Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1989, Síða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1989, Síða 21
21 wia-Mavo/ .í.i fluo/.ua/.ojaj LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 1989. I>V Kvikmyndir Eftir nokkurra ára lægö, sem náöi hámarki í hinni mislukkuðu stórmynd Hugh Hudson, Revolution, er A1 Pacino aftur í toppformi í erótísku sakamálamyndinni Sea of Love. Þar er hann á kunnuglegum slóðum í hlutverki rann- sóknarlögreglu í New York. Sea of Love er svo sannarlega sú kvikmynd sem vakiö hefur mesta athygli í Banda- ríkjunum á haust- mánuöunum og er ein mest sótta kvikmynd ársins. Leikur A1 Pacino reyndan lögreglumann, Al Pacino og Ellen Barkin ná upp góðum samleik i Sea of Love. Kvikmyndir Hilmar Karlsson The Black Marple, og aftur var það James Woods er lék aðalhlutverk- ið. Þá má nefna dramatísku kvik- myndina Taps, er gerist í herskóla, með þeim George C. Scott og Timot- hy Hutton í aðalhlutverkum. Síðasta kvikmynd hans áður en hann leikstýrði Sea of Love var The Boost sem nýlega var sýnd í Laug- arásbíói. Enn einu sinni lék James Woods aðalhlutverkið hjá honum. A1 Pacino A1 Pacino hefur fimm sinnum fengið tilnefningar til óskarsverð- launa, fyrir The Godfather, Serpico, The Godfather, part II, Dog Day Afternoon og ...And Justice For All. Ekki hefur hann enn hlot- ið ver ðlaunin en nú gæti hans tími veriö kominn því það má mikið vera ef hann fær ekki tilnefningu fyrir leik sinn í Sea of Lové. Pacino hefur ávallt verið bestur í hlut- verkum lögreglu að undanskildum Godfather myndunum þar sem hann lék yngsta son mafíuforingj- ans Corlioni. A1 Pacino er eins og Harold Bec- ker fæddur og uppalinn í New York. Hann fæddist 25. apríl 1940. Hann er ítalskrar ættar. Forfeður hans komu frá Sikiley. Ekki er hægt að segja að hann hafi átt auðvelda æsku. Hann ólst upp í Suður Bronx og þegar hánn var ungur lét fjölskyldufaðirinn sig hverfa. Hann sýndi lítinn áhuga á námi og hætti í skóla sautján ára gamall. í skólanum hafði hann sýnt hæfileika sem leikari og var hann hvattur af kennurum sem og fjöl- skyldu sinni aö reyna fyrir sér á sviði. Hann byrjaði feril' sinni í litlum leikhösum fjarri Broadway. 1966 var hann samþykktur af sjálfum Lee Strasberg í Actors Studio. Þar hlaut hann sína fyrstu þjálfun og var fljótlega kominn í fararbrodd þeirra sem þar námu. 1968 hlaut hann Obie verðlaunin fyrir leik sinn í The Indian Wants the Bronx, eftir Israel Horovitz, og hann hlaut Tony verðlaunin 1968 fyrir leik sinn í Does the Tiger Wear a Necktie og einnig Theatre World Awards fyrir sama hlutverk. Sama ár var hann kosinn efnilegasti leik- arinn á Broadway af leikhúsgagn- rýnendum. Nú fóru kvikmyndatilboðin að koma. Hans fyrsta hlutverk í kvik- mynd var lítið hlutverk í Me Na- talie. Næsta hlutverk hans var að- alhlutverkið í The Panic in Needle Park sem er einhver allra besta kvikmynd um unga eiturlyfjaneyt- endur. Þá kom The Godfather og neims- frægð um leið. Eftir Godfather kaus Pacino samt að fara aftur upp á leiksviðið og lék í The Basic Train- ing of Pavlo Hummel og fékk sín önnur Tony verðlaun fyrir leik sinn í þvi leikriti. Næsta kvikmynd hans var Scarecrow sem vann verðlaun sem besta kvikmynd á kvikmyndahá- tíðinni í Cannes 1973. Aftur lá leið hans í leikhúsið, nú var það Sha- kespeare, titilhlutverkið í Ríkharð- ur III. Þrátt fyrir velgengni í kvikmynd- um hefur A1 Pacino leikið mikið á sviði og unnið þar mikil afrek. Má þar nefna leikritin The Resistible Rise of Erturo Ui éftir