Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1989, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1989, Side 12
12 MIÐVIKUDAGUR 23. ÁGÚST 1989. Spumingin Gefur þú öndunum á Tjörninni brauð? Jóhannes í. Guðmundsson: Ekki mjög oft. Svona stundum. Sigurbjörg Linda Ævarsdóttir: Já, stundum. Einu sinni til tvisvar í mánuði. Rut Olsen: Já, þegar ég kem í bæinn því ég er úr Keflavík. Reyndar fer ég frekar ef veðrið er gott. Ingibjörg ísaksdóttir: Nei, ekki oft. Ég bý í Hafnarflrði og gef öndunum á Læknum þar stundum brauö. Helga Guðrún Friðriksdóttir: Nei, voða sjáldan, bara í góðu veðri. Jón Baldur Baldursson: Bara ein- stöku sinnum. Lesendur Landflótti eða byggðastefna Jón Eiríksson hringdi: Það er ánægjulegt að sjá að ein- hverjir fleiri en þeir sem að ósekju hafa verið kallaðir „óvinir land- búnaðarins" eru færir um að taka fyrir og fjalla um vandamál þau sem svokölluð byggðastefna hefur leitt yfir þessa þjóð á síðari árum. Og sem má að mínu áliti rekja til hinnar íhaldssömu og ósvífnu stefnu í landbúnaðarmálunum. í kjallaragrein í DV fimmtud. 17. ágúst sl. ræðir Ámi Thoroddsen um landflótta sem rökrétta afleið- ingu byggðastefnunnar. Hann tek- ur djúpt í árinni, en þannig held ég að menn verði að tala svo að ráðamenn þessarar þjóöar átti sig á að fólk lætur ekki bjóða sér öllu lengur þá rangsleitni sem felst í því að beina ótakmörkuðu fjárstreymi til byggðarlaga, oftar en ekki hinna afskekktustu, til þess eins að halda þeim í byggö enn um stund. Greinarhöfundur bendir á að kannski komi að því að ráðamönn- um heppnist loks það langþráða markmið að búa stómm hópi manna á höfuðborgarsvæðinu óbærileg lífsskilyrði með skatt- píningu og ofstjóm. Menn séu fam- ir að flýja höfuðborgina í stórum hópum. - Ekki út á land, heldur MMTUWkOC r h fcégt Rökrétt afleiðing byggðaste&mnnar. Landflótti - anna t>*r OWtfMœK lU hcrasi JwawwM* veuis*** ssjsssss&SSS muinBft Viffihanwíia®8 ■*“ SSSSKK bcimia ymxsðæ&s&': Æ*' * á tamawöt byggðariní \ar í nÁðar&iÖru by u “SSfS? a“avft,i6 Árni Thoroddsen tóm par bjóðaat og Mcfnan, dns««W“ p i aas, vlSíKiiur «ss»n &****■ Svlkamylla tflls umraftra. «a» Srara sV.te>nimara...*-«v, »«> v»3S- Hi vrtUn ,!i Grein Árna Thoroddsen birtist i DV 17. þ.m úr landi, til þeirra þjóða sem telja allt annaö þarfara en heyja skæru- hemað á hendur atorkumönnum sem vilja starfa óáreittir að fram- fórum og uppbyggingu. Þama er líka rætt um svikamyllu byggðastefnunnar, sem felst í því að fylla vasa einhverra gæðinga á landsbyggöinni af íjármagni til þess eins að fjárfesta svo aftur sem mest þeir mega á Reykjavíkur- svæðinu. Árni segir byggðastefn- una hafa reynst besta skiptaráð- anda framtíðarinnar. En hann bendir líka á hugsanlega lausn til úrbóta. Annars vegar að beina búsetuniðurgreiðslum til íbúa utan höfuðborgarsvæðisins og sem fari þá jafnt til allra, án þess að fjármunirnir fari um hendur skömmtunarstjóranna. Menn geti þá notað þá fjármuni til að auð- velda sér búferlaflutninga til höf- uðborgarsvæðisins. - Eða að byggðastefnufjárstreymið fari ein- ungis til svo sem fimm þéttbýhs- staða á landsbyggðinni, sem síðan verði reynt að stækka sem mest, helst í 20 þúsund íbúamarkið. Þetta em allt orð í tíma töluð og vonandi verður nú ekki stöðvuð sú umræða sem virðist mest beinast gegn þeim álögum sem felast í sjálf- virkum niðurgreiðslum, útflutn- ingsbótum og styrkjum til af- skekktra eða lítt lífvænlegra þorpa og landsvæða sem betur væru komin í eyði en endalausri og til- gangslausri endurhæfmgu. Kristín Halldórsdóttir, þingkona Kvennalistans, og Kjartan Jóhannsson alþm. - „Hafa forgöngu um eins konar siðvæðingu i svokölluðum bið- launamálum alþingismanna,“ segir hér m.a. Loks eitthvaö jákvætt frá þingmönnum: Af þakka biðlaun Kristján skrifar Það er nú kannski ekki að ástæðu- lausu sem fólk virðist hafa þörf fyrir að tjá sig í fjölmiðlum um stjórn- málamenn, Alþingi og annað sem lýtur að opinberri stjórnsýslu og oft- ast á neikvæðan hátt. - Fólki hefur oft blöskrað margt það sem kemur frá þessum aðilum og ekki síst þegar atriðin lúta að einkahagsmunum þeirra sem kosnir eru til