Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1989, Síða 8
8
MIÐVIKUDAGUR 23. ÁGÚST 1989.
Utlönd
Khn Dae-Jung kærdur?
Saksóknarar í Suður-Kóreu hafa gefið sferklega í skyn aö Kim Dae-jung
verði ákærður fyrir aðild aö njósnum fyrir Norður-Kóreu.
Símamynd Reuter
Saksóknarar í Suöur-Kóreu gáfu sterklega í skyn í gær að Kim Dae-
jung, leiðtogi stjómarandstæðinga, yrði formlega ákærður fyrir aðild að
njósnahneyksli. Saksóknari sagöi að stjómvöld hygðust höíöa mái gegn
Kim þar sem nægar sannanir væm fyrir sekt hans.
Kim var færður til yfirheyrslu vegna ásakana um aö þingmaðurinn Suh
Kyong-won heföi njósnað fyrir Noröur-Kóreu og Kim ætti aðild aö því.
Hann neitaði sakargiftum.
Saksóknari segir aö Suh hafi viöurkennt að gefa Kim miklar íjárhaðir
sem Norður-Kóreumenn hafi látið honum í té. Suh hefur viöurkennt aö
hafa ferðast til Norður-Kóreu en neitar njósnaákærum.
Kim ásakar ríkisstjórn Roh Tae-woo um pólitiskar ofsóknir. Hann
kveðst munu beijast til aö sanna sakleysi sitt.
Gettungamir göbbuðu bæjarbúa
Belgískir slökkviliösmenn, sem hvattir voru tE vegna gífurlegs „svarts
reykjarmakkar" frá turni kirkju einnar í norðvesturhluta landsins, gátu
líöð aðhafst þegar þeir komu á staðinn. „Reykjarmökkurinn" reyndist
vera gifurleg mergð geitunga.
Að sögn slökkviliðsmanna í bænum Werwik töldu þeir ólíklegt að eldur
hefði kviknað í kirkjunni þar sem hún var reist alfarið úr gijótl En vegna
fjölda bringinga bæjarbúa fóru þeir engu aö siður á vettvang til að kanna
hvaðan „eldurinn" kæmi Það tóku sem sagt fjölmargir Qugnagerið í
misgripum fyrir reykjarmökk.
FulHrúi Sovétríkjanna til Sýriands
Bardagar halda áfram í Líbanon. Tveir létust i nótt sem leiö þegar
múhameðstrúarmenn og kristnir börðust á grænu linunni sem skiptír
Beirút.
Austur-þýskir flóttamenn, sem komust yfir landamæri Ungverjalands og Austurrikis, veifa úr lest sem flutti þá til
flóttamannabúða i Vestur-Þýskalandi. Símamynd Reuter
Sendiráðinu
í Prag lokað
Vestur-Þjóðveijar tilkynntu í gær
að þeir ætluðu að loka sendiráði sínu
í Prag í dag þar sem þeir gætu ekki
tekið á móti fleiri flóttamönnum frá
Austur-Þýskafandi þar. Þetta er
þriðja sendiráð Vestur-Þýskalands
sem hefur verið lokað vegna þess að
þar eru of margir flóttamenn saman
komnir. Sendiráðunum í Búdapest
og Austur-Berlín var lokað fyrr í
þessum mánuði.
Helmut Kohf kanslari Vestur-
Þýskalands sakaði austur-þýsku
stjórnina um aö vera valda að
ófremdarástandinu þar sem hún
neitaði að koma á endurbótum í
landinu.
„Af frásögnum þeirra sem komast
til Vesturlanda vitum við aö það er
umfram allt stífni kerfisins þar og
vonleysi um breytingar sem fær fólk-
ið til að snúa baki við Austur-Þýska-
landi,“ sagði Kohl við fréttamenn.
