Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1989, Side 18
18
MÁNUDAGUR 21. ÁGÚST 1989.
Lífstm
Lambakjöt á lágmarksverði:
75% aðspurðra
eru ánægð
75,2% aðspuröra sögðu að þeim
heíöi líkað vel eða mjög vel lamba-
kjöt á lágmarksverði sem selt hefur
verið í sumar sérstaklega niðursneitt
á grilhð.
Þetta kemur fram í niðurstöðum
skoðanakönnunar sem Skáís gerði
fyrir samstarfshóp söluátaksins dag-
ana 10.-12. ágúst. Úrtakið var 800
manns og náði til íbúa alls staðar á
landinu og allra aldurshópa.
92% þátttakenda vissu af tilboðinu
en 7,2% ekki, þannig að segja má að
kynning á lamgbakjötssölunni hafi
tekist vel. 62,4% höfðu nýtt sér til-
boðið og keypt einn eða fleiri poka
af lambakjöti. 36,2% höfðu hins veg-
ar ekki gert það og spurðir um ástæð-
ur svöruöu flestir því til að þeir borð-
uðu yfirleitt lítið lambakjöt. 12%
þeirra sem ekki keyptu leist ekki á
tilboðið.
Spurt var hvort lambakjötsneysla
hefði aukist á heimili viðkomandi og
svöruðu 44,2% því játandi en 50,9%
Neytendur
sögðu hana óbreytta meðan 4,9%
sögðust ekki vita það.
Þátttakendur voru spurðir hve
margir pokar af tilboðskjöti hefðu
verið keyptir og kom í ljós að 41%
höfðu keypt einn pöka, 32,7% höföu
keypt 2 poka og 13,7% höfðu keypt
þrjá poka. Þegar aldursdreiflng í hópi
þeirra sem nýtt höföu sér tilboöið var
könnuð kom í ljós að meira en 60%
þátttakenda á aldrinum 23 til rúm-
lega 40 ára höfðu keypt poka á til-
boðsverði. Fólk var einnig spurt
hvemig kjötið hefði verið matreitt
og kom í ljós að flestir hinna yngri
höfðu sett kjötið á grillið meðan eldri
aldurshópar matreiddu það á ýmsan
annan hátt.
Þá var spurt hve mikið væri eftir
af því kjöti sem síðast hefði verið
keypt og í ljós kom að 13,7% áttu allt
kjötið eftir, 27% áttu helminginn eft-
ir, 24% áttu fjórðung kjötsins eftir
og 16,4% voru búin að neyta þess sem
keypt hafði verið.
Þórhallur Arason, starfsmaður
landbúnaðarráðuneytisins, sem ráð-
inn var sérstaklega til þess að skipu-
leggja sölu á lambakjöti, sagði í sam-
tali við DV að niðurstöðurnar sýndu
ótvírætt að undirtektir almennings
hefðu verið jákvæðari og betri en
búist hefði verið við. Hann sagðist
ánægður með það hve yngra fólk
virtist hafa tekið þessu vel og benti
ennfremur á að niðurstöðurnar
sýndu að fólk hamstraði ekki kjöt í
frystikistuna heldur væri það keypt
til neyslu strax.
-Pá
Þessi brosmilda stúlka veit hvernig á að meóhöndla kjöt en rétt meðferð matvæla er lykilatriði.
Röng meðferð olli
matareitnininni
Rannsóknir á sýnum hafa stað-
fest að matareitrun, sem kom upp
á Kópavogshæli og Vífilsstööum
um hvitasunnuna í vor, átti rót sína
aö rekja til rangrar meðferöar á
matvælum í eldhúsi Vífilsstaða-
spítala.
Rúmlega eitt hundraö manns
veiktust eftir að hafa neytt hangi-
kjöts á umræddum stofnunum.
Sýni voru tekin bæði hjá framleiö-
anda og í eldhúsi Vífilsstaða og í
Ijós kom aö bakterían Clostridium
perfringens, sem sýkingunni olii,
hefur náð að fjölga sér eftir ranga
meðhöndlun.
Baktería þessi er mjög algeng í hröð þegar matvæli eru geymd við
vatni, jarðvegi, saur og hráu Kiöti. herbergishita eftir suðu en það er
Hún nær ekki að íjölga sér ef mikið trúlega það sem skeður á Víflls-
súrefni er tii staðar. Gerillinn vex stöðum.
Þar sem sýkillinn er loftfælinn
er hann helst til staðar í súrefnis-
snauðu umhverfi, svo sem kjöt- og
pottréttum, þykkum súpum og sós-
um. Þaö er þvi ijóst að þegar búinn
er til matur sem síðan er sendur í
einangruöum bökkum milli húsa,
best við um 45°C en getur einnig eins og gert var í þessu umrædda
vaxiö við 15-50°C. Dvalargróin, sem tílfelli, geta auöveldlega myndast-
hann myndar, þola þó mun meiri aðstæöur fyrir sýkil þennan.
hitun. Við suðu matvæla spíra gró- -Pá
in og fjölgun gerlanna veröur mjög
Neytendur
Samkvæmt niðurstöðum skoðanakönnunar hefur almenningur jákvætt við-
horf til kjötfjallsins og virðist staðráðinn í að borða sig í gegnum það.
Súpukjöt á lágmarksverði:
323 krónur
kílóið
Verðið á „Súpukjöti á lágmarks- kjötí eða einn frampartur í hverj-
verði“, sem fer að birtast í verslun- um poka og er kjötíð hlutað niður
um um miðja vikuna, hefur verið og aukabitar Ijarlægöir til þess að
ákveðiö 323 krónur. Undir þessu mæta óskum kaupenda.
nafni verða seld 100 tonn af súpu- -Pá
Dagstímplar
það eina
sem vantar
Vegna skrifa DV um merkingar á
umbúðum utan um Smjörva vill Geir
Jónsson, yfirmaöur rannsóknarstofu
Osta- og smjörsölunnar, að fram
komi að þær umbúðir, sem birtar
voru myndir af í DV, eru nýjar um-
búöir sem Smjörvinn verður seldur
í. Á þeim er að finna allar nauðsyn-
legar upplýsingar nema dagstimpil.
„Stimpillinn verður tekinn í gagnið
um næstu mánaðamót," sagði Geir í
samtali við DV. Eftir þá þreytingu
eiga umbúðir um Smjörvann að upp-
fylla öll skilyrði reglugerðar um
merkingu neytendaumbúða. .
-Pá
Electrolux
en ekki Sanyo
Mistök urðu við birtingu greinar
á neytendasíðu á þriðjudag um við-
horf fólks til örbylgjuofna.
Hitt rétta er að 69% eigenda Elec-
trolux ofna sögðust oft nota ofninn
en meðal þeirra voru flestír eða
18% sem ekki treystu sér til þess
að mæla meö ofninum.
Þetta stakk í stúf við aðrar niður-
stöður sem bentu til þess að því
oftar sem fólk notaði ofninn því
ánægðara væri það með hann.
-Pá