöur hagnist um 100 milljónir króna. Þetta er kannski ekki stórmál. Viðhorfm eru hins vegar í anda ráðherrans. Einokun ríkisins er notuð til að þvinga fram meiri sölu á áfengi með lakari þjónustu. „Jafnvel vinstri mönnum kemur fyrst í hug valdhrokinn, þegar þeir lýsa gerð- um ríkisstjórnarinnar.“ „Nú hefur ráðherrann, sem starfar á ábyrgð stjórnarmeirihlutans á Al- þingi, fyllt mælinn“, segir greinarhöfundur m.a. - Ólafur Ragnar Gríms- son fjármálaráðherra. Forgangsréttur ríkisins Sl. vetur flutti Sólveig Péturs- dóttir frumvarp þess efnis, að ríkið sitji við sama borð og aðrir sam- bærilegir kröfuhafar við gjaldþrot fyrirtækja. Frumvarpið fékk stuöning þingmanna úr öllum flokkum. - Ráðherrann réðst með offorsi á stuðningsmenn frum- varpsins. Ríkissjóður átti að áliti ráðherr- ans að eiga betri rétt en aðrir krofu- hafar. Skoðun hans virðist vera sú, að starfsemi fyrirtækja miðist ein- göngu við þarfir ríkissjóðs, sem skulu ætið hafa forgangsrétt. Aðrir eiga að mæta afgangi. Vinagreiðar Innheimta söluskatts hefur geng- ið nokkuð vel hér á landi á undan- fornum árum, þrátt fyrir hátt sölu- skattsstig. Fjármálaráðherra vill ná enn betri árangri og slikt er aríðvitaÓ þakkarvert. Hann skirrist hins vegar ekki við að, loka fyrirtækjum, þótt viður- kennt sé að fyrirtækin hafi aldrei innheimt skattinn og hvorki hafi úrskurður né dómur verið felldur um réttmæti innheimtunnar. - Ekkert er heilagt, þegar hagsmunir ríkisins eru annars vegar. Nú gæti ráðherra haft þá afsök- un, að hann létí. alla sitja við sama borð. En á sama tíma og ráðherr- ann virðir að vettugi rök þessara fyrirtækja, fær vildarvinur ráð- herrans sérstaka fyrirgreiðslu vegna vangoldins söluskatts og fyr- irtæki í eigu samstarfsmaima í rík- isstjóm fær eftirgefnar 8,5 milljónir af 13 miUjóna króna vangoldnum skatti. - Slík mismunun flokkast undir misbeitingu valds. Bragð er að, þá barniðfinnur í augum flestra íslendinga er rík- ið til fyrir fólkið en ekki öfugt. Því miður virðist fj ármálaráðherrann vera á annarri skoðun. Þegar hags- munir ríkissjóðs em annars vegar, helgar tilgangurinn meðahð. Nú hefur ráðh^rrann, sem starfar á ábyrgð stjóifiarmeirihlutans á Al- þingi, fyllt Aæhnn. Jafnvel vinstri mönnum kánur fyrst í hug vald- hrokinn, þegar þeir lýsa gerðum ríkisstj ómarinnar. Bragð er að, þá barnið finnur. Friðrik Sophusson Ferðatryggingar fyrir aldraða Sumarið 1988 var boðin ferð til sólarlanda. Var þá boðaður kynn- ingarfundur og óskaði ég símleiðis að upplýsingar um ferðatryggingar yrðu gefnar á fundinum. Engar upplýsingar vora gefnar þá. Nú er aftur kominn ferðatími. íslendingar era oft mjög hraustir á efri árum og vilja ferðast oft til sólarlanda, bæði með ferðahópi en einnig sem einstaklingar. En eins og allir ferðamenn ættu þeir að kaupa fleiri tegundir af ferðatrygg- ingum. Til eru mörg tryggingafélög og ferðamaðurinn verður sjálfur aö fá upplýsingar og greiða iðgjöldin. Sé um hópferð að ræða er einnig nauðsynlegt að fá upplýsingar. Nauðsynlegt er sem fyrsta skref að hringja í eins mörg félög og menn hafa þolinmæði til. Nauðsynlegt er að tala við deildarstjóra ferðatrygg- inga. Svörin era oft gefin af handahófi og röng. Nauðsynlegt er aö skrifa niður svörin og athuga hvaða tryggingafélög koma til greina. Listinn með tryggingategundum fylgir hér en er ófullkominn. Farmiðatrygging (forfallatrygging) Ýmsar tegundir af farmiðum verður að kaupa fyrirfram. Flugfé- lagið ákveður t.d. fyrir hvert flug hve mörg sæti á að selja á niður- settu verði. Era þetta