Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1989, Page 18
LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 1989.
rustum
unnn
„Berlínarmúrinn mun standa
næstu hundrað árin,“ sagði Erich
Honecker, leiðtogi austur-þýska
kommúnistaflokksins, fyrr á þessu
ári. Múrinn, 160 kílómetra langur og
fjögurra metra hár, stendur að vísu
ennþá en upphaflegu hlutverki hans
er lokið. Þann 18. október síðastlið-
inn fór Honecker frá völdum og Egon
Krenz tók við. Upp frá því varð at-
burðarásin í Austur-Þýskalandi
mjög hröð. Múrinn gliðnaði að lok-
um þann 9. nóvember og Berlínarbú-
ar úr austurhlutanum gengu án
hindrunar yfir í vesturhlutann.
Tahð er að rúmar tvær milljónir
hafi farið vestur yfir fyrstu tóf árin
eftir að Þýska alþýðulýðveldið var
stofnað haustið 1949. Berlínarmúr-
inn var reistur af austur-þýskum
yfirvöldum aðfaranótt sunnudagsins
13. ágúst 1961 og tók sú aðgerð afar
stuttan tíma. Á forsíðu Vísis mánu-
daginn 14. ágúst er aðalgreinin um
viðburðina í Beriín. í aðalfyrirsögn
segir: „Gaddavírsgirðing í Beriín“ og
undirfyrirsögnin er „Hætta á upp-
reisn eftir að undankomuleið er lok-
að“.
Umferð milli borgar-
hluta stöðvuð
í fréttinni er atburðarásinni síðan
lýst á eftirfarandi hátt. „Aðgerðir
þessar hófust með þvi að fjölmennt
austur-þýskt lögreglu- og herhð safn-
aðist saman við markalínuna og
stöðvaði aha umferð milh borgar-
hluta. Jafiiframt voru ferðir mihi
borgarhlutanna stöðvaðar.
Síðan hófust kommúnistar handa
um að leggja þéttriðna gaddavírs-
girðingu ahs staðar eftir markalín-
unni yfir götur og stræti. Bak við
hermennina, sem lögðu gaddavírinn,
sáust austm--þýskir eða rússneskir
skriðdrekar á ferh.“
Fréttamaður
á staðnum
Þóríteinn Thorarensen, nú bóka-
útgef&di hjá Fjölva, var á þessum
tíma ritstjóri erlendra frétta á Vísi.
Strax og atburðimir áttu sér stað fór
hann á vettvang og sendi fréttir
heim.
„Ég gerði mér fljótt grein fyrir því
að það væru vissar ástæður fyrir því
að A-Þjóðverjar þurftu að reisa þenn-
an múr,“ segir Þorsteinn. „Það er
erfitt að ætla sér að vera með sjálf-
stætt efnahagskerfi og hafa landið
opið. Sérstaklega vegna þess að
þeirra efnahags- og stjómmálakerfi
var algerlega lokað. Þegar öhum
kröftum er smalað saman með sós-
íahskum aðferðum gerist þaö að ein-
staklingsframtakið og einstaklings-
ffelsið er takmarkað.
Ástæðumar vom reyndar tvenns
konar; Fólkið að flýja vestur yfir og
þama var efnahagskerfi sem var lok-
að og stjómað með reglugerðum. Eitt
af markmiðunum var að matvæli
skyldu vera mjög ódýr og fyrirmæh
vora um að halda matarverðinu
niðri. Þetta gerði það að verkum að
V-Berhnarbúar sóttu matvæh sín
yfir til A-Berlínar. Ég hafði áður far-
ið með vinum mínum austur yfir að
kaupa daglegt brauð í það htinn poka
að þeir yrðu ekki stöðvaðir við landa-
mærin.
Hins vegar hlaut bygging múrsins
að fela í sér ósigur. Einfaldlega vegna
þess að með múmum var viðurkennt
að þetta rígbundna efnahagskerfi gat
ekki staðið sjálfstætt í samkeppni."
Múrað upp í glugga
í fyrstu var múrinn ekki voldugur,
einungis gaddavírsgirðing, og tiltölu-
lega auðvelt var að komast yfir hann.
í Vísi þann 17. ágúst er sagt frá því
að níu austur-þýskir, vopnaðir og
einkennisklæddir menn hafi farið
yfir múrinn um nóttina. Þeir afhentu
skammbyssur sínar og og báðu um
hæh sem póhtískir flóttamenn.
Næstu vikur og mánuði var unnið
að styrkingu múrsins með steypu-
veggjum, skriðdrekagryfjum og raf-
magnshindrunum. Þann 21. ágúst
segir Vísir frá því að byijað sé að
múra upp í aha glugga á húsum sem
snera í vestur. Á fyrstu dögunum
eftir að múrinn reis komust margir
A-Þjóðveijar yfir til V-Berlínar. Þor-
steinn hitti nokkra þeirra og segir frá
því í greinum sínum:
„Mér er minnisstæð ein fjölskylda
sem kom vestur yfir og var með hjól-
ið sitt og bamið á bögglaberanum.
Þau bratust í gegn eftir að byrjað var
að múra upp í glugga á húsum við
girðinguna. Aht í einu varð þessi
mikh ys og hópur af fólki vestan
megin kom þeim til hjálpar og tók
það inn í hópinn þegar hermennimir
ætluðu að stöðva flóttann."
í Vísi þann 14. ágúst er sagt frá
Finmir þú fimm breytingai? 29
Mér þykir leiðinlegt að tllkynna þér að vlð kvefi elgum vlð ekkert ráð... Nafn:--------
Heimllisfang:
Myndimar tvær virðast
við fyrstu sýn eins en þegar
betur er að gáð kemur í ljós
að á myndinni til hægri hef-
ur fimm atriðum verið
breytt. Finnir þú þessi fimm
atriði skaltu merkja við þau
með krossi á hægri mynd-
inni og senda okkur hana
ásamt nafni þínu og heimil-
isfangi. Að tveimur vikum
liðnum birtum við nöfn sig-
urvegara.
1. Elta stereoferðatæki með
tvöföldu segulbandi að verð-
mæti kr. 8.900,-
1. Elta útvarpsklukka að
verömæti 3.500,-
Vinningarnir eru úr Opus,
Skipholti 7, Reykjavík.
Merkið umslagið með
lausninni:
Finnur þú fimm breytingar? 29
c/o DV, pósthólf 5380,
125 ReyKjavík
Sigurvegarar fyrir tuttug-
ustu og sjöundu getraun
reyndust vera:
1. Sigrún Halldórsdóttir,
Pólgötu 8,400 ísafirðl
2. Magnús Kristinsson,
Gránufélagsgötu 41,600 Akureyri.
Vinningamir veröa sendir
heim.