Dagblaðið Vísir - DV - 23.10.1989, Qupperneq 40
40
MÁNUDAGUR 23. OKTÓBER 1989.
Sviðsljós
Ólyginn
sagði...
Mick Jagger
hefur hingað til ekki verið álitínn
besti pabbi í heimi. Um daginn
sýndi hann þó ótrúlega gjafmildi
og gaf hinni 17 ára gömlu dóttur
sinni, Jade, glæsilega íbúð á besta
stað í London. Ekki var nóg með
að Jade fengi íbúðina að gjöf held-
ur fyllti Mick hana af dýrmætum
húsgögnum og málverkum. Gjöf-
inni fylgdi þó eitt skilyrði, það er
að Jade héldi sig frá strák nokkr-
um sem hún hefur verið að dingla
með og hefur verið orðaður við
eitulyfjaneyslu. Ætli sá gamli sé
að reyna að gleyma hvernig hann
hagaði sér hér á árum áður.
Michael J. Fox
sannaði ekki alls fyrir löngu að
hann er besta skinn. Foreldrar
hans áttu 37 ára brúðkaupsaf-
mæli og í tilefni af því gaf Mic-
hael þeim peninga svo þau gætu
farið í aðra brúðkaupsferð til
Evrópu. Það var ekkert verið að
spara því sá stutti gaf foreldrum
sínum nær 2 milljónir íslenskra
króna tíl að skvetta úr klaufun-
um fyrir. Ólyginn vildi óska að
ailir foreldrar ættu slíkan son.
Tiffany
hefur nú vingast við móður sína
á nýjan leik. Dömunni líkaði ekki
að móðir hennar væri eitthvað
að skipta sér af einkamálum
hennar. Hún dró hana því fyrir
rétt og rétturinn skipaði móður-
inni að vera ekki í augsýn dóttur-
innar. En allt í einu fór Tiffany
að sakna þeirrar gömlu og sló á
þráðinn til hennar og bað hana
að sættast við sig. Mamman sagði
já og nú er hún daglegur gestur
hjá dótturinni. Vonandi að það
vari sem lengst, því stelpan er
enn á skólaaldri og veitir ekki af
móðurlegum ráðleggingum.
Kringlukráin:
Skiptir nm
eigendur
Þegar bjórinn var leyfður 1. mars síðastliðinn var Kringlukráin ein þeirra
kráa sem opnuð var í Reykjavík af þessu tilefni. Kringlukráin er 1 Kringl-
unni 4. Nýlega urðu eigendaskipti. Fyrrverandi eigendur, sem aldrei ætluðu
sér að reka staðinn lengi, seldu krána þeim Áma Gunnarssyni .og Sigþóri
Sigmjónssyni. í tilefni eigendaskiptanna var haldið mikið hóf fyrir vini og
velunnara nýju eigendanna og voru myndimar teknar í því tílefni.
Gestirnir skemmtu sér konunglega og hér taka þeir lagið við undirleik
Ólafs B. Ólafssonar harmóníkuleikara.
Það er ekki annað að sjá en þeim Árna Gunnarssyni og Sigþóri Sigurjón-
syni, hinum nýju eigendum, farist barstörfin vel úr hendi.
DV-myndir GVA
liza Minnelli:
Það er erfitt að finna góðan
mann, meira að segja fyrir hæfi-
leikamikla og ríka konu á borð við
Lizu MinneUi. Að sögn tókst henni
þó loks í þriðju tilraun að finna
rétta manninn, Mark Gero.
„Hann er enginn draumaprins
ungrar og framagjamrar stúlku
eins og ég var þegar ég var ung en
hann er réttí maðurinn fyrir mig í
dag.
I bytjun er hugsunin á þá leið að
draumaprinsinn verði aö vera klár,
ríkur, skemmtílegur, fallegur og
danselskur," segir MinnelM.
„Nokkrum árum síðar hugsar
maður að þaö sé nú ekki nauðsyn-
legt aö hann kunni að dansa. Enn
síðar að hann þurfi ekki að vera
fallegur. Að lokum er svo hugsunin
sú aö það sem máli skipti sé að til-
vonandi mannsefhi sé góður mað-
ur.
Það tók mig þrjú hiónabönd að
I dag er Uza Minnelli hamlngjusöm fjörutfu og þrlggja ára gömul kona.
