Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1989, Side 9

Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1989, Side 9
LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 1989. 9 Umferðin í Lækjargötunni aðfaranótt sunnudags er sem 17. júní. kaUar, og aftur eru það slagsmál. Allt er um garð gengið og árásar- mennimir löngu flúnir af hólmi þeg- ar lögreglan kemur til að skerast í leikinn. Klukkan er nú rúmlega íjögur og mikið farið að birta af degi. Mið- bærinn er samt enn fullur af fólki og margir orðnir heldur glærir og framlágir. Ríkir eitt aflsherjar öng- þveiti í Lækjargötimni, fólk og bílar þvælast hvert fyrir öðru. Uppábúnir skemmtistaðagestir Uta hvorki til hægri né vinstri og vaða beint fyrir umferðina. Sumir gera sér leik að því að veifa út öllum skönkum og ganga úti á miðri akbraut. Er umferðarhnúturinn slíkur að lögreglan kemst hvorki aftur á bak né áfram og á tímabili eru tvær bif- reiðar frá lögreglunni fastar. Að sögn 110 fer lögreglan eins og köttur í kringum heitan graut í Lækjargöt- unni á þessum tíma nætur um helg- ar. Og ekki að ástæðulausu, ef ein- hver væri myrtur væri búið að grafa þann sama áður en lögreglan næði að koma til aðstoðar. Eða eins og sagt er við DV: „Láttu ekki beija þig milii þijú og fimm.“ Lögreglan er einnig ákaflega óhress með að skemmtistaður skyldi vera leyíður í Lækjargötunni því vonlaust er fyrir sjúkra- eða slökkvi- Uð að komast að ef eitthvað kemur upp á. Sannast það vel þessa nótt. Kunninginn á bílnum Seint og um síðir tekst 110 að losna úr flækjunni. Vart er María komin lengra en að Fríkirkjuvegi þegar hún ekur fram á einn sem stillir sér upp beint fyrir framan bifreið sem kemur á fleygiferð. Þjónar laganna snarast út úr bíln- um til að kanna hvort náunginn sé virkilega í sjálfmorðshugleiðingum á svona fallegri nóttu. Ungi maðurinn er nú hreint ekkert ánægður með afskipti lögreglunnár og heldur því fram að bílstjóri og farþegar bifreið- arinnar séu vinir hans. Var það furða þótt einn lögreglu- þjónninn styndi þungan og segði: „Og þama áttum við að vita það að þetta var kunningi hans í bílnum!" í Hafnarstræti tekur einn beygjuna inn í strætið á tveimur hjólum. „Voðaleg keyrsla er á þessum." Bif- reiðin er stöðvuð og einn fjórmenn- inganna fer út til að hafa tal af öku- manni. Þegar hann kemur aftur seg- ir hann: „Hann sagði að bíllinn væri eitthvað bilaður, bensíngjöfin festist niðri. Ég sagði honum að leggja hon- um og skilja hann eftir.“ Ökumaður er skrifaður niður fyrir gáleysislegan akstur og fyrir að fará ekki eftir tilmælum því síðar um nóttina er nefnilega bifreiðin á bak og burt. Ja, nema ökumaður sé svona handlaginn og hafi gert við bíhnn á staðnum. Nátthrafnar og pylsur Það kemur að því að einn og einn geispi læðist að mönnum enda klukkan orðin flmm. Farið er að hægjast um og Lækjargatan loks orð- in greiðfær. Enn má þó sjá svanga nátthrafna gæða sér á pylsum við pylsuvagninn niðri í Austurstræti og ungt skáld situr á bekk. Tvær ljós- hærðar og bláeygðar standa undir vegg hjá Reykjavíkurapóteki, um- kringdar erlendum aðdáendum. Ungir menn leggja hendur um axlir vinkvenna sinna og þannig ganga pörin heim á leið. Einhveijir eru að leita að Fálka- götu og spyija til vegar. Segir þá einn lögregluþjónninn við félaga sinn; „Þú hefðir átt að spyija hvort það væri partí.