Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1989, Side 29
MÁNUÐAGUR 23. OKTÓBER 1989; ,
29
Iþróttir
Heimsmeistaramótið í júdó:
Bjarni í fremstu röð
„ippon“ og tapaði naumlega gegn verðlaunahöfum
- lagði þrjá á
Bjami Friðriksson sýndi og sann-
aði að hann er enn í hópi bestu júdó-
manna heims í -95 kg flokki þegar
hann hafnaði í 7. sæti á heimsmeist-
aramótinu sem fram fór í Júgóslavíu
dagana 10. til 15. október.
Bjarni vgnn fullnaðarsigur, „ipp-
on“, á þremur andstæðingum sínum,
og sá fjórði, Sugai frá Japan, gaf glím-
una gegn honum um 7. sætið. Það tók
Bjarna aðeins 48 sekúndur að sigra
Bastos frá Portúgal með fallegu
bragði, „curikomi goshi“. Áður hafði
hann lagt Tripp frá Bandaríkjunum
á „wazari“ í glímu sem stóð yfir í 3
mínútur og 45 sekúndur.
í þriðju glímu mætti hann Evrópu-
meistaranum Kurtanidze frá Sovét-
ríkjunum og var þeim sovéska
dæmdur sigur eftir harða fimm mín-
útna baráttu. Þá fór Bjarni beint í 2.
umferð uppreisnarglimu og vann þá
einn þann besta í heimi í þessum
þyngdarflokki, Tae-Kyi frá Suður-
Kóreu. Bjami náði undirtökum
smám saman og neyddi þann kór-
eska til að gefast upp með armlás
þegar aðeins níu sekúndur voru eftir
af glímunni.
í næstu glímu mætti Bjarni silfur-
verðlaunahafanum frá síðustu
ólympíuleikum, Meihng frá Banda-
ríkjunum. Það var hörð keppni en
Meiling fékk færri refsistig og var
því dæmdur sigur að fimm mínútum
liðnum. Meihng hlaut síðan brons-
verðlaun.
Michal Vachun, hinn tékkneski
landsliðsþjálfari Islands, sendi frá
sér greinargerð um frammistöðu
Bjarna og hrósaði honum fyrir
frammistöðuna. Vachun segir þar að
Bjami hafi komið sér á óvart í báðum
tapglímunum með því að hafa góða
stjórn á hraðanum og í báðum tilfell-
um hafi hann þreytt andstæðinginn
mjög. Það hafi ekki síst verið vegna
þess að Bjarni hafi verið búinn að
gera sér grein fyrir því að hann væri
ekkert síðri en þeir bestu.
í Belgrad var í fyrsta skipti keppt
eftir nýjum keppnisreglum Alþjóða
júdósambandsins. í þeim er tvöfalt
uppreisnarform, eins og á Evrópu-
meistaramóti, og auk þess keppni um
sjöundasætið. -VS
• Þróttur varð fyrir skömmu Reykjavíkurmeistari í blaki kvenna eins og
áður hefur komið fram. Þróttarstúlkurnar eru hér með verðlaun sín - aft-
ari röð frá vinstri: Steina Ólafsdóttir, Huld Aðalbjarnardóttir, Sólveig Kjart-
ansdóttir, Linda Jónsdóttir, Jia Changwen þjálfari. Fremri röð: Edda Njáls-
dóttir, Metta Helgadóttir og Aðalheiður Sigurðardóttir. Á myndina vantar
Snjólaugu G. Bjarnadóttur fyrirliða, Unni Gígju Gunnarsdóttur, Elínu Krist-
mundsdóttur og Guðrúnu Kristmundsdóttur. DV-mynd S
• Sigurvegarar á Aloha-mótunum ásamt aðstandendum. Frá vinstri: Jón
Pétursson, sigurvegari með forgjöf, Friðrik Brekkan, markaðsstjóri Evrópu-
ferða, Ágúst Húbertsson, framkvæmdarstjóri Keilis, og Sveinbjörn Björns-
son, iiðsstjóri A-sveitar Keilis.
