Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1989, Page 4

Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1989, Page 4
G 4___ Fréttir MÁNUDAGIÍR 21. ÁGÚST 1989. Davíð Oddsson borgarstjóri segir viðræðum um urðun sorps á Kjalamesi hætt: Nýjasta tilboð Kjalnesinga eins og hvert annað grín „Ég veit ekki hvemig hreppsnefnd Kjalarneshrepps getur horft framan í sveitunga sína eftir aö hafa hafnað tilboöi okkar sem aö minu viti var stórkostlegt," sagöi Davíð Oddsson, borgarstjóri í samtali við DV. Hreppsnefnd Kjarlarneshrepps hef- ur hafnað tiiboöi Reykjavíkurborgar um uröun sorps í Álfsnesi gegn yfir- töku á skuldum Hitaveitu Kjalames- hrepps og fóstu árlegu gjaldi. „Tilboð þeirra um urðun við Arn- arholt er eins og hvert annað grín. Sorpeyðing höfuðborgarsvæðisins getur auövitað tekið málið upp að nýju en af hálfu borgarinnar var til- boðið aðeins bundið við urðun í Álfs- nesinu. Þessum viðræðum er lokið af okkar hálfu,“ sagði Davíð. Vildu frið í hreppnum „Hreppsnefndin vildi hafa frið í hreppnum. Þaö er ekki hægt að kljúfa upp hreppsfélag í deilum um svona mál og hreppsnefndin vildi ekki standa að því. Þess vegna var ákveðið að hafna tilboðinu frá Reykjavíkurborg en bjóða í staðinn urðun norðan Arnarholts,“ sagði Jón Ólafsson, oddviti Kjalameshrepps, um afstöðu hreppsnefndarinnar. Mér hefur heldur ekki þótt sann- gjamt að nota heita vatnið sem feng- iö er á góðu verði í Mosfellsbæ sem gjaldmiðil til að koma sorpinu fyrir augun á Mosfellingum. Eg hef sjálfur alltaf veriö mjög efins um að rétt væri aö urða sorp í Álfs- nesi og er mjög sáttur ef sorpið kem- ur ekki á Kjalarnes. Það getur verið að tilboð Reykjavíkurborgar um yfir- töku á skuldum hitaveitumnar hafi verið gott en við Kjalnesingar erum engir bónbjargarmenn og höfum hingað til borgaö skuldir okkar," sagöi Jón Ólafsson. Urðað í Krísuvík? Allar líkur em nú á að aftur verði horfið til upphaflegrar áætlunar um sorpböggunarstöð í Hafnarfirði og urðun sorpsins í Krísuvík. Það hefur þó ekki veriö ákveðið endanlega af stjórn Sorpeyðingar höfuðborgar- svæðisins. „Við úthlutuðum lóð undir sorp- böggunarstöðina fyrir fjórum mán- uðum. Nú er kominn tími til að fara gera eitthvað í málinu,“ sagði Guð- mundur Árni Stefánsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði. „Staðan er nú eins og hún var í upphafi og ekkert annað að gera en aö hefiast handa,“ sagði Guðmundur Árni. -GK Mýflug í Mývatnssveit: Erlendir ferðamenn sækja í útsýnisflug Leifur Hallgrimsson t.h. og Baldur Vilhjálmssm, flugmaður hjá Mýflugi, við eina af vélum félagsins. Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: „Það er búið að vera mjög mikið að gera hjá okkur í júlí svo við erum ánægðir," sagði Leifur Hallgrímsson, einn af eigendum Mýfiugs hf. í Mý- vatnssveit, er DV kom við á flugvell- inum við Mývatn á dögunum. Leifur stofnaði Mýflug árið 1984 en árið eftir var félaginu breytt í hluta- félag er 11 aðrir aðilar í sveitinni gerðust hluthafar. Leifur sagði að í upphafi hefði starfsemi félagsins ver- ið hugsuð sem útsýnis- og leiguflug og frá þeirri stefnu hefði ekki verið horfið. „Útsýnisflugið er stærsti þátturinn í starfsemi okkar," sagði Leifur. „Það eru að langmestu leyti erlendir ferðamenn sem sækja í þetta útsýnis- flug og það er undantekning ef við sjáum hér á flugvellinum innlenda feröamenn sem vilja komast í flug. Við gerum okkur grein fyrir því að það er dýrt að fara í slíkt flug en það er gaman að segja frá því að útlend- ingamir borga með bros á vör, þeim finnst þetta vel peninganna virði.“ Mýflug býður upp á 6 mismunandi leiðir í útsýnisfluginu og taka ferð- irnar allt frá 20 mínútum og upp í 2 klukkustundir. Leifur sagði að vin- sælasta leiðin, sem flogin er, væri í Öskju og Kverkfiöll. Þá er flogið hringinn í kringum Mývatn, upp að Öskju og þaðan i Kverkfiöll. Síðan er farið í Herðubreiðarlindir, til baka yfir Mývatn og loks upp að Kröflu. Slík ferð tekur um eina og hálfa klukkustund og kostar 6.600 krónur fyrir manhinn. Til samanburðar má nefna að stysta flugið, sem er í kring- um vatnið og upp að Kröflu, kostar 2.300 krónur fyrir manninn. Flugvélakostur Mýflugs hf. í dag samanstendur af þremur vélujn: einni kennsluvél og tveimur vélum sem taka 5 farþega. Mýflug hefur byggt mikið