Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1989, Síða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1989, Síða 6
6 LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 1989. Utlönd Erich Honecker, leiötogi Austur- Þýskalands, er maöurinn sem Kohl kanslari víll hitta til að rœða flóttamannavandamálið Teikning Lurie KoVil vill ræða um flóttamennina Helmut Kohl, kanslari Vestur- Þýskalands, segist vera reiðubú- inn að sækja heim austur-þýska leiðtogann Erich Honecker ef það megi 'verða til að leysa vanda ilóttamanna frá Austur-Þýska- landi. „Ef það reyndist bráðnauðsyn- legt að að ræðast við augliti til auglitis mundi ég gera það um- svifalaust ef eitthvert gagn yrði að því,“ sagði Kohl í viðtali við vestur-þýska sjónvarpið í gær. En hann sagðist ekki hafa nein áform um að heimsækja Austur- Berlín á næstunni. Ejöldi austur-þýskra borgara, sem eru að reyna að komast vest- ur yfir, fer stöðugt vaxandi og meira en 300 manns hafast við í sendiráðum Vestur-Þýskalands í Austur-Berlín og Búdapest. Þeir neita að fara fyrr en þeim hefur verið veitt ieyfi til aö halda til Vestur-Þýskalands. Reuter Skyndikosn- ingar á Spáni? Alfonso Guerra, aöstoöarfor- sætisráðherra Spánar, gaf það sterklega til kynna í útvarpsvið- taii í gær að Felipe Gonzalez for- sætisráðherra myndi boða til skyndikosninga á næstunni. Kosningar eiga ekki aö fara fram fyrr en i júní á næsta ári. Orörómurinn um skyndikosn- ingar fékk byr undir báða vængi þegar Gonzalez stytti frí sitt í gær og hélt til sumardvalarstaöar Jó- hanns Karls konungs á Mallorca. Guerra segir að hann búist viö að Gonzalez muni vinna kosning- amar, þær þriðju í röð. Reuter Stjórnmálasam- band á döfinni Bretland og Argentína, sem slitu stjórnmálasambandi vegna Falkiandseyjastríösins 1982, til- kynntu í gær að fúlltrúar þeirra myndu hittast í Madríd í október til að ræða um aö koma aftur á sambandi milli ríkjanna. „Það var ákveðið að fundurinn færi fram 17. og 18. október í Madrid," sagði í tilkynningu sem var birt samtímis í London, Bu- enos Aires og hjá Sameinuðu þjóðunum. Fundartíminn, fundarstaður- inn og dagskrá í átta liðum vom ákveðin í viðræðum sem fram fóru í New York á miðvikudag og fimmtudag milli Lucio Garcia dei Solar, sérlegs sendimanns Argentínustj ómar, og Sir Crisp- ins Tickell, sendiherra Breta hjá S.Þ. í tilkynningunni sagði að á fundinum í Madrid yrði rætt um framtíð stjómmálasambands rikjanna, verslunar- og Ijármáia- viðskipti og tengsl Falklandseyja við meginland Suöur-Ameríku. Bretar hafa veriö andvigir því að rætt verði um yfirráð yfir Falklandseyjum og embættis- maður í utanrikisráöuneyti Breta sagði í útvarpsviðtali í London i gær að ekki heföi verið hvikað frá þeirri stefnu. Reuter Mazowiecki tilnefnd- ur forsætisráðherra Tadeusz- Mazowiecki, ritstjóri viku- rits Samstöðu, sagði í gær að hann byggist viö að mynda ríkisstjórn í Póllandi, þá fyrstu í Austur-Evrópu sem ekki væri undir forustu komm- únista. Mazowiecki sagði fréttamönnum að hann hefði rætt við Jaruzelski forseta í tvær klukkustundir og gerði það ljóst að forsetinn hefði beðið sig um að mynda ríkisstjórn. Hann sagðist mundu þiggja boö Jaruzelskis um að verða forsætisráð- herra en varaði við því að pólska þingið yrði að samþykkja tilnefningu hans. Skrifstofa Jarazelskis sagði að forsetinn myndi tilkynna val sitt í forsætisráðherraembættið í dag. Mazowiecki, sem er náinn ráðgjafi Lech Walesa, leiðtoga Samstöðu, var spurður hvort Jaruzelski myndi leggja til að hann tæki að sér starfið. „Ég held að slík tillaga muni koma fram,“ svaraði hann. Þegar hann var spurður hvernig hann ætlaði að fást við pólitísk og efnahagsleg vandamál