Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1989, Page 6
e;
MÁNtJDAGUR 23. OKTÓBER 1980.
Fréttir________________________________________________________
Fjármálaiáöuneyti Ólafs Ragnars gagnrýnt fyrir blekkingar:
Skattahækkun kynnt
sem skattalækkun
Ólafur Ragnar Grímsson er miklll áróðursmaöur. Hann hefur nú verið gagn-
rýndur fyrir að beita fjármálaráðuneytinu á þann hátt að frá þvi komi mis-
vísandi upplýsingar. DV-mynd KAE
Frá því Ólafur Ragnar Grímsson
settist í stól fjármálaráöherra hefur
ráðuneytið þrásinnis verið gagnrýnt
fyrir vUlandi framsetningu þegar
skatta- og útgjaldabreytingar ríkis-
sjóðs eru kynntar. Nú síðast sendi
hagdeild Vinnuveitendasambands-
ins frá sér greinargerð þar. sem ráðu-
neytið var gagnrýnt fyrir kynningu
á fjárlagafrumvarpi fyrir 1990, eink-
um varðandi virðisaukaskatt og
lækkun á útgjöldum ríkissjóðs að
raungildi. Áður hefur ráðuneytið
verið gagnrýnt fyrir kynningu á
tekjuskattshækkuninni á síðastliðnu
ári, tilkynningar um skattalækkun
vegna hækkunar persónuafsláttar
síðastliðið sumar og fleira.
„Mér finnst ráðuneytið verið farið
aö beita hagfræðinni á vafasaman
hátt þegar menn reikna og reikna
þar til þeir frnna eitthvaö sem þeim
hentar til að setja hlutina fram með
ákveðnum hætti,“ sagði hagfræöing-
ur í stjómsýslunni í samtali við DV.
Við skulum líta nánar á nokkur
dæmi um villandi framsetningu fjár-
málaráðuneytisins í tíð Ólafs Ragn-
ars.
Tekjusamdrátturinn ýktur
Þegar Ólafur Ragnar kynnti fjárlaga-
frumvarpið um daginn sagði hann
að útgjöld ríkisins á næsta ári myndu
lækka um 4 prósent eða um 4 millj-
arða. Þessi tala er fengin með þvi að
framreikna ríkisútgjöld í ár með
hækkun á verðlagi.
Hagdeild Vinnuveitendasam-
bandsins benti á að ekkert fordæmi
væri fyrir slíkum útreikningi. Vana-
lega væru ríkisútgjöld milli ára borin
saman á vísitölu samneyslu. í þeirri
vísitölu vega laun hátt í 70 prósent
en almennt verölag afganginn. Þar
sem reiknað er með umtalsverðri
kjaraskerðingu í forsendum fjárlaga
hækkar þessi vísitala því ekki nema
um 13 prósent á meðan verðlag
hækkar um 16 prósent.
Samkvæmt vanalegri framsetn-
ingu ætti Ólafur Ragnar því að kynna
útgjaldasamdráttinn sem 2,8 prósent
eða um 2,7 milljaröa. Hann ýkti þvi
samdráttinn um 1,7 milljarða.
Tekjulækkun án
skattalækkana
Hagdeild Vinnuveitendasam-
bandsins féll reyndar í þá gryfju að
nota vísitölu samneyslu á tekjumar
einnig og fékk út að fullyrðing Ólafs
Ragnars um að tekjur drægjust sam-
an um 1,5 milfjarða væri röng. Síðar
leiðrétti hagdeildin sig og sagði tekju-
samdráttinn vera 1,3 miUjarða.
En þetta leiöir eftir sem áður hug-
ann að hvernig staðið var að útskýr-
ingum á minni rauntekjum á næsta
ári.
Eins og Qármálaráðuneytiö kynnti
frumvarpið mætti ætla að í því fæl-
ust skattalækkanir. Svo er ekki. Einu
skattamir sem lækka eru eignar-
skattar og bensíngjald. Á móti kemur
að álagning fjármagnsskatta vegur
upp lækkun eignarskatta og gott bet-
ur og bifreiðagjald vegur upp lækkun
bensíngjalds.