þjónustu við fólkið í landinu en ekki sjálfa sig. Það er t.d. ekki óeðlilegt að fólki blöskri þegar þingmenn, sem yfir- gefa starf sitt á miðju kjörtímabili, hafa krafist fullra launa áfram þótt þeir fari í annað og betur borgað fetarf. Þetta hefur verið áberandi nú á síðari tímum. Og aldrei hefur neitt verið að gert! - En nú ber nýrra við. Loksins eitthvað jákvætt. Það vakti óneitanlega eftirtekt þeg- ar fréttist að tveir þingmenn, sem hætta þingsetu fyrir næsta þinghald krefjast ekki biðlauna þótt þeir eigi kannski rétt á þeim samkvæmt afar óréttlátri og úreltri reglugerð. Þetta eru þau Kjartan Jóhannsson og Kristín Halldórsdóttir sem þarna hafa forgöngu um eins konar siðvæð- ingu í hinum svoköhuðu biðlauna- málum alþingismanna. Það er ekki víst að þetta fordæmi þeirra njóti hylli samstarfsmanna þeirra á Álþingi. En þama er brautin rudd og auðvitað ættu þeir alþingis- menn sem nýlega hafa þegiö biðlaun en farið í launahærri stö'ður að fara að fordæmi þessara þingmanna. En það er einmitt þetta sem al- menningur á bágt með að þola, að ráðamenn og aðrir þeir sem eiga að sýna fordæmi um heilbrigða hegðan í hagkvæmni, fjármálum og stjórn- visku sneiða oftast nær hjá því góða, sem þeir kannski innst inni vilja gera, og framkvæma það illa sem þeir í upphafi ætluðu ekki. Og biölaunin eru ekki einsdæmi. Ummerkin eru alls staðar í þjóðfélag- inu og umræða almennings heldur áfram á meðan sanngimin og rétt- lætið er boriö ofurhði af oddamönn- um í íslensku samfélagi. Lof um lögregluna A.Ó. hringdi: Margir hafa talað iUa um lögregl- una og það að ósekju. En hvemig væri þjóðfélagið ef ekki væri lögregl- an? - Varla vfldi fólk leyfa þjófnaði, líkamsárásir og innbrot út um allar byggðir óheft og órefsað! Fólk myndi kannski hugsa sig tvisvar um ef það yrði fyrir ein- hverju slíku. Fólk ætti að reyna að setja sig í spor lögreglunnar og reyna að sldlja hvert starf hennar er. - Ég tel aö lögreglan hafi reynst lands- mönnum mjög vel. Það er a.m.k. mín reynsla. Nóg komið, Regína Rafh Amar Guðjónsson hringdi: Það er alveg með ólíkindum, hvað fréttamaður DV, Regína Thorar- ensen, nennir að rugla um máleöti sem koma henni ekkert við. - Mað- ur er löngu orðinn þreyttur á þess- um endalausu skrifum um kirkju- byggingu í Ámeshreppi. Þaö er eins og ekkert sé að gerast í Árnes- hreppi annað en kirkjubygging eða uppbygging þeirrar gömlu. í DV 1S. ágúst er Regína enn á ferð út af kirkjubyggingunni og kallar þann hóp „öldungaráöiö“ sem nánast ráði öUu í hreppnum. - það mætti ætla að Regína hefði gaman af aö ráðast á fólkið í Árnes- hreppi meö þessu endalausa rausi um kirkjubygginguna. Regína, nú er nóg komið! Hættu þessum skrifum um kirkjur og snúðu þér að öðrum fréttum, enda allir orðnir uppgefnir á þessu nema þú sjálf. - Ég er ættaður frá Litlu Ávík, svo aö ég skrifa ekki undir dulnefni! Afgreiðslutími verslana Kristjana hringdi: Ég las í frétt í dagblaði í dag að verslanir í Kópavogi muni framvegis hafa opið á sunnudögum. Þessu fagna flestir neytendur. Þaö hefur verið með ólíkindum aö engar versl- anir skuli hafa verið opnar hér í Reykjavík um helgar í allt sumar nema með höppum og glöppum. - Maður hefur aldrei getað verið ör- uggur um hvar er opiö þennan eða hinn laugardaginn. í versluninni Miklagarði vestur í bæ var opið nokkra laugardaga, síð- an lokað aftur. í Kringlunni er aðeins opið til kl. 14 á laugardögum. Þaö er alltof skammur tími. Fólk vill ein- faldlega geta verslað þegar það sjálft vill, en ekki láta skammta sér tím- ann. - Það væri þá skömminni skárra að loka verslunum á mánudögum fram eftir degi en alls ekki á laugar- dögum, ef þetta byggist allt á því að verið sé að vernda starfsfólk í versl- unum gegn of löngum vinnutíma. Nú hefur Kópavogskaupstaöur tek- ið upp nýbreytni í verslunarháttum og þá er höfuðborgin eini staðurinn á þessu þéttbýla svæði sem heldur í úreltar reglur um afgreiðslutíma verslana. - Hvað ætlar þetta gamal- dags fyrirbæri að standa lengi? Hringið 1 síma 27022 milli kl. 9 og 16, eða skrifið. ATH. Nafn og sfmi verður að fylgja bréfum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.