Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1989, Síða 11
MrÐVIKUDAGUR 23. ÁGÚST 1989.
„Sko, ég hef loksins komið þeim í járn,“ er undirskrift þessarar teikningar Lurie um ástandið i Kolumbíu. Yfirvöld
þar hafa hafið herskáa herferð gegn fíkniefnasmyglurum i landinu og handtekið rúmlega tíu þúsund manns.
Teikning Lurie
Fimm handteknir
í Kolumbíu
- grunaöir um morðið á forsetaframbjóðanda stjómarflokksins
Yfirvöld í Kolumbíu hafa hand-
tekiö fimm menn grunaða um aöild
að morðinu á Luis Carlos Galan, for-
setaframbjóðanda stjórnarflokksins.
Galan var skotinn til bana á fóstudag
í úthverfi Bogata þar sem hann var
á kosningafundi. Talið er að leigu-
morðingjar á vegum fíkniefnasmygl-
ara hafi myrt hann.
Fimmmenningarnir, sem enn hafa
ekki verið formlega ákærðir fyrir
morðið, voru handteknir í skyndiár-
ás lögreglu inn í skrifstofubyggingu
í Bogata í gær. Þeir voru leiddir fyrir
hóp blaðamanna í höfuðstöðvum lög-
reglu í gær.
Kolumbísk yfirvöld hafa hafið
herskáa herferð gegn síauknu of-
beldi fíkniefnasmyglara í landinu.
Meira en tíu þúsund hafa verið hand-
teknir á síðustu dögum, þar á meðal
Eduardo Martinez Romero, háttsett-
ur meðlimur í Medellín-samtökun-
um, einum af stærstu fíkniefna-
smyglhringum í Kolumbíu. Romero
hefur verið ákærður fyrir stórfelld
fjársvik í Bandaríkjunum og hafa
bandarísk stjórnvöld farið fram á
framsal hans. Þarlend yfirvöld hafa
látið Kolumbíu í té lista með nöfnum
tólf manna sem eru eftirlýstir í
Bandaríkjunum. Á þeim lista er m.a.
Pablo Escobar en hann er talinn leiö-
togi Medellín-samtakanna.
Forseti Kolumbíu samþykkti um
helgina neyðarlög í baráttunni gegn
fikniefnasmyglurum. Samkvæmt
þeim er hægt að framselja grunaða
eiturlyfjasala séu þeir eftirlýstir er-
lendis.
Yfirvöld í Kolumbíu hafa reynt aö
loka öllum hugsanlegum fióttaleið-
um fíkniefnasmyglaranna. Þau hafa
tekið höndum saman við yfirvöld í
Brasilíu, Venesúela, Perú og Equad-
or til aö koma í veg fyrir að smygl-
ararnir fiýi yfir landamærin.
Reuter
Kambódíustjórn gefur eftir
Ríkisstjórn Kambódíu hefur lagt
til að frjálsar kosningar verði
haldnar í landinu sex mánuðum
eftir að samningur um vopnahlé
hefur verið undirritaður. Tillaga
þessi kom fram í gærkvöldi á frið-
arráöstefiiu um málefni Kambódíu
sem haldin er í París og með henni
segist stjórnin vera reiðubúin að
bíða helmingi lengnr eftir kosning-
um en áður.
Hun Sen forsætisráðherra lands-
ins hafði áður krafist þess aö kosn-
ingar yrðu haldnar þremur mán-
uðum eftir brottflutning víetnam-
skra hersveita frá landinu í lok
næsta mánaðar. Andspymuhreyf-
ingarnar þijár úndir forustu Shi-
anouks fursta segja að þrír mánuð-
ur myndi ekki vera nægur tími til
að skipuleggja frjálsar kosningar.
Aðstoðarutanríkisráðherra
Kambódíu sagöi í gærkvöldi að
þetta væri umtalsverð eftirgjöf af
hálfu stjómarinnar sem býst við
að fá 80 prósent greiddra atkvæða
í kosningunum.
Fréttaskýrendur telja þó að til-
laga stjómarinnar muni ekki duga
tii að leysa hnútinn sera ráðstefnan
er komin í. Gert er ráð fyrir að
henni ljúki í næstu viku.
Reuter
Leitarmenn á Thamesá í London
fundu séx lík til viðbótar í gær og
lögreglan skýrði frá því að talið væri
aö 57 hefðu farist í skipskaðanum á
ánni aðfaranótt sunnudags. Alls hef-
ur 31 lík fundist, 26 er enn saknað
en vitað er að 79 komust lífs af.
