Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1989, Síða 29
41
LAUGAKDAGUR 18. NÓVEMBER 1989.
Margrét Sigurðardóttir,
Víðivallagerði, Pljótsdalshreppi.
Vilhjálmur Sigfússon,
Sundabúð 2, Vopnafiröi.
Jón Ingibjartsson,
Miðtúni3,Keflavík.
Blómey Stefánsdóttir,
Hitaveituvegi 2, ReyKjavÍk.
Jónína Gísiadóttir,
Óðinsgötu 9, Reykjavík.
Marta Magnúsdóttir,
Austurbrún 6, Reykjavík.
Helga Bjarnadóttir,
Beinárgerði, Vallahreppi.
Hörður Viktor Jóhannsson,
Kastalagerði 8, Kópavogi.
Sigurjón Heigason,
Stóra-Langadal, Skógarstrandar-
hreppi.
Hulda AAalsteinsdóttir,
Litluhlíð 4G, Akureyri.
í var Baldvinsson,;;'
Skálhoiti9, Ólafsvík. ;
Kar) Vignir Dyrving,
Ásklifi 4, Stykkishólmi.
40ára
: ArnarH.Guðjónsson,
Hlíðarvegi 30, Kópavogi.
Bára Reynisdóttir,
Kvíabala 6, Drangsnesi.
Gróa Björg Jónsdóttir,
Hábergi 3, Reykjavík.
Guðinundur Franklín Jónsson,
Gljúfraseii8, Reykjavík.
Uggi Þórður Agnarsson,
Frostaskjóli 19, Reykjavík.
Tilmæli til
afmælisbarna
Blaðið hveturafmælis-
börn og aðstandendur
þeirratilaðsenda því
myndirog upplýsingar
um frændgarð og starfs-
sögu þeirra.
Þessarupplýsingar
þurfa að berast í síðasta
lagi þremur dögum fyrir
afmælið.
Munið að
senda okkur
myndir.
Afmæli
Halldór Þormar Jónsson
Halldór Þormar Jónsson, bæjar-
fógeti og sýslumaður á Sauðár-
króki, Víðigrund 5, Sauðárkróki,
verður sextugur á morgun.
Halldór fæddist á Mel í Staða-
hreppi í Skagafirði. Hann lauk stúd-
entsprófi frá MA1950 og lauk emb-
ættisprófi í lögfræði frá HÍ1957.
Halldór var fulltrúi á framfærslu-
skrifstofu Reykjavíkurborgar 1957,
var framkvæmdastjóri fyrirtækja
Sigurðar Ágústssonar í Stykkis-
hólmi frá 1957-60, framkvæmda-
stjóri Fiskvers Sauðárkróks hf.,
Skagfirðings hf. og Hervarar hf. frá
1960-62 og Verslunarfélags Skag-
firðinga á Sauðárkróki 1961-64 en
jafnhliöa þessum störfúm stundaði
hann lögfræðistörf. Halldór var full-
trúi sýslumanns í Skagafjarðar-
sýslu og bæjarfógetans á Sauðár-
króki 1964-80. Hann var settur bæj-
arfógeti á Siglufiröi 1967-77 og skip-
aður þar 1980-82. Þá var hann skip-
aður sýslumaður í Skagafjarðar-
sýslu og bæjarfógeti á Sauðárkróki
frá 1.11.1982.
Á háskólaárunum sat Halldór í
stjórn Vöku, félags lýðræðissinn-
aðra stúdenta, og í stjórn Orators,
félags laganema. Hann var vara-
formaður Heimdallar 1953-54, for-
maður Félags ungra sjálfstæðis-
manna í Snæfellsnes- og Hnappa-
dalssýslu 1958-60, formaður Utvegs-
mannafélags Stykkishólms 1958-60,
í stjórn Amtbókasafnsins í Stykkis-
hólmi 1958-60, endurskoðandi Sauð-
árkrókskaupstaðar 1962-70, í niður-
jöfnunarnefnd, síðar framtalsnefnd
á Sauðárkróki 1962-66 og 1970-78, í
sfjóm verkamannabústaða á Sauð-
árkróki 1970-76 og fleiri nefndum á
vegum kaupstaðarins. Halldór var
formaður Sjálfstæðisfélags Sauðár-
króks 1969-70, var bæjarfuUtrúi fyr-
ir Sjálfstæðisflokkinn á Sauðár-
króki 1970-78, forseti bæjarstjómar
1970-74 og í bæjarráöi 1972-78. Hann
var oddviti kjörstjórnar Sauðár-
króks 1962-70, umboðsmaður skatt-
stjóra á Sauðárkróki 1966-74, vara-
þingmaður Sjálfstæðisflokksins í
Halldór Þormar Jónsson.
