Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1989, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1989, Page 14
Frjálst,óháð dagblað Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla. áskrift, ÞVERHOLTI 11,105 RVÍK, SÍMI (1 )27022 - FAX: (1J27079 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prefctun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1000 kr. Verð í lausasölu virka daga 95 kr. - Helgarblað 115 kr. Ríki í ríkinu Ríkisútvarpið er sem ríki í ríkinu. Menn geta ekki sagt því upp hafi þeir á annað borð sjónvarpstæki. Þetta veitir Ríkisútvarpinu þá sérstöðu að geta skattlagt landsmenn. Það hefur einnig harkalegar innheimtuað- ferðir og getur farið sínu fram um innheimtu og álagn- ingu. Til dæmis geta þeir, sem hafa Stöð tvö, ekki sagt upp ríkissjónvarpinu, þótt þeir geti mætavel sagt upp Stöð tvö. Þetta er ranglátt. Ríkið skírskotar til þess, að það gegni öryggishlutverki. Lítið er orðið úr því öryggis- hlutverki, þegar stór hluti landsmanna horfir á og hlust- ar á aðrar stöðvar en ríkisstöðvarnar. Nær lagi væri að setja öðrum stöðvum það skilyrði, að þær sinni örygg- ishlutverki. Enda hafa þær gert það. Við verðum að stefna að því að afnema forréttindi Ríkisútvarpsins, þannig að allir sitji við sama borð. Annað er ranglátt. Ríkissjónvarpið hefur hækkað afnotagjöld sín gífur- lega í seinni tíð. Um það hafði verið skipuð nefnd. Satt að segja er hörmulegt til þess að vita, að Ögmundur Jónasson, núverandi formaður Bandalags starfsmanna ríkis og bæja, skyldi í nefndinni ganga manna harðast fram í kröfum um hækkun afnotagjalda. Þetta ætti þó að vera maður, sem væri þekktur að öðru. Hann stóð fyrir aðgerðum gegn búvöruhækkun og hækkun bensín- verðs. En svona geta menn orðið samdauna kerfmu. Allur almenningur hefur síðan orðið að þola hina gífur- legu hækkun afnotágjalda Ríkisútvarpsins. Þetta er skattur, sem menn komast ekki undan í nútímaþjóð- félagi. Og það er einmitt þetta, sem ríkið notfærir sér. í nútímaþjóðfélagi þurfa menn að hafa aðgang að ein- hverju sjónvarpi. Hins vegar eru menn greinilega lítt sáttir við dagskrá ríkissjónvarpsins. Þeir, sem veita sér þann munað að hafa báðar sjónvarpsstöðvarnar, munu yfirleitt þeirrar skoðunar, að dagskrá ríkissjónvarpsins sé lakari en dagskrá Stöðvar tvö. Oft kemur fram, að fjölmargir vildu algerlega hætta við ríkissjónvarpið. En það geta menn bara ekki - þannig kerfi búum við að. Ríkissjónvarpið leggur tiltölulega lítið upp úr afþrey- ingu, miðað við Stöð tvö. Þá hefur Ríkisútvarpinu verið illa stjórnað í öðru. Það hefur meðal annars komið skýrt fram í máli núver- andi fjármálaráðherra. í raun hefði einkastöð fyrir löngu verið farin á höfuðið með slíkum aðferðum, sem tíðkast á ríkissjónvarpinu. Von er, að menn kvarti sáran yfir geysilegri hækkun afnotagjalda. Um hljóðvarpið má það segja, að fæstir hlusta á ríkishljóðvarpið, nema þá helzt kvöldfréttir. Réttast væri að fara að tillögum þeirra manna, sem hafa lagt til að ríkishljóðvarpið verði selt hið fyrsta. Það gildir einkum um rás tvö. Vel má flytja það öryggishlutverk, sem ríkisstöðvar hafa, yfir á aðra. Auk þess höfum við séð fréttamenn útvarps fara í verkfall, sem í þá daga, fyrir aukið frelsi, hefði varpað fólki í miðaldamyrkur, hefðu ekki framtakssamir menn komið til. Hann var langur, aðdragandi þess, að hér á landi voru leyfðar aðrar stöðvar en ríkisstöðvarnar. Margir stjórnmálamenn beittu sér gegn því. Nú mun varla finnast sá stjórnmálamaður, sem vill hverfa aftur til gamla