Skemmtiskipið sökk á innan við
tveimur mínútum eftir að dýpkunar-
skipið sem er miklu stærra rakst aft-
an á það. Margir hinna látnu voru
þekktir úr tísku- og fjármálalífi Lon-
don.
Vitni, sem sá áreksturinn frá báti
í aðeins sex metra fjarlægð, sagði að
fjarskipti frá dýpkunarskipinu hefðu
bent til þess að áhöfn þess hefði ekki
vitað af árekstrinum. Vitnið sagði að
skipstjóri dýpkunarprammans hefði
kailað upp í talstöð sína að hann
hefði skemmt skip sitt lítillega þegar
hann fór undir brú.
Talsmaður samgönguráðuneytis-
ins neitaði að skýra frá innihaldi
fjarskipta dýpkunarprammans. Lög-
reglan, sem hefur verið að íhuga
ákæru í málinu, sagði í gær að blóð-
Oþekktur syrgjandi á bökkum Thamesár skammt frá þar sem skemmtiskip-
ið sökk aðtaranótt sunnudagsins. -
Simamynd Reuter
prufur á skipstjóra og stýrimanni Mennirnir voru handteknir eftir
dýpkunarskipsins hefðu sýnt að þeir slysið en voru síðan látnir lausir.
voru ekki undir áhrifum áfengis. Reuter
Sex lík til viðbótar fundin
li
Útlönd
Kohl stokkar
upp í flokks-
forystunni
Helmut Kohl, kanslari Vestur-
Þýskalands, tilnefndi í gær Volker
Ruhe í embætti framkvæmdastjóra
flokksins í stað Heiner Geissler
sem gegnt hefur embættinu í tólf
ár. Það kom flestum flokksfélögum
Kohls í Kristilega demókrata-
flokknum á óvart þegar Geissler
var látinn flakka og hefur kanslar-
inn verið mikið gagnrýndur fyrir
það. Segja margir að með því sé
hann að færa stefnu flokksins
lengra til hægri í kjölfar þess að
flokkurinn hefur tapað fylgi til hins
hægri sinnaða Repúblikanaflokks.
Þá kom útnefning Ruhe, sérfræð-
ings í utanríkismálum, ekki síður
á óvart.
Nokkrir, þar á meðal fijálslyndir
innan flokksins, hafa hvatt til
neyðarfundar flokksforystunnar
til að ræða þessar breytingar
kanslarans.
Tilnefning Ruhe kemur á þeim
tíma er kosningabaráttan í Vestur-
Þýskalandi er að hefjast en Vestur-
Þjóðverjar ganga að kjörborðinu á
næsta ári. Kohl kvaðst með þessum
breytingum vilja yngri menn við
stjómvölinn fyrir kosningarnar.
Segja fréttaskýrendur aö kanslar-
anum hafi þótt Geissler orðinn of
sjálfstæður og valdamikill í emb-
ætti.
Helmut Kohl, kanslari V-Þýska-
lands, kom mörgum á óvart þegar
hann skipti um framkvæmdastjóra
flokks síns. Simamynd Reuter
Kristilegir demókratar hafa
misst fylgi til repúblikana í þrenn-
um kosningunum þar sem af er
árinu, þar af í kosningunum til
Evrópuþingsins fyrr í sumar.
Reuter
Huey Newton myrtur
Maður sem talinn er vera Huey
Newton, einn stofnenda Svörtu hlé-
barðanna, fannst skotinn til bana í
borginni Oakland í Kaliforníu í gær.
„Það hefur ekki enn verið staðfest,
en við erum nokkuð vissir um að
þetta er hann,“ sagði talsmaður lög-
reglu borgarinnar í gær.
Newton, sem var 47 ára, var einn
stofnenda Svörtu hlébarðanna árið
1966. Hreyfingin, sem var mjög um-
deild á sínum tíma, beindi máli sínu
,að fátækum blökkumönnum í
Bandaríkjunum og hélt því fram að
blökkumenn heíðu fullan rétt til að
grípa til vopna í baráttu sinni.
Fljótlega sló i brýnu með Svörtu
hlébörðunum og lögreglunni þegar
félagar hreyfingar skiptu sér af þegar
þeim fannst meðbræður sínir mis-
rétti beittir. Svörtu hlébarðarnir sáu
m.a um að fæða börn í fátækrahverf-
unum og berjast gegn eiturlyfjasöl-
Um, SVÖrtum Og hvítum. Reuter
UTSALA
Húsgögn, sófasett,
hornsófar og sófa-
borð.
Allt á að seljast
- Verslunin hættir -
Við erum í
NUTIÐ
r.>
HUSGOGN
Faxafeni 14, s. 680755.