Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1989, Qupperneq 7
MÁNyDAGUR 23. OKTÓBER 1989.
7
Fréttir
Dýrasti dagurinn í Laxá á Ásum kostar 165 þúsund næsta sumar:
Keypti mánuð næsta sumar
„Laxá á Ásum hefur alltaf heillað
mig og ég hef oft veitt í ánni gegnum
árin. Fyrir fáum dögum hringdi ég í
ákveðinn bónda við Laxá. Spurði um
veiðileyflð sem ég hef haft í mörg ár,
en þá tjáði hann mér að allur júlí-
mánður væri seldur sama mannin-
um. Verðið fyrir stöngina væri 165
þúsund á dag,“ sagði einn af þekkt-
ari stangaveiðimönnum landsins. En
svo virðist sem einn og sami aðilinn
hafi keypt heilan mánuð í Laxá á
Ásum næsta sumar. Fyrir stöngina
eru greiddar 165 þúsund, sem þýða
um 4,5 milljónir í þessari dýrustu
veiðiá landins. En veitt er á tvær
stangir í Laxá á Ásum. Heimildir DV
segja að íslendingur hafi keypt þenn-
an mánuð fyrir erlendan veiðimann
sem oft hefur veitt hérlendis. Þessi
útlendingur er einn af þeim ríkari í
heiminum. Hann hefur meðal annars
veitt í veiðiá á Mýrum. „ Ég reyndi
að fá mér dag í Laxá á Ásum fyrir
nokkru en það fékkst ekki, ailur
tíminn var búinn sem ég vildi,“ sagði
anneir fengsæll veiðimaður og bætti
við: „Tíminn sem hægt var að fá var
ekki góður.“
DV heyrði fleiri veiðimönnum sem
höíöu sömu sögu að segja og þessir
veiðimenn, besti tíminn í ánni er
seldur. Bændur skipta dögunum á
milli sín eftir stærð jarða sinna en
sömdu saman um þessa leigu. Enda
er gott að losna við heilan mánuð á
einu bretti á veiðileyfamarkanum
núna. -G.Bender
Rýrt veiðisumar: *
Hver lax
kostaði 16
þúsund
Veiðisumarið, sem nýlokið er, var
ekki gott en ails veiddust 30.000 þús-
und laxar á stöng. Best var Laxá í
Kjós með 2126 laxa, en næstar komu
Elliðaárnar með 1763 laxa. Þessi veiði
er svipuð og sumrin 1980 og 1983.
En veiðimenn eyddu miklu meira
í veiðileyfi núna en þá. Samkvæmt
könnun, sem DV hefur gert, borguðu
veiðimenn um 480 milljónir í veiði-
leyfi fyrir sumarið. Það þýðir að hver
lax hefur kostað um 16 þúsund ef við
tökum meðaltalið. En laxinn verður
auðvitað dýrari eftir sem fleiri stang-
ir eru leyfðar í ánum og veiðileyfin
eru dýrari. -G.Bender
Safnað fyrir
sjúkrabifreið
Júlía Imsland, DV, Höfn:
Vetrarstarf Rauða kross deildar
Austur-Skaftafellssýslu er hafið af
fullum krafti. Helsta verkefni deild-
arinnar er nú kaup á nýrri sjúkrabif-
reið til að bæta úr brýnni þörf því
að sjúkrabifreiðin, sem fyrir er, er
komin til ára sinna og ekki lengur
það öryggistæki sem þörf er á og
hægt er að treysta á.
Starfsfólk og félagar Rauða kross
deildarinnar munu á næstu dögum
fara á hvert heimili í sýslunni til fjár-
öflunar og eins verður leitað til fyrir-
tækja og félagasamtaka.
Bifreiðin, sem kaupa á, er Ford
Econoline, fjórhjóladrifin og búin öfi-
um nauðsynlegum hjálpartækjum.
Gangi allt samkvæmt áætlun á bif-
reiðin aö vera tilbúin til afhendingar
um næstkomandi áramót.
í4,r4,BR0SUM/
UUMFERQ&R f // •c 09
alllgengurbelur * ^
Erlendur veiðimaður vippar 5 punda laxi upp úr Laxá á Ásum i sumar en I Sími.......................
útlendingar virðast ætla að fjölmenna til veiða í ánni næsta sumar. ; —Bi
DV-mynd G.Bender
rvú fást
heimslns bestu
pizznr einnig
í Kringlunni
Vegna mikilla vinsælda Pizza Hut
bjóðum við nú einnig upp á pizzurnar okkar
í Kvikk í Kringlunni. Pizza Hut í Hótel Esju
verður að sjálfsögðu áfram á sínum stað.
Pizza Hut Kringlunni og Hótel Esju, sími 68 08 09.