tímans. Einkastöðvarnar hafa sannað sig. Fólk hlustar í reynd mest á einkahljóðvarpið. Fólk horfir í geysimiklum mæli á Stöð tvö, þótt því fylgi aukinn kostnaður. En skrefið hefur ekki verið stigið til fulls. Haukur Helgason LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 1989. Friðargerð út og inn á við boðskapur de Klerks til hvítra kjósenda Þrem vikum fyrir þingkosningar í Suöur-Afríku hefur átt sér staö uppgjör í forustu Þjóöarflokksins sem stjórnað hefur landinu óslitiö frá árinu 1948. Pieter W. Botha, for- seti og flokksforingi síöasta áratug- inn, varö að víkja úr forsetaemb- ættinu eins og áður flokksfor- ustunni fyrir sér yngri manni, Frederik W. de Klerk. Botha átti einskis annars úrkosti eftir að rík- isstjórn og flokksfórusta hafði lagst eindregið á sveif með de Klerk í áformi hans um að koma á sam- bandi við forustumenn svertingja- ríkjanna sem liggja norðan að Suð- ur-Afríku. Kemur nú á daginn að Botha og Þjóðarflokknum hefði verið fyrir bestu að hann færi að ráðum félaga sinna og léti með öllu af störfum eftir að verða fyrir heilablæðingu í janúar í vetur. En hann þráaðist við, lét lausa flokksforustuna, sem de Klerk hreppti, en ríghélt í for- setaembættið. Því kom í hlut de Klerk aö und- irbúa þingkosningarnar 6. sept- ember af hálfu Þjóðarflokksins án þess að gegna þjóðhöfðingjaemb- ættinu, sem einatt hefur verið þýð- ingarmikið tromp fyrir þann flokk gagnvart keppinautum um kjör- fylgi Búa, þess hluta hvíta minni- hlutans í Suður-Afríku sem rekur ættir sínar til hollenskra landnema og aðhyllist kalvínstrú. Afleiðingin varð að de Klerk sá sig tilneyddan að haga sér í ýmsu í undirbúningi kosningabaráttunnar eins og væri hann þegar orðinn forseti, til að mynda með ferðalögum erlendis til viðræðna við forseta og forsætis- ráðherra. Upp úr sauð þegar kunngert var að de Klerk færi til Zambíu 28: ágúst, níu dögum fyrir kosning- arnar, til fundar við Kenneth Kaunda Zambíuforseta og for- svarsmann samtaka „víglínuríkj- anna“ sex sem svo nefna sig og liggja þvert yfir Afríku norðan að Suður-Afríku. í fór með honum yrði Piet Botha utanríkisráðherra. Botha forseti brást ókvæða við þessum tíðindum, kvað ferð á fund Kaunda farna án sinnar vitundar, hvað þá heldur tilskilinnar heim- ilda'r frá sér, og gegn sínum vilja. Kaliaði þá de Klerk saman forustu Þjóðarflokksins, sem reyndist standa með honum. Botha fór í sjónvarpiö og sagði af sér forseta- embætti, en gerði úr því mikið mál að flokkssystkinin hefðu viljað aö hann byggði afsögnina á heilsu- bresti en ekki ágreiningi. Tók de Klerk svo við forsetaembætti til bráðabirgða fram til þess að ný- kjörið þing verður sett, en verður þá staðfestur í embættinu svo framarlega sem Þjóðarflokkurinn heldur meirihluta sínum. í Suður-Afríku er að vonum bollalagt um hver áhrif uppgjörið milli Botha og de Klerk hafi á horf- ur Þjóðarflokksins í kosningunum. Kosið er í þrem kjördeildum, hvítra, kynblendinga og Indverja. Svertingjar, fjórir fimmtu lands- manna, hafa ekki kosningarétt. Deild hvítra í þinginu hefur öll völd, og í kjöri til hennar er sótt að Þjóðarflokknum á báðar hend- ur. Frá hægri sækja íhaldsmenn, sem óa þær takmörkuðu tilslakanir á kynþáttaaðskilnaði sem Botha hefur beitt sér fyrir og hafa reynst sigursælir í aukakosningum og sveitarstjómarkosningum, eink- um í Transvaal. Frá vinstri kemur Lýðræöisflokkurinn, sem vili al- gert afnám kynþáttamisréttis. Niðurstaða þeirra sem til þekkja virðist sú, að de Klerk standi mun sterkar að vígi í