upp á flugvellinum, m.a. flugskýli og far- þegaafgreiðslu, en Flugmálastjórn hefur séð um uppbyggingu brautar- innar. Flugbrautin þótti lengi vel ein sú athyglisverðasta á landinu, var þá 500 metra löng og svo kúpt að ekki sást enda á milli. í dag er braut- in orðin 805 metra löng með tveimur 60 metra löngum öryggissvæðum og sagöi Leifur að þeir væri þakklátir fyrir það að vera nú loksins búnir að fá almennilega flugbraut í Mý- vatnssveit. í dag mælir Dagfari Miðskóli Davíðs og Svavars Úfar hafa risið manna á meðal út af nýjum einkaskóla sem til stendur aö stofna í höfuöborginni. Að mati menntamálaráðherra kemur ekki til greina að stofna Miðskóla sem hefur þá hættu í fór með sér að geta orðið betri skóli en þeir sem ráðherra stýrir. Slíkt væri fyrir neðan allar hellur þar sem sú hætta blasi við aö böm Miðskólans fengju ívið betri fræðslu en sætu þau í rikisskóla. Davíö borgaralvaldur er ekki sam- mála ráðherra og segir að hann sé haldinn fomaldarhugsun í þessum efnum. Bendir á í leiöinni að sjálfur hafi Svavar sent sín böm í Isaks- skóla til að forða þeim frá ríkisskól- um. Þar sem Dagfari er þeim ann- mörkum háður að hafa ekki per- sónulegan né heldur eigin bama samanburð milli ríkisskóla og einkaskóla á hann að sjálfsögðu ekki aö voga sér að fialla um málið á faglegan hátt enda er það ekki ætlunin. En ef hann man rétt gengu bæði Davíð og Svavar í ríkisskóla á sínum lærdómsárum og alþjóð veit hvemig sá menntaferill hefur fariö með lífshlaup þeirra tvímenn- inga. Þeir félagar munu báðir á sinnm stuttbuxnaárum hafa stundað sveitastörf milli ríkisskólasetu á vetmm. Engar staðfestar fréttir hafa borist af fólksflótta .úr þeim hémðum sem Svavar og Davíð heiðruðu í æsku sinni og ber því að líta svo á að hvorugur beri í dag ábyrgð á vanda landbúnaðarins. Éftir aö síðbuxurnar taka við af stuttbuxunum skilur leiðir og hvor fer í sitt hom í pólitíkinni án þess að nokkur rannsókn hafi fariö fram á því á hvern hátt ríkisskóla- gangan hafði þar áhrif á. Slík ana- lýsering bíöur fræðimanna fram- tíöarinnar. En meö tilliti til Mið- skólamálsins er mjög nauðsynlegt að slík rannsókn fari fram til þess að unnt sé að varpa réttu ljósi á málið. En áfram með þá Svavar og Davíð sem em orðnir miðpunktar Miðskólans með réttu eða röngu. Á sínum tíma gerðist Svavar for- maður Alþýðubandalagsins sem þá var og næstum því hét. Á þeim árum hét hann því í ræðu og riti aö vinna að nýsköpun atvinnuveg- anna og vinna því máli fylgi innan flokks og utan. Þetta verk hefur tekið nokkur ár en er nú að skila þeim árangri að helstu atvinnuveg- ir þjóðarinnar em nú í rúst og ný gjaldþrot fyrirtækja era birt á hverjum virkum degi. Það þarf því ekki að fara í neinar grafgötur um dugnaö Svavars Gestssonar og sálufélaga hans þá þeir vilja það viðhafa. Núverandi formaður Al- þýöubandalagsins, Ólafur Ragnar Grímsson lauk líka ríkisskólanámi hér á landi en hélt síðan til frekara hagfræðináms erlendis og mun það nám hafa kostaö skildinginn. Hins yegar er það þó skítur á priki mið- að við það hvað það kostar þjóðina að fá þennan mann í stól fiármála- ráðherra. En kannski hann hafi ekki lært í sama skóla og Magga Thatcher þama í Bretlandi. Davíð fór hins vegar hvorki til Austur-Þýskalands né Bretlands en lék Bubba kóng þess í stað og gerðist síðan borgarstjóri í Reykja- vík. Gefur skít í alla gagnrýni hvort heldur hún beinist að ráðhúsi eða skopparakringlu og rekur borgina af miklum myndarskap eins og honum er lagið. Lætur hvern sem er á móti honum í pólitík hafa það óþvegið þegar tilefni gefst til og nú síðast sendir hann Svavari heldur kaldar kveðjur út af Miðskólamál- inu. En fyrst ríkisskólinn gat á sínum tíma útskrifað svo ólíka einstakl- inga sem Svavar og Davíð vaknar sú spurning hvort einkaskóli sé lík- legri til að steypa einstaklinga í sama mót. Kannski Svavar óttist þaö mest að Miðskólinn muni bara framleiða litla og þybbna borgar- stjóra með úfið hár en ekki nein eintök af ráðhermm Alþýðubanda- lagsins. Miðaö við fiölda borgar- stjóra í Reykjavík síðustu hálfa öld eða svo ætti þessi ótti Svavars að vera ástæðulaus, enda bendir flest til þess að Alþýðubandalagið heyri sögunni til á undan embætti borg- arstjóra. Dagfari

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.