Björgvin og Jón
fara til Portúgal
- urðu efstir í Aloha-mótunum
Nýlega fór fram 5. og síðasta Alo-
ha-styrktargolfmótið á Hvaleyrar-
velli í Hafnarfirði. Þessi mót hafa
verið til styrktar A-sveit golfklúbbs-
ins Keihs sem tekur þátt í Evrópu-
keppni meistarahða í golfi á Spáni í
nóvember.
Sigurvegarar eftir þetta 5. mót, þar
sem 3 bestu skorin voru látin gilda,
voru þeir Björgvin Sigurbergsson,
GK, sem sigraði án forgjafar og Jón
Pétursson, GG, sem sigraði með for-
gjöf. Glæsileg verölaun voru í boði
eða þátttaka í opnu golfmóti áhuga-
manna sem fram fer í Portúgal dag-
anna 25. nóvember til 2. desember
og fara þeir Björgvin og Jón á þetta
mót.
A-sveit Keilis, sem tekur j)átt í Evr-
ópukeppninni, skipa þeir Ulfar Jóns-
son, Sveinn Sigurbergsson og
Tryggvd Traustason. Liðsstjóri sveit-
arinnar er Sveinbjöm Bjömsson.
GH
Jón Hjaltalín Magnússon, formaður HSÍ:
Tæpur hálfur milljarður
- er áætlaður byggingarkostnaður við flölnota vörusýningahöll
Jón Hjaltalín Magnússon, for-
maður Handknattleikssambands
íslands, hefur sent frá sér eftirfar-
andi fréttatilkynningu:
Nú er rúmt ár síðan þing Alþjóða
handknattleikssambandsins, hald-
iö í Seoul, fól íslandi að halda 14.
Alheimsmeistarakeppnina í hand-
knattleik árið 1995. Forsenda fyrir
þessari ákvörðun þingsins í Seoul
var að fyrir lá yfirlýsing frá ríkis-
stjórn íslands þess efnis að fyrir-
hugaö væri að byggja fjölnota
vörusýninga-, ráðstefnu- og
íþróttahús fyrir um 7000 áhorfend-
ur, sem yrði tilbúið í tæka tíð fyrir
keppnina.
Sérstök undirbúningsnefnd hef-
ur starfað á vegum HSÍ að skipu-
lagningu keppninnar árið 1995 og
er m.a. ráðgert að hefja opinbera
samkeppni um merki heimsmeist-
arakeppninar núna í nóvember.
Því markmiðið er að nýta þessa
keppni hér á íslandi sem best til
landkynningar fram yfir sjálfa
keppnina, um þjóð okkar og land,
menningu og atvdnnulíf, útflutn-
ingsvörur og ferðaþjónustu.
Nokkrar umræður hafa verið í
fjölmiðlum um byggingu fyrir-
hugaðrar íjölnota vörusýninga-
hallar, sem háttvdrtur mennta-
málaráðherra staðfesti vdð heim-
komu landshðsins frá heimsmeist-
arakeppninni í Frakklandi í vor að
hann myndi beita sér fyrir að byggð
yrði, og staðfest loforð fyrri ríkis-
stjórna Steingríms Hermannsson-
ar og Þorsteins Pálssonar um
stuðning vdð að halda keppnina á
íslandi og eflingu ferðaþjónustunn-
ar. Einhvers misskilnings vdrðist
gæta í umfjöllun um fyrirhugaða
byggingu þessarar fjölnota vöru-
sýningarhahar þegar talað er um
„einhveija handboltahöh fyrir
þessa einu heimsmeistarakeppni
sem muni kosta um einn mihjarð
króna.“
Stjórn HSÍ vdh því upplýsa að í
ársbyijun 1988 var gerð lausleg
kostnaðaráætlun um byggingu á
hagkvæmu 8000 fermetra fjölnota
sýningarhúsi, sem tæki um 7000
manns í sæti. Kostnaðaráætlun
þessi var miðuð vdð „staðlaöan
byggingarkostnað menntamála-
ráðuneytisins um byggingu skóla-
íþróttahúsa", sem þá var um 40
þúsund krónur á fermetra, eða um
320 milljónir fyrir 8000 fermetra
hús. Framreiknað til dagsins í dag,
er þessi byggingarkostnaður um
460 milljónir króna.
