Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1989, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.1989, Blaðsíða 13
LAUGARDAGUR 4. NÓVEMBER 1989. 13 w'm.itWmZ* *» w*. !**• 'rn !»** * j Húmar að hausti Rigningin er köld og bíllinn hikstar í startinu. Þaö er dimmt á morgn- ana á leiðinni í vinnuna og þaö er dimmt á kvöldin á leiðinni úr vinn- unni. Kollurinn á Esjunni er hvítur og næðingurinn á götuhomunum bítur frá sér. Maður gengur ekki lengur á jakkanum milli húsa. Það er komið haust. Sumarið er horfið í höfuðborgirmi áður en það kemur og næturfrostið hefur tekið við. Jólin era á næsta leiti og enn eitt árið horfið út í buskann. Það er vist alveg sama hvað mað- ur streitist við og treinir sér dag- ana. Timinn líður og hringrás tungls og sólar verður ekki stöðv- uð. Lífið hefur sinn gang. Við erum orðin einu árinu eldri og einn dag- inn birtist jarðarfarartilkynning um jafnaldrann. Gamlir skóla- bræður týna tölunni og það jafnvel löngu áður en ráðrúm gefst til að hitta þá aftur. Það er sem sagt kom- ið haust áður en við vitum af. Tíminn hefur horfið, árin eru orðin fleiri, lífið hefur tekið sinn toll. Öll erum við önnum kafin við að halda lífi og búa okkur undir efri árin þar sem við yljum okkur við minningamar og rifjum upp fyrri kynni. En allt í einu eru þeir horfn- ir sem minningunum tengjast og það er komið haust á æviskeiðinu. Rétt eins og haust árstíðanna sem kemur of snemma og löngu áður en sumarið er á enda. Lögmál náttúrunnar Þetta er í rauninni hálfóhugnan- legt þegar maður hugsar um það. Ég sem ætlaði að njóta sumarsins, beið eftir góða veðrinu og hafði hlakkað til að hitta samferðamenn- ina til að hlæja ofurlítið að beraskubrekunum, rifja um gömlu ævintýrin og læra af reynslunni. Satt að segja hefur maður verið að búa sér í haginn alla tíð, safnað og sparað, hugsað og hlustað, vaknað og sofnað, til þess eins að komast á þann aldur að geta haft það gott. Beðið eftir sumarfríinu í Iífinu, beðið eftir að rifia upp gömul kynni og njóta þroskans. Svo kemur dánartilkynningin og ævintýri æskuáranna verða að gjalti í dauðs manns gröf. Enginn hirðir um þau. Þroskinn kemur að engum notum og hvers virði verð- ur reynslan þegar menn deyja frá henni og fá aldrei notið hennar? Hvað varð um sumarið og ævina sem hafði beðið okkar þegar haust- ið er allt í einu komið og jafnvel endalokin sjálf? Er það okkur sjálf- um að kenna að hafa þannig misst af fyrirheitnu framtíðinni? Eða er þetta bara lífsins gangur, örlög allra manna í tímans rás? Ævilokin gera ekki boð á undan sér frekar en haustið. Þau berja að dyrum með þvi næturfrosti og næðingi sem lögmál náttúrunnar> franíRalla. Berja að dyt%m og ganga óboðin og óvelkomin í stofu, hrifsa til sín sumarið og lífið og blómin fölna í garðinum og visna upp. Deyja. Næsta vor spretta ný blóm og nýir geislar heliast inn á stofugólf- ið, en það eru ekki sömu blómin og sömu geislarnir og voru þar í fyrra. Ný kynslóð tekur við og anar áfram út í lífið með fangið fullt af fyrirheitum og framtíð, án þess að hafa hugmynd um þau blómin sem lukust upp á þessum sama stað fyr- ir ári. Og engan viröist varða um þau og nýja kynslóðin ypptir í mesta lagi öxlum og kærir sig koll- ótta um sumarið sem leið. Þá er það of seint Já, haustið kemur fyrr en við ætlum. Það er kannski þess vegna sem við eigum að hætta að láta hverjum degi nægja sína þjáningu og lifa meðán