Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1989, Page 25

Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.1989, Page 25
LAUGARDAGUR 19. ÁGÚST 1989. 37 Skák Einvígið um íslands- meistaratitilinn Á Skákþingi íslands í ágúst í fyrra, sem haldið var í menningar- miðstöðinni Hafnarborg í Hafnar- firði, urðu Margeir Pétursson og Jón L. Ámason efstir og jafnir með 9,5 y. af 11 mögulegum. Samkvæmt lögum Skáksambands íslands skal við slíkar aðstæður tefla einvígi um íslandsmeistaratitilinn - fjórar skákir og síðan bráðabana, þar til aðeins annar stendur uppi. Ýmis atvik höguðu því svo að af þessu einvígi gat ekki orðið fyrr en tæpu ári seinna og svo jafnt var með keppendum að fjórar skákir nægðu ekki, heldur þurfti átta. Ferðaskrifstofan Útsýn í Mjódd stóð fyrir einvíginu og nú, sextán árum eftir einvígi aldarinnar í Laugardalshöllinni, var rykið dust- að af sjálfu einvígisborðinu. Það var sérstök tilfinning að sitja í þess- um sögufrægu stólum og handleika taflmennina, eins og meistaramir forðum. Samt var eins og þetta hefði ekki tilætluð áhrif á tafl- mennskuna. í fyrstu skákinni kom í minn hlut að stýra svörtu mönnunum. Mér leist ekki of vel á hhkuna framan af taflinu, því að Margeir tefldi hratt og að því er virtist af miklu öryggi. Það kom mér því verulega á óvart er ég sá fram á peðsvinning eftir aðeins 16 leiki. Fyrst hélt ég að Margeir væri að leggja kænlega gildru, enda hafði hann ekki notað nema rúman stundarfjórðung af umhugsunartímanum. Ég kom samt ekki auga á hugmyndina. Síð- ar kom í ljós að Margeir hafði ein- faldlega leikið af sér peðinu og sig- ur minn var auðveldur: Margeir- Jón, 1. skák. Nimzoind- versk vörn: 1. d4 Rffi 2. c4 e6 3. Rc3 Bb4 4. e3 0-0 5. Bd3 d5 6. a3 Bxc3+ 7. bxc3 dxc4 8. Bxc4 c5 9. Re2 Dc7 10. Ba2 b6 11. 0-0 Ba6 12. Hel Rc6 13. Rg3 Hfd8 14. Bb2 Ra5 15. e4 Endurbót Margeirs á skákinni Georgiev - Jóhann Hjartarson, Linares 1988, þar sem Búlgarinn lék 15. a4. 15. - Bc4 16. Bcl? 8 7 6 5 4 3 2 16. - Bxa2 17. Hxa2 cxd4 18. cxd4 Dc4! 19. Hc2 Ef 19. Hd2 Rb3 20. Hc2 Dxd4 o.s.frv. 19. - Hxd4! Nú er peð fallið og svartur á jafn- framt betri stöðu. Margeir gerði síðan illt verra með 20. Bd2 Da4 21. Dcl?! Rb3 22. Hc8+ Re8! 23. Hxa8 Rxcl 24. Bxcl f6 25. Be3 Hdl 26. Hxdl Dxdl+ 27. Rfl Dd7 28. h4 Kf7 29. Rg3 e5 30. h5 g6 31. f4 Db7 Og hvítur géif. Ekki tókst mér að láta kné fylgja kviði í 2. skákinni er Margeir jafn- aði taflið auðveldlega. í 3. skákinni lenti ég hins vegar í ógöngum, eftir misheppnaða byrjunartafl- mennsku. Margeir fékk betri stöðu þótt hann hefði misst af sterkasta framhaldinu. Upp kom endatafl með mislitum hiskupum og hrók- um, sem Margeir tefldi af mikilli hst. Hann þjarmaði smám saman að mér en einmitt er sigurinn virt- ist í sjónmáh missti hann þráðinn 1 i X m iii 14 4 A A A jjiil & A A A A m ifliíTli:: B <£> ABCDE FGH Jón L. Árnason og Margeir Pétursson tefldu einvígi um íslandsmeistaratignina í skák fyrir árið 1988, sem endaði með sigri Jóns L. Arnasonar. 