Dagblaðið Vísir - DV - 21.08.1989, Page 20
20
n/MÚDa’ÓuR 2Í. ÍÓtísTlV89.
íþróttir
Robbie Hindmarch, leikmaður Derby, leikur hér á Paul Williams, leikmann Charlton, í leik liðanna á laugardag.
Knattspyrnuvertíöin hafin í Englandi:
United burstaði
meistara Arsenal
- Liverpool vann nýliða Man. City, 3-1, á Anfield
Manchester United fór vel af staö
þegar enska deildarkeppnin hófst á
laugardag. Manchester liðið vann
stórsigur, 4-1, á meisturum Arsenal
á heimavelli sínum, Old Trafford.
United fékk óskabyrjun og hðið
skoraöi eftir aðeins rúma mínútu.
Þá skoraði Steve Bruce með góðum
skalla og rétt á eftir munaði minnstu
að Bryan Robson skoraði annað
mark þegar hann skaut framhjá úr
dauðafæri. Sókn United hélt áfram
og á 17. mínútu fékk liðið vítaspymu
en Brian McClair brenndi af. Þvert
gegn gangi leiksins náði Arsenal að
jafna og var þar að verki, David Roc-
astle. í síðari hálfleik tók United öll
völd á vellinum og liðið þremur
mörkum við. Mark Hughes, Neil
Webb og Brian McClair skomðu allir
áður en yfir lauk og stórsigur Man.
Utd. í höfn.
Liverpool í gang
í síðari hálfleik
Liverpool lenti í kröppum dansi í
fyrri hálfleiknum gegn nýhðum
Manchester City. John Bames náði
reyndar forystunni fyrir Liverpool
með marki úr vítaspymu en Andy
Hinchcliffe, komungum leikmanni
City, tókst að jafna, 1-1. í síðari hálf-
leiknum fór Liverpool-liðið í gang og
þeir Peter Beardsley og Steve Nicol
skoruðu og tryggðu hðinu sigur fyrir
framan 38 þúsund áhorfendur á An-
field.
Tottenham ekki sannfærandl
Tottenham sýndi ekki mjög sannfær-
andi leik á laugardag en liðið náði
þó að sigra Luton, 2-1. Stuðnings-
menn Tottenham hafa búist viö
miklu af höinu fyrir keppnistímabil-
ið enda hefur liðið keypt marga
snjalla leikmenn, þ.á m. Gary Line-
ker fyrir 1,5 mihjónir punda.
Paul Stewart kom Spurs yfir gegn
Luton en Roy Wegerley náði að jafna
fyrir hattaborgarliðiö í upphafi síðari
hálfleiks. Þaö var síöan Paul Allen
sem innsiglaði sigur Tottenham en
aðeins 17 þúsund áhorfendur fylgd-
ust með leiknum á White Hart Lane.
Everton steinlá á
á Highfield Road
Everton fékk skell í sínum fyrsta leik
er liðiö heimsótti Coventry á High-
field Road. Staðan var markalaus þar
til seint í síðari hálfleik. Gary Bann-
ister skoraði fyrir Coventry á 67.
mínútu og David Speedie bætti öðm
markinu við þrem minútum fyrir
leikslok.
Lögreglan seinkaði leiknum
Chelsea, sem sigraði í 2. deild á síð-
asta keppnistímabih, fagnaði því að
vera komið aftur í 1. deiid með því
að leggja Wimbledon að velli 1-0.
Leikurinn einkenndist af mikhl bar-
áttu enda liðin nágrannar í London
og þar er rígur á milh liða. Kevin
Wilson gerði sigurmark Chelsea um
miðjan síöari hálfleik.
Skotinn skoraði tvö
Crystal Palace, aðrir nýhöar í 1.
dehd, fengu eins góða byrjun. Þeir
máttu þola 0-2 tap fyrir nágrönnum
sínum QPR. Skotinn Paul Wright,
sem QPR keypti frá Aberdeen, skor-
aði bæði mörk Rangers. Annað
markanna var skorað úr vítaspymu.
Jafnt I Nottingham
Nottingham Forest og Aston Villa
gerðu 1-1 jafntefli í Nottingham. De-
rek Mountfield skoraði fyrst fyrir
Villa en Gary Parker jafnaði fyrir
Forest í síðari hálfleik.