við lifum. Situr ekki starfsfélagi þinn í næsta herbergi með kransæðastíflu eða snert af hjartaslagi? Er ekki nágranni þinn farinn á hausinn með fyrirtækið? Eru ekki hjónin í götunni að selja húsið og skilja að borði og sæng? Fólk á miðjum aldri, fólk sem allt hefur verið upptekið við að koma sér upp húsi og fiölskyldu og þæg- indum og hefur verið að búa sér í haginn? „Við þurfum endilega að fara að hittast, gömlu félagamir, og taka glas saman,“ segir góðvinurinn frá því í gamla daga, hálfsköllóttur, vinnulúinn og taugaveiklaður í út- liti. „Næst þegar við höfum tíma,“ bætir hann við og er svo rokinn út í lífsbaráttuna á ný, rétt eins og hann er búinn að gera undanfarin tuttugu, þrjátíu ár. Á þönum úr vinnunni, í vinnuna. Með fullt hús af börnum og konu sem er virðuleg og ráðsett og vinnulúin líka. Þau hafa alla tíð verið á leið í sumarfrí- ið áður en hausta tekur en ekki mátt vera að því. Krakkarnir ganga fyrir, skuldirnar, vinnan, dagurinn á morgun, sem er fullur af vanda- málum sem þarf að leysa. Og árin Uða og vandamálin vilja ekki burtu. Krakkarnir stækka og skuldirnar vaxa og enginn hefur tíma til að taka sér frí meðan sum- arið stendur, enda kemur sumar eftir þetta sumar og svo eru menn að búa sér í haginn til aö njóta þroskans og reynslunnar og geta um fijálst höfuð strokið. Þá ætla þeir að endurnýjaogömlu vináttu- böndin og setjast niður með glas og rifia upp það sem á dagana hefur drifið og njóta húmsins að hausti. Þá, en ekki fyrr, þá kemur uppsker- an í ljós og þá er hvíldin tímabær. En þá er það orðið of seint. „Næst þegar við höfum tírna," segir röddin í hasti og þessi kunn- uglega kveðja hverfur út í umferö- ina og marmfiöldann sem gengur álútur út stéttina með allar heims- ins áhyggjur á herðunum. Enda engin furða. Gjaldþrotin eru aug- lýst í hundraöatali, reksturinn er á kúpunni og fiöldauppsagnir eru til- kynntar í fréttunum, hkt og þegar sagt er frá því hversu mörg lömb eru leidd til slátrunar í Sláturfélagi Suðurlands. Hver er næstur í röð- inni? Var það sem ég heyröi að gamh kunninginn hefði misst starf- ið eftir aldarfiórðungs þjónustu? Börnin eru að vísu uppkomin, hús- ið á sínum stað og hjónabandiö stendur enn. En hvar var lífsstarf- ið? Hvar var afraksturinn af reynslunni sem þessi maður hefur aflað sér til efri áranna? Var þá þetta allt saman unnið fyrir gýg? Kompás brauðstritsins Þetta er drungalegt haust og stjómmálamennirnir horfa al- vörugefnir í gaupnir sér og tala um aðildina að Evrópubandalaginu og virðisaukaskatt og hallann á ríkis- sjóði. Hallinn í fyrra var meiri en halhnn í ár, segja stjórnarsinnar og gera hlé á máh sínu meðan fagn- aðarlátunum hnnir. Halhnn í ár verður meiri en hallinn í fyrra, segja stjórnarandstæðingar sigri- hrósandi, og svo halda þeir áfram að tala um Evrópubandalagið og mikilvægi þess að íslendingar bjargi framtíðinni með því að ná ■ samningum um framtíðina og Evr- ópubandalagið. Inn á milli leggja þeir á virðisaukaskatt og eigna- skatt og eignaskattsauka því þess verður að gæta að hallinn í ár verði ekki meiri en hann var í fyrra og aht er þetta afar spennandi reikn- ingsdæmi fyrir fólkið sem á að fylgjast með því hver hafi rétt fyrir sér. Úrslitin liggja fyrir næsta haust. En þá verður líka nýr halli kominn til sögunnar. Það er fiarri mér að kenna stjóm- málamönnunum um ahar ófarir og hahæri síðustu missera. Ekki stjórna þeir fiskigöngunum