kosningabarátt- unni eftir að Botha vék fyrir hon- um. Búar vilja frá fornu fari hafa sterka menn í forustu fyrir sér, og nú hefur de Klerk sýnt að þegar á reynir er hann jafnvel enn harðari í horn aö taka en P. W. Botha. Þar uOá ofan þykir de Klerk hafa komið frá uppgjörinu með hreinan skjöld, þar sem Botha hafi hins vegar gert sig hlálegan. Bersýnilega gerir de Klerk sér far um að vekja vonir um að hann sé Erlend tíðindi Magnús Torfi Ólafsson fær um að losa Suöur-Afríku úr þeirri sjálfheldu sem landið hefur setið í undanfarin ár. Neyðarlög hafa gilt um langt skeið í því skyni að halda niðri réttindabaráttu og mótmælaaðgerðum svertingja. At- vinnulíf er í lamasessi, meðal ann- ars vegna viðskiptaþvingana er- lendis frá til að mótmæla kynþátta- aðskilnaðinum, en ekki síður vegna þess að erlendir fjármagns- eigendur hafa rénandi traust á framtíð Suður-Afríku, fari svo fram sem horfir. Með því að fara til fundar við Kaunda Zambíuforseta í Living- stone gefur de Klerk til kynna, að hann hyggst snúa sér að kjarna vandans, samskiptum stjórnar Suður-Afríku og Afríska þjóðar- ráðsins, elstu og helstu samtaka svertingja. Þjóðarráðið hefur verið bannað um langan aldur og virt- asti leiðtogi þess, Nelson Mandela, setið í fangelsi í 26 ár. Þjóðarráðið hefur nú aðalbækistöð í Lusaka, höfuðborg Zambíu, og hefur eftir fóngum skipulagt tilræöi og skemmdarverk í Suður-Afríku. Kenning þjóðarráösmanna hefur verið, að þar sem yfirgnæfandi meirihluta Lmdsmanna í Suður- 'Afríku sé meinað að kreíjast réttar síns með lýðræðislegum hætti hljóti einhverjir þeirra að reyna aö sækja hann með vopnum. Suður- Afríkustjórn hefur svarað með á- rásum víkingasveita á búðir og bækistöðvar þjóðarráðsins í ná- grannalöndum og viðleitni til að grafa undan veikum stjórnum þessara landa. Án stuðnings frá Suður-Afríku, og að nokkru frá Bandaríkjunum, hefðu uppreisnarhreyfmgarnar Unita í Angóla og Renamo í Mósambikk ekki getaö haldið uppi áralöngum hernaði sem lagt hefur atvinnuvegi þessara landa í rúst auk gífurlegs manntjóns sem aðal- lega bitnar á óbreyttum borgurum. En í ár var stigið úrslitaskref brott af þessari braut. Komið er á samkomulag um að suöurafrískum stuðningi viö Unita og Renamo linni. Suður-Afríka heitir að virða ákvarðanir Sameinuðu þjóðanna um sjálfstæði fyrir Namibíu, gegn því að kúbanskt herhð hverfi brott frá Angóla. Framkvæmd þessa samkomulags er þegar hafin. Stjórnlagaþing verður kjörið í Namibíu 1. nóvemb- er. Fundur hefur veriö haidinn í Kinshasa um stöðvun vopnavið- skipta stjórnarhers og uppreisnar- manna í Angóla og annar sams konar varðandi friðargerð í Mosambík stóð í Nairobi. Farið er aö gera því skóna að styst geti í að Nelson Mandela verði lát- inn laus. Aöbúð hans í fangelsi hefur verið stórbætt eftir að hann veiktist þar af berklum og í sumar bauð Botha forseti honum til starfs og tedrykkju. í október kemur saman fundur æöstu manna Samveldislanda. Sunday Telegraph í London skýrir frá því að Margaret Thatcher hafi látiö þau boð berast til de Klerk að erfitt verði fyrir sig að standa öllu lengur gegn ákvörðun um við- skiptahömlur gagnvart Suður- Afríku nema stjórn landsins sýni trúverðuga viðleitni til marktæks fráhvarfs frá kynþáttamisrétti. Frederik W. de Klerk, nýi forsetinn í Suður-Afriku, ávarpar kosningafund í Jóhannesarborg á miðvikudagskvöld. Þar kvað hann stjórnmálaumbæt- ur einu leiðina til að efla atvinnulíf, þjakað af refsiaðgerðum og van- trausti umheimsins.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.