svokahaðir PEX- eða APEX-miðar. Nauðsyn- legt er að panta og kaupa flugmiða KjaUarinn Eiríka A. Friðriksdóttir hagfræðingur minnst 14 dögum fyrirfram og ákveða heimferð samtímis. Verði farþegi veikur áður en feröin hefst gæti hann fengið endurgreiðslu, nema Flugleiðir (eða Amarflug) hafi endurgreitt. Þessa tegund tryggingar getur ferðamaður feng- ið við kaup farmiða en ekki seinna. Aðrar tegundir trygginga selur ferðaskrifstofan venjulega ekki. Skrifstofan gæti þá séð um og aðstoðað við aðrar tryggingar. Eitt tryggingafélag ákvað að krefjast að miðar væru keyptir 16 dögum fyrr og er æskilegt að snið- ganga þannig viðskipti. Slysatrygging Fyrir aldraða er nauðsynlegast að athuga takmarkanir á bóta- skyldu. Takmarkanir vegna aldurs geta verið þrenns konar: (I) Engin efri aldurstakmörk era til ef ferðamaðurinn heflr greitt minnst helming fargjalda með VISA-korti (Sjá III). (II) Aldurstakmark er 75 ár og tvenns konar. (A) Bótaskylda endar í lok tryggingarárs (er sem sagt í gildi aht áriö frá því að iðgjöldin vora greidd) ef farþeginn verð- ur 75 ára innan þess árs. (B) Tryggingin fehur úr ghdi þann dag sem farþeginn nær 75 ára aldri. Ekki var skýrt frá í bæklingi. þess félags hvort a.m.k. iðgjöldin væra endur- greidd. (BI) Aldurstakmark er 18 ára hjá Visakortgreiðslum og eru dán- arbætur aðeins 10%. (IV) Aldurstakmark er 16 ára hjá Vátryggingafélagi íslands og aðeins útfararkostnaður er greiddur. Lið III og IV er nauð- synlegt að athuga sé t.d. bama- barn með í ferðinni. Sjúkratrygging (I) Kostnaður sem er tryggður. Lækniskostnaður og lyfja-' kostnaðurinn er oftast greidd- ur, einnig dánarbætur. (II) Félagið mun endurgreiða ferð heim hafi læknirinn ákveðið svo. (HI) Mjög óljóst er hvort trygginga- félagið er bótaskylt vegna sjúk- dóms, slyss eða fráfahs þess sem tryggður er af völdum matareitrunar eða drykkjar- eitranar. Nauðsynlegt er að * biðja um nákvæmar skýringar. Samkvæmt thlögum landlækn- is (1987 Ráðleggingar th ferða- langa um ferðir th hitabeltisins og annarra landa) er æskhegt að tala við lækna á íslandi strax og ferðin er skipulögð. Farangurstrygging Félagið greiðir flárhæð, sem th- greind er í skírteininu, vegna tjóns á farangri og einkamunum. Skilyrt er að hinn vátryggði gætti fyllsta öryggis og hafi eftirht með eignum sínum. Takmarkanir á bótaskyldu Sjóvá og Almennar og Vátrygg- ingafélags íslands benda á að hinn vátryggði beri 25% sjálfsábyrgð. Lokaorðin. Eins og stutta yfirhtið sýnir era mjög mörg skhyrði í notkun og væri því mjög æskilegt að ahar ferðaskrifstofur hefðu bæklinga allra tryggingafélaga ferðamönnum th aflesturs. SOS International A/S Ferðamenn, sem verða fyrir út- gjöldum erlendis, sem geta verið mjög há, geta verið í vandræðum með peninga. Ættu þeir þá að th- kynna strax: (bæklingur Sjóvá- AJmennar) SOS Intemational A/S Vesferbrogade 74 1620 Köbenhavn V (Copenhagen V, Denmark) Símanúmer 45 1 216566 Telex 15124 SOS DK Telegram Sosinter Aðstoð SOS Intemational felst í því að fylgjast með sjúkhngum, greiða nauðsynlegan sjúkrakostn- að og annast heimflutning verði þess þörf. Læknirinn getur komið skhaboðum th SOS með því að hafa samband við næstu skrifstofu eftir- talinna flugfélaga: SAS, KLM, Brit- ish Airways, Sabena, Austrian Airlines og Finnair: Flugfélögin munu koma boðum th SOS Inter- national. Eirika A. Friðriksdóttir „Eitt tryggingafélag ákvað að krefjast að miðar væru keyptir 16 dögum fyrr og er æskilegt að sniðganga þannig við- skipti.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.