Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1989, Qupperneq 19
- neitaði landsliðssæti vegna ferðarinnar til Englands - sjá bls. 30
Akranes
vann
bikarinn
- bls. 23
United
skellti
Arsenal
- bls. 20
Af
hestum
á EM
- bls. 24 og 25
Fram
fékk
útreið
gegn Þór
- bls. 24
Laxá í
Kjós
enn á
toppnum
bls. 29
Þessi urðu hlutskörpust í Reykjavíkurmaraþoninu. Hollendingurinn Wilma Rusman setti brautarmet í kvennaflokki
en Bretinn Robin Nash sigraði í karlaflokki. Nánar er sagt frá hlaupinu í miðopnu. DV-mynd GS
Sigurður vann tvenn silfurverðlaun en Einar eitt brons:
Einar og Sigurður
kasta báðir í Mónakó
- tryggðu sér rétt til að keppa á lokamóti Grand-Prix
Síslendingar geta nú
státað af tveimur
stjörnum í spjótkasti en
þeir Sigurður Einars-
son og Einar Vilhjálmsson tryggðu
sér um helgina rétt til að keppa á
lokamóti Grand-Prix. Það mót fer
fram í Mónakó þann 1. september.
Þeir félagar kepptu á tveimur
stigamótum alþjóðafijálsíþrótta-
sambandsins um helgina og stóðu
sig með mikilli prýði.
Sigurður vann tvenn silfurverð-
laun en Einar hreppti eitt brons.
Á fyrra mótinu, sem fram fór í
Berlín á fóstudagskvöld, vann Sig-
urður silfur öðru sinni á örfáum
dögum en Einar varð fjórði. Kast
Sigurðar var glæsilegt en hann
þeytti spjótinu 82,68 metra.
Hefur Sigurður ekki kastað
spjótinu lengra í keppni.
Sigurður Einarsson er kominn í
fremstu röð í spjótkastinu.
Einar náði einnig ágætu kasti í
Berlín, spjót hans flaug 80,70
metra.
Það var Bretinn Steve Bacley
sem sigraði í Berlín en hann er í
miklu formi um þessar mundir.
Kastaði hann spjótinu þar 83,58
metra.
í Köln komust okkar menn báðir
á pall, Sigurður tók silfrið en Einar
hreppti brons.
Sigurður þeytti þá spjótinu 82,30
metra en Einar kastaði sínu áhaldi
81,80 metra.
Steve Bacley sigraði einnig í
Köln, kastaði þá 83,88 metra.
Bacley hefur forystuna í stiga-
keppninni í spjótkastinu en það
kann að breytast í Mónakó en það
mót vegur tvöfalt í stigagjöfinni.
-JÖG
Langhlaup:
Tvö
frækin
heimsmet
Tvö glæsileg heimsmet í frjálsum
íþróttum voru sett á Grand-Prix mót-
um um helgina.
Það fyrra setti Mexíkómaðurinn
Arturo Barrios á föstudagskvöld.
Hljóp hann þá 10 þúsund metrana á
27:08,23 í Berhn.
Portúgalinn Fernando Mamede átti
metið sem féll. Var það 27:13,81 mín-
úta og komið nokkuð til ára sinna.
Mexíkómaðurinn hljóp keppinauta
sína af sér í síðasta þriðjungi hlaups-
ins og með meiri keppni hefði met
hans vafalaust orðið enn glæsilegra.
Marokkókmaðurinn Said Aouita
setti heimsmet í 3000 metra hlaupi í
Köln í gær.
Met þessa tæplega þrítuga íþrótta-
manns er óvenju glæsilegt og kemur
á margan hátt á óvart þar sem marg-
ir ætluðu að Aouita væri fallinn af
hátindi ferils síns.
Aouita hljóp vegalengdina á 7:29,45
mínútum en eldra metið var 11 ára
gamalt, sett í Osló af Henry Rono.
Var það 7:32,10 mínútur.
Þess má geta að Said Aouita á fyrir
heimsmet í 3 og 5 þúsund metra
hlaupi.
-JÖG