Þrátt fyrir minni rauntekjur ríkis-
sjóðs á næsta ári felur fjárlagafrum-
varpið í sér skattahækkanir frá því
sem nú er.
Skýringin á tekjusamdrættinum er
fyrst og fremst sú að vegna skatta-
lækkana, sem ákveðnar vom í
tengslum við kjarasamninga í vor,
em tekjur ríkissjóðs af vörugjaldi og
lántökugjaldi hærri í ár en núgild-
andi skattprósenta gefur tilefni til.
Þegar tekjur áranna 1989 og 1990 em
bomar saman er í raun um 750 milfj-
ónum of mikið á tekjuhliðinni 1989
miðað við núgildandi skattalög.
Önnur skýring á tekjusamdrættin-
um felst í því að á næsta ári er gert
ráð fyrir um 1 tii 2 prósenta sam-
drætti. Hann hefur áhrif á skatt-
stofná ríkissjóðs.
Samkvæmt fjárlagafrumvarpinu
er því gert ráð fyrir þyngri skatt-
byrði frá því sem nú er.
3.1 milljarðs skatta-
hækkun óbreyttar tekjur?
Ein slík skattahækkun felst í því
að í stað 25 prósenta söluskatts kem-
ur 26 prósenta virðisaukaskattur.
Fjármálaráðuneytiö hefur verið
gagnrýnt fyrir kynningu á honum.
í fyrsta lagi sagði ráðuneytið að
framreiknaðar heildartekjur af sölu-
skatti á þessu ári og teKjur af virðis-
aukaskattinum á næsta ári væra
jafnháar. Þetta er í sjálfu sér rétt en
segir í raun lítiö sem ekkert um þær
breytingar sem felast í upptöku virð-
isaukaskattsins.
Þegar tillit hefur verið tekið til að
um 1,4 milljarðar vora greiddir út
úr söluskattskerfmu í ár, að á næsta
ári veröa einungis innheimtir tíu og
hálfur mánuður af virðisaukaskatti
og einn af söluskatti og að búist er
við um 1,8 prósenta samdrætti í
skáttstofnunum þá kemur í Ijós að
skattahækkun virðisaukans er um
2.2 milljarðar og er þá búiö að taka
tillit til lækkunar á jöfnunargjaldi.
Annað sem gagnrýnt hefur verið
við kynningu á viröisaukanum
snertir niðurgreiðslu á nokkrum
vörategundum í gegnum skattkerfiö
til jafiis við að þær bæra 13 prósenta
Fréttaljós
Gunnar Smári Egilsson
virðisauka. Þegar ráðuneytið kynnir
vörulækkun af þessum sökum slepp-
ir það þeirri staðreynd að hefð-
bundnar niðurgreiðslur munu verða
skertar um 700 milljónir að raun-
virði. 1 raun er því ekki verið aö
greiða niður matvörar um 1 milljarö,
eins og ráöuneytið heldur fram, held-
ur er verið að auka þær um 300 millj-
ónir.
Þegar allar þessar breytingar, sem
fylgja upptöku virðisaukaskattsins,
era vegnar saman kemur í fjós að
tekjur ríkissjóös munu aukast um 3,1
milljarð.
Eins og áður sagði kaus ráöuneytið
að kynna þessar breytingar með því
að heildartekjur af söluskatti á þessu
ári væra þær sömu og af virðisauk-
anum á næsta ári.
Er skattahækkun
skattalækkun?
Þegar tekjuskatturinn var hækk-
aöur í fyrra kynnti ráðuneytiö hann
sem lækkun skatta á lægstu tekjur.
DV reiknaði þessar breytingar hins
vegar þannig að miðað við óbreytt
tekjuskattslög fælust töluveröar
skattahækkanir á lægstu laun í
frumvarpi Ólafs Ragnars. Síöar tóku
hagdeildir bæði Alþýðusambandsins
og Vinnuveitendasambandsins und-
ir niðurstöður DV.