Dýrlingarnir töpuðu
Millwah geröi góða ferð til Southap-
ton og vann 2-1 sigur á suðurströnd-
inni. Les Briley og Tony Cascarino
gerðu mörk Millwall en Ruddock
náði að minnka muninn fyrir Dýrl-
ingana.
Norwich lagði Wednesday
Norwich vann Sheffield Wednesday,
2-0. Dave Philhps og Robert Fleck
skoruðu mörk Norwich í leiknum.
Charlton og Derby County gerðu
markalaust jafntefli í tíðindaitlum
leik í Lundúnum.
Newcastle burstaði Leeds
í 2. deild kom stórsigur Newcastle á
Leeds einna mest á óvart. Leeds
komst yfir í fyrri hálfleik með mörk-
um Bobby Davison og Ian Beard en
Newcastle fór á kostum í síðari hálf-
leik og þá áttu leikmenn Leeds engan
möguleika. Mick Quinn skoraði fjög-
ur af fimm mörkum Newcastle.
West Ham komst yfir í Stoke með
marki Kevin Keen en George Berry
jafnaði fyrir Stoke undir lokin.
Middlesbro vann Úlfana, 4-2.
Bernie Slaven gerði tvö mörk og þeir
Trevor Putney og Peter Davenport
sitt markiö hvor. Andy Mutch skor-
aði bæði mörk Úlfanna.
-RR
1-deild:
Charlton-Derby...........0-0
Coventry-Everton.........2-0
Liverpool-Man. City.•....3-1
Man.Utd.-ArsenaI.........4-1
Nott. Forest-Aston Vhla...1-1
QPR-Crystal Palace.......2-0
Sheff. Wed.-Norwich......0-2
Southampton-Mill wah.....1-2
Tottenham-Luton..........2-1
Wimbledon-Chelsea........0-1
2. deild:
Blackbum-Oldham..........1-0
Bradford-Port Vale.......2-2
Brighton-Bom*nemouth.....2-1
Huh-Leicester............1-1
Ipswich-Barnsley.........3-1
Middlesbro-Wolves........4-2
Newcastle-Leeds..........5-2
Ply mouth-Oxford.........2-0
Stoke-West Ham...........1-1
Swindon-Sunderland.......0-2
Watford-Portsmouth.......1-0
West Brom-Sheff. Utd.....0-3
3. deild:
Birmingham-Crewe..........3-0
Blackpool-Wigan...........0-0
Bristol Rov.-Brentford....1-0
Bury-Bristol City........1-1
Cardiff-Bolton............0-2
Chester-Mansfield.........0-2
Fulham-Tranmere...........1-2
Huddersfield-Swansea......1-0
Leyton O.-Notts County...0-1
Reading-Shrewsbury........3-3
Roherham-Preston..........3-1
Walsah-Northampton........1-0
4. deild:
Chesterfield-Colchester...1-1
Exeter-Doncaster..........1-0
Gillingham-Aldershot......0-0
Grimsby-Cambridge.........0-0
Halifax-Hartlepool........4-0
Hereford-Carlisle.........2-2
Lincoln-Scunthorpe........1-0
Peterboro-Maidstone.......1-0
Rochdale-Burnley..........2-1
Scarborough-Wrexham.......2-1
Southend-York.............2-0
Stockport-Torquay.........1-1
Úrvalsdeild
Celtic - Dunfermline.....1-0
Dundee - DundeeUtd.......4-3
Hibernian - Rangers......2-1
Motherwell - Aberdeen....0-0
St. Mirren - Hearts......1-2
l.deild
Airdrie - Hamilton.......1-0
Ayr - Forfar.............1-1
Falkirk - Raith Rov......0-2
Meadowbank - Alloa.......1-3
Morton - Clydebank.......0-1
Partick - Albion Rov.....4-0
St. Johnstone - Clydebank.2-1
2. deild
Arbroath - Kilmamock........1-1
Brechin - Dumbarton.........4-0
Cowdenbeath - Montrose......0-1
East Fife - Stenhousmuir....2-3
QueenofSouth-Berwick........4-2
Queens Park - East Stirling.3-2
Stanrear - Stirling Alb.....0-2
Markahæstir:
Keith Wright, sem leikur meö
Dundee, er markahæstur í Skot-
landi en hann gerði ijögur mörk
í síðustu umferð, gegn erkifénd-
unum Dundee Udt.