Helsti hugmyndafræðingur Aust-
ur-Þýskalands, Otto Reinhold, hefur
hafnað öllum umbótum þar sem þær
myndu kippa tilverugrundvellinum
undan ríkinu. Vestrænir stjórnarer-
indrekar segja að sambúð þýsku ríkj-
anna hafi aldrei verið jafnstirð frá
því að Erich Honecker, leiðtogi aust-
ur-þýska kommúnistaflokksins,
heimsótti Vestur-Þýskaland fyrir
tveimur árum.
Honecker stendur frammi fyrir
þremur valkostum til að stemma
stigu við flóttamannastraumnum aö
áhti vestrænna sendimanna og
heimilda í Austur-Evrópu. Tvær
þeirra eru taldar framkvæmanlegar.
I fyrsta fagi aö takmarka ferðalög til
Ungveijalands þaðan sem margir
Austur-Þjóðverjar hafa flúið vestur
yfir og í öðru lagi að auka ferðafrels-
ið ennfrekar til að létta á þrýstingi
innanfands. Þriðji vafkosturinn er
hins vegar að koma á endurbótum í
fandinu en þeim hefur þegar veriö
hafnað.
Reuter
Leynisamningurinn fordæmdur
Búist er við að um 600 þúsund
manns taki þátt í aö mynda mann-
lega keðju yfir Eystrasaftslýðveld-
in Efstfand, Lettíand og Litháen í
dag til aö leggja áherslu á kröfur
sínar um að stjómvöld í Moskvu
veiti þeim aftur sjálfstæöi sitt.
Mótmælin koma í kjölfar skýrslu
frá litháískri þingnefiid sem birt
var í gær þar sem hemám Rauða
hersins í landinu 1940 var fordæmt
og atkvæðagreiðsla lítháíska þings-
ins um að landið væri innlimað í
Sovétríkin var lýst ómerk.
Niðurstöður nefndarinnar era
alvarlegasta vefenging á lögmæti
sovéskra yfirráða í Eystrasaltslýð-
veldunum til þessa. Nefndin sagöi
að það væri Evrópu, alls heimsins
og þar á meöal stjórnarinnar í
Moskvu að glíma viö afleiöingar
atburöanna 1940.
Skoðanir nefndarinnar birtust í
opinberum dagblöðum í Litháen
daginn fyrir hálfrar aldar afmæli
leynisamninga milli Sovétríkjanna
og Þýskalands nasista sem nefndin
segir að hafi mtt brautina fyrir
inniimun Litháens í Sovétríkin.
Pólski kommúnistaflokkurinn
fordæmdi í gær leynisamningana
mUli Sovétrikjanna og Þýskalands.
Sovétstjórnin hefur viðurkennt tU-
vist þeirra en neitar að nokkur
tengsl séu milli þeirra og innUmun-
ar Eystrasaltslandanna þriggja.
Hún heldur því fram að löndin
hafi ákveðið það sjálf í frjálsum
kosningum.
Mikill órói er einnig annars stað-
ar í Sovétríkjunum. I Armeniu hafá
deilur Armena og Azera dregiö úr
flutningi lífsnauösynja meö jám-
brautarlestum. Hundruð þúsunda
manna efndu til mótmæla í Baku í
Azerbaijan í gær þar sem stjórnin
í Moskvu var hvött til að láta af
yfirráðum sínum yfir Nagorno-
Karabakh héraði í kjölfar rósta
milli Azera og Armena. Rússneskir
verkamenn í Moldavíu lögðu niður
vinnu í gær til aö mótmæla fyrir-
huguðum lögum sem kveða á um
aukna notkun tungumáls Moldav-
íu.
Ueutcr
Fuiltrúi sovéska utanríkisráðuneytisins kom til Sýrlands í gær tU
viðræöna við ráðamenn, m.a. um ástandiö í Líbanon. Genadi Tarasov
mun ræða viö utanríkisráöherra Sýriands, Fraouq al-Shara, í dag. Sýr-
lendingar síyðja við bakið á múhameðstrúarmönnum í Lábanon sem berj-
ast gegn hermönnum kristinna. Frakkar hafa reynt að miðla málum í
landinu en hefur lítið orðið ágengt og hafa Sýrlendingar gagnrýnt mjög
aðgerðir þeirra.