12345678 Vinn. JónL.Árnason...... 1 'A 'A 0 'A 'A 'A 1 4A Margeir Pétursson. 0 'A ‘A 1 'A 'A 'A 0 3 'A og lék svo af sér rétt áður en skák- in fór í bið,’eftí.r 60 leiki. í biðstöð- unni hafði hann enn vinnings- möguleika og ég átti von á því að þurfa að veijast lengi fram eftir degi. Ég trúði varla eigin augum er Margeir, sem er annálaður fyrir vandaðar biðstöðurannsóknir, lék af sér strax í 2. leik: i á I 1.i i s A A A 63. Be8?? og ég svaraði að bragði með 63. - e4! Skyndilega hafa vopnin snúist í höndum hvíts. Ef hann drepur með peði á e4 kemur 64. - Hf6+ 65. Ke5 Hc6 (fráskák) og hrókurinn fehur. Ef 64. Kxe4 þá 64. - He6 + og biskup- inn fehur. Margeir varð því að leika 64. Hc6+ Hxc6 65. Bxc6 exd3 66. f4 og þessi staöa er jafntefli, þótt nú sé það svartur sem geti reynt að vinna. Eftir 105 leiki sættumst við á skiptan hlut. í 4. skákinni hafði ég hvítt og nægði jafntefli til sigurs í einvíg- inu. Það er alkunna að undir shk- um kringumstæðum verður tafl- mennskan oft gloppótt. Ég lentí snemma í vandræðum en staðan lagaðist og rétt fyrir fyrri tíma- mörkin hafði ég enga ástæðu tíl svartsýni. Þá lagðist ég hins vegar í vöm, méö hörmulegum afleiðing- um: X I # 4 á i i i i A' i A A a: A i A il ú? A S A . s Eftir 35. Hab2! Rc8 36. c4 með hótuninni 37. c5 stendur hvítur betur, á því er enginn vafi. í stað þessa varð framhaldið: 35. Haal? Hf4 36. Hfl Hhf8 37. Hxf4 Hxf4 38. Hbl? c5 39. dxc5? bxc5 40. Hb5 c4! og eftir 41. Hxa5+ Kb6 42. Hb5+ Ka6 43. Be2 Rc6 á svartur vinnings- stöðu. Biskup hvíts er grafinn lif- andi að baki peðanna og Margeir teUdi lok skákarinnar óðafmnan- lega og knúði fram sigur eftir 68 leiki. Fimmta skákin var sú athyglis- verðasta í einvíginu. Eftir sviptíng- ar í miðtaflinu kom fram endatafl með hrókum og riddurum, þar sem ég hafði fjarlægan frelsingja og mun betri stöðu. Margeiri tókst hins vegar að þæfa taflið og er skákin fór í bið eftir 60 leiki var hann sloppinn út í hróksendatafl þótt erfitt væri. Þetta var andvöku- nótt hjá báðum, því að endataflið var snúið. Margeir sagðist hafa Skák Jón L. Árnason fundið snjahan hróksleik í rann- sóknum sínum er klukkan var far- in að ganga sex um morguninn. Vel má vera að staðan hafi verið jafntefli en ég hefði þó getað gert honum mun erfiðara fyrir. Ég hitti