David Ma- met. Lék hann í þessu leikriti bæði á Broadway og London, The Connection, Hello Out There, Tiger at the Gates og nú síðasta í Julius Caesar eftir Shakespeare. Þá fylgdu í kjölfarið á The God- father nokkrar góðar kvikmyndir. Áður hafa veriö nefndar þær sem hann fékk óskarstilnefningar fyrir. Aðrar eftirminnilegar eru Cruis- ing, Bobby Deerfield, Author, Aut- hor og Scarface. Þótt ferill A1 Pacino í kvikmynd- um sé orðinn tuttugu ár hefur hann ekki leikið nema í fimmtán kvik- myndum og síðustu þrjú árin hefur hann haldið sig alveg frá kvik- myndum en kemur nú fram á sjón- arsviðið í Sea of Love sterkari en nokkru sinni fyrr. Laugarasbíó mun taka Sea of Love til sýningar fljótt upp úr áramótum. -HK í toppformi Harold Becker er leikstjórl Sea of Love. Frank Keller, sem hefur aðeins eina stefnu í líflnu, vinnuna. Þegar myndin hefst er hann að fá viðurkenningu fyrir tuttugu ára starfsaldur. Um leið er morðingi á kreiki í New York sem notar einka- málaauglýsingar dagblaðanna til að verða sér úti um fómarlömb. Morðinginn, sem er kona, nýtir sér þá sem auglýsa eftir bólfélaga og drepur þá þegar hæst stendur. Til að nálgast morðingjann setur Keller sams konar auglýsingu í dagblað og hefur laðað morðingj- ann. Hann og félagi hans skiptast á um aö hitta konurnar sem svara auglýsingunni. Starfið fer að vefj- ast fyrir Keller þegar hann verður ástfangin af einni þeirra og það er einmitt sú sem hann grunar um morðin... Það er auövelt að skilja vinsældir Sea of Love. Myndin er æsispenn- andi um leið og hún er erótísk. Nafn myndarinnar er tilkomið vegna þess að þegar eitt fórnar- lambið finnst er á fóninum gamli slagarinn Sea of Love í uppruna- legri útgáfu og er lagið rauður þráður í gegnum myndina. Sea of Love hefur yfirleitt fengið frábæra dóma gagnrýnenda og er talin til mikilla afreka við næstu óskars- verðlaunaafhendingu. Hinar miklu vinsældir myndar- innar em ekki síst A1 Pacino aö þakka sem er í toppformi í hlut- verki lögreglunnar sem þekkir öll brögð glæpamanna en veit varla í hvorn fótinnhann á að stíga þegar kemur að einkamálunum. Verður lögreglumaðurinn Frank Keller einstaklega lifandi í meö- förum hans. Þá er leikur Ellen Barkin í góðu mótvægi viö A1 Pac- ino og hefur þessi leikkona sjálf- sagt aldrei gert betur. Hún nær auðveldlega að sýna hinn mikla kynþokka sem persónan er gædd. Harold Becker Leikstjóri Sea of Love er Harold Becker. Hann hefur átt það til að misstíga sig á ferli sínum sem stafar kannski helst að því að hann er afkastamikill. Hann er innfædd- ur New Yorkbúi sem byijaði feril sinn sem hönnuður og ljósmynd- ari. Leiddi það til að hann fór að stjórna auglýsingum og stuttum viðtalsmyndum fyrir sjónvarp. Ein þessara stuttu mynda Ivanhoe Donaldson hlaut gullverðlaun á kvikmyndahátíð í Mannheim og Sighet töldu ísraelsmenn bestu sögulegu myndina eitt árið. Fyrir sína fyrstu leiknu kvik- mynd valdi Becker ástarsögu Allan SilUtoe, The Ragman’s Daughter. Þetta var 1972. Hann tók þá kvik- mynd í Englandi og hlaut hún ágætar viðtökur gagnrýnenda þótt ekki væri aðsókn mikil. Það var svo ekki fyrr en 1979 að hjólin fóru að snúast af alvöru fyr- ir Harold Becker er hann valdi skáldsögu Joseph Wambaugh, The Onion Field, fyrir sína næstu kvik- mynd. í aðalhlutverkum voru Ja- mes Woods, John Savage og Ted Danson. Var kvikmyndinni vel tekið af gagnrýnendum sem og áhorfend- um. Fljótlega gerði Becker aðra kvikmynd eftir sögu Wambaugh, Sea of Love: A1 Pacino

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.