“ . Enn eru nokkrir ekki dauðir úr öllum æðum. Ungur maður burðast um með búkka frá Vegagerðinni og er hann vinsamlegast beðinn um skila honum á sinn stað þar eð aug- ljóst sé að hann er ekki eigandi hlut- arins. Sá sem tók búkkann ófijálsri hendi sest á hann og segist þurfa að hvíla sig, enda vafalaust þreyttur eft- ir burðinn. Eftir talsvert stríð fæst hann þó til þess að skila honum með hjálp vinar síns sem virðist aðeins betur á sig kominn. 1 Kyrrð er nú að komast á bæinn og flestir farnir heim að sofa. Sólin er að skríða yfir Esjuna og Austur- stræti minnir helst á Gufuneshaug- ana, pylsubréf, bjórdósir, vínflöskur, tómir sígarettupakkar og einnota umbúðir hggja eins og hráviði út um aht. En ekki htur út fyrir að þær muni hggja þama lengi því starfsmenn borgarinnar eru komnir til að hreinsa upp ummerki næturinnar. -GHK Næturlífið varð þessum unga manni um megn en félagi hans reynir að koma honum aftur á lappir Er ekki einhver sem vill breyta til og prófa landsbyggðina? Þá er kjörið tækifæri. Erum með nýlegt einbýlishús i Ólafsvík sem er 138 ferm + bilskúr. Skipti möguleg á húsnæði í Reykjavík eða nágrenni. Uppl. í símum 93-61192 og 93-61199. SMÁAUGLÝSINGAR HEILSU (jd NÝBÝLAVEGI24 Frábærir Ijósalampar með þremur andlits- Ijósum. Vatnsgufubað og nuddpottur innifal- ið í hverjum Ijósatíma. 10. hverju seldu 10 tíma Ijósakorti fylgja 5 tímar í bónus. Opið virka daga frá kl. 9 til 22 og laugardaga frá kl. 10 til 17. LINDIN SÍMI46460 AUGLÝSING um veitingu leyfa til áætlunarflugs innanlands Hinn 31. desember 1989 renna út öll sérleyfi til áætlunarflugs með farþega, vörur og póst á flugleiðum innanlands, svo og leyfi til áætlunarflugs án sérleyfis. Samgönguráðherra mun, samkvæmt heimild í VII. kafla laga nr. 34 21. maí 1964 um loftferðir og reglugerð um flugrekstur, nr. 381 1989, veita leyfi til áætlunarflugs innanlands fyrir tímabilið 1. janúar 1990 til 31. desember 1994. Ráðuneytið lýsir hér með eftir umsóknum flugrekstraraðila um leyfi til áætlunarflugs á til- teknum flugleiðum. í umsókninni skal greina: - nafn flugrekstraraðila, - flugleið/-leiðir sem leyfis er óskað á, - mat umsækjanda á flutningsþörf á viðkomandi leið/leiðum, - drög að áætlun á viðkomandi leið/leiðum, - önnur atriði sem umsækjandi telur skipta máli. Umsóknum, skv. ofanrituðu, skal skila til samgönguráðuneytisins eigi síðar en 1. október nk. Samgönguráðuneytið, 15. ágúst 1989 INNANHÚSS- ARKITEKTÚR í frítíma yðar með bréfaskriffcum Engrar sérstakrar undirbúningsmenntunar er krafist til þátttöku. Spennandi atvinna eða aðeins til eigin nota. Námskeiðið er m.a. um húsgögn og húsgagnaröðun, liti, lýsingu, list, þar tilheyrir listiðnaður, gamall og nýr stíll, blóm, skipulagning, nýtisku eldhús, gólfiagnir, vegg- klæðningar, vefnaðarvara, þar tilheyrir gólfteppi, hús- gagnaefni og gluggatjöld ásamt hagsýni o. fl. Ég óska án skuldbindingar að fá sendan bækling yðar um INNANHÚSS-ARKITEKT-NÁMSKEIÐ. Nafn........................... Heimilisfang..................................... Akademisk Brevskole Jyllandsvej 15 • Postboks234 —— 2000 Frederiksberg • Kobenhavn • Danmark DV 08-19-89 amBMBæn'-irwiMi ■ n buhbk ■fc’ia,«

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.