landsins svar- aði Mazowiecki því til að hann væri trúaður maður og hann tryði því að forsjónin myndi sjá fyrir þeim. Samstöðumenn lýstu yfir ánægju sinni með það að samtök þeirra myndu brátt binda enda á valdaein- okun kommúnista sem staðiö hefur í 45 ár. „Þetta er örugglega síðasti naglinn í kistu forustuhlutverks kommúnista," sagði Janusz Onys- zkiewicz, talsmaður Samstöðu. Mazowiecki neitaði að skýra frá nöfnum þeirra manna sem hann hygðist fá í ríkisstjórn sína. Kjarni nýju ríkisstjórnarinnar verður myndaður af Samstöðu og tveimur smáflokkum sem ekki lúta stjóm kommúnista, Bændaflokknum og Demókrataflokknum. Samstaða hefur heitið því að eftir- láta kommúnistum ráðuneyti varn- ar- og innanríkismála til að draga úr ótta Sovétmanna við breytingam- ar í landinu. Kommúnistaflokkur- inn, sem er enn í sárum eftir ósigur í kosningunum í júní, hefur boðað til neyðarfundar í dag. Talið er að Rakowski formaður muni reyna að róa íhaldssama flokksmenn sem eru hneykslaðir á að flokkurinn skyldi ekki hafa barist harðar gegn Sam- stööu. Leiötogi pólsku útlagastjórnarinn- ar í London sagði í gær að hann fagn- aði myndun ríkisstjórnar í Varsjá sem ekki væri undir forsæti komm- únista en hann vildi líka binda enda á yfirdrottnun Sovétríkjanna. Tadeusz Mazowiecki ræðir við fréttamenn eftir að honum var boðið forsæt- isráðherraembættið í gær. Simamynd Reuter Tékkar vara við mótmælum Tékknesk yfirvöld hafa varað er- lenda ferðamenn og fréttamenn við að þeir kunni að vera í hættu ef til ólöglegra mótmæla kemur um helg- ina til að minnast innrásar herja Varsjárbandaiagsins í landið 1968. „Við höfum mælst til þess við sendiráðin að þau segi borgurum sín- um að skipta sér ekki af ef eitthvað ólöglegt gerist,“ sagði talsmaður tékkneska utanríkisráöuneytisins í gær. Sendimenn frá nokkrum vest- rænum löndum voru kvaddir í utan- ríkisráðuneytið fyrr 'í vikunni og veitt viðvörunin. Talsmaðurinn bætti við að ekki yrði hægt að tryggja öryggi blaða- manna sem fylgdust með ólöglegum mótmælaaðgerðum. Vestur-þýskir sjónvarpsmenn og fréttamenn frá BBC bafa orðið fyrir bareflum tékk- nesku lögreglunnar í mótmælaað- gerðum undanfariö eitt ár. Þúsundir ferðamanna eru nú í Prag þar sem nokkrir félagar úr Mann- réttindasamtökunum 77 og sjö sjálf- stæðum hreyfingum ætla að efna til friðsamlegra mótmæla. Yfirvöld hafa heitið því að koma í veg fyrir þau, með valdi ef nauðsyn krefur. Andófsmenn hafa hvatt til þess að á sunnudag verði lögð blóm á þá staði þar sem tékkneskir borgarar létu líf- ið í innrásinni 1968. Hún braut á bak aftur umbótahreyfinguna sem kennd er við vorið í Prag. Rithöfundurinn og helsti andófsmaður í Tékkóslóv- akíu, Vaclav Havel, hefur hvatt landa sína til að mótmæla ekki opin- berlega af ótta við að yfirvöld kunni að skjóta á þá. Nokkrir helstu andófsmenn lands- ins hafa farið í felur eða yfirgefið borgina til að komast hjá handtöku. Reuter Fjarvistarsönnun fyrir Pettersson Christer Pettersson, sem var dæmdur fyrir morðið á Olof Palme, hefur nýtt vitni sem segist geta gefið honum fjarvistarsönnun, að því er lögfræðingur Petterssons sagði í gær. Vitnið segir að hann hafi séð Petters- son á lestarstöð í úthverfi Stokk- hólms morðkvöldið. „Við teljum hann vera trúverðug- an. Það er nauðsynlegt að hann verði látinn bera vitni. Ef upplýsingar hans reynast réttar hefur skjólstæð- ingur minn fiarvistarsönnun morð- kvöldið," sagði Arne Liljeros, verj- andi Petterssons. Vitnið, sem er lífeyrisþegi, segist handvisst um að hafa séð Christer Pettersson koma út úr brautarstöð- inni í Rotebro, þremur kílómetram norðan Stokkhólms, kl. 23.45 kvöldið sem Palme var myrtur. Mál Petterssons