ekki á beittustu leiðina og eftir 89 leiki voru aðeins kóngarnir eftir á borðinu - jafntefli. Við shðruðum sverðin eftir 21 leik í sjöttu skákinni, báðir þreyttir eftir næturrannsóknirnar. Þar með var komið í bráðabana, sem var frestað um hríð vegna Norður- landamótsins í Finnlandi. Það kom í minn hlut að stýra svörtu mönnunum í sjöundu skák- inni, sem tefld var sl. mánudag. Ég jafnaði taflið mjög auðveldlega en er út í endatafl var komið gerði ég skyssu og Margeir fékk vinnings- möguleika. Eftir peðsfóm mína lék Margeir ónákvæmt og jaftefli var staðreynd, eftir 50 leiki. í áttundu skákinni réðust loks úrslit. Lengsta einvígi íslandssög- unnar var lokið. Hvítt: Jón L. Árnason Svart: Margeir Pétursson Sikileyjarvörn 1. e4 c5 2. Rfá Rc6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 g6 5. c4 Rf6 6. Rc3 d6 7. Be2 Rxd4 8. Dxd4 Bg7 9. Bg5 0-0 10. De3 Be6 11. Hcl! Endurbót á 2. einvígisskákinni, þar sem 11. 0-0 Db6 12. Dd2 a6 13. Hcl a6 14. Bd3 Hfc8 15. Bd3 b5 gaf svörtúm jafnt tafl. Með kónginn á miðborðinu gefur 13. b3 Da5 14. f3 Hfc8 15. Ra4 hvítum betra. 11: - a6 12. 0-0 b5!? Margeir sagðist hafa undirbúið þessa framrás fyrir skákina. Þetta losar um svörtu stöðuna en vita- skuld gæti peðið fallið. 13. cxb5 axb5 14. a3 Db8? Liklega er 14. - Ha5 besti kostur- inn og svara 15. Bxb5 með 15. - Rxe4! 16. Dxe4 Bxc3 17. Hxc3 Hxb5. Eftir drottningarleikinn fær svart- ur tæplega nægar bætur fyrir peð- ið. 15. Bxb5 Hc8 Nú er 15. - Rxe4 best svarað með 16. Rxe4 Dxb5 17. Bxe7 og 15. - Rg4 16. De2 d5 17. g3 leiðir heldur ekki til ávinnings. 16. a4 Db7 17. Hfel Hc7 18. De2! Db6 19. Be3 Da5 20. Bd2 Da7 21. b4 Dd4 22. Bd3 Hcc8 23. Rb5 Db2 Engu betra er 23. - Db6 24. a5. Hvítu peðin eru kofnin á skrið og eru ih viðureignar. 24. Hbl De5 25. f4 Dh5 26. Dxh5 gxh5 27. a5 Bc4 28. Bxc4 Hxc4 29. Hbcl! Hxe4 30. Rc7 Hc8 31. b5 Ha4 32. b6 Re4 33. b7 Hb8 I # A m iií i A m i I 4 A Jk A A 34. Re6(?) Vinnur en lengir skákina óþarf- lega. Einfaldast er 34. Hxe4! Hxe4 35. Re6! (hótar 36. Hc8+) Bd4+ 36. Kfl! (36. Rxd4 Hxb7) Bc5 37. Rxc5 dxc5 38. a6 Ha4 39. Hxc5 og vinnur. Önnur vinningsleið er 34. a6 Rxd2 35. Rb5 og hótunin 36. Hc8+ er óviðráðanleg. 34. - Rc5 35. Rxc5 dxc5 36. Hxe7 Bd4+ 37. Kfl Ha2-38. Ke2 Kg7 39. Hc7 Kf6 40. Kd3 Ke6 41. f5 + Kxf5 42. Hfl + Ke6 43. Hfxf7 Bf6 44. Bf4 Ha3+ 45. Kc2 Ha2+ 46. Kb3 Hb2+ 47. Ka3 Hb4 48. Hxf6+ Kxf6 49. Hc6+ og svartur gafst upp. -JLÁ íþróttasalur til leigu Nokkrir lausir tímar fáanlegir á kvöldin og um helgar í íþróttasal skólans. Uppl. fást á skrifstofu skólans I síma 688400. Verzlunarskóli Islands

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.