Norðurlandskjördæmi vestra
1970-74 og sat á þingi 1972. Hann er
formaður yfirkjörsljómar Norður-
landskjördæmis vestra frá 1983.
Halldór kvæntist 11.10.1953 Aðal-
heiði Benediktu Ormsdóttur hús-
freyju, f. 30.5.1933, en foreldrar
hennar vom Ormur Hafsteinn
Samúelsson, hreppstjóriog verslun-
armaður á Hólmavík, og ráðskona
hans, Jóhanna Daníelsdóttir.
Böm HaUdórs og Aðalheiðar em
HannaBjörg, f. 29.12.1952, sjúkrahði
á Sauðárkróki; Jón Ormur, f. 5.3.
1954, fyrrv. aðstoðarmaður forsætis-
ráðherra, magister í stjórnmála-
fræði, við framhaldsnám í Bretlandi
ogí SÁ-Asíu; Ingibjörg, f. 28.4.1958,
læknaritari á Siglufirði, og Halldór
Þormar, f. 7.5.1964, nemi við HÍ.
Bróöir Halldórs var Magnús, al-
þingismaður, ráðherra og vara-
formaður Sjálfstæðisflokksins.
Foreldrar Halldórs: Jón Eyþór
Jónasson, b. að Torfmýri í Blöndu-
hlíð í Akrahreppi og síðar aö Mel í
Staðarhreppi, f. 12.2.1893, d. 22.4.
1982, og Ingibjörg Magnúsdóttir
húsfreyja, f. 22.8.1894, d. 3.7.1979.
Bróðir Jóns var Einar, hreppstjóri
og oddviti aö Laugalandi á Þela-
mörk. Jón var sonur Jónasar, b. í
Stóragerði í Hörgárdal, bróður Ein-
ar, foður Steingríms Eyfjörð læknis
og afa Snorra Snorrasonar læknis.
Jónas var sonur Jóns, b. á Barká,
bróður Einars, hreppstjóra aö
Laugalandi, langafa Einars Olgeirs-
sonar. Einar var einnig afi Sigur-
bjargar, móður Áma, bæjargjald-
kera á Siglufirði, og afi Guðrúnar,
ömmu Ara eðlisfræðings, Áslaugar
fræðslustjóra í Reykjavík og Sigurð-
ar Óla bæjarfulltrúa á Akureyri,
Brynjólfsbama. Systir Jóns á Barká
var Bergþóra, móðir Guðrúnar,
langömmu Jóhannesar Elíassonar
bankastjóra.
Jón var sonur Ólafs, b. á Gih í
Skriðuhreppi, Einarssonar, b. í Dag-
verðartungu, Einarssonar, b. á
Syðri-Bægisá, HaUdórssonar, prests
á Ytri-Bægisá, Þorlákssonar, prests
á Auðkúlu. Móðir Ólafs var Berg-
þóra Einarsdóttir, b. í Dagverðar-
tungu, Jónssonar, b. á Laugalandi,
Galdra- Jónssonar í Skógum, Illuga-
sonar. Móðir Jóns á Barká var Þur-
íður Eiríksdóttir, b. á Reistará, Ein-
arssonar. Móðir Jónasar var Þórey
Gísladóttir, systir Myrkár-Helgu.
Móðir Jóns Eyþórs var Gúðrún Jó-
hannesdóttir, b. á Geldingatá, Guð-
mundssonar.
Bróðir Ingibjargar, móður Hall-
dórs, var Hannes, skólastjóri á Ak-
ureyri. Ingibjörg var dóttir Magnús-
ar, b. á Torfmýri, bróður Sigríðar í
Djúpadal, móðurömmu Sigurgeirs,
bæjarstjóra á Seltjamamesi. Magn-
ús var sonur Hannesar, b. í Axlar-
haga, Þorlákssonar, b. á Ystu-
Grund, Jónssonar, b. á Hóh í Tungu-
sveit, Magnússonar. Móðir Þorláks
var Guðrún, hálfsystir Gísla Kon-
ráðssonar sagnfraeðings, fóður Kon-
ráðs Fjölnismanns. Móðir Hannesar
var Sigríður, afasystir Elínborgar
Lámsdóttur. Sigríður var dóttir
Hannesar, prests og skálds á Ríþ,
bróður Eiríks, prest á Staðarbakka,
langafa Páls Eiríkssonar, afa Ron-
aldsReagan.
