Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1989, Síða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 23.08.1989, Síða 25
MIÐVIKUDAGUR 23. ÁGÚST 1989. 25 Lifsstm Tröllasúra, öðru nafni rabarbari, er tiltölulega einföld í ræktun. Marg- ir halda eftir horni í garðinum sínum fyrir rabarbararæktunina en sjaldan sjást heOu beðin hér í Reykjavík eins og áður var. Rabarbari þrífst ágæt- lega á norðlægum slóðum og geta smábeð gefið góða uppskeru. Algeng- ast er að búa til grauta eða sultu úr rabarbaranum en hann hentar ágæt- lega í kökur og eftirrétti. Þeir sem ekki rækta sinn rabarbara sjálfir geta keypt hann úti í búð. Verðið á hverju kOói en nú á bihnu 90-100 krónur. t Rabarbarasulta Flestir eiga sína ættaruppskrift að sinni sultu en fyrir þá sem ekki búa svo vel birtum viö eina. í raun er þetta sáraeinfalt, á móti einu kOói af rabarbara eru notuð 900-950 g syk- urs. Rabarbarinn er hreinsaöur, brytjaður smátt, í 2-3 sm bita, og sykrinum stráð yfir. Ef þetta er gert kvöldið áður en sultan er soðin nær rabarbarinn að brjóta sig. Þetta er síðan soðið saman í l'A til 2 tíma. Hlemmurinn er ekki hafður á pottin- um og hræra verður í öðru hverju. Þeir sem vilja hafa sultuna sætari geta bætt við sykri. Sumir sjóða sult- una lengur eða í þrjár klukkustund- ir. Við það verður hún dekkri og of- urlítið seydd. Sultan er sett í hrein glös og þeim lokað þétt. Gott er að sníða smjör- pappír til og setja yfir sultuna. Wmá vT ' 1 9- 1 ‘ ,v. ^S|)w• . Sultukrukkunum er lokað þétt og merktar vel. Rabarbarakryddsulta í fyrra birtum við þessa uppskrift sem lesandi sendi okkur. Hún virðist hafa fallið í góðan jarðVeg og því er hún endurbirt. Hún er frábrugðin þeirri venjulegu að því leyti að hún er krydduð en lítið sæt. Merkið hana sérstaklega svo að hún ruglist ekki saman við hina. 1 kg rabarbari 1 kg laukur Tröllasúra 750 g dökkur púðursykur 1 tsk. pipar inn smátt og rabarbarinn skorinn í tíma og síðan sett í hrein glös og 200 g edik 1 tsk. allrahanda htla bita. Öllum efnunum er blandað þeim lokað þétt. 1 tsk. salt Laukurinn er hakkaður eða skor- saman í pottinn. Sultan er soðin í tvo -JJ Úr rabarbara má gera gómsæta ábætisrétti og kökur. Borið fram volgt með þeyttum rjóma eða ís er kominn veislumatur. Rabarbaragrautur 700 g rabarbari 4 dl vatn 1 dl sykur 2'A msk. kartöflumjöl Miðlungsþykkir stönglar gefa best- an árangur. Þeir grennstu eru full- vatnsmiklir og þeir sverustu eiga þaö tO að vera seigir. Hjá því má komast með því að afhýða þá. Hreinsið rabarbarann og skerið niður í 2 cm langa bita. Sjóðiö Saman vatn og sykur. Setjið rabarbarann saman við og sjóðið þar til hann er meyr. Hrærið kartöflumjölið út í köldu vatni og hehið í pottinn í mjórri bunu. Látið suðuna koma upp og hrærið vel. Helhð strax í skál og stráiö sykri yfir. Berið grautinn fram volgan eða kaldan með rjómablandi. Bragðbæta má grautinn meö 1-2 banönum eða 2 dl af jarðarberjum. Setjið viðbótina saman við grautinn þegar hann er settur í kæli. Rabarbari í formi Notiö nýtínda og stinna stöngla. 700 g rabarbarastilkar 'A-l msk. smjör 1-1 'A dl sykur Hreinsið rabarbarann, skerið í bita og leggið í vel smurt eldfast mót. Stráið sykrinum yfir og leggið ál- pappír yfir. Bakið í ofni við 225° í 15-20 mínútur. Berið fram kalt með þeyttum rjóma eða ís. Bragðbæta má meö því að strá kanil yfir. Þeyttur rjómi eða ís á vel við með rabarbaraböku og rabarbaraformköku Ábætisréttir úr rabarbara Rabarbarabaka Búa má til góða böku eða pæ úr rabarbara. Bakan geymist ágætlega í 2-3 daga í kæhskáp. Einnig má frysta hana, annaðhvort fullbakaða Neytendur eða óbakaða. Deigið 3 dl hveiti .125 g smjör/smjörlöú 2 msk. vatn AUt hráefni er haft vel kalt í byij- un. Hveitið er sett í skál og smjör- ið/smjörlíkið sett í bitum saman við. Hnoðað saman með fingrunum. Vatninu er bætt út í og hnoöað sam- an viö. Látið bíða í kæhskáp i klukkustund. Rúmlega helmingur af deiginu er flattur út og bökumótið er klætt að innan. Fylhngin 500 g rabarbari 1 msk kartöflumjöl 'A-l dl sykur Best er aö blanda sykri og rabar- bara saman nokkrum klukkustund- um áöur en bakan er útbúin. Þá rennur töluvert af vatni frá og bakan verður ekki eins blaut. Blandið sam- an kartöflumjöli, rabarbara og sykri og setjið yfir deigið. Gerið strimla og setjið yfir bökuna. Penshð með eggi og bakið við 225° í 30 mínútur. Berið fram volgt með þeyttum rjóma. Rabarbaraformkaka 250 g smjör/smjörlíki 250 g sykur 4 egg 1 tsk. lyftiduft 300 g hveiti 400-500 g rabarbari 2 msk. sykur 25 g möndluflögur Hrærið saman smjör og sykur, létt og ljóst. Hrærið eggin saman við, eitt í einu. Sigtið hveiti og lyftiduft saman við og hrærið vel. Klæðið aflangt mót með bökunarpappír og helhð hræ- runni í. Skerið rabarbarann í bita og stingið í deigið. Stráið því næst sykri og möndluflögum yfir. Bakið neðarlega í ofninum við 175° í 45 mínútur. Látið kökuna bíða í 10 mínútur í ofninum. Berið kökuna fram volga með þeyttum rjóma. JJ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.