Sem dæmi má nefna að ráðuneytið
sagöi aö skattar á hjón með tvö börn
með 130 þúsund krónur á mánuði eða
minna mundu lækka eða standa í
stað. Reyndin var sú að í frumvarp-
inu fólst engin skattalækkun. Ástæð-
an var sú að persónuafsláttur, bama-
bætur og húsnæðisbætur lækkuðu
aö raungildi á sama tíma og skatt-
hlutfallið var hækkað.
Síðar breytti Ólafur Ragnar fram-
varpi sínu í samræmi við þessa gagn-
rýni.
Skerðing persónu-
afsláttar kjarabót?
Eitt af því kostulegasta, sem ráðu-
neytið hefur sent frá sér, er kynning
á hækkun persónuafsláttar, bama-
og húsnæðisbóta síðastliðið sumar.
Þessi hækkun var samkvæmt lögum
en þessar bætur eiga að hækka
tvisvar á ári í samræmi við hækkun
lánskjaravísitölu.
Ólafur Ragnar kynnti þetta hins
vegar sem lið í aðgerðum ríkisstjóm-
arinnar til að bæta hag hinna lægst
launuðu þar sem hækkunin hefði
orðið meiri en menn bjuggust við.
Ástæðan fyrir því var að verðbólga
hafði orðið meiri en sfjómin bjóst
við. Afleiðingar þess urðu að þessar
bætur skertust meira að raungildi
en búist var við.
Það að bæturnar hækkuðu meira
en stjórnin hafði reiknað með lýsti
því ekki bættum hag launþega held-
ur þvert á móti. Sem dæmi má nefna
að í 13 prósenta verðbólgu fá laun-
þegar að jafnaði um 2,5 prósent
skerðingu á persónuafslætti. Ef verð-
bólgan verður hins vegar um 42 pró-
sent verður skerðingin um 7,2 pró-
sent að meðaltali. Aukin verðbólga
þýðir því aukna skattbyrði fyrir
launþegann.
Reyndar minntist Ólafur Ragnar
ekki á að ríkisstjómin hafði skert
persónuafslátt og bamabætur fyrr á
árinu með útgáfu reglugerðar um
nýja lánskjaravísitölu. Ef sú gamla
hefði gilt í júní síöastliðnum hefði
persónuafsláttur hækkað úr 17.842
krónum í 19.906 krónur en ekki 19.419
eins og hann gerði. Mismunurinn er
487 krónur. Launþegar hafa þvi
greitt um 2.922 krónum meira í skatta
á síðustu sex mánuði ársins en þeir
hefðu gert ef lánskjaravísitalan hefði
verið látin óhreyfð.
Lauslega má áætla að þetta hafi
gefið ríkissjóði um 370 milljónir í
auknar tekjur. Ef minni hækkun
bamabóta, bamabótaauka og hús-
næðisbóta er tekin inn í dæmið verð-
ur þessi upphæð mun hærri.
Halli samkvæmt áætlun?
Eins og áður sagði hefur fjármála-
ráðuneytið veriö gagnrýnt fyrir vfil-
andi upplýsingar á undanfómum
misserum. í þeim gögnum, sem það
sendir frá sér, er iðulega stillt saman
samanburði sem gefur ekki rétta
mynd af þeim breytingum sem verið
er að kynna. Ýmsum upplýsingum,
sem gætu varpað Ijósi á þessar að-
gerðir, er hins vegar haldið frá al-
menningi.
En áhersla ráðuneytisins á að ná
fram jákvæðu svipmóti á aðgeröir
og frammistöðu sína getur stundum
orðið brosleg.
Þannig var fyrirsögn ráðuneytisins
á fréttatilkynningu þar sem kynnt
var afkoma ríkissjóðs fyrstu níu
mánuði ársins svona:
„Framkvæmd fiárlaga samkvæmt
áætlun".
Á þeim tíma lá Ijóst fyrir að aUt
stefiidi í um 4,7 milfjaröa halla þrátt
fyrir um 630 milfjóna króna tekjuaf-
gang á fjárlögum.