Á innfelldu myndinni er hún með eiginmanninum Mark Gero.
uppgötva þessa staðreynd en að
lokum fann ég manninn sem ég
ætla mér að eyöa ævinni með.“
Minnelli og Mark Gero hafa nú
verið gift í tíu ár. „í skemmlana-
bransanum er það sama sem sjötíu
og fimm ár. Auövitað höfum viö
átt okkar slæmu stundir eins og öll
önnur hjón, sérstaklega þegar
hann vann einnig við skemmtana-
iðnaðinn en eftir aö hann hætti því
og gerðist myndhöggvari hefur
samband okkar orðiö betra meö
hverju árinu.“
Lífiö fer vel með Lizu Minnelli
þessa dagana. Hun hefur nýlokiö
viö að feröast um heiminn meö
Frank Sinatra og Sámmy Davis
yngri. Þetta var mikil sigurfór fýrir
þau, alls staðar uppselt. Þá söng
hún inn á plötu með Pet Shop Boys
sem fór inn á breska vinsældalist-
ann. Hún getur samt ekki gleymt
gömlu villtu dögunum þegar hún
treysti á vín og pillur:
„Ég tók ekki minn fyrsta valíum-
skammt með það í huga að ánetjast
þvf. Ég hef aidrei verið haldin
neinni sjálfseyðingarhvöt en marg-
ir héldu það. Þótt mér fyndist allt
vera á móti mér og lífið tilgangs-
laus langaöi mig aldrei til að deyja.
Pilluátið fór fijótt út í öfgar, ég
þurfti að taka pOlu til að geta sofn-
að og ég þurftí að taka pillu til aö
geta haldið mér vakandi og þessu
skolaöi ég niður með vini. f byrjun
leið mér mjög vel en meö tímanum
fóru piUumar að hafa öfúg áhrif
og þá var of seint að hætta.
Ástand mitt varð verra og verra.
Ég gat ekki komið mér út úr rúmi
í fleiri daga og afsakaði þaö fyrir
sjálfri mér með aö telja mér trú um
að ég væri með lungnabólgu.
Þegar það svo rann upp fyrir mér
að ég væri orðin fikniefiianeytandi
og áfengissjúklingur lá viö að ég
yrði fegin. Ég hlaut að hafa þetta í
blóðinu. Móðir mín var áfengis-
sjúklingur, ég var aðeins haldin
sömu veiki og hún. Þessi blekking
mín varaði í nokkum tima enda
var það 1 tísku í mínu umhverfi á
áttunda áratugnum að taka inn
fíkniefni. Ekkert sem ég gerði þótti
skrýtið. Það gerðu þetta allir aör-
ir.“
Þaö tók Lizu Minnelh langan
tíma að komast yfir piUu- og áfeng-
isfiknina og segir hún aö eigin-
maöurinn hafi verið sá sem hún
treysti á. „Enginn getur gengið i
gegnum slík án þessa að treysta á
aðra manneskju sem er alltaf tU
staðar þegar mest á ríður."
Uza Minnelli er dóttir frægra for-
eldra. Móðir hennar var Judy Gar-
land, stjaraa sem varð áfengi og
pfilum að bráð. Faðir hennar var
svo hinn þekkti leikstjóri, Vincent
Minnelli „Faðir minn var dásam-
legasti maður sem ég hef kynnst,
hann gaf mér drauma og það var
hann sem sagði mér að giftast Mark
Gero. Síöustu orðin, sem hann
sagði viö mig, voru: „Liza, þú hefúr
ekki ennþá komist undir yfirborðið
á sjálfri þér." Hann hafði rétt fyrir
sér, það á mikiö eför að koma upp
á yfirboröið af sjálfti mér.“
Bob Hope
krýnir ungfrú
Kína
Bob Hope gerði sér ferð til Taiwan
fyrir helgi til að krýna ungfrú Kína.
Ekki er víst að stjómvöld á megin-
landi Kína samþykki Anitu Wang
sem fuUtrúa sinn en Taiwan er að-
skfiið frá meginlandinu og er búiö
að vera það lengi. Kínveijar, sem þar
búa, halda sína fegurðarsamkeppni
árlega og krýna ungfrú Kína hvað
svo sem meginlandsbúar segja. Á
myndinni sést Bob Hope taka í hönd
Anitu Wang. Á mfili þeirra stendur
sú sem varð í öðm sætí.
Símamynd Reuter