Ekkert lát er á bardögum í Líbanon og létust tveir í nótt sem leiö þegar
bardagar bratust út á grænu línunni sem skiptir Beirút-borg.
Símamynd Reuter
Kanna innsta kjama grænlensks jökuls
Níu manna hópur vísindamanna frá Vestur-Þýskalandi og Frakklandi
hyggjast nú rannsaka innsta kjama Inlandsis-jökuls, stærsta jökuls á
Græniandi. Vísindamennirair lögðu af stað í leiöangur til Grænlands á
mánudag. TUgangur rannsóknanna er að fræðast um jarðfræðisögu og
veðrabreytingar. „Við vUjum komast dýpra inn í þennan jökul en áður
hefur verið gert,“ sagði Michael Vogeley, einn vestur-þýsku vísindamann-
anna, í viðtali við blaðamenn.
Leiðangurinn, sem talið er að muni kosta hálfa milljón doliara, er skipu-
lagður af Jöklafræðistofnuninni í Grenoble, Frakklandi. fjögurra manna
franskt kvikmyndatökulið slæst í fór með vísindamönnunum.
Hagen slær í gegn
Björg Eva Erlendsdóttir, DV, Osló:
Formaður norska Framfaraflokks-
ins, Carl Ivar Hagen, heldur áfram
sigurgöngu sinni í kosningabarátt-
unni í Noregi. í dag birtist skoðana-
könnun sem í þriðja sinn á síðustu
vikum staðfestir gífurlega fylgis-
aukningu Framfarafloksins.
Hagen hefur náð flestum kjósend-
um frá Hægri flokknum en síðustu
vikumar hefur hann líka náð tölu-
verðu fylgi frá Verkamannaflokkn-
um og vinstri sósíalistum sem til
samans hafa nú fylgi 37 prósent kjós-
enda. Það er of lítið til þess að Verka-
mannaflokkurinn geti haldiö áfram
í ríkisstjóm næsta kjörtímabU.
í fyrrakvöld mætti Carl I. Hagen
forsætisráðherranum, Gro Harlem
Brandtland, til kappræðna í beinni
útsendingu sjónvarps. Yfir 40 pró-
sent áhorfenda töldu Hagen standa
sig miklu betur í umræðunum.
Sama var uppi á teningnum í gær-
kvöld þar sem fulltrúar allra flokka
voru saman komnir til þess aö ræða
lausnir á höfuðvandamáli Norö-
manna um þessar mundir, atvinnu-
leysinu. Fundinum var sjónvarpaö
frá Tromsö í Norður-Noregi en at-
vinnuleysi er hvað mest einmitt í
Norður-Noregi.
Engir flokkanna gátu lofað neinu
um hvenær atvinnuleysi mun
minnka. Fjármálaráðherrann Gunn-
ar Berge átti erfitt með að veija að-
gerðir Verkamannaflokksins í þess-
um efnum, enda er atvinnuleysi í
Noregi. í dag fimmfalt meira en
Verkamannaflokkurinn lofaöi fyrir
íjórum árum.
Hægri flokkurinn benti ekki á
ákveðnar leiðir til úrbóta. Flokkur-
inn er orðinn eins og skugginn af
sjálfum sér meðan Carl I. Hagen slær
í gegn með sína pólitík sem er langt-
um lengra til hægri. Hagen lofaöi
m.a. skattalækkunum. Auk þess vill
hann byggja hraðbrautir og elliheim-
ili og fækka þannig atvinnulausum.
Allar tUlögur hans vöktu miklar
undirtektir áhorfenda. Á útifundi,
sem hann hélt í Tromsö í gær, voru
yfir tvö þúsund manns en aðeins fá-
einar hræöur komu á fundi hinna
flokkanna.