Sandkom
n sflinn
munuhafabor-
iðuppþátil-
löguábæjar-
stjómarfundi í
síðustuvikuað
forsvarsmenn
Sauðárkróks-
bæjar yrðu fengnir til viðræðna sem
í sjáJfu sér’er ekkert merkilegt Á
fundínum mun eiga að ræöa ýmis
samskipti bæjanna og það mun hafa
komiö fram á fúndinum á Sigló að
nú væri rétt aö íá úr því skorið í eitt
skiptifyriröllhvort Sauðárkróks-
búar haldi að nafli alheimsins sé
virkilega þar. Þessi málflutningur
bendir að sjálfsögðu ekki til annars
en að kratar á Siglufirði telji Sauðár-
króksbúa álita að svo sé. Oft hefur
verið talað um ríg á milli þessara
bæjarfélaga og því er ekki úr vegi
fyrir Siglflíðinga að fá að vita hvar
þeir hafa „Krókana“.
Nennti ekki
Þingeyingar,
ogþarmeð
taldir Húsvík-
ingaraðsjálf-
sogöu.eru
tilverunaog
sjalfasigems
______________ ogallirvita.
Víkurblaðið á Húsavík skýrði frá því
aö Húsvíkingur nokkur, sem staddur
var í höfuðborginni á dögunum, hefði
haldiö á Kjarvalsstaöi og séð þar
málverkasýningu Steöns Axels
Valdimarssonar sem er frá Húsavík.
Húsvikingurinn var í skýjunum eftir
að bafa skoöaö sýninguna en hann
lét þess jafhframt getiö að f næsta sal
hefði einhver maöur frá Frakklandi
verið að sýna smámyndir en Hús-
vikingurinn sagðist ekki hafa nennt
þangað inn. - Við þetta erlitlu að
bæta öðru en því aö maöurinn meö
litlu myndirnar í næsta sal var eng-
bin annar en sá heimsfraígi Erro.
Péturfrá
Grænlandi
Bandaríski
körfúknatt-
leiksþjálfarirm
PatRQey.sera
hefurstýrtliöi
LosAngeles
Lakers undan-
farinároggert
körfuknattleiksbði heims, befur
eirmig fengist viö ritstörf og m.a.
skrifað bókina „Show-time“ þar sem
hann ræðir gang mála hjá Lakers
heiltkeppnistímabil. Þettamun ein-
mitt hafa verið keppnistímabiUð þeg-
ar Pétur Guðmundsson fór til liösin,
og eyðir Riley nokkrum línum r aö
segja frá Pétri. Hann virðist þó ekki
vera mrkið meö hugann við Pétur eða
muna mikið um hann þ ví hann segir
í bókinni að þessi hávaxni köríu-
boltamaður sé frá Grænlandi! Riley
segir að Pétur hafi ekki staðið undir
þelm vonum sem við hann voru
bundnar, hafi kiknaö undan meiösl-
um á æflngu og brotnað niður við
Margrét
Blöndal, út-
varpsmaðurá
Akureyri.er
hessilegshilka
oglæturýmis-
legtskemmti-
legt fhrkkajx'g-
__ arþaðávið.
Hún vár fýrlr helgina að lesa úr Degi
í morgunútvarpinu á rás 2 og sagði
þá frá því aö byrjað væri aö vefja
jólatrén fyrir Norðlendinga. Starfs-
bræöur hennar fýrir sunnan höfðu
sem avo að það væri þá vístekki
seinna vænna að fara aö óska Norö-
lendingum gleöllegra jóla. Margrét
lét ekkert vaða ofán í sig og svaraöi
samstundis meö því að óska Reykvfk-
ingum enn einu sirrnl gleðilegs sum-
ars! -Gotthjá þeirri stuttu, a.m,k.
finnst okkur á Noröurlandinu þaö
vcðurfareiiis þótt við vomrm auð vit-
aðvfðafaJhugaðrigningumri,sem
ívor.fárinúaðlinna.
Um»j6n: Gylfi KrM|ÉI#idl|