verður tekið fyrir í yfirrétti í Stokkhólmi þann 12. sept- ember næstkomandi en þá mun sak- sóknari flytja ákæru sína. Pettersson verður kallaður fyrir tveimur dögum síðar en Lisbet Palme á aö bera vitni Nýtt vitni telur sig geta gefið Christer Pettersson fjarvistarsönnun kvöldið sem Palme var myrtur. Símamynd Reuter þann 18. Dómsuppkvaðning verður ekki fyrr en í október. Lisbet Palme heldur enn fast í þá kröfu sína aö engar segulbandsupp- tökur verði gerðar þegar hún ber vitni. Hún vill heldur ekki að Petters- son verði í réttarsalnum á meðan. Veijendur Petterssons fallast ekki á kröfurhennar. ReuterogTT Vestur-þýski Ijösmyndarinn Nick Vogel var rekinn frá Norður-ír- landi i gær. Símamynd Reuter Ljósmyndari rekinn Vestur-þýskur ljósmyndari, Nick Vogel, sem yfirvöld á Norð- ur-írlandi hafa ákært fyrir að vera með byssukúlur á sér, var leystur úr haldi gegn tryggingu í gær og rekinn úr landi. Vogel var handtekinn á þriðjudag í mót- mælaaögerðum þar sem þess var minnst að tuttugu ár eru liðin síðan breskar hersveitir voru sendar tii Norður-írlands. Vogel er bannað að koma aftur til iandsins nema til að mæta fyr- ir rétti. Lögfræðingur hans sagði að hann ætlaði að fara aftur til Belfast og hreinsa nafn sitt. Reuter Peningamarkaður INNLÁNSVEXTIR (%) hæst Innlán óverðtryggð Sparisjóösbækurób. 10-12 Úb.lb,- Sb.Ab Sparireikningar 3jamán. uppsögn 10,5-15 Vb 6mán. uppsögn 12-17 Vb 12 mán. uppsögn 11-14 Úb.Ab 18mán. uppsögn 26 lb Tékkareikningar, alm. 2-7 Ab Sértékkareikningar 4-13 lb,Ab Innlán verðtryggð Sparireikningar 3ja mán. uppsögn 1,5-2 Vb 6mán. uppsögn 2,5-3,5 Allir nema Innlán meðsérkjörum 17,7-22,7 Sp Ib Innlán gengistryggð Bandaríkjadalir 7,5-8,5 Ab Sterlingspund 12,5-13 Sb.Ab Vestur-þýskmörk 5,25-6 Sb.Ab Danskarkrónur 7,75-8,5 Bb.lb,- V- b.Sp.A- ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst Útlán óverðtryggð Almennirvíxlar(forv.) 27,5-30 lb Viöskiptavixlar(forv.)(1) kaupgengi Almennskuldabréf 29-33,5 Ib Viöskiptaskuldabréf (1) kaupgengi Allir . Hlaupareikningar(vfirdr.) 35,5-39 Lb Utlán verðtryggð . Skuldabréf 7-8.25 Lb Utlán til framleiðslu isl. krónur 25-33,5 Úb SDR 9,75-10,25 Lb', Bandarikjadalir 10,5-11 Allirne- maÚb Sterlingspund 15,5-15,75 Allir^ nema Úb Vestur-þýskmörk 8,25-8,5 Úb Húsnæðislán 3,5 Lífeyrissjóðslán 5-9 Dráttarvextlr 45,6 MEÐALVEXTIR óverðtr. júlí 89 35.3 Verötr. júlí 89 7,4 VÍSITÖLUR Lánskjaravísitala ágúst 2557 stig Byggingavísitala ágúst 465 stig Byggingavísitala ágúst 145,3stig Húsaleiguvísitala 5% hækkun l.júll VERÐBRÉFASJÓÐIR Gengi bréfa verðbréfasjóða Einingabréf 1 4,110 Einingabréf 2 2,273 Einingabréf 3 2,692 Skammtímabréf 1,410 - Lífeyrisbréf 2,066 Gengisbréf 1,831 Kjarabréf • 4,088 Markbréf 2,176 Tekjubréf 1,771 Skyndibréf 1.237 Fjölþjóðabréf 1,268 Sjóðsbréf 1 1,969 Sjóðsbréf 2 1,579 Sjóðsbréf 3 1,388 Sjóðsbréf 4 1,160 Vaxtasjóðsbréf 1,3903 HLUTABRÉF Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.: Sjóvá-Almennar hf. 300 kr. Eimskip 375 kr. Flugleiðir 172 kr. Hampiðjan 167 kr. Hlutabréfasjóður 131 kr. Iðnaðarbankinn 162 kr. Skagstrendingur hf. 212 kr. Útvegsbankinn hf. 135 kr. Verslunarbankinn 146 kr. Tollvörugeymslan hf. 109 kr. (1) Við kaup á viðskiptavíxlum og viðskiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja aðila, er miðað við sérstakt kaup- gengi, kge. Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn, Bb= Búnaðarbankinn, lb = lðnaðar- bankinn, Lb = Landsbankinn, Sb = Samvinnubankinn, 0b= Útvegsbankinn, Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóð- irnir. Nánari upplýslngar um peningamarkað- inn birtast f DV á fimmtudögum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.