HSÍ hefur nýlega verið kynnt
kostnaðaráætlun vdrts íslensks
verktakafyrirtækis í byggingu 8000
fermetra flölnota sýningarhúss
sem tæki um 7000 áhorfendur í
sæti. Kostnaðaráætlunin hljóðar
upp á 470 milljónir króna. Þess skal
getið að af þessum 470 mihjón
króna byggingarkostnaði eru um
90 mihjónir greiðslur á söluskatti
og tollum í ríkissjóð, fyrir utan
launaskatt þeirra sem að bygging-
unni starfa.
Þessi byggingarkostnaður er
einnig í samræmi vdð byggingu 2500
fermetra íþróttahúss í Kaplakrika
í Hafnarfirði, sem tekur um 2500
áhorfendur í sæti. Byggingarkostn-
aður þessa húss er um 150 mihjón-
ir króna, eða um 60 þúsund krónur
á fermetra. Miðað vdð þessar tölur
myndi 8000 fermetra fjölnota hús
kosta um 480 mhljónir.
Þá eru þessar kostnaðaráætlanir
í fuhu samræmi vdð byggingar-
kostnað á samsvarandi ijölnota
sýningarhúsum í Finnlandi og
Noregi.
Undirbúningsnefnd HSÍ hefur
verið í sambandi vdð aðha á svdði
ferðaþjónustu og áætlar að þetta
nýja fjölnota , sýningarhús, sem
nota má th alþjóðlegra vörusýn-
inga, ráöstefna, popptónleika og
íþróttamóta muni draga hingað th
lands minnst fimm þúsund erlenda
ferðamenn á ári. Aætlaðar gjald-
eyristekjur af þeim eru um 400
mhljónir króna á ári. Á tíu árum
er því gert ráð fyrir um 4 milljarða
króna gjaldeyristekjum af því að
reisa þetta fjölnota sýiíingarhús.
Þess skal getiö að áætlaðar gjald-
eyristekjur af heimsmeistara-
keppninni í handknattleik á íslandi
árið 1995 eru um 300 milljónir
króna.
Áætlaðiu- endingartími íjölnota
sýningarhúsa er um 100 ár, með
hefðbundnu vdðhaldi. Því má leika
sér að því að áætla gjaldeyristekjur
af þessu húsi á þeim tíma.
Jón Hjaltalin Magnússon,
formaður HSI
Kriutján Bemburg, DV, Belgíu:
Öh spænsku dagblöðin kalla
hohenska landshðsmanninn
Ronald Koeman, sera leikur með
spænska stórhöinu Barcelona,
„Snjódríftma“.
Þessi nafngift hefur valdið hol-
lenskum blaðamönnum miklum
hehabrotum en nú er loks komin
skýring á nafhinu. í stærsta dýra-
garðinum í Barcelona er stór og
mikih górihuapi og hefur hann
um árabh verið nefhdur „Snjó-
drífan“. Sjálfur segir Koeman um
þessa nýju nafngift „heppinn er
égað kunnahtið í spænskunni“.
• Preben Elkjær i búningi Lo-
keren.
Elkjær í
sjónvarpið
Kristján Bentbuxg, DV. Belgiu:
Fyrrverandi landshðsmiöherji
Dana í knattspyrnu, Preben Elkj-
ær, sem áður fyrr lék með Loker-
en hér í Belgíu, er nu oröinn þul-
ur hjá danska sjónvarpinu. Hann
var á leik Anderlecht og Barce-
lona í Evrópukeppninni og lýsti
haim leiknum beint th Dan-
merkur. Tveir danskir landshðs-
menn léku á velhnum, þeir Mic-
hael Laudrup sem leikur með
Barcelona og Hendrik Andersen
sem leikur með Anderlecht.
• Höröur Theodórsson.
Hörður
bestur
í hófi sem knattspyrnudehd ÍR
hélt nýlega var Hörður Theodórs-
son valinn knattspyrnumaður
ársins 1989. Hann fékk Esso bik-
arinn th varðveislu í eitt ár ásamt
eignargrip. Hörður er þriðji leik-
maðurinn hjá ÍR sem fær Esso
bikarinn, en Olíufélag íslands gaf
bikarínn.
GH