Móðir Magnúsar á Torfmýri var
Ingibjörg Þorleifsdóttir, b. á Botna-
stöðum í Svartárdal, bróður Ingi-
bjargar Salome, móður Þorleifs, al-
þingismanns og póstmeistara í
Reykjavík, foöur Jóns Leifs tón-
skálds. Ingibjörg Salome var amma
Jóns alþingisforseta, foður Pálma,
alþingismanns á Akri. Önnur systir
Þorleifs var Ingigerður, langamma
Jóhönnu, ömmu Páls Ásgeirs sendi-
herra, fööur Tryggva, bankastjóra
íslandsbanka. Þorleifur var sonur
Þorleifs „ríka“, hreppstjóra í Stóra-
dal, Þorkelssonar, og Ingibjargar,
langömmu Kristjáns, föður Jónasar
læknis, afa Jónasar, ritstjóra DV.
Systir Ingibjargar var Ingiríður,
amma Sigríðar, ömmu Matthíasar
Bjamasonar alþingismanns. Ingi-
björgvar dóttir Guðmundar „ríka“
í Stóradal, Jónssonar, b. á Skegg-
stöðum, ættföður Skeggstaðaættar-
innar, Jónssonar.
Móðir Ingibjargar í Axlarhaga var
Ingibjörg, systir Einars, fööur Ind-
riða rithöfundar. Ingibjörg var dótt-
ir Magnúsar, prests í Glaumbæ,
Magnússonar og Sigríðar, systur
Benedikts, langafa Einars Bene-
diktssonar skálds og Bjargar,
langömmu Sigurðar Nordal. Sigríð-
ur var dóttir Halldórs Vídalín.
Móðir Ingibjargar á Torfmýri var
Jakobína Gísladóttir, hreppstjóra að
Heijólfsstöðum, Jónssonar, b. á
FjaÚi í Kolbeinsdal, Pálssonar. Móð-
ir Jakobínu var Ragnheiður, systir
Ingibjargar, móður Jóns alþingis-
forseta á Akri, föður Pálma alþingis-
manns. Ragnheiður var dóttir Egg-
erts, b. á Skefilsstöðum, Þorvalds-
sonar, b. á Skefilsstöðum, Gunnars-
sonar, b. á Skíðastöðum, ættföður
Skíðastaðaættarinnar, Guðmunds-
sonar, bróður Ara, langafa Magnús-
ar, langafa Eyjólfs Konráðs Jóns-
sonar. Móðir Ragnheiðar var Ragn-
heiður, dóttir Jóns, hreppstjóra á
Sjávárborg, Rögnvaldssonar og
Ragnheiðar Þorfinnsdóttur.
Urval
Tímarit fyrir alla
Nú er veðrið
til að lesa Urvál
Þetta er adeins sýnishom af því sem er að lesa í Urvali núna.
Náðu þér í heftí strax á næsta blaðsólustað.
Askriftarsíminn er
27022
Engin leiö var að gera sér í
hugarlund í upphafi hve lengi
tundurspiliir myndi endast. En
skip fá sum það orð á sig að
vera lukkuskip og það er eíns
og þetta orð rætist gjarnan.
Þannig fór fyrir USS Mullany.
Hann stóð ekki bara af sér
striðið, jafnvel þó að japönsk
sjálfsmorðsflugvél skylli á hon-
um, heldur er hann enn i gangi
og sinnir eftirliti á Formósu-
sundi.
SKIPIÐ SEM STÓÐST TÍMANS
TÖNN
Snjómaðurinn ógurlegi er ráð-
gáta enn í dag. Samt hefur fólk
alltaf af og til veríð að hitta
hann - meira eða minna. Á
þeim tíma sem greíðast hefði
verið að finna að minnsta kosti
sannanlegar vistarverur hans
var Rauði herinn of önnum
kafinn við önnur verkefni.
SNJÓMAÐURINN FORÐAST
FÓLK