og ekki stjórna þeir hahabúskap fyrir- hyggjulausra fyrirtækja. Alþingis- menn og ráðherrar eru flestir sprottnir upp úr sama jarðvegi og við hin. Þeirra sök liggur í því einu að þeir vilja öllum vel. En sumariö hjá þeim er stutt eins og sumarið hjá okkur og það má enginn vera að þvi að bíða eftir Evrópubanda- laginu. Að minnsta kosti ekki þeir sem nú riða á barminum og eru að missa fiölskylduna úr höndum sér. Hvað þá þeir sem ganga með upp- sagnarbréfin í vasanum? Hallinn á heimilunum er kjósendunum ofar í huga heldur en hallinn á ríkis- sjóði. Hallinn á kompási brauð- stritsins verður ekki réttur af suö- ur í Evrópu, hversu glæstar sem þær vonir eru. Sumarið er stutt Hvað varðar mig um allan heims- ins auð ef ég á ekki brauð að borða? Hvað varðar fólkið í landinu um glæstar vonir meðan það getur ekki étið vonirnar? Hvers virði er reynslan þegar menn þurfa að deyja án þess að njóta hennar? Sumariö í lifinu er stutt og hverf- ult og ylurinn frá því endist ekki lengi meðal þjóðar sem kann ekki að nýta sér hann. Kann ekki að safna birgðum fyrir veturinn. Kann ekki að nota þann tíma sem gefst. Og fær það ekki vegna þess að kallið kemur fyrr en varir og ný kynslóð tekur ekki reynsluna í arf. Ég er hvorki samviska þjóðarinn- ar né sálfræðingur fyrir stjóm- málamenn. Ég hef bæði augu og eyru eins og aðrir og mín skilning- arvit eru þau sömu og annarra. En það get ég sagt að íslendingar eru í sálarkreppu. Þjóðin er niðurlút og svartsýn. Hún beið eftir sumr- inu sem aldrei kom og hún kvíðir haustinu sem skohið er á. íslenska þjg^in er hnípin þjóð í vanda. Líttu í lmrigum þig og sjáðu eyðilegging- una, sjáðu vonbrigðin, sjáðu sviðna jörð hins fyrirheitna lands. Ekki vegna þess að framtíðin hafi ekki verið björt heldur vegna þess að fyrirheitin eru brostin. Það spruttu ný blóm í vor en þau eru öh að visna og deyja í húmi haustsins. Þessa dimma hausts sem grúfir sig yfir landið og þjóðina og boðar lartgar vetrarnætur. Hvervill verða fyrstur? Er ekki kominn tími til að vekja íslendinga af þessum drunga? Er ekki kominn tími til að stjóm- málaforingjamir hætti að tala um framtíðina og fortíðina og snúi sér að nútíðinni? Er ekki ráð til þess að almenningur sé vakinn th þeirr- ar staöreyndar að lifa meðan hann lifir? Hætti að láta hveijum degi nægja sína þjáningu og snúi þján- ingunni upp í andhverfu sína? Mér er til efs aö skemmtilegri forsíöumynd hafi birst í þessu blaði en síðastliðinn laugardag þegar fiórburarnir voru myndaðir á eins árs afmæli sinu. Fjórir litlir hnokk- ar sem horfa saklausir og eftir- væntingarfullir til framtíðarinnar. í hnotskum sjáum við nýja kyn- slóð, ný blóm sem vonandi eiga það eftir að erfa landið. Hvernig væri að veita þeim það veganesti sem reynslan ein getur gefið þeim, reynsla okkar hinna, sú lífsreynsla að sumariö er stutt og það öðlast enginn lífshamingju sem eyðir allri ævi sinni í að bíða eftir henni. Tíminn er dýrmætur. Tími ein- stakhngs og tími þjóðar. Tannhjól- ið snýst og það snýst og þaö kemur ekki alltaf sumar eftir þetta sumar. Dánarthkynningarnar hrannast upp og það er til einskis að segja: „næst þegar við höfum tíma“. Núna er stundin og staðurinn til að rísa upp á afturlappirnar, gera gott úr vandanum og rífa þjóðina upp úr þeirri haustnepju sem nístir merg og bein. Hver vih